Vikublaðið


Vikublaðið - 23.07.1993, Side 17

Vikublaðið - 23.07.1993, Side 17
VIKUBLAÐIÐ 23. JULI 1993 Þorbjöm Atli Sveinsson: Var oftast langminnstur á vellinum. Mynd: Spessi. FOTBOLTI, BILUARÐOC ZEPPELIN Hann verður 16 ára í lok ágúst, hefur spilað átta leiki með meistaraflokki Fram og er yngsti leikmaður sem nokkru sinni hefur spilað með meistaraflokki í 1. deild fótbolta. Nafnið er Þorbjöm Atli Sveinsson, Þorbjöm efdr samnefndu fjalli í nágrenni Grindavíkur, en þar bjó hann fyrstu ár ævinnar. Bjössi, eins og hann er kallaður, æfir fótbolta og spilar sömu íþrótt með 3., 2. og meistaraflokki Fram. Þrátt fyrir annir gef- ur hann sér tíma til að veita Vikublaðinu viðtal. Hvað varstu gamall þegarþú byrjaSir að tefa fótbolta? - Sex ára. Þá æfði ég með strákum sem vom allt upp í tíu, ellefu ára gamlir. Það vora ekki til flokkar fyrir yngri stráka í Grindavík. Varstu þá ekki langminnstur? - Jú, þeir vom allir miklu stærri en ég. Það hefúr yfirleitt verið þannig. Eg hef kannski ekki verið langminnstur en með þeim minni. Þegar ég var í S. og 6. flokki Víkings var ég lang- minnstur og líka ffaman af í 4. flokki. Ég skipti yfir í Fram fyr- ir tveimur ámm og hef spilað þrjú tímabil með þeim núna. Hvemig hefur þér gengið í Meistaraflokknum, hefur þér tekist að skora einhver tnörk? - Já, ég er búinn að skora fjögur mörk í Reykjavíkurmótinu. Ertu ekki hræddur um að verðafyrir meiðslum? - Auðvitað er maður stundum hræddur. Maður má ekki gefa mikið eftir, þá verður maður bara undir. Gætirðu hugsað þér að verða atvinnumaður? - Ef það tækifæri byðist hefði ég varla neitt á móti því en fyrst þarf ég að koma mér vel af stað hérna. Það væri gaman að geta lifað af fótboltanum og verða kannski soldið ríkur. Fótboltinn er ekki eina íþróttin sem Bjössi hefur keppt í. Hami er líka meðal bestu billjarðspilara landsins og komst í 6. sætið á heimsmeistaramóti umdir 21 árs í þeirri íþrótt í Brunei Daressalem fyrir réttu ári. Hve lengi hefurðu lagt stund á billjarð? - Ég byrjaði á billjarðinum fyrir þremur og hálfu ári. Síðan hef ég spilað hann með hléum. I vetur varð ég í 11. sæti á stiga- listanum hérlendis þó að ég hafi aldrei náð að spila í mótunum vegna fótboltans. Hefurðu einhvem tímafyrir billjarðinn núna? - Það er alltaf dauft yfir honum á sumrin svo að þetta passar ágætlega saman. Það er gott að hafa billjarðinn ef maður meið- ist. Bjössi lauk gmnnskólanum í vor og næsta haust fer hann í Fjölbraut við Armúla og auðvitað á íþróttabraut. Hefurðu einhver önnur áhugamál? -Já, ég hef mjög gaman af körfubolta. Eg meinti önnur m íþróttir. - Eg hlusta mikið á tónlist, mest á Led Zeppelin. Um helg- ar skrepp ég stundum niður í bæ með félögunum eða fer í bíó. Ætlarðu á útihátíð um Verslunarmannahelgina? - Nei, ég verð að að keppa í fótbolta í Færeyjum. Þar verð- ur Norðurlandamót 16 ára og yngri. Með það kveðjum við þennan mikla keppnismann og óskum honum velfamaðar í fótboltanum og öðra sem hann kann að taka sér fyrir hendur. Ef í því felst einhver keppni er engin hætta á öðra en hann verði með þeim besm - ef ekki besmr. - is ÞESSI SKRIFU9U BLAÐI9 UNCLINCAR OG VERSLUNARMANNAHEL6IN Stcfáti Ingibjörg Kristjáti Guy Bcrgþór Hóltnar Þ. Pálsson Stefánsdóttir Burgess Bjamason Filipsson Við seljum •• anægju, oryggi og vellíðan Það er tilfinningin. Ilmurinn, kyrrðin Ioftið, hreyfingin. Ekkert jafnast á við að vera vel búinn úti í náttúrunni. Þetta er ekkert pjatt. Maður líður áfram á góðum gðnguskóm og þreytist mun minna. Þeir verða vinir manns. Matarlystin, maður! Það er svo gott að borða! Ég vil geta eldað almennilegan mat í útilegu. Já, já, ég veit að ég mátti ekki heyra minnst á útilegu en svo þegar maður kynnist þessu þá verður útiveran hluti af lífsstílnum. Bakpoki er ekki það sama og bakpoki. Það er málið. Þetta þarf allt að vera létt, traust, öruggt og einfalt. Sumum leiðist í rigningu en mér \ finnst ekkert betra en hola mér \ ofan í góðan svefnpoka í góðu tjaldi I og láta rigninguna sem fellur / á tjaldhimininn svæfa mig. ^ " Þeir vita náttúrlega hvað þeir eru að tala um í Skátabúðinni því þeir hafa reynsluna. Svo kom verðið mér verulega á óvart. -SK/iP/íK fWMUR Snorrabraut 60 • Sími 61 20 45 Póstsendum samdægurs. Biöjiö um mynda- og verölista okkar.

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.