Eintak - 15.08.1994, Blaðsíða 2
Reykjavíkurhöfn krefst svara við fyrirspurn um styrkveitingar
„ViUum að skipasmíða-
stöðvar í samkeppni
shji við sama borð,“
segirlnga Jóna Þórðardóttir í hafnarstjóm.
Stjórn Reykjavíkurhafnar gagn-
rýnir undirbúning framkvæmda
við Akureyrarhöfn og Helguvíkur-
höfn og segir það ámælisvert að
ekki hafi farið fram arðsemismat
við þennan undirbúning, eins og
þó er kveðið á um í nýjurn hafna-
Inga Jóna Þórðardottir
„Efákveðin fyrirtæki njóta ríkis-
styrkja, á meðan önnur gera
það ekki, þá erþað auðvitað
mismunun.
lögum. Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu sem hafnarstjórnin sendi
frá sér eftir fund sem haldinn var
10. ágúst síðastliðinn. Bent er á að
þó að undirbúningur sé hafmn
vegna framkvæmda við flotkví á
Akureyri og fjölnotahöfn í Helgu-
vík, séu þessar framkvæmdir ekki á
svokallaðri framkvæmdaáætlun og
ekki iiggi íyrir samþykkt Alþingis
um það, hvort eða hvenær megi
vænta fjárveitinga.
„Eftir að nýju hafnalögin voru
samþykkt á Alþingi, skrifaði stjórn
Reykjavíkurhafnar bréf til Hafnar-
málastofnunar og bað um mat á
styrkhæfni framkvæmda við upp-
tökumannvirki sem eru fyrirhuguð
við Reykjavíkurhöfn," segir Inga
Jóna Þórðardóttir sem er fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í stjórn Reykja-
víkurhafnar. „I lögunum er það ný-
mæli að nú má styrkja upptöku-
mannvirki og meðal íyrirhugaðra
framkvæmda í Reykjavíkurhöfn er
flotkví. En á meðan hafnir annars
staðar á landinu, m.a. á Akureyri,
virðast vera búnar að fá grænt ljós á
svipaðar framkvæmdir, hefur ekk-
ert svar borist við fýrirspurn okkar.
Við viljum einfaldlega ítreka fyrir-
spurn okkar til Hafnarmálastofn-
Norðmenn hreinsuðu Sval-
barðasvæðið af íslendingum:
Engin
ákvörðun
segir Krístján Ragnarsson fonmaðurLÍU
um hvort útgerðamienn sameinist um að
senda eitt skip á Svalbarðasvæðið til að
láta reyna á réttarstöðu íslendinga.
„Engin ákvörðun hefur verið
tekin um það hvort við munum
sameinast um að senda skip á
Svalbarðasvæðið," segir Kristján
Ragnarsson formaður LÍÚ. I
kjölfar hertra reglna Norðmanna
um Svalbarðasvæðið sem settar
voru á föstudaginn hefur verið
rætt um að útgerðarmenn sam-
einist um að senda skip á svæðið
og láti reyna á viðbrögð Norð-
manna. Kristján segir að ekki hafi
verið rætt um þetta á formlegum
grundvelli og vill ekki iáta uppi
um persónulega afstöðu sína í
málinu.
Öll skipin sem voru við veiðar á
Svalbarðasvæðinu er farin þaðan.
Flest þeirra eða um tuttugu skip
fóru í Smuguna. Þar voru nokkur
íslensk skip fyrir enda fæst þar
góður afli. Um þrjú skip eru hald-
in heim á leið. „Þeim skipum fer
ört fjölgandi sem eru komin með
fullfermi og á leiðinni heim,“ seg-
ir Kristján.
Ekki er búið að taka saman
hversu mikið Islendingar hafa
veitt á Svalbarðamiðunum enda
hefur ekki verið greint á milli
Svalbarða og Smugunnar. Sam-
kvæmt heimildum EINTAKS
hafa Islendingar þó varla veitt yfir
þúsund tonn af þorski en ef til vill
Kristján Ragnarsson
FORMADUR LÍÚ
„Öll íslensk skip hafa farið af
Svalbarðasvæðinu, flest þeirra
í Smuguna þar sem veiðist vel
nú. Þeim fer nú ört fjölgandi
sem koma heim með fullfermi. “
nokkur hundruð. Fullyrðingar
þess efnis að íslendingar væru að
„hreinsa miðin við Svalabarða“
sem haldið hefur verið fram í
norskum fjölmiðlum eru því úr
lausu lofti gripnar því heildar-
þorskkvótinn við Svalbarða er 700
þúsund tonn. Til samanburðar
má geta þess að á yfirstandandi
vertíð er búist við að veitt verði
um 200 þúsund tonn á ísland-
smiðum. O
unar með þessari tilkynningu.“
Inga Jóna segir það ljóst að þess-
ar fyrirhuguðu framkvæmdir,
meðal annars við flotkví á Akureyri
og fjölnotahöfn í Helguvík, breyti
samkeppnisstöðu fyrirtækja í
skipaiðnaðinum. „Við getum til
dæmis tekið Stálsmiðjuna, sem þarf
sjálf að endurbæta sín upptöku-
mannvirki, á meðan sams konar
eða svipaður upptökubúnaður
annars staðar er ríkisstyrktur. Hér í
Reykjavík eru fyrirtæki að berjast í
samkeppni á þessu sviði, og við
krefjumst þess auðvitað að þau sitji
við sama borð og önnur fyrirtæki í
þessari grein. Ef ákveðin fyrirtæki
njóta ríkisstyrkja, á meðan önnur
gera það ekki, þá er það auðvitað
mismunun,“ segir Inga Jóna Þórð-
ardóttir. 0
Kvikmyndahátíðin
í Lucarno
Engin
verðlaun
til Bíódaga
Bíódagar, mynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar, vann ekki til verð-
launa á kvikmyndahátíðinni í Luc-
arno í Sviss. Myndin sem sigraði
var frá íran.
Ekki náðist í Friðrik, en Karl
Pétur Jónsson blaðafulltrúi
myndarinnar segir hann hafa verið
óánægðan með að leikstjórinn Pet-
er Bogdanovich hætti við að vera
formaður dómnefndar. Hann gerði
myndina Last Picture Show og eru
myndir hans afar hefðbundnar og
ekki ósvipaðar myndum Friðriks. í
stað hans settist Chantal Akerman
í formannsembættið en hann er
einn framúrstefnumanna í kvik-
myndalistinni.
Karl Pétur segir aðstandendur
myndarinnar ekki hafa valið ranga
hátíð þrátt fyrir að hún hafi ekki
komist á blað en valið stóð á milli
hátíðarinnar í Lucarno og hátíðar í
Feneyjum en þangað var farið með
Börn náttúrunnar á sínum tíma. ©
Miðbærinn
Biðraðir
lengjast
við pöbba
Langar biðraðir hafa verið áber-
andi fýrir framan vínveitingahúsin
í miðbænum undanfarnar helgar.
Staðirnir sem þar er helst um að
ræða eru Café List við Klapparstíg,
Kofi Tómasar frænda við Laugaveg, -
Kaffibarinn við Bergstaðarstræti og
Sólon Islandus á horni Ingólfstræt-
is og Bankastrætis.
Árni Vigfússon aðalvarðstjóri
telur ástæðuna fýrir biðröðunum
þá að fólk fer of seint heiman að frá
sér.
„Einhverju sinni varð fólk að
vera mætt á staðina kl. 23:30 svo V
það kæmist yfirhöfuð inn en nú er
það varla mætt fyrr en um kl.
00:30,“ segir Árni. „Ég tók eftir því
um síðustu helgi að þrátt fyrir að
klukkan væri 02:30 og aðeins hálf-
tími í lokun biðu fleiri tugir fólks
eftir því að komast inn í Þjóðleik-
húskjallarann."
Árni segir hátt áfengisverð á vín-
veitingahúsum eflaust hafa áhrif á
hvað fólk fer seint út að skemmta
sér því það kjósi heldur að drekka
heima hjá sér áður en það heldur út
á lífið. ©
Lögreglan
Telur hvarf VSalgeirs
ekki af mannavöldum
Málið erþví meðhöndlað eins og hvert annað mannshvarf þrátt fyrir
að ítrekaðar ábendingar hafi komið fram um að Valgeir hafi fengið
morðhótanir áður en hann hvarf.
„Lögreglan í Reykjavík heldur
uppi eftirgrennslan eftir mannin-
um. Það er ekki í gangi rannsókn
hjá okkur þar sem ekki hafa komið
fram áreiðanlegar ábendingar í þá
veru að einhver beri ábyrgð á hvarfí
hans með glæpsamlegum hætti,“
segir Jón H. Snorrason hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins um hvar á
vegi rannsókn lögreglunnar á
hvarfi Valgeirs Víðissonar, sem
hvarf fyrir tæplega tveimur mánuð-
um, er stödd. „Við fylgjumst mjög
náið með rannsókn Reykjavíkur-
lögreglunnar, það er mjög góð
samvinna okkar á milli í þessu máli
og við munum taka yfir rannsókn-
ina ef rökstuddar grunsemdir um
glæp koma fram.“
Valgeir sást síðast þann 19. júní
síðastliðinn, síðan hefur ekkert til
hans spurst. Ættingjar Valgeirs
sögðust í samtali við EINTAK vera
orðnir vonlitlir um að sjá hann aft-
ur og segja að hann væri örugglega
búinn að hafa samband ef það væri
í lagi með hann.
Valgeir hefur komið við sögu í
nokkrum fíkniefnamálum og fljót-
lega eftir að hans var saknað fór af
stað mjög sterkur orðrómur um að
hvarf hans tengdist viðskiptum
með fíkniefni. Eins og EINTAK
hefur áður sagt frá, hafði Valgeir
fengið ítrekaðar morðhótanir áður
en hann hvarf en samkvæmt heim-
ildum blaðsins fór hann daginn
sem síðast sást til hans til fundar
við þá sem höfðu hótað honum í
þeim erindagjörðum að reyna að
jafna ágreininginn. Vinir og kunn-
ingar Valgeirs sem þekkja til í und-
irheimum Reykjavíkur eru þess
fullvissir að sá fundur hafi farið úr
böndunum og að Valgeir muni
ekki finnast á lífi. Lögreglan hefur
staðfest að hún hafi fengið ábend-
ingar um þetta og að nokkrir aðilar
hafi verið yfirheyrðir. Jón H.
Snorrason hjá RLR segir hins vegar
að enginn sé grunaður og að rann-
sóknin sé enn á því stigi að talið er
að hvarf Valgeirs sé ekki af manna-
völdum.
Heimildamenn EINTAKS í
fíkniefnaheiminu eru mjög
áhyggjufullir yfir því hve lögreglan
virðist taka létt á málinu og segja að
ef hvarf Valgeirs verði ekki upplýst
innan tíðar geti farið svo að harkan
í fíkniefnaviðskiptum muni stór-
aukast og menn talið sig komast
upp með mun meira ofbeldi en áð-
ur. Vitað er hvaða fólk hótaði Val-
geiri, en það er ákveðið par hér í bæ
og samkvæmt heimildum EIN-
TAKS eru þau að fara á næstu dög-
um til Tælands til langdvalar.
2
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1994