Vikublaðið


Vikublaðið - 17.02.1994, Blaðsíða 6

Vikublaðið - 17.02.1994, Blaðsíða 6
6 Háskólinn VIKUBLAÐIÐ 17, FEBRÚAR 1994 Kosningar til Stúdenta- og Háskólaráðs eftir helgi V"'M Kosið verður til Stúd- entaráðs Háskóla Is- lands á þriðjudag um helming fulltrúa ráðsins. Ovænt hefur þriðja ffam- boðið bæst við en síðustu sex ár hafa Röskva og Vaka tek- ist á um völdin. Óháða framboðinu er stefnt gegn landsmálapólitík í Stúdenta- ráði og ætlar eingöngu að beita sér fyrir menntamálum og beinum hagsmunum stúdenta. Stighækkandi og tekjutengdar end- urgreiðslur Heimir Örn Herbertsson, efsti maður á lista Vöku, fé- lags lýðræðissinnaðra stúd- enta, segir þá baráttu sem haldið hafi verið uppi í Stúdentaráði síðan ólögin um Lánasjóðinn voru sam- þykkt hafi ekki skilað ár- angri. Forsvarsmenn stúd- enta hafi of mikið beitt þeim aðferðum að gera stórar kröfur sem engu þoki. Vaka leggur áherslu á að mánað- argreiðslur verði teknar upp að nýju fyrir námsmenn sem hafa lokið tveim- ur önnum. „Flestir skila fullum náms- árangri eftir fyrstu misseri og þetta myndi þýða gífurlegar úrbætur fyrir mjög marga. Námsmenn þyrftu þá ekki að hafa bankagrýluna yfir sér all- an námstímann. Endurgreiðslur lán- anna í núgildandi kerfi eru alltof erf- iðar og forsvarsmenn Lánasjóðsins hafa sagt að þeir sem taki fúllt lán eigi eftir að vera í vandræðum alla tíð. Þess vegna viljum við lækka endur- greiðslur í byrjun en þær verði stig- hækkandi og tekjutengdar eftir því sem líður á greiðslutímann." Mánaðargreiðslur náms- lána til baka í skrefum Dagur B. Eggertsson er efsti maður á Stúdentaráðslista Röskvu, samtaka félagshyggjufólks. Hann segir kjarna hagsmunabaráttu Röskvu vera að tryggja öllum rétt til að stunda nám við Háskóla íslands og að Háskólinn standist gæðakröfur. „Við erum með raunhæfar og vandaðar tillögur í lána- málum og leggjum ífarn fjöhnörg mál sem eiga að stuðla að betri Háskóla. Einnig leggjum við fram hugmyndir í atvinnumálum fyrir hópa sem ekki hefúr verið sinnt áður, þ.e. nýútskrif- aða námsmenn,11 segir Dagur. Tillögur Röskvu í lánamálum fela í sér að í skrefum verði aftur farið að greiða út námslán mánaðarlega en ekki að prófum loknum eins og gert hefúr verið frá því að ný lög tóku gildi vorið 1992. Það að mánaðargreiðsl- urnar voru afnumdar hefur haft í för með sér að námsmenn verða að treysta á bankalán til að fjármagna námið fram að útborgun sjóðsins. Röskva vill að Lánasjóðurinn meti námsframvindu á ársgrundvelli en ekki eftir hvert misseri eins og nú er gert. Þá getur fólk haft meiri sveigjan- leika ef eitthvað kemur uppá í prófum, svo sem veikindi, og hægt er að vinna upp tafir síðar. Röskva leggur einnig áherslu á að endurgreiðslur verði létt- ar. Nú hefur menntamálaráðherra stofúað vinnuhóp sem á að endur- skoða lögin ffá 1992 og meta áhrif þeirra og telur Röskvufólk það sigur Þessi þiju etn efst a listum stiídenta til Stiidentaráðs, en kosið verður á þriðjudag um helmingfulltnía í ráðinu. Til vinstri er Hcimir Om Herbertsson, efsti maður á lista Vöku, þá Helena Jónsdóttir, oddviti Óháða framboðsins sem er nýtt og til htegri er Dagur B. Eggertsson, efsti maður á lista Röskvu, samtaka félagshyggjufólks. Röskva á núna meirihlutann en spumingin er hvort Óháða fram- boðið muni raska valdahlutfóllunum. .' ■ ir. Röskva hélt upp á afmælið sitt á iaugardaginn var á Sólon Islandus. fyrir námsmenn að loksins megi sjá fram á vilja til breytinga. Hjarta Háskólans Eitt af kosningamálum Röskvu í ár er kallað hjarta Háskólans. Fyrsta des- ember 1994 er áætlað að taka í notkun hina nýju Þjóðarbókhlöðu og þangað flyst Háskólabókasafn. Við þetta losn- ar töluvert rýnti í kjallara og á fyrstu hæð aðalbyggingar Háskóians en einnig flyst lesrými stúdenta í nýja húsið. Þetta húspláss vill Röskva að verði nýtt fyrir e.k. stúdentamiðstöð eða samkoinustað með veitingastofu, ráðstefnusvæði og rými fyrir listavið- burði. Fleiri hafa þó rennt hýru auga til þessa rýmis. Til dæmis vill stjórn- sýsla Fláskólans fá plássið og háskóla- kennarar vilja opna sína einkabjór- stofu eða klúbb. Nýtt framboð setur menntamál á oddinn Þegar framboðsfrestur fyrir Stúd- entaráðskosningarnar rann út 11. febrúar sl. kom óvænt fram nýtt fram- boð, Óháða ffamboðið, eins og for- svarsmenn þess kalla það. Framboðið ædar að berjast fyrir beinum hags- munum stúdenta óháð stjórnmála- Bergþór Bjarnason flokkuin, sem að þeirra mati eru menntamál. Helena Jónsdóttir skipar fyrsta sæti listans. Hún segir það tíl- komið vegna óánægju með starfsemi Stúdentaráðs eins það er nú. „Við höfum fengið mikinn stuðning stúd- enta. I síðustu kosningum voru 8,6 prósent atkvæða auð og kjörsókn um 57 prósent. Það hljóta því margir að vera óánægðir með skipan mála og því ætlum við að breyta og fá einnig námsmenn til að hugsa um atkvæðis- réttinn áður en hann er notaður." Helena segir Óháða framboðið standa sjálft straum af kostnaði og ekki vera styrkt af neinum stjórnmála- flokki. Framboðið á ekki að beinast gegn hinurn fylkingunum heldur fyrst og ffemst að veita þeim aðhald og halda Stúdentaráði við efúið. „Við einbeitum okkur að menntamálum stúdenta sem við teljum mikilvæg. Sem dæmi má nefúa bætta lestrarað- stöðu og aukinn bókakost Háskóla- bókasafús en þessi mál eru bæði í miklum ólestri.“ Helena segir nógu marga vera tilbúna til að leggja fram tillögur í lánamálum en það ætli þau ekki að gera. Þó munu fulltrúar Óháðra taka afstöðu til þeirrar um- ræðu sem kann að fara ffam í ráðinu um lánamál telji þau hana ekki vera litaða af pólitík. Vilja gera grundvallar- breytingar Heimir segir Völcu leggja áherslu á að breyta uppbyggingu og starfi Stúd- entaráðs til að auka skilvirkni í þágu hagsmunabaráttu stúdenta. „Fjöl- mörg hagsmunamál eru fylkingunum sameiginleg og okkur finnst ekki rétt að meirihlutinn skipi öll sæti í stjórn Stúdentaráðs og Félagsstofnunar stúdenta og að ritstjóri Stúdenta- blaðsins komi úr röðum meirihlutans. Við viljum gera þær grundvallarbreyt- ingar að minnihlutinn fái fulltrúa í stjóm SHI og FS og að ritstjórinn verði valinn faglega." Heimir segir Völcu vilja fækka fullrúum úr 30 í 15 í ráðinu og að kos- ið verði á hverju ári um alla fulltrúana. „Þá geta stúdent- ar skipt strax um valdhafa ef þeir telja starfsemi SHI ekki hafa heppnast sem skyldi starfsárið á undan.“ Hafiia meirihluta- samstarfi meðfylk- ingunum Öháða framboðið hafnar alfarið meirihlutasamstarfi eftír kosningar. Helena seg- ist ekld tilbúin að semja við aðra hvora fylkinguna. „Við emm ekki komin til að vera heldur til þess að knýja á um breytingar. Hvað gerist í ffamtíðinni verður að koma í ljós en frambjóðendur okk- ar era tilbúnir að axla þá ábyrgð sem fylgir ef við komum okkar fulltrúum inn í Stúdentaráð." Hvar eru konum- ar ? Ef litið er á ffamboðslista MHi liðinna ára má sjá að hlutur kvenna hefur ekki verið nærri því á við hlut karla. Á fjórum árum, frá 1990 til 1994, hefúr aðeins ein kona skipað efsta sæti til Stúdentaráðs, hjá Röskvu 1990. Finun karlar hjá Vöku en fjórir hjá Röskvu. Á sama tímabili hafa þrjár konur og tveir karlar orðið Háskólaráðsfulltrú- ar Röskvu og ein kona og fjórir karlar verið fulltrúar Vöku þar. I nærri 80 ára sögu SHÍ hafa aðeins fjórar konur gegnt embætti formanns Stúdenta- ráðs. í ár er kona í fyrsta skipti síðan 1990 í efsta sæti til Stúdentaráðs, hjá Óháðum, en á móti má benda að það er eina konan sem er ofarlega á þeim lista. Dagur segir ff amlag kvenna vera al- veg jafnt á við karla hjá Röskvu og sætaskipan sé ekki það stórmál sém sumir vilji meina. „Við erarn stór, samstilltur hópur stúdenta og hver leggur sitt til málanna óháð kynferði. Hins vegar eru á lista hjá okkur val- kyrjur sem taka okkur strákunuin ffam í flestu." Heimir segir að líta verði á hlutina í víðu samhengi þegar hlutur kvenna er skoðaður. I stjómmálum almennt hafi konur átt erfitt uppdráttar. ,Jafnrétt- isbaráttan hefur ekki skilað þeim ár- angri sem til var ætlast í upphafi. Ef einhvers staðar er auðveldara fyrir konur að ná árangri er það á vettvangi Stúdentaráðs því þar er hægt að sam- einast um markmið. Eg vil líka benda á að í baráttusæti Vöku til Stúdenta- ráðs er kona. Eftir sem áður er það merkilegt að konur hafa ekki valist í ábyrgðarstöður.“ Æsispennandi kosningar á þriðjudag Dagur og Heimir segja baráttuna vera málefúalega og ekki vera mildð um blóðug vígaferli. Ilraustlega verði samt tekist á um málin, af nógu sé að taka. Helena segir að Óháða ffam- boðið verði til þess að kosningabarátt- an fari betur ffam en áður og minna verði um persónulegar árásir og karp. Þó sjaldan skorti spennu í kosning- ar í Háskólanum er ljóst að hið nýja framboð breytir stöðunni nokkuð og erfitt er að sjá fyrir hvað gerist í kosn- ingunum á þriðjudag.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.