Eintak - 15.08.1994, Síða 23
1. deild
Staðan
ÍA 13 25:5 30
FH 13 15:10 24
IBK 13 26:15 22
Valur 13 18:20 19
KR 13 18:11 17
Fram 13 18:20 15
ÍBV 13 15:17 15
Þór 13 18:25 11
UBK 13 14:30 11
Stjarnan 13 11:26 8
Markahæstir:
Mihajlo Bibercic, ÍA: 10
Bjarni Sveinbjörnsson,Þór: 9
Ragnar Margeirsson, ÍBK: 9
Óli Þór Magnússon, ÍBK: 8
Sumarliöi Árnason, l'BV: 7
Mihajlo Bibercic, ÍA, er
markahæstur í deildinni.
ÍBK - Stiarnan
4:1
Ragnar Margeirsson (49.), Kjartan
Einarsson (65.), Ragnar Margeirs-
son (73.), Sverrir Þór Sverrisson
(90.) - Leifur Geir Hafsteinsson
(84.)
son,
[BK: Ólafur Gottskálksson -
kKarl Finnbogason, Ragnar
r Steinarsson, Kristinn Guð-
brandsson, Gestur Gylfa-
Guðjón Jóhannsson, Gunnar
Oddsson, Marko Tanasic, Ragnar
Margeirsson, Kjartan Einarsson
(Sverrir Þór Sverrisson 85.), Georg
Birgisson
æW Stjarnan: Jón Otti Jónsson -
^^Rðotto K. Ottósson, Hermann
Vy Arason, Baldur Þ. Bjarna-
son, Lúðvik Jónasson, Leif-
ur Geir Hafsteinsson, Ragnar Gísla-
son, Heimir Erlingsson (Ingólfur R.
Ingólfsson), Birgir Sigfússon, Bjarni
G. Sigurðsson (Rögnvaldur Rögn-
valdsson), Ragnar Árnason.
Áminningar: Ragnar Steinarsson
og Guðjón Jóhannsson í IBK og
Baldur Þ. Bjarnason í Stjörnunni.
Maður leiksins.
Ragnar Margeirsson ÍBK
Keflavík-Stjarnan
Stiaman ein á botni deildarinnar
égi Elías Georgsson skrifar
Ef marka má leik ÍBK og
QSJl: Stjörnunnar í Keflavík í
(Oty gær> eru bæði liðin á rétt-
um stað í deildinni. ÍBK í
baráttunni á toppnum og Stjarn-
an ein á botninum. Úrslitin, 4-1
fyrir Keflavík segir flest sem segja
þarf um leikinn.
Fyrri hálfleikur var heldur
bragðdaufur og einkenndist af
mikilli baráttu. Stjörnumenn
voru oft á tíðum ákafir og stund-
um vírtist helsta markmið þeirra
frekar vera að stöðva spil Keflvík-
inga heldur en að spila boltanum.
Pétur Pétursson þjálfari
Reflvíkinga gerði veigamiklar
breytingar á liði sínu frá því í
Evrópuleiknum á fimmtudaginn.
Þeir Sigurður Björgvinsson og
Jóhann B. Magnússon duttu
út úr liðinu óg inn í vörnina
kómu Karl Finnbogason og
hinn átján ára gamli Guðjón Jó-
hannsson. Georg Birgisson
lék einnig í byrjunarliðinu í stað
Óla Þórs sem er meiddur í baki.
Ragnar Margeirsson fékk síð-
an framherjastöðuna í afmælis-
gjöf-
Það var einnritt mark Ragnars í
byrjun síðari hálfleiks sem varð
vendipunktur þessa leiks. Hann
hafði fram að þessu fengið nokk-
ur dauðafæri, en ekki getað nýtt
sér þau. Stjörnuliðið bar ekki
barr sitt eftir fyrsta mark Keflvík-
inga. Heimamenn gengu á lagið,
sóttu linnulítið og áttu vel út-
færðar sóknir. Kjartan Einars-
son skoraði annað mark Keflvík-
inga á 65. mínútu og skömmu
síðar fiskaði Ragnar Margeirsson
vítaspyrnu, en Jón Otti Jóns-
son markvörður Stjörnunnar
varði glæsilega frá Marko Tan-
asic. En áður en mínúta var liðin
frá vítaspyrnunni hafði Ragnar
hins vegar bætt um betur og
skorað þriðja mark heimaliðsins.
Eftir það gáfu Keflvíkingar
töluvert eftir, en öllum á óvart
náðu Stjörnumenn að skora á 84.
mínútu. Þar var að verki Leifur
Geir Hafsteinsson sem náði að
setja boltann í netið af stuttu
færi, eftir heldur klaufaleg mistök
í vörn Keflvíkinga. Sverrir Þór
Sverrisson kom inná fyrir
kjartan Einarsson þegar skammt
var eftir af leiknum og skoraði
fjórða mark Keflvíkinga á síðustu
mínútu leiksins.
Það var Ragnar Gislason fyr-
irliði Stjörnunnar, sem bar af í
liði Garðbæinga í þessum leik.
Hann barðist allan tímann og
náði að halda miðjumönnum
ÍBK niðri. Án efa er það þó Ragn-
ar Margeirsson, IBK, sem telst
vera maður leiksins. Hann setti
eitt mark, fiskaði víti og vann
flest návígi sem hann lenti í.
„Ég fann mig vel í stöðu fram-
herja,“ sagði Ragnar Margeirsson
eftir leikinn. „Reyndar fór ég
nokkuð illa með færin í þessum
leik, en eftir fyrsta markið fannst
mér ekkert geta stöðvað mig.“
Ragnar Gíslason, fyrirliði
Stjörnunnar sagði að þetta hefði
verið erfiður leikur. „Eftir að við
fengum á okkur mark, fannst mér
eins og félagar mínir tryðu því
ekki að við gætum jafnað eða
komist yfir. Við eigum erfiða
leiki framundan í deildinni, auk
bikarleikja og það getur verið að
það hafi dregið þrótt úr mönn-
um.“
Bragi Bergmann var dómari
í þessum leik og var ekki nógu
sannfærandi. Hann virtist ekki
lesa leikinn vel, dæmdi oft seint
og beitti hagnaðarreglunni
stundum ranglega.
Hálfrar mínútu þögn var fyrir
leikinn og Keflvíkingar léku með
sorgarbindi til minningar um
ungan stuðningsmann Keflavík-
ur, Auðunn Garðarsson sem
lést nýlega eftir erfið veikindi. ©
Valur - Fram
1 :0
Ágúst Gylfason (40.)
Valur: Lárus Sigurðsson -
Davíð Garðarsson, Kristján
Halldórsson, Guðni Bergs-
son - Steinar Dagur Adolfs-
son, Atli Helgason, Hörður Már
Magnússon (Sigurbjörn Hreiðarsson
66.), Jón Grétar Jónsson, Ágúst
Gylfason - Kristinn Lárusson, Eiður
Smári Guðjohnsen (Arnaldur Loftsson
91.)
_Fram: Birkir Kristinsson -
/Helgi Björgvinsson, Valur
Gíslason Guðmundur
Steinsson 66.), Pétur Hafliði
Marteinsson, Ágúst Ólafsson - Hólm-
steinn Jónasson, Kristinn Hafliðason,
Gauti Laxdal, Steinar Guðgeirsson -
Helgi Sigurðsson, Rikharður Daða-
son.
Áminningar:
Jón Gr., Kristinn og Davíð hjá Val
og Steinar og Helgi B. hjá Fram.
Maður leiksins:
Davíð Garðarsson, Val.
MÁNUDAGUR 15. AGUST 1994
Frammarar baráttu- og andlausir
Valsmenn vinna enn
I Bjöm Ingi Hrafnsson skrifar
V Valsmenn halda enn
<ó C5> áfram sigurgöngu sinni í
1. deildinni, og í gær-
kvöldi urðu andlausir leikmenn
Fram þeim að bráð. Við sigurinn
fara Valsmenn upp fyrir KR-inga
í fjórða sæti deildarinnar en
Frammarar sitja eftir í því sjötta.
Leikurinn í gærkvöldi var ekki
mikið fyrir augað. Aðstæður til
iðkunar fótbolta voru mjög slæm-
ar og strekkingsvindur tók kraft-
inn úr flestum sendingum lið-
anna.
I fyrri hálfleik voru Valsmenn
sterkari og gerðu fleiri tilraunir til
sóknaraðgerða. Davíð Garðars-
son og Eiður Smári Guðjohn-
sen börðust feiknavel og oft
skapaðist hætta upp við rnark
Frammara. Vörn hinna blá-
klæddu var ekki sannfærandi,
frekar en svo oft áður í sumar, og
oft kom það í hlut landsliðsmark-
varðarins Birkis Kristinssonar
að bjarga málunum fyrir horn á
síðustu stundu. Ríkharður
Daðason fékk tvö gullin mark-
tækifæri en nýtti þau illa og Lár-
us Sigurðsson greip oft vel inn í
en mætti að skaðlausu gera sér
ljóst takmörk sín í úthlaupum.
Fimm mínútum fyrir leikhlé
kom eina mark leiksins. Þá átti
Atli Helgason laglega rispu upp
vinstri kantinn og inn í vítateig
Frammara þar sem hann lagði
boltann fyrir Ágúst Gylfason
sem átti ekki í neinurn erfiðleik-
um með að leggja boltann undir
Birki og í netið.
I seinni hálfleik byrjuðu leik-
menn Fram mun betur og settu
leikmenn Vals dálítið út af laginu
en alltaf virtist þó skorta viljann
til að rífa sig upp. Enn fór Rík-
harður illa að ráði sínu og sömu-
leiðis gekk Helga Sigurðssyni
illa að fóta sig gegn öflugri Vals-
vörninni. Lokatölurnar urðu því
1:0, Valsmönnum í hag, og þar
með virðast Valsmenn vera
komnir í baráttuna unt Evrópu-
sæti en Frammarar sigla nokkuð
lygnan sjó eins og er þrátt fyrir að
þeir megi ekki slaka á ef ekki á illa
að fara.
Bestir Valsmanna voru þeir
Lárus í markinu, Guðni Bergs-
son og Davíð Garðarsson. Atli
Helgason virðist vera að rétta úr
kútnum eftir magra byrjun í vor
og eins er Steinar Adolfsson óð-
um að koma til.
Erfitt er að tína til bestu menn
Frammara. Þeir áttu ekki góðan
dag og verða að rífa upp barátt-
una fyrir næsta leik. Marteinn
Geirsson sagði að hugarfarið
hafi ekki verið rétt og það eru orð
að sönnu. Kristinn Björnsson
var hinsvegar kátari í lokin. „Þetta
var sætur sigur og sýnir að við er-
um á réttri leið,“ sagði hann. „1
byrjun voru starfsaðstæður hjá
okkur ákaflega óhagstæðar og
menn voru með bölsýnistal sem
ekki átti sér stoð í raunveruleik-
anum. Nú þegar gengur betur er
umhverfið rólegra og þá er meira
gaman að þessu,“ sagði Krist-
inn. ©
I?
23
>port