Eintak - 15.08.1994, Síða 12
Svalbarðadeilan er að verða snarpasta utanríkisdeila íslendinga síðan íslensku varðskipin
voru að hrella breska togara á íslandsmiðum 1975. Nú er það hins vegar norska strandgæslar
sem níðist á íslenskum togurum. Skeytasendingarnar ganga á milli ráðamanna þjóðanna
og almenningur fylgist spenntur með. Gauti B. Eggertsson rekur helstu atriði þessarar
makalausu deilu.
Samkvæmt nýrri reglugerð Norðmanna er nær öllum ríkjum Evmpu heimilaður aðgangur
að Svalbarða, nema íslandi. (12 ESB-lönd\ Færeyjar, Grænland, Pólland og Rússland.)
Q
I
ö
íslenska þjóðin hefur staðið á önd-
inni undanfarna daga vegna Sval-
barðadeilunnar vð Noreg. Hún er
orðin langharðasta utanríkisdeila Is-
lendinga síðan þorskastríðin miklu
voru háð. Staðan er orðin það alvar-
leg að utanríkisráðherra Isiands hef-
ur gefið það í skyn að kalla sendi-
herrann í Noregi, Eið Guðnason,
heim harðni deilan meira. Með öðr-
um orðum eru stjórnmálasamskipti
ríkjanna komin á mjög viðkvæmt
stig. Norskir ráðamenn kalla Islend-
inga þjófa og sjóræningja og íslensk-
ir ráðamenn segja að Norðmenn
stundi fallbyssu-pólitík. Ekki þarf
mikið til að upp úr sjóði.
Það er ákaflega margt sem verður
til að flækja þessa deilu og gera hana
furðulega. Það einfaldar til dæmis
ekki málið að Svalbarðasamningur-
inn svokallaði sem verið er að deila
um var gerður löngu áður en nokk-
ur fiskverndunarsjónarmið höfðu
skotið upp koliinum eða kvótakerfi.
Og það verður að teljast allfurðulegt
og jafnvel kaldhæðnislegt að helsta
vopn Islendinga í deilunni sé hótun
um að stefna málinu til Alþjóða-
dómstólsins í Haag. íslendingar hafa
aldrei viðurkennt lögsögu Alþjóða-
dómstólsins í Haag og mættu ekki
fyrir hann í eina máli sínu þar 1973.
Norðmenn eru að fara í þjóðarat-
kvæðagreiðslu um ESB í haust og
ríkisstjórninni er mikið í mun að
kaupa sér vinsældir sjómanna með
að því er virðist öllum tiltækum ráð-
um, því andstaðan er mest við ESB
meðal sjómanna.
Hvaða Svalbarði er
þetta?
Svalbarði er eyjaklasi sem liggur í
N-tshafi. Kunnugir segja að lands-
lagið sé ekki ósvipað og á íslandi,
það eru engir skógar heldur einung-
is móar og melar. Svalbarði er með
öðrum orðum frekar óhrjárlegur
staður.
Árið 1920 bjó enginn á Svalbarða
nema nokkrir sovéskir -og norskir
kolanámumenn. Svalbarðj var
einskis manns land og deildar mein-
ingar voru um hver færi með yfir-
ráð. Voru það aðallega Norðmenn
og Rússar sem deildu. Til að ieysa
þetta var svokallaður Svalbarða-
samningur gerður. Fjörutíu lönd
skrifuðu undir hann en ísland var
ekki meðal þeirra. I honum kemur
fram að allar aðildarþjóðir samn-
ingsins eigi jafnan rétt til veiða í
landi og sjó en Norðmönnum var
falið framkvæmdarvald á svæðinu.
Rétt er að hafa í huga að samning-
urinn var gerður 1920. Þá tíðkaðist
ekki 200 mílna landhelgi líkt og nú. I
Svalbarðasamningnum er því aðeins
gert ráð fyrir fjögurra mílna land-
helgi. Hið mikla sjóflæmi utan land-
helginnar var alþjóðlegt hafsvæði
sem hver sem er gat stundað veiðar
á. Eftir því sem árin liðu breyttust
hins vegar viðhorf manna til land-
helgi og fiskverndunar. Gegndu ís-
lendingar forystuhlutverki í að móta
viðhorf manna til landhelgismála og
skemmst er að minnast þess þegar
við færðum landhelgina í 200 mílur
1975. I kjölfarið fylgdu flest strand-
ríki heimsins.
Þegar kom að Svalbarða vandað-
ist aftur málið. Enginn fór með full-
kominn fullveldisrétt á eyjunni og
því hæpið að færa út landhelgi á
svipuðum forsendum og annars
staðar. Árið 1977 gripu Norðmenn
til þess ráðs að lýsa yfir 200 mílna
„verndarsvæði“ umhverfis Sval-
barða. Hugtakið „verndarsvæði“ var
raunar algjörlega nýtt og hefur aldr-
ei verið viðurkennt í alþjóðarétti.
Margar hinna þrjátíu og níu aðildar-
þjóða Svalbarðasamningsins mót-
mæltu þessari gjörð Norðmanna og
hefur enginn þeirra viðurkennt
„verndarsvæðið" nema Finnar.
Norðmenn stóðu hins vegar fast á
ákvörðun sinni og er nú svo komið
að flestar þjóðanna hafa samþykkt
yfírráð þeirra í reynd með því að
semja við þá um kvóta. Lagalegur
réttur Norðmanna er samt sem áður
mjög loðinn sem fyrr.
Miklir hagsmunir
Við Svalbarða eru mjög gjöful
fiskimið. Þar er til að mynda sá
þorskstofn sem er talinn í besta ásig-
komulagi í heiminum. Það má fyrst
og fremst skýra með árangursríkri
fiskveiðistjórnun Norðmanna á
svæðinu. I ár stendur til að veiða 700
þúsund tonn af þorski á Svalbarða
sem er tvöfalt stærri kvóti en í fyrra.
Til samanburðar má nefna að Is-
lendingar hafa verið að veiða í
kringum 200 þúsund tonn af þorski
á ári í íslenskri landhelgi.
Kvótinn skiptist þannig að fjögur
prósent eða 28 þúsund tonn fara til
Færeyja, Póllands og Evrópusam-
bandsþjóðanna 12 (það eru líklega
Þjóðverjar, Englendingar, Spánverj-
ar og Portúgalar sem nýta kvótann.)
Afgangurinn eða 672 þúsund tonn
skiptast á milli Norðmanna og
Rússa. Norðmenn veiða því umtals-
vert meira af þorski við Svalbarða en
Islendingar veiða á öllum ísland-
smiðum samanlagt. Hér er því um
mikla hagsmuni að tefla.
íslendingar gerðust
aðilar ao Svalbarða-
samkomulaginu á
þessu ári
tslendingar hafa aldrei haft mik-
inn áhuga á því að veiða við Sval-
barða, þangað til á allra síðustu ár-
um. Að vísu hefur eitt og eitt skip
ranglað á Svalbarðasvæðið af og til
en engin alvöru sókn hefur verið
stunduð á þessu svæði. Fiskimiðin
við ísland hafa einfaldlega verið
nægilegt viðfangsefni fyrir íslenska
sjómenn. Nú þegar þegar þorsk-
stofninn er hruninn hafa Islending-
ar aftur á móti farið að leita á ný
mið. I fyrra byrjuðu íslendingar að
stunda Smuguveiðar af krafti og
Svalbarðasvæðið komst fljótt inn á
kortið. Af þessum sökum lýsti ríkis-
stjórn íslands okkur aðila að Sval-
barðasamningnum í maí, 74 árum
eftir að hann var gerður. Vildu þau
með þessu fá aðgang að Svalbarða-
miðunum á grunni jafnréttisregl-
unnar en sem áður segir var ákvæði
um það í Svalbarðasamningnum frá
1920 að öll samningsríki eigi jafnan
rétt á veiðum til lands og sjós.
Jafnræðisákvæðið var hins vegar
sett þegar það var aðeins fjögurra
mílna landhelgi um Svalbarða og
hafa Norðmenn þybbast við að við-
urkenna að reglan gildi um 200
mílna „verndarsvæðið“ frá 1977.
Einnig leggja þeir annan skilning í
janfnræðisákvæðið svokallaða.
Rétt er að hafa í huga að þegar
samningurinn var gerður 1920 voru
fiskverndurnarsjónarmið ekki farin
að skjóta upp kollinum. Með öðrum
orðum var samningurinn gerður
íyrir daga kvótanna. Norðmönnum
finnst þess vegna hæpið að leggja
þann skilning í jafnræðisákvæðið að
það þýði að Japanir, sem eru aðilar
að samkomulaginu, fái jafn mikinn
kvóta og þeir á Svalbarðasvæðinu.
Japanir hafa aldrei veitt við Sval-
barða og búa þar að auki hinum
megin á hnettinum. Ef skilningur ís-
lendinga yrði lagður í samninginn
fengi hver þjóð Svalbarðasamkomu-
lagsins 2,5 prósent hluta af heildar-
kvóta. Norðmenn telja að í því felist
ekkert jafnrétti því þá sé ekki tekið
tillit til þess að sumar þjóðir hafi
veitt þarna í tugi ára og byggi af-
komu sína á veiðum á svæðinu.
Norðmenn nota því svokallaðan
„hefðarétt“ sem helstu rök sín í mál-
inu. Þess verður að geta að „hefða-
réttur" er mjög umdeilt hugtak í
þjóðarrétti og segja sumir þjóðrétt-
arfræðingar að það sé einskis virði.
íslendingar hafa ekki
viðurkennt lögsögu Al-
þjódadómstóísins í
Haag
Nýverið lét íslenska ríkisstjórnin
vinna fyrir sig lögfræðilega álitsgerð
um Svalbarðadeiluna af virtum
breskum sérfræðingi í alþjóðalög-
um. Samkvæmt heimildum blaðsins
kemur fram í þessari skýrslu að höf-
undurinn telji að Norðmenn séu á
mjög veikum lagalegum grunni.
Þessi veika lagalega staða Norð-
manna lýsir sér til dæmis í því að
Svalbarða var að hluta til haldið ut-
an við aðildarsamning Noregs að
ESB, vegna lagalegrar óvissu.
Á hinn bóginn kemur einnig fram
í áliti sérfræðingsins breska að Is-
lendingar eru ekki í neinni drauma-
stöðu á Svalbarða og ekkert sjálfgef-
ið um rétt þeirra til veiða á svæðinu.
Það er því alls endis óvíst hver nið-
urstaðan verður ef málið fer fyrir
dómstólinn í Haag.
Islendingar yrðu óneitanlega í dá-
lítið sérkennilegri stöðu ef þeir færu
með málið fyrir Alþjóðadómstólinn
í Haag. Þeir mættu nefnilega ekki
fyrir dómstólinn í eina máli sínu þar
1973. Þá höfðu Bretar og Þjóðverjar
stefnt landinu þangað eftir útfærslu
langhelginnar í 50 mílur 1972. Það
var ekki aðeins að Islendingar hefðu
ekki mætt heldur hundsuðu þeir
niðurstöðu dómsins algerlega en
hann var Þjóðverjum og Bretum í
vil. Ekki er þó talið að þetta hafi
áhrif á málsmeðferðina fýrir dómn-
um nú vísi Islendingar málinu til
Haag.
Haglabyssuskotið
hleypti málinu upp
Deilan um Svalbarða hefur
harðnað gífurlega mikið á undan-
förnum dögum í kjölfar þess að
norska ríkisstjórnin samþykkti nýja
reglugerð um Svalbarðasvæðið. I
henni er skerpt á lögunum frá 1977
um „verndarsvæði" í kringum Sval-
barða og tekið sérstaklega fram
12
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1994
Jón Baldvin Hannibals-
SON UTANRÍKISRÁÐHERRA
Norskir Ijölmiðlar hafa verið fullir af
fréttum um að utannTdsnáðherra
hafi hótað að kalla Eið Guðnason
sendiherra heim. Hann hefursagt
þetta á misskilningi byggt en ef
deilan harðni mikið sé það ekki úti-
lokað.
Gro Harlem Brundtland
FORSÆTISRÁÐHERRA
Noregs
Segirað íslendingarfái engan
kvóta með frekju ogyfirgangi. Hún
segirað það sé ólýðandi að ís-
lendingarafli sérkvóta með of-
beldi ílögsögu annarra þegarþeir
væru búnirað eyða eigin þorsk-
stofni.
DavIð Oddsson
FORSÆTISRÁÐHERRA
Heldur því fram að aukin harka
Norðmanna sé ítengslum við yfir-
vofandi þjóaratkvæðagreiðslu um
ESB íNoregi. Hann segirað
norska nkisstjómin sé að reyna að
hylmayfirlélegan sjávarútvegs-
samning.
Þorsteinn Pálsson
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
Segist vera að skoða það að
senda varðskip við Svalbarða tilað
tryggja öryggi íslenskra sjómanna
verði þeir fyrir einhverjum áföllum.
Norsk blöð túlka það á þann veg
að „íslendingar búist við blóðbaði
við Svalbarða. “
hverjir mega veiða innan „vernd-
arsvæðisins." Þar á meðal eru allar
Evrópusambandsþjóðirnar 12,
Rússar, Pólland, Grænland og
Færeyjar. íslands var hvergi getið.
Jafnframt kemur fram að ef ein-
hver skip frá öðrum en framan-
greindum löndum reyna veiðar in-
ná verndarsvæðinu yrði farið með
þau líkt og landhelgisbrjóta í
norskri landhelgi, það er veiðar-
færi og afli gerður upptækur.
Þessi reglugerð kemur að mörgu
leyti dálítið ankannalega út fyrir
norsku ríkisstjórnina. I henni
kemur nefnilega skýrt fram að
Norðmenn hafa í rauninni verið
að útiloka íslendinga, eina mestu
fiskveiðiþjóð á Norður-Atlantshafi
frá veiðum við Svalbarða, en jafn-
framt veita ólíklegustu þjóðum
víðs vegar í Evrópu fiskveiðirétt-
indi. Þetta lá að vísu alltaf fyrir, en
margir Norðmenn höfðu ekki gert
sér grein fyrir því að það væru
miklu fleiri en Norðmenn sem
hefðu rétt til að veiða við Sval-
barða. Enda virðist fylgjendum
samninga við ísland fara sífellt
íjölgandi í Noregi. Ekki þarf annað
en að lesa leiðara blaðanna til þess.
Þau mæla vel flest með samninga-
viðræðum. Tónninn er nú mun
gagnrýnni í garð norskra yfirvalda
en þegar veiðarfærin voru klippt
aftan úr íslensku togurunum við
Svalbarða fýrr í sumar. Þá gripu al-
menn fagnaðarlæti um sig í norsku
pressunni.
Haglabyssuskot eins skipsverja
Hágangs var líklega litla þúfan sem
velti þungu hlassi. I kjölfar þess tók
norska strandgæslan skipið til
hafnar í Noregi. I Noregi afhjúpað-
ist hins vegar í hvers konar klúðri
lagaleg staða Noregs hefur verið.
Norðmenn gátu ekki stefnt íslend-
ingum fýrir ólöglegar veiðar held-
ur einungis fyrir ofbeldi gagnvart
strandgæslunni. I kjölfarið slógu
fjölmiðlar í Noregi málinu upp á
þann veg að Islendingar væru bún-
ir að vinna „þorskastríðið," sem
þeir kalla svo. Ljóst var að norska
ríkisstjórnin var að missa málið út
úr höndunum. Á ríkisstjórnar-
fundi á föstudagsmorgun settu
norsk yfirvöld hins vegar áður-
nefnda reglugerð til þess að unnt
væri að taka íslensku skipin til
hafnar og dæma í málum „veiði-
þjófanna.“
Það er í raun merkilegt hversu
mikið deilan hefur harðnað í kjöl-
far þessarar reglugerðar. I rauninni
voru norsk yfirvöld með henni að
koma til móts við kröfur Islend-
inga fyrr í sumar um að þeir ættu
að taka skip íslendinga til hafnar
og dæma í málum þeirra í stað þess
að stunda hryðjuverk á togaraflota
íslendinga með því að klippa aftan
úr þeim veiðarfærin án dóms og
laga. Það má því segja að með þess-
ari nýjustu aðgerð Norðmanna séu
þeir samkvæmari sjálfum sér en
áður og loksins búnir að setja um
það skýrar reglur að erlend skip
megi ekki veiða innan „verndar-
svæðisins." Hitt er auðvitað allt
annað mál að það má efast ræki-
lega um hvort þessi reglugerð
standist alþjóðalög.
Reiði ísienskra ráðamanna á
undanförnum dögum í garð þeirra
norsku er því líkast til ekki vegna
reglugerðarinnar. Miklu frekar
vegna fádæma hrokafullra og
glannalegra yfirlýsinga sem norskir
ráðherrar hafa látið falla í kjölfar
hennar. Sjávarútvegsráðherra
Norðmanna hefur sagt að það
komi ekki til greina að „semja við
þjófa og ræningja" og Gro Harlem
Bruntland forsætisráðherra
Norðmanna hefur sagt að Islend-
ingar fái aidrei kvóta með frekju og
yfirgangi. Islendingar hafi engan
rétt til að seilast inn á norsk mið
bara vegna þess að þeir séu búnir
að skemma eigin fiskimið með lé-
legum fiskstjórnaraðferðum. „Þeir
vita að þetta er lögbrot,“ segir
Bruntland.
Undirbúningur fyrír
ESB atkvæoagreiðslu
Það er mjög slysaleg staða sem
íslensk og norsk stjórnvöld eru
komin í. Norðmenn voru sú þjóð
sem studdi Islendinga hvað dygg-
ast í þorskastríðunum og þjóðirnar
hafa að jafnaði verið bandamenn á
alþjóðavettvangi. Því hefur oftlega
verið haldið fram að Norðmenn
séu sú þjóð sem íslendingar hafi
unnið best með á undanförnum
áratugum af norrænu þjóðunum,
þar sem þær eru að mörgu leyti lík-
ar og hafa svipaðra hagsmuna að
gæta. Nú standa þær hins vegar í
harðvítugri deilu og er óvíst hvort
sambandið verði nokkru sinni jafn
náið og áður.
Sú harða afstaða sem Norð-
menn hafa tekið gegn veiðum Is-
lendinga á svæðinu vekur vissulega
athygli. Á undaförnum árum hafa
Norðmenn reynt að forðast deilur
við þjóðir sem stundað hafa veiðar
á Svalbarða og reynt að leysa þær
frekar með samningum um kvóta.
Þegar Grænlendingar reyndu til
dæmis veiðar við Svalbarða fyrir
nokkrum árum leysti norska ríkis-
stjórnin málið með því að veita
þeim kvóta í norskri landhelgi
gegn því að þeir hættu. Norðmenn
hafa því forðast í lengstu lög að láta
sverfa til stáls vegna þess hversu
lagaleg staða þeirra er umdeild.
Þeir hafa reynt að láta tímann
vinna með sér og freistað þess að
smám saman fallist þjóðir heims á
yfirráð þeirra án þess að til árekstra
þurfi að koma. Það hefur tekist
þangað til núna.
Ýrnsar ástæður eru fyrir þessari
hörðu afstöðu. Sú sem þeir nefha,
og vegur eflaust þungt, er að engin
hefð er fýrir veiðum íslendinga á
svæðinu og þeir gerðust aðeins að-
ilar að Svalbarðasamkomulaginu á
þessu ári, og það eftir að „ólögleg-
ar“ veiðar íslenskra skipa voru
hafnar þar. Það séu því engin rök
fyrir því að veita þeim kvóta.
Norðmenn segja að frjálsrar veiðar
Islendinga kippi fótunum undan
veiðistjórn á Svalbarða og fýrr í
sumar voru blöð Norðmanna full
af hryllingssögum um að Islend-
ingar væru að „hreinsa miðin við
Svalbarða.“ Auðvitað voru það
ýkjur í meira lagi því úthlutað hef-
ur verið 700 þúsund tonna kvóta
við Svalbarða til hinna ýmsu þjóða
og Islendingar hafa varla verið að
afla nema nokkur hundruð tonna,
í besta falli rétt yfir þúsund. Það
sem Norðmenn segjast óttast er að
veiti þeir íslendingum kvóta, þá
fylgi fjöldi annarra þjóða í kjölfarið
eins og til dæmis Kanadamenn, en
þorkstofninn er einmitt hruninn
við strendur Kanada.
Islenskir ráðmenn telja þó að
þessar ástæður sem að framan eru
taldar sé síður en svo hinar réttu.
Þeir telja að ástæðan fýrir hörku
Norðmanna í garð Islendinga sé
þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB.
Mikil andstaða hefur verið meðal
norskra sjómanna við samninginn
og segir Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra að með þessu sé norska
ríkisstjórnin að reyna að „breiða
yfir lélegan sjávarútvegssamning."
Þetta kann að vera rétt. Það er alls
ekkert vist að Norðmenn muni
samþykkja að ganga í ESB.
Skemmst er að minnast þess þegar
þeir höfnuðu því fyrir tæpum tutt-
ugu árum. Vera má að norska rík-
isstjórnin sé með þessu að reyna að
kaupa sér vinsældir norskra sjó-
manna og reyna að sýna þeim fram
á að hún muni standa fast á þeirra
hagsmunum hvort sem það er á
Svalbarða eða í Brussel. 0
DQUpHIN
Varahluta -og
viðgerðaþjónusta.
Stólarnir eru settir saman
hjá Pennanum og einnig
bólstraðir hérlendis eftir
óskum kaupenda t.d.
með íslensku áklæði,
já - takk!
60
cnm
26.900“
áðy»i3ð?(57§ b
82.538'
Meiri Gæði
Lægra Verð
Nú er ódýrara en áður að auka afköst og vellíðan starfsfólksins.
29.900kr
áðij&4í5Í7“
23.900kr
áðiis-Sð'^558 ^
174.700kr
leður.
^ÖStórlækkað verð vegna hagstæðra magnkaupa og betri
samninga. jSFullkomnari stólar á betra verði en nokkru
sinni. JBtíí afgreiðslu samdægurs. V Sjö daga reynslutími.
114.914kr
leður 141.539 ^
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1994
13