Eintak - 15.08.1994, Side 21
Draumurinn um dósina
Barátta um mHnónir
Verður örugglega
og sérstaklega
Á miðvikudagskvöldið fara fram
tveir gríðarlega mikilvægir leikir á
höfuðborgarsvæðinu. Það eru
undanúrslitaleikirnir í Mjólkur-
bikarkeppni KSÍ, leikirnir sem
leiða til lykta hvaða tvö lið leika til
úrslita um sjálfan Mjólkurbikar-
inn í lok þessa mánaðar.
Leikirnir eru ekki aðeins spurn-
ing um heiður og keppnisanda,
heldur einnig spurning um mikla
fjármuni til handa félögunum.
Talað er um margar milljónir í því
sambandi, svo og mjög dýrmætan
rétt til að leika í Evrópukeppni
bikarhafa að ári.
Þessi réttur skipar æ stærri sess í
íslensku knattspyrnulífi. Knatt-
spyrnusamband Evrópu, EUFA,
Bjarni Sveinbjörnsson
í erfiðri gæslu í leiknum við KR. Hann hefur verið iðinn við kolann ísumar
naskurá að „fiska" vítaspyrnursem hann hefursíðan sjálfurskorað úr.
greiðir háa styrki til félaga sem
leika í Evrópukeppnunum og því
verður æ mikilvægara að ná góð-
um árangri. Talað er um nokkrar
milljónir í því sambandi og ljóst er
að t.d. íslands- og bikarmeistarar
Skagamanna hafa mun meiri íjár-
muni úr að spila en flest önnur fé-
lög vegna þessa. Þá hefur eins ver-
ið sagt að þrátt fyrir meint ríki-
dæmi knattspyrnudeildar KR, sé
þess ekki langt að bíða að liðið
dragist aftur úr öðrum liðum fjár-
hagslega sökum titlaleysis.
I undanúrslitum að þessu sinni
leika lið sem ekki hafa verið að
gera neinar rósir í keppni þeirra
hestu í sumar. Grindvíkingar eru
sem stendur efstir í annari deild,
Stjörnumenn eru neðstir í 1. deild
og Þórsarar þriðju neðstir. KR-
ingar sigla tiltölulega lygnan sjó en
hafa ekki sýnt sitt rétta andlit og
hafa valdið vonbrigðum. Af þessu
má sjá að liðin sem nú berjast um
hituna hafa möguleika á að gera
tímabilið eftirminnilegt með sigri í
leikjum sínum og því verður
áreiðanlega allt lagt í sölurnar.
I Garðabænum mætast Stjarnan
og Grindavík. Grindvíkingar hafa
komið nokkuð á óvart í sumar og
stefna hraðbyri í 1. deild að ári.
Undir stjórn þjálfarans Lúkasar
Kostic hefur liðið sýnt stöðug-
leika og leikgleðin hefur verið
mikil. I bikarkeppninni hefur liðið
tvívegis komist áfram á víta-
spyrnukeppni
og því verður
spennandi að
sjá hvort heilla-
dísirnar verða
áfram þeim í
hag. Hvað
Stjörnumenn
varðar virðist
fátt geta forðað
þeim frá falli í
haust og létt-
leikann og leik-
gleðina hefur
sárlega vantað.
Reynslan segir
okkur þó að
bikarkeppnin
er allt önnur
Ella og
stemmningin
er allt önnur og
oftast meiri.
f vesturbæn-
um mætast síð-
an KR og Þór.
Eins og áður
sagði hafa KR-
ingar valdið
nokkrum von-
brigðum í sum-
ar og hefur
vantað mikið
upp á stöðug-
leikann. Mann-
skapurinn er
feiknasterkur
og á að fara alla
leið en það er
nú ekki alltaf
spurt að því.
Nær þriggja
áratuga titla-
leysi liðsins
hefur töluverð
sálræn áhrif á leikmenn og í vest-
urbænum vita allir að þessi leikur
skiptir öllu máli fyrir félagið. Ef
hann vinnst verður árangurinn
viðunandi en ef hann tapast verð-
ur fróðlegt að fyigjast með fram-
haldinu.
Þórsarar hafa valdið enn meiri
vonbrigðum í sumar og ótrúlegar
sveiflur liðsins hafa valdið miklurn
heilabrotum. Liðið vinnur annað-
hvort stórt eða skíttapar og eins og
staðan er nú blasir ekkert við
nema hörð og blóðug fallbarátta.
Þórsarar eru þó líklega staðráðnir í
að standa í KR-ingum og því er
vita vonlaust að spá í úrslit leiksins
en fullljóst að um mikla skemmt-
un verður að ræða.©
Lúkas „keisari“ Kostic
Þjálfar Grindvíkinga og er að leiða þá inn
á nýjar og áður ókunnar brautir.
Guðjón og gripurinn gódi
Gulldrengurinn Guðjón Þórðarson hefur líklega ekki í hyggju að
sleppa tangarhaldi sínu á þessum gæðagrip. Sérstaklega ekki þar
sem hinn titillinn virðist þegar kominn hálfa leið upp á Skaga.
Keflvíkingar töpuðu gegn Maccabi á fimmtudag
Vinnum þessa jólasveina í Tel AvM
segir Jóhannes Ellertsson formaður knattspymuráðs ÍBK.
Keflvíkingar töpuðu 1 - 2 í fýrri
leik sínum í forkeppni Evrópu-
keppni bikarhafa gegn ísraelska lið-
inu Maccabi Tel-Aviv í Keflavík á
fimmtudagskvöld.
Keflvíkingarnir byrjuðu leikinn
af krafti, en brátt kom í ljós að leik-
menn Maccabi voru bæði fljótir og
sterkir og spiluðu mjög agaðan fót-
bolta. Stuttar og einfaldar sendingar
leikmanna ÍBK lentu oft fýrir fótum
ísraelsmannanna, sem voru fljótir
að spila boltanum upp miðjuna.
Fyrsta mark leiksins kom hins vegar
ekki fýrr en undir lok fýrri hálfleiks,
þegar fyrirliði ísraelska liðsins, Nir
Klinger náði að skora í autt markið,
eftir misskilning milli varnarmanna
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1994
ÍBK og markmannsins, Ólafs Gott-
skálkssonar.
I seinni hálfleik náði síðan Marco
Tanasic að jafna fyrir Keflvíkinga
með glæsilegu skoti, beint úr auka-
spyrnu. En það var síðan undir lok
leiksins sem framherji Maccabi
komst einn innfýrir vörn ÍBK og
skoraði sigurmarkið í leiknum.
Sigurinn hefði í raun getað lent
hvoru megin, því bæði liðin áttu sín
dauðafæri sem ekki nýttust. Ólafur
Gottskálksson, markvörður Kefl-
víkinga bjargaði nokkrum sinnum á
ævintýralegan hátt, enda náðu leik-
menn Maccabi nokkrum sinnum
að stinga sér í gegnum vörn heima-
manna.
Besti maður Keflvíkinga var
Marco Tanasic. Fyrir utan að skora
gott mark, var hann sívinnandi og
byggði oft upp gott spil. Ólafur
Gottskálksson gerði hluti sem flestir
markmenn mættu vera stoltir af og
Gunnar Oddsson skilaði hlutverki
sínu ágætlega.
„Mínir menn áttu lélegan fýrri
hálfleik,“ sagði Pétur Pétursson
þjálfari IBK. „Við töpuðum alltof
mörgum sendingum og náðum ein-
faldlega ekki saman. Okkur var refs-
að rækilega fýrir mistök okkar í
leiknum. Munurinn á þessum lið-
um liggur einfaldlega í því að þeir
eru atvinnumenn og æfa tvisvar á
dag, en við erum áhugamenn. Hins
vegar er ég alls ekki sáttur við að
tapa þessum leik.“
Nir Klinger, fyrirliði ísraelska
liðsins sagði eftir leikinn að aðstæð-
ur á Keflavíkurvellinum hefðu verið
liðinu erfiðar. „Okkur reyndist erf-
itt að venjast kuldanum og við er-
um óvanir að leika í svona sterkk-
ings vindi. Þar sem þetta var okkar
fýrsti leikur á tímabilinu þurftum
við nokkrurn tíma til að komast inn
í leikinn, enda vissum við að Kefl-
vikingar eru með gott lið. Margir
leikmanna þeirra eru sterkir og
leiknir, sérstaklega Marco Tanasic.
En við erum með betra lið og ég er
viss um að við vinnum þá í seinni
leiknum.
En Jóhannes Ellertsson, for-
maður knattspyrnuráðs fBK, var
ekki aldeilis á sömu skoðun og
Klinger. „Það var sárgrætilegt að
tapa þessum leik. Mínir menn áttu
einfaldlega lélegan leik og ég spái
því að við vinnum þessa jólasveina í
Tel Aviv.“
ísraelska liðið er skipað fjórum
landsliðsmönnum, sem spiluðu
með ísraelska landsliðinu, þegar
það lagði Frakka að velli, 1 - o, síð-
astliðið haust. Fjórir aðrir leikmenn
liðsins hafa einnig leikið fjölda
leikja með landsliðinu og mark-
vörðurinn Alexander Ovarov lék
með rússneska landsliðinu í heims-
meistarakeppninni á ftalíu 1990. ©
Marco Tanasic
>porf