Eintak - 10.03.1994, Blaðsíða 39
r
Fegursti
staður
Jarðar
Sigurður Valgeirsson
rítstjó'ri Dagsljóss
Skaftafell
„Ég er lítill útivistarmaöur og fór í
Skaftafell í fyrsta sinn í fyrra. Ég fer
með fjölskyldunni í útilegur, mest af j
skyldurækni en börnin eru fjögur. Ég
geng þá með það yngsta á bakinu og
í Skaftafelli var óg svo uppnuminn að
ég gleymdi byrðinni."
Edda Andrésdóttir
fréttamaður
Vestmannaeyjar
„Ég ólst að hálfu leyti upp í Eyjum og
á svo fallegar bernskuminningar það-
an. Þessar minningar tengjast mest
austasta hluta svæðisins sem nú er |
hulinn hrauni."
Bera Nordal
forstöðumaður Listasafns íslands
Kínamúrínn
„Að koma að Kínamúrnum er einhver |
sú stórkostlegasta reynsla sem ég
hef órðið fyrir. Það er staður sem
svíkur engan og er óviðjafnanlegur |
minnisvarði um mannlega reisn.“
Móeiður Júníusdóttir
söngkona
Flatey á Breiðafirði
„Ég held mikið upp á Flatey og hef I
komið þangað þrisvar. Einu sinni
dvaldi ég þar í tvær vikur en það er |
erfitt að lýsa fegurð staðarins sér-
staklega. Það tengist meira tilfinningu
fyrir eilífðinni í andrúmsloftinu á eyj-
Ari Trausti Guðmundsson
stjörnufræðingur
Fjall í BóUvíu
sem heitir lllimani
„Ég gisti þar á stað sem kallast Kon-
dórahreiðrið, en það er flatur partur á |
hrygg og þar reistum við tjaldbúðir.
Þegar morgusólin var að koma upp I
fannst mér þetta sem snöggvast vera j
fallegasti staður á jarðríki, þó ég hafi
örugglega séð einhverja fallegri staði
síðan."
Páll Stefánsson
Ijósmyndarí
Langanes
„Þar heyrir maður í þögninni og sér |
miklu lengra en annars staðar.“
Andri Ingólfsson
ferðamálafrömuður
Tulum í Mexíkó
„Sólarlagið á þessum forna helgistað |
Maya sem liggur við strönd Karab-
ískahafsins er óviðjafnanlegt. Þar |
stendur gömul helgibygging á kletta-
snös út í hafið og sitt hvorum megin
eru einhverjar fegurstu strendur sem
maður hefur séð. Sjórinn er kristaltær |
og mikill gróður allt um kring."
© Magnús Skurphéðinsson íflokk með Reagan, Thatcher, Major ogjafnvel Baldri Hermannssyni
© Olympískir hnefaleikar allt annað en atvinnuhnefaleikar
Jónas Kristjánsson
forstöðumaður Árnastofnunar
Akropólishæð
„Ég var að þýða bókina Grikkland hið
forna og bera saman staðhætti við
lýsingar í bókinni. Þegar tungl var fullt
var siður að hafa opið upp á hæðina |
og ég bætti inn í þýðinguna, án þess
að geta þess sérstaklega, tilfinninga-
lega ríkri lífsreynslu, eftir að hafa séð
hofin í tunglsljósinu. Þá var líkt og
skemmdir tímans væru horfnar og
maður gat horft á byggingarnar í allri
sinni dýrð.“
Hilmar Örn Hilmarsson
tóniistarmaður
Fríhöfnin á
Keflavíkurflugvelli
„Eftir að hafa verið úti í meira en tvo
daga verð óg sjúkur af heimþrá og
léttir því mikið þegar ég kemst að
ferðalokum í fríhöfnina á Keflavíkur-
flugvelli."
Callie McDonald
eróbikkennarí
Norðanverður
hluti Lúxemborgar
„Endurminningin um skógi vakið |
svæði við þýsku landamærin í Lúx-
emborg kemur fyrst upp í hugann.
Þarna var mikið af háum og fallegum
trjám, og allur gróður í miklum blóma.
Svo var ég ástfangin upþ fyrir haus
þannig að Grand Canyon og aðrir |
stórkostlegir staðir mega sín ekki
mikils í samanburði við minninguna j
um þetta skógi vaxna svæði."
fið sögðum frá því I
síðasta EINTAKI að
Magnús Skarp-
HÉÐINSSON hygði á málaferli við
tímaritið Núllið vegna heimildar-
lausrar notkunar á mynd af honum
í auglýsingu á hvalkjöti fyrir veit-
ingastaðinn Þrjá Frakka. Núllarar
munu hafa rannsakað lagalega
hlið málsins áður en þeir birtu
auglýsinguna en hugmyndinni að
henni var stolið úr tímaritinu Face
sem hefur birt svipaðar auglýsing-
ar með George Bush, Möggu
Thatcher, og John Major.
Eina lagalega spurningin, sam-
kvæmt enskum lögum altént, er
hvort viðkomandi sé opinber per-
sóna eða ekki en þá er birtingin í
lagi. Heyrst hefur að í næsta Núlli
muni mynd af Baldri Her-
MANNSSYNI birtast með auglýs-
ingu á íslenskum landbúnaðaraf-
urðum...
Gallery
Sport opn-1
ar nýja lík-
amsræktarstöð aðf
Faxafeni 12 um
helgina. Mest
áhersla verður
lögð á eróbikk og
mun nýbakaður
evrópumeistari
Magnús Sche-
ving vera meðal kennara. Undan-
farin tvö ár hefur einnig verið
kennt karate og ólympískir hnefa-
leikar í stöðinni og í nýja húnæð-
inu verður tekinn í notkun nýr og
glæsilegur hnefaleikahringur. SlG-
URJÓN GuNNSTEINSSON for-
stöðumaður, segir að meðal ann-
ars fyrir sína atbeina hafi Krist-
INN GUNNARSSON og INGI BjÖRN
Albertsson flutt frumvarp um
málið og það sé nú í athugun hjá
menntamálanefnd. „Þegar hnefa-
Líflegar árshátíðir
hjá háskólanemum
GísliMarteinn Baldursson, sjónvarpsþáttastjómandi, kærðurfyrir
líkamsárás afsamnemanda sínum.
Það var ansi líflegt á árshátíðum hjá nemendum og kennurum Háskólans um síðustu
helgi. A fostudagskvöld fór árshátíð guðfræðinema fram í sal Lögreglufélagsins og
Ja9jJ margir í sárum eftir kvöldið, en tvisvar þurfti að kalla til sjúkrabíl á staðinn. Fyrst
fekk einn árshátíðargesturinn flogaveikikast og var hann fluttur burt með sjúkrabif-
reið. Næst missteig stúlka sig svo herfilega í hita leiksins á dansgólfinu að hún fót-
brotnaði. Þurfti hún einnig að yfirgefa árshátíðina í sjúkrabifreið. En þar með var
hremmingum árshátíðargesta ekki lokið því einum guðfræðinema sinnaðist svo illa
við prestmenntaðan læriföður sinn að honum þótti ástæða til að lumbra á honum
Fóru þeir báðir af árshátíðinni að þeim viðskiptum loknum.
Það var barist á fleiri árshátíðum innan Háskólans en hjá guðfræðinemum. Á
föstudagskvöldið voru stjórnmálafræðinemar einnig að gera sér glaðan dag. Var
þeirra árshátíð haldin í veislusalnum Hraunholti í Hafnarfirði. Þar lenti Gisli Mar-
teinn Baldursson, lærisveinn Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar og stjórn-
andi þátta á vegum skrifstofu framkvæmdastjóra Sjónvarpsins, í deilum við
einn samnemanda sinn. Sá hafði ítrekað verið að abbast upp á Gísla og meðal
annars gert lítið úr hæfileikum hans sem þáttastjórnanda. Ákváðu þeir á end-
Sþym að víkja sér út á stétt og útkljá mál sín þar. Einhverjir gengu með þeim
Mí 0övilöj4 reyna að ganga á milli. Þetta endaði þó með því að þeir slógu til
hvors annars.-V^p högg Gísla öllu markvissara því hann náði að rétta mannin-
um einn á lúðurinn. Muii það vera í fyrsta sinn sem Gísli lætur hendur skipta í
leikar voru bannaðir, þá var verið
að tala um atvinnuhnefaleika en
það er allt annað sport en ólymp-
ískir hnefaleikar,“segir Sigurjón. „I
ólympískum hnefaleikum er miklu
minni slysahætta en í mörgum
öðrum íþróttum og til eru lög sem
heimila iðkun allra ólympíugreina
á íslandi.“ Menntamálanefnd mun
skila áliti sínu í haust og þá kemur
í Ijós hvor lögin hún telur mikil-
vægari.
TÆKI
VIKUNNAR
deilumáium. Þeési frumráön Gjsla í hr
sem fyrir högginu varð þkartar þéssa d
að skilja var hann ekkí fullkomlega sá
í til ófriðarins lét hann sig hafá það
, -
.
kaðist þó svo vel að sá
glóðarauga. Eins og gefur *
áó hann hafi sjálfur
IHr lÉamSárás en dró
í •
il
mMrná
n
SÆMUNDUR FRÓtJl
sýnir háskólanemum
slæmt fordæmi með þvi
^ •{umbfa á selnum.
Einn helsti gallinn við tölvur (fyr-
ir utan BOOT FAILURE og önn-
ur álíka skilaboð) er það hvað
þær eru flestar Ijótar og fyrir-
ferðarmiklar. Sumar Macintosh-
tölvur eru reyndar ágætlega
hannaðar og NeXT-tölvan var til
fyrirmyndar, enda var hætt að
framleiða þær fyrir skemmstu.
Fagurkerar geta nú gerst tölvu-
fíklar, því APF4000 tölvan er al-
veg jafngóð mubla og tölva.
Hún tekur afar lítið pláss á borði
og ofan á trónir flatur litaskjár,
sem ekki gefur frá sér neina
geislun, en sumir hafa haft
áhyggjur af slíku upp á síðkast-
ið. Tölvan er með 66 megariða,
486 örgjörva og 32 Mb vinnslu-
minni, hún er mjög spameytin
og notar minna en 40 wött. Til
þess að auka á ánægjuna er
engin vifta í henni, þannig að
hinn klassíski tölvuniður er fyrir
bí. Því miður er apparatið ekki
sériega ódýrt, því það kostar
tæpa 7.000 Bandaríkjadali vest-
anhafs eða um hálfa milljón ís-
lenskra króna og þá er vaskur
og fragt eftir. En sumir kaupa
sér fallegan stól i Casa fyrir
sams konar pening og þeir geta
hringt í síma 901 803 244 4416
og pantað sér gripinn.
EQ VEIT PAÐ EKKI
EFTIR HALLGRÍM HELGASON
Kvöld, nótt og morgunn í Queen
Ég veit það ekki. Jú, hvaða vit
leysa, auðvitað veit ég það. Besta
diskótekið í París (ég er í París,
muna það) heitir Queen og stendur
við Champs Elysées og stendur yfir
frá því seint á kvöldin og fram und-
ir hádegi daginn eftir. Teknóheim-
ur. Trommugeimur. Og homma-
staður (hommarnir alltaf fremstir í
stuðinu) þar sem gaman er að
mæta áður en allir mæta, rétt fyrir
miðnætti og virða fyrir sér „fegurð
staðarins“ af efri svölum, þegar
dansgólfið blasir mannlaust við
manni og minnir helst á lygnan ís-
lenskan fjörð með lágþokublettum
í fjallshlíðum úr helíum-tækjum og
þrettán þúsund sólarlög á mínútu á
fægðum haffletinum á meðan
gengur á með kafaldshríðarbyl úr
hátölurunum: Söngkonan Sheri
Joy eða Stacy Ex segiryoo sinnuni
„do you?“. Yes, I do. Upp úr miðju'
nætti fer laðandi liðað liðið að tín-
ast inn og dansarar kvöldsins af sér
spjarir, á miðju dansgólfmu er smá
hringsvið fyrir Queen-urnar,
drottningarnar sem stíga eyrna-
lokkandi upp á það með hring í öll-
um nefjum og sveifla pilsinu upp á
bak til að sýna á sér bossann. Hér
stefnir allt í átt að sama marki,
sarna gati (you know) og dansinn
er stiginn í kringum það undir einu
samfelldu tæknisándi. þrjúhundr-
uðogfimmtíu þrekvaxnir súper-
hommar, berir að ofan, yfirskegjað-
ir Mercury-menn með geirvörtur
^ífar af Extacy og skarar af Pál-
Oskurum með varalit og svo Jean
Paul Gaultier himself-sjálfur-lui-
méme á teeshirtbol út í horni að
glotta yfir eigin nafni og frægð,
honum er þægð, í því að vera guð-
faðir staðarins þar sem svitinn ligg-
ur eins og sáláburður á myndarleg-
um karlmannsbrjóstum sem stíga
út úr helíum-þokunni allt urn kring
og maður-ég sjálfur kominn á séns
með sjálfum David Cassidy Sund-
ance Kid, afturgengnum sólbrún-
,um engladreng með Rocky-Mo-
untain-High-Blue augu; ég verð
næstum sólbrúnn af augnaráði
hans áður en mér tekst að flýja inn
á klósett þar sem ég lendi á næstu
skál við eldri taglmann sem gæti
auðveldlega heitið Mr. Maurice
Tenderfuck en ég er samt ekkert
að skála við hann enda kona við
næstu skál, ekkert kvennaklósett
hér, enda engar dömur, nema
drottningarnar og svo ein og ein
hommavinkona eða lesbía eða spe-
sía eða bara einmana nútímanæt-
urdrottning sem vill skemmta sér í
friði fýrir Filippum og Fabíönum
og mér: Ég, maður, blaðamaður,
næ af einni tali, hún segist vera frá
Ameríku, Boston, en ég heyri það'
samt ekki, kannski af því að hún er
með skartgripi í efri og neðri vör,
langaði bara til að spyrja hana
hvernig það sé að vera með fírt-
omrnu í eyrunum en hún blikkar
bara á móti nýjum augnhárum úr
Éli þegar klukkan er orðin þrjú og
§okunni eitthvað að létta en enn þá
^ámt allmikill úfinn sjór á gólfinu
|g bylur úr græjum, Dídjeiinn
glæðir Arethu Franklin Queen of
Soul í tæknibúning „Deeper Lo-
ve...deeper love“ og allt er að verða
vitlaust...(„afi minn orðinn amma
mín og jól í október...“) Mercury
Freddarnir taka þá upp lögguflau-
turnar æpandi óðar, eins og flugur í
neti nætur, eins og flugur að fá
það...með köngulónni. Kiss of the
Spiderwoman og „William don’t
Hurt me“ yfir glasinu við hliðina á
manni þar sem maður stendur stó-
ískur við súlu og virðir fyrir sér
sódómuna í því vota vetfangi þegar
leisergeislarnir fara í gang og lenda
á hundrað lendum og gera endur-
skinsmerki á rassinn á öllum. Akið
varlega. Varúð á Johnny Drottins
vegum. En lífið samt meira hér í
löppunum en í tuskunum og ótrú-
lega langt frá öllum jarðarförum,
klukkan fimm á sunnudagsmorgni
þegar messan er í algieymi og ob-
læti á gólfinu, kaleikar fylltir upp
við altarið og séra DJ enn á fúllu í
stólnum. Allt í Queenandi botni.
Og allt á vínyl. Vínylur í fólki en
hárið aðeins farið að þynnast á
gólfinu, bringuhárið eitthvað að
þynnast, surnir að fara heim en aðr-
ir taka smókpásu og halla sér fram á
handrið til að horfa á aðalnúmerið
á hringsviðinu sem nú er kominn
úr öllu nema nærbuxunum; mjög
nákvæm-
um g-
streng sem
gerir góð-
an bing að
framan en er
svo vel strelcktur
að aftan, inn að
boru, að hann
lætur ekki undan
þó allir vinir
dansarans og
kunningjar
hangi í
honum.
Takmörk
fyrir öllu,
líka hér,
á Queen,
um
rnorg-
unverð-
arleytið,
þegar
birtan
fyrir ut-
an rek-
nærbuxunum. Hún mætir ekki
fyrr en flestir eru farnir, ekki fýrr
en farið er að rýmkast pláss fýrir
hennar miklu varir. Nú stendur
hún tattóveruð og tyggjóveruð við
sitt borð og breikkar sínu breiðu
varir yfir á næsta og lítur í kringum
sig til að tékka á augum. Veit af sér.
En hver veit svo sem ekki af sér?
Maður hefur alla vega heyrt af sér,
haft af sér spurnir og spjarir til
baka í fatahenginu á Queen
klukkan hálfellefu á sunnu-
dagsmorgni og síðan kornið
útklúbbaður og hálf sigur-
boginn út á stétt, undir Sig-
urbogann eina sanna og
svo heim, í háttinn. Eða
það minnir mig. O
„Hér stefnir
allt í dtt að
sama marki,
sama gati (you
know) og dans-
inn er stiginn í
kringum það
undir einu sam-
felldu tœkni-
sándi. “
39