Vikublaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 1
Smáríki er
fyrirmynd
Þótt smáríki séu langt frá því
að vera fullkomin eru þau
miklu betri kostur en stór-
veldi og ríkjablokkir á borð
við ESB. Bls. 12-13
Auminga
hagfræðin
Nýpólitíkin haftiar hagfræði-
hugsun sem reynir að fá okkur
til að fallast á eymd atvinnu-
leysisins. A fundi Birtingar
braust andófið fram. Bls. 5
Ofbeldi gegn
konum
Miklar upplýsingar liggja fyrir
um ofbeldi gegn konum en þær
eru ekki teknar saman. Svavar
Gestsson og Ingibjörg Sólrún
vilja breyta þessu. Bls. 3
14. tbl. 3. árg.
15. apríl 1994
Ritstjóm og
afgreiðsla:
sími 17500
250 kr.
Randýrum hugdettum
Ingu Jónu fleygt
Borgarbúar greiddu þrjár milljónir og þar af fékk Inga Jóna Þórðardóttir tvær milljónir fyrir að setja saman óskalista
Sjálfstæðisflokksins um einkavæðingu sem Árni Sigfússon nú hafnar. Inga Jóna fékk mánaðarlaun 20 til 30 verka-
manna fyrir að leggja til almenningssalerni í miðbænum og útboð á hundaeftirliti og fótsnyrtingu aldraðra.
Borgarbúar voru látnir greiða
alls tæpar þrjár milljónir
króna þegar Markús Öm
Antonsson fyrrum þorgsr»í)ófi
Sjairstæðisflokksins fékk Ingu Jónu
Þórðardóttur til að varpa fram
hugmyndum um einkavæðingu og
útboð. Þrátt fyrir kröfur Sigrúnar
Magnúsdóttur um skýrslu eða
greinargerð firá Ingu Jónu hefur
borgarstjómarmeirihlutinn ekkert
lagt ffarn nema minnispunkta fyrr-
verandi borgarstjóra, þar sem hann
tíundar ýmsar hugmyndir um
cmKavæðíngu trá Ingu Jónu.
Núverandi borgarstjóri hefur nú
hafnað einkavæðingarstefnu Ingu
Jónu Þórðardóttur, þriðja manns á
lista Sjálfstæðisflokksins fyrir kom-
andi borgarstjórnarkosningar. Sam-
kvæmt punktum Markúsar eftir minni
hefur vinna Ingu Jónu - munnlegar
tillögur að stórum hluta að því er
virðist - einkum farið í hugdettur og
óskalista - seni-'eðiíJsgTa héíoí vérið að
Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur greiddi
fyrir og ályktaði um á landsfundi.
Þetta eru hugdettur um einkavæð-
ingu, útboð og sameiningu er lútað að
aðilum eins og SKYRR, Jarðborun-
um, Pípugerð Reykjavíkur, útboði á
hundaeftirliti, plöntukaupum, ræst-
ingum, hárgreiðslu og fótsnyrtingu
aldraðra, öryggisvörslu og fleira. Þá
má nefna hufrmvnd nm
salerni í miðbænum.
Inga Jóna segir í samtali við Viku-
blaðið að hún hafi unnið lengi við ráð-
gjöf hjá Markýsu Erni og að sú vinna
hafi ekki snúist uxn einkavæðingu
frekar en annað. „Eg vil ekki tjá mig
um efnisatriði minnar vinnu og vísa á
greinargerð Markúsar. Hún er unnin
með vísan til greinargerðar frá mér.
Hvers vegna borgarstjóri leggur ekki
fiam skyrsiur og gögn frá mér er atriði
sem þú verður að spyrja Markús Orn
um. Eg vil síðan taka það ffarn að ég
fékk engar þrjár milljónir fyrir mína
vinnu. Eg fékk 1.930 þúsund krónur.
Borgin greiddi síðan virðisaukaskatt
sem hún hefur fengið endurgreiddan.
lista,“ segir Inga Jóna Þórðardóttir,
þriðji maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík.
Kvótamenn
hopa
Nýjustu tillögur sjávarútvegs-
ráðherra um flskveiðistjómunina
em til marks um að kvótasinnar
hopa í baráttunni um hvemig
nýta skuli fiskistofna. Hinsvegar
er ekki komið til móts við sjónar-
mið 16 þingmanna sem lögðu
ffam tillögur uin að sókn yrði
gefin ffjáls í stofina scm ekki
hefur tekist að fúlhiýta í kvóta-
kerfinu. Þá er enn nóg svigrúm
fyrir kvótabrask og kostur
smábátasjóraanna er þrengdur.
Litli maðurinn með valdiðfer áfund
Kjartan G. framkvæmdastjóri Sjálfstteðisflokksins
fór áfnnd í Háskólabíó tilað hlusta á kappræður
Ingibjargar Sólrúnar og Ama Sigfússonar.
Svipbrigðalaus hlustaði hann á borgarstjóra
Sjóilfstæðisflokksins halda þvífram að hugtökin
hægri og vinstri skiptu engu máli í pólitík.
- Sjá umfjölhm á baksíðu.
Arni ávísar á ríkissjóð
ungamiðjan í alls 30 „lykla"
stefnuinótun Sjálfstæðis-
flokksins í atvinnu- og fjöl-
skyldumálum liggur í því að Arni
Sigfússon ávísar Bundmða milljóna
króna kostnaði á ríkissjóð. Borgar-
stjórinn núverandi gefur út hvert
kosningaloforðið á fætur öðm sem
ekki er á sviði borgarinnar að efria,
heldur ríkisstjómar og Alþingis.
Ekki síst ávísar Ami á sjóði heil-
brigðis- og fjármálaráðuneytanna.
Hér er átt við „átak" sem Arni vill
efna til vegna bamadeildar Landa-
kotspítala, sérstaks bamaspítala,
heimaþjónustu, heimahjúkrunar,
hjúkmnarheimila, lengingu fæð-
ingarorlofs, 100 prósent persónu-
afslátt, flýtifimingar og fleira.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir
ekki nóg að hafa lykla ef það eru eng-
ar dyr. „Þetta lyklatal er skrípaleikur.
Arni nefnir fjölda rnála sem flokkur-
inn hafði alla möguleika á að taka á en
gerði ekki. Stór hluti þessara mála er á
könnu ríkisins. Það er ekki ntikil reisn
yfir því að gefa út loforð á reikning
annarra,1' segir Ingibjörg Sólrún.
I þessu og öðru í málflutningi Arna
felast þessi skilaboð: Allt það góða
sem ég vildi gera gerði ég ekki, en ef
þið gefið mét tækifæri mun ég fram-
kvæma þetta. Hún segir að með þessu
sé Sjálfstæðisflokkurinn eftir 12 ára
valdasetu að biðja um náðun.
„Sjálfstæðisflokkurinn boðar nú
stefnu sem er alger viðsnúningur frá
fyrri stefnu. Það er í raun háðulegt
fyrir þennan stóra tlokk að ekki skuli
vera meiri ballest í stefni hans. Þetta
sýnir að raunveruleg stefna flokksins
snýst fyrst og fremst um það að halda
völdurn," segir lngibjörg Sólrún.
Guðmundur Arni Stefánsson hefur
lýst því efnislega yfir í útvarpi að flest
það sem Arni nefnir í heilbrigðismál-
um sé á verksviði heilbrigðisráðuneyt-
isins, þar sem unnið hefur verið að
þessúm málurn um nokkurt skeið.
Ellert B. Schrant fjTruin þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins fyrir Reykjavík
skrifaði leiðara í DV urn lyklastefnu
Sjálfstæðisflokksins sl. miðvikudag og
segir: „Allt þetta lyklatal getur orðið
broslegt í ljósi þess að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur stjórnað borginni
uni árabil og þarf varla nýja lyklakippu
til að hleypa sér inn. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur haft lyklavöldin í borginni
og ætla mætti að hann vildi núna fyrst
afltenda borgarbúum lykla að þeint
lokuðu dyrúm sem Sjálfstæðisflokkur-
inn einn hefur haft aðgang að. Var þá
korninn tínti til, kynni einhver að
segja."