Eintak - 10.03.1994, Qupperneq 28
I bresku kvikmyndinni I nafni föðurins er fjallað um ótrúlegt réttarmorð sem framið er á fjórum ungmennum
og nokkrum fjölskyldumeðlimum eins þeirra um miðjan áttunda áratuginn. Þá voru þau saklaus dæmd fyrir
hryllilegt hryðjuverk í nafni írska lýðveldishersins. Fimmtán árum síðar kom sannleikurinn í Ijós og þeim
sleppt úr haldi. Islenskir bíógestir, sem komnir voru til vits og ára á þessum tíma, hafa margir hverjir þóst
sjá ákveðna samsvörun milli málsmeðferðarinnar, sem til umfjöllunar er í þessari kvikmynd, og rannsóknar-
innar og dómsniðurstöðunnar í Geirfinns- og Guðmundarmálunum svokölluðu sem komu upp hér á landi á
svipuðum tíma. Styrmir Guðlaugsson rifjaði upp meðferð Geirfinns- og Guðmundarmálanna hjá lögreglu
og dómstólum og bar hana saman við málsmeðferðina í Guildfordmálinu. Þá fékk hann verjendur, sakborn-
inga og fleiri sem tengjast þeim á einn eða annan hátt til að gera sinn eigin samanburð.
Voru fimmmenningarnir, sem sakfelldir voru í Geirfinns- og Guðmundarmálunum, saklausir
eins og kom í Ijós með fjórmenningana sem kenndir eru við Guildford-málið í Bretlandi?
Rannsókn og dómsmeðferð
Geirfinns- og Guðmundarmálanna
svokölluðu sætti mikilli gagnrýni á
seinni hluta áttunda áratugarins. Þá
voru kveðnir upp þyngstu dómar í
sakamáli á íslandi frá því dauða-
refsing var afnumin. Ákæruvaldið
hafði fátt annað í höndunum en
játningar fimm ungmenna sem
drógu þær jafnframt til baka fyrir
dómi, öll nema eitt, á þeim for-
sendum að þau hefðu verið þving-
uð til að játa á sig tvö morð sem
þau hefðu aldrei framið. Sexmenn-
ingarnir hafa fyrir alllöngu lokið af-
plánun sinni en margir eru þó enn
þeirrar skoðunar að þessi mál séu
með öllu óupplýst. Þær vangaveltur
hafa enn á ný skotið upp kollinum í
kjölfarið á sýningum bresku kvik-
myndarinnar í nafni föðurins eða
In the Name of the Father.
Saklausir í fangelsi
/ fimmtán ár
í upphafi er rétt að rekja Guild-
ford-málið í stórum dráttum fyrir
þá lesendur sem ekki hafa séð kvik-
mynd breska leikstjórans Jims
Sheridan, I nafni föðurins, eða les-
ið bók Gerry Conlons, sem sak-
felldur var sem forsprakki fjölda-
morðanna í Guildford, og myndin
er byggð á.
Tveir norður-írskir unglingspilt-
ar, Gerry og Paul Hill, sem voru á
góðri leið með að fara í hundana í
heimaborg sinni Belfast, halda til
London til að freista gæfunnar
sumarið 1974. Þar komast þeir inn í
kommúnu með nokkrum jafnöldr-
um sínunr en eru nánast gerðir út-
lægir vegna uppruna síns í kjölfar
sprenginga írska lýðveldishersins í
borginni. Þeir ienda á vergangi og
eyða fyrstu nóttunni í almennings-
garði í borginni og deila þar bekk
með öldruðum og heimililausum
landa sínum að nafni Charlie
Barker. Það kvöld fremur Irski
Iýðveldisherinn fjöldamorð í smá-
bænum Guildford í nágrenni
London með því að sprengja í loft
upp krá sem fjölsótt var af breskum
hermönnum. Fimm manns létu líf-
ið og sjötíu og fimm til viðbótar
særðust, sumir mjög alvarlega.
Mikil geðshræring greip um sig
Feðgarnir Gerry og Guis-
EPPE CONLON.
Sakaruppgjöfin kom of seint
fyrir föðurinn sem lést í fangelsi.
daginn effir. Einn félaga þeirra úr
kommúnunni tjáði lögreglunni
þær grunsemdir sínar að þeir væru
viðriðnir málið, auk tveggja ann-
arra kommúnufélaga, Irans Pad-
dys Armstrong og bresku stúlk-
unnar Caroles Richardson. Það
vakti grunsemdir að þeir voru með
fullar hendur fjár og fóru heim til
írlands svo skömmu eftir spreng-
inguna. Þeir voru því handteknir,
yfírheyrðir dag og nótt og beittir
Gerry Conlon
lýsti yfir sakleysi sínu fyrir rétti
og sagði játningar hafa verið
þvingaðar fram með harðræði.
Þvísama héldu sakborningar í
Geirfinnsmálinu fram.
meðal þjóðarinnar og almenningur
jafnt og stjórnvöld gerði þá ský-
lausu kröfu til lögreglunnar að hin-
ir seku yrðu dregnir fyrir dóm hið
snarasta, enda var litið svo á að
þetta væri alvarlegasta árás á
breskri grundu frá lokum síðari
heimsstyrjaldarinnar.
Hina örlagaríku nótt brutust
Gerry og Paul inn hjá vændiskonu
og stálu 700 pundum. I framhaldi
af því létu þeir fara vel um sig á hót-
eli og sneru svo aftur til Irlands
Stund Frelsisins.
Daniel Day Lewis íhlutverki Gerrys Conlon í kvikmyndinni í nafni
föðurins fagnar frelsinu eftirað hafa setið saklaus í fangelsi í 15 ár.
Geirfinnsmálið hefur rifjast upp fyrir mörgum bíógestinum sem séð
hefur myndina.
margvíslegu harðræði uns þeir ját-
uðu á sig sakir.
Tveimur dögum áður en þeir
voru handteknir voru samþykkt lög
í Bretlandi sem heimiluðu lögregl-
unni að halda grunuðum hryðju-
verkamönnum í sinni vörslu í allt
að sjö daga án þess að birta þeim
ákæru.
Rannsóknarmennirnir sam-
ræmdu svo játningarnar með því
að upplýsa sakborningana um
framburð hvors annars. Þeir féllust
jafnharðan á það senr borið var á
borð fyrir þá, vissir um að hið
sanna kæmi í ljós ef þeir slyppu úr
víti varðhaldsins. Faðir Gerrys, Gu-
iseppe Conlon, fór til London til
að útvega syni sínurn lögfræðiað-
stoð og gisti hjá mágkonu sinni,
Annie McGuire. Lögreglan hand-
tók þau og unglingssyni Annie og
þau voru ákærð sem vitorðsmenn í
sprengjuárásinni samkvæmt játn-
ingu sem Gerry skrifaði undir.
Dómstólar í Bretlandi höfðu ekki
á neinu öðru að byggja en játning-
um fjórmenninganna sem þeir
drógu til baka fyrir rétti og fullyrtu
að þær hefðu verið þvingaðar fram
með harðræði. Urvalslögreglu-
menn voru teknir trúanlegri en
írskir smákrimmar og dómurinn
yfir fjórmenningunum hljóðaði
upp á lífstíðarfangelsi en aðrir sak-
borningar fengu skemmri dóma.
Faðir Gerrys lést í fangelsi og hið
sanna kom ekki í ljós fyrr en fimm-
tán árurn síðar þegar lögfræðingur-
inn Gareth Peirce komst yfir
gögn sem sýndu að lögreglan hafði
leynt vitnisburði Charlies Barker
sem staðfesti að Gerry og Paul
höfðu verið með honurn á bekk í
almenningsgarði í London þegar
sprengingin varð. I ljósi þess var
öllum sakborningum sleppt úr
haldi, sem höfðu ekki þegar setið
dóminn af sér eða látist eins og Gu-
iseppe. Vitnisburður Gísla Guð-
jónssonar, réttarsálfræðings, sem
starfar í Bretlandi, og kollega hans
hafði líka sitt að segja. Þeir sýndu
fram á að fólk ætti það til að játa á
sig hinar ólíklegustu sakir ef næg-
um þrýstingi væri beitt.
Svipað mál, kennt við sexmenn-
ingana frá Birmingham, kom einn-
ig upp í Bretlandi fyrir fáum árum.
Þeim var sleppt úr haldi eftir að
hafa setið saklausir í fangelsi enn
lengur.
Víkur þá sögunni að Geirfinns-
og Guðmundarmálunum.
Dómar í Ceirfinns- og
Cuðmundarmálunum
byggðir á vafasömum
jatnmgum
Aðfaranótt 27. janúar 1974 hvarf
ungur piltur, Guðmundur Einars-
son, sporlaust eftir að hafa verið að
skemmta sér í Hafnarfirði og kom
upp sá kvittur að honum hefði ver-
ið komið fýrir. I desember sama ár
komst upp um póstsvik Sævars
28
FIMMTUDAGUR 10. MARS 1994