Eintak - 15.08.1994, Blaðsíða 22
KR - ÍBV
1 :1
James Bett (31.) - Sigurður Gylfa-
son (65.)
KR: Kristján Finnbogason -
Þormóður Egilsson, Sig-
urður B. Jónsson, Heimir
Guðjónsson - James Bett,
Salih Heimir Porca (Logi Jónsson
89.), Rúnar Kristinsson, Einar Þór
Daníelsson, Hilmar Björnsson - Tóm-
as Ingi Tómasson (Tryggvi Guð-
mundsson 74.), Izudin Daði Dervic.
IBV: Friðrik Friðriksson -
Friðrik Saebjörnsson,
Magnús Sigurðsson, Jón
Bragi Arnarsson, Dragan
Manjolovic - Nökkvi Sveinsson, Her-
mann Hreiðarsson, Heimir Hallgríms-
son, Sigurður Gylfason - Sumarliði
Árnason, Steingrímur Jóhannesson.
Áminningar:
Sigurður B, Tómas Ingi,
Dervic og Þormóður hjá KR
og Heimir og Friðrik S. hjá IBV.
Maður leiksins:
Friðrik Friðriksson, IBV.
ÞÓR-ÍA
0-3
Mörk ÍA: Theodór Hervarsson á 15.
mín. Haraidur Ingólfsson á 23. mfn.
og Mihajlo Bibercic á 53. mín.
Lið Þórs: Ólafur Pétursson
- Júlíus Tryggvason(Hlynur
Cs*{fj) Birgisson 46. mín.), Þórir
Áskelsson, Birgir Karlsson
- Ormarr ÖrlygssonfÖrn Viðar Arnar-
son 61. mín.), Páll Gislason, Dragan
Vitotovic, Lárus Orri Sigurðsson, Árni
Þór Árnason - Guðmundur Bene-
diktsson, Bjarni Sveinbjörnsson.
Lið ÍA: Árni G. Arason -
Sturlaugur Haraldsson,
Theodór Hervarsson, Sig-
ursteinn Gislason, Ólafur
Adolfsson - Sigurður Jónsson, Alex-
ander Högnason, Pálmi Haraldsson -
Ólafur Þórðarson Haraldur Ingólfs-
son, Mihajlo Bibercic.
Dómari:
Guðmundur Stefán Maríasson
Gul spjöld:
Ormarr Örlygsson og Páll Gíslason
báðir Þór. Sigurður Jónsson, Alex-
ander Högnason og Ólafur Adolfs-
son allir ÍA.
Maður leiksins:
Haraldur Ingólfsson, ÍA.
Sanngjarnt jafntefli í vesturbænum
Friðtik frábær
Bjöm Ingi Hrafnsson skrifar
Jafntefli voru líklega
sanngjörn úrslit í leik KR
og ÍBV á laugardag.
Mörkin urðu aðeins tvö, en hefðu
hæglega getað orðið miklu fleiri,
svo mörg voru færin sem forgörð-
Baráttuleysi“
um fóru.
I fyrri hálfleik voru heimamenn
mun sterkari og áttu flestar sókn-
irnar. Salih Heimir Porca og
James Bett áttu báðir gullfalleg
skot sem Friðrik Friðriksson
varði meistaralega, auk þess sem
Tómas Ingi Tómasson fór illa
með fjölmörg tækifæri. Korteri
fyrir leikhlé kom síðan fyrsta mark
leiksins og var þar að verki James
Bett úr vítaspyrnu, eftir að Izudin
Daða Dervic hafði verið brugðið í
vítateignum.
I seinni hálfleik var sem KR-
ingar gæfu eftir og Eyjamenn fóru
að komast miklu meira inn í leik-
inn. Tómasi Inga voru gjörsam-
lega mislagðir fætur upp við mark
Eyjamanna og var undarlegt að sjá
Tryggva Guðmundsson hita upp
mestallan leikinn á meðan að
Tómas klúðraði hverju færinu á
eftir öðru. Líklega er Guðjón
Þórðarson, þjálfari KR, að geyma
púðrið fyrir bikarleikinn á mið-
vikudag en í því skyni var varnar-
maðurinn Óskar Hrafn Þor-
valdsson hvíldur vegna erfiðra
meiðsla sem hann á við að stríða.
Um miðbik seinni hálfleiks kom
síðan jöfnunarmark Eyjamanna
og var það sérlega klaufalegt hjá
vörn og markverði KR. Sigurður
Gylfason lék þá upp hægri kant-
inn upp að vítateig og skaut lausu
skoti sem á einhvern óskiljanlegan
hátt lak inn. KR-ingar vildu meina
að Eyjamaðurinn Steingrímur
Jóhannesson hefði verið rang-
stæður og mótmæltu harðlega en
markið stóð og því urðu úrslitin
jafntefli, þrátt fyrir „bommertur"
Sæmundar Vfglundssonar
dómara á lokakaflanum er hann
sleppti tveimur augljósum víta-
spyrnum, einni á hvort lið.
KR-ingar verða að taka sig sam-
an í andlitinu fyrir hinn mikilvæga
leik á miðvikudagskvöld gegn Þór.
Sá leikur er gríðarlega mikilvægur
og getur ráðið úrslitum um það
hvort sumarsins verði minnst sem
enn eitt KR klúðrið eða sumarið
sem bikarinn vannst.
Eyjamenn spila á köflum ágæta
knattspyrnu og alltaf er baráttan
aðall liðsins. Þeir væru líklega á
allt öðrum slóðum ef ekki kæmi til
hinn frábæri Friðrik í markinu. ©
Öruggt hjá Skagamönnum
Þórsarar í vondum málum
Sævar Hreiðarsson skrifar
Islandsmeistarar lA heim-
^Wjjr sóttu Þór á Akureyri á
i laugardag og áttu ekki í erf-
iðleikum með að næla í öll
stigin. Sigur þeirra virtist aldrei í
hættu og virðist nú fátt geta komið í
veg fyrir að þeir verði meistarar
þriðja árið í röð. Leikurinn byrjaði
rólega en augljóst var frá upphafi í
hvað stefndi og gestirnir voru mun
ákveðnari í sóknaraðgerðum sín-
um, en Þórsarar reyndu að koma
boltanum sem fyrst á Guðmund
Benediktsson í von um að hann
næði að koma meisturunum úr
jafnvægi. Það lifnaði yfir leiknum
effir tæpan stundarfjórðung þegar
Mihajlo Bibercic stýrði boltanum
rétt framhjá stönginni eftir fyrirgjöf
frá Pálma Haraldssyni. ! næstu
sókn gestanna á 15. mínútu kom
fyrsta markið. Ólafur Þórðarson
tók þá aukaspyrnu hægra megin við
vítateiginn sem Þórir Áskelsson
skallaði frá en boltinn féll fyrir
Theodór Hervarsson sem skoraði
með glæsilegu skoti utarlega úr
teignum. Þórsarar færðu sig nú
framar á völlinn í von um að jafna
leikinn og skömmu seinna átti Or-
marr Örlygsson skot af löngu færi
sem fór yfir markið. Við þetta opn-
aðist vörn Þórs enn frekar og það
nýttu gestirnir sér á 23. mínútu þeg-
ar Haraldur Ingólfsson bætti við
öðru marki eftir glæsilega sókn. Bi-
bercic fleytti boltanum fram vinstri
kantinn á Harald sem átti greiða
leið langt inn á vallarhelming Þórs-
ara. Hann sendi yfir til hægri á Ólaf
Þórðarson sem skilaði boltanum
rakleitt til baka á Harald sem þá var
einn og óvaldaður vinstra megin í
teignum. Hann kláraði dæmið með
fallegu skoti sem Ólafur Péturs-
son réð ekkert við. Þórsarar voru
nálægt því að minnka muninn
þremur mínútum síðar þegar að
Lárus Orri Sigurðsson náði að
skalla boltanum innfyrir Skaga-
vörnina á Guðmund Benedikts-
son, en skot hans fór naumlega
framhjá. Þeir félagar voru svo aftur
á ferðinni á síðustu mínútu fyrri
hálfleiks þegar að Guðmundur lék á
tvo varnarmenn út við hliðarlínu og
átti góða fyrirgjöf en skot Lárusar
Orra af stuttu færi sleikti þverslána
ofanverða. Síðari hálfleikur byrjaði
með svipuðum hætti og sá fyrri.
Skagamenn voru meira með bolt-
ann en Þórsarar reyndu að beita
skyndisóknum. Á 50. mínútu fengu
Þórsarar gott færi þegar að Guð-
mundur einlék vinstra megin og
renndi á hárréttum tíma inn á Árna
Þór Árnason sem var í dauðafæri
en skot hans fór rétt yfir markið.
Skagamenn höfðu þetta allt saman í
hendi sér og gerðu endanlega út um
leikinn á 53. mínútu. Haraldur gaf
frá vinstri á Bibercic en varnarmenn
Þórs komust fyrir skot hans. Bolt-
inn datt aftur fyrir fætur Bibercic
sem gerði engin mistök og skoraði
fallegt mark 3-0. Bjarni Svein-
björnsson, fyrirliði Þórs, skallaði
yfir mark Skagamanna úr ágætu
færi á 60. mínútu og fjórum mínút-
um síðar munaði minnstu að Árni
Þór næði að minnka muninn eftir
góðan undirbúning ar Viðars Arn-
arsonar. Eftir þetta féll allt í dúna-
logn á vellinum og það sem eftir
lifði leiks var sem leikmenn væru
hættir að nenna að spila fótbolta.
Skagamenn höfðu öll tök á vellin-
um en gerðu sig ekki líklega til að
skora fleiri mörk og Þórsarar virtust
sætta sig við orðinn hlut. Það var
ekki fyrr en á síðustu mínútum
leiksins að Haraldur var nálægt því
að skora en skot hans af löngu færi
fór rétt framhjá stönginni. Sigur
gestanna var aldrei í hættu þrátt fyr-
ir að Þórsarar hafi fengið einstaka
góð tækifæri. I liðið vantaði varnar-
manninn Zoran Miljkovic og tók
Sigursteinn Gíslason stöðu hans
sem aftasti maður og skilaði því
hlutverki vel. Sigurður Jónsson
og Pálmi Haraldsson voru sterkir á
miðjunni og Ólafur og Haraldur
mjög líflegir á köntunum. Haraldur
var besti maður vallarins að þessu
sinni og skapaði mikil vandræði
fyrir varnarmenn Þórs. í markinu
stóð nítján ára piltur, Árni Gautur
Arason en Þórður Þórðarson sat á
bekknum. Árni stóð fyllilega fýrir
sínu í leiknum og er greinilegt að
þar er mikið efni á ferðinni. Leikur
Þórsara var ekki upp á marga fiska.
Algert áhugaleysi einkenndi flesta
leikmenn liðsins og Guðmundur
Benediktsson eini leikmaður liðsins
sem á hrós skilið. Mesta hættan
skapaðist þegar hann fékk boltann
og lék hann varnarmenn gestanna
oft grátt. Páll Gíslason og Ormarr
örlygsson voru sérstaklega slakir í
leiknum og varnarleikur liðsins var
heldur ekki burðugur. Ljóst er að
Sigurður Lárusson á erfitt verk fyrir
höndum ef hann ætlar að halda liði
sínu í hópi þeirra bestu. ©
Sjóðheit, ögrandi, kostuleg, litrík, hrífandi, erótísk og stranglega
bönnuð innan 16 ára. Nýjasta mynd Almodóvars, leikstjóra myndanna Konur á
barmi taugaáfalls, Bittu mig elskaðu mig og Háir hælar.
SÝND KL. 5, 7,9 og 11.
„Þetta var bara baráttuleysi hjá
okkur,“ sagði Þormóður Egils-
son fyrirliði KR eftir leikinn.
„Við áttum að gera meira af
mörkum og ekki er hægt að
halda 1:0 stöðu, mörkin verða að
vera fleiri. Eyjamenn börðust
hetjulega og það skipti sköpum,“
sagði Þórmóður.
Sigurður Gylfason marka-
skorari Eyjamanna var skiljan-
lega hress í
leikslok. „Þetta
var mjög mikil-
vægt stig í bar-
áttunni og sér-
lega gaman að
skora. Stein-
grímur ætlaði
að skalla bolt-
ann en hitti hann ekki og því lak
hann inn.“ ©
22^
port
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1994