Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 14.12.1957, Blaðsíða 3

Frjáls þjóð - 14.12.1957, Blaðsíða 3
JÓLIN 1957 FRJÁLS ÞJÓÐ 3 Gröndal, Matthías og Valdimar Ásmundsson ■aTÚ á þessu hausti barst Lands- -*■ ’ bókasafninu bréfasafn Valdi- mars Ásmundssonar ritstjóra. Með- al bréfanna eru bréf þau, sem liér eru birt frá Benedikt Gröndal Sveinbjarnarsyni til Valdimars og frá Matthíasi Jochumssyni til Brí- etar Bjarnhéðinsdóttur, ekkju Valdimars. ★ Bréf Gröndals er ritað í febrú- armánuði 1888. Tilefni þess er það, að Hannes Hafstein hafði flutt fyrirlestur 14. janúar s. á. um ástand íslenzks skáldskapar. Fór hann þar nokkrum orðum um hvert skáld út af fyrir sig og benti á, að skáldskapnum hefði hnignað mjög síðustu tíu árin. Benedikt Gröndal svaraði Hannesi með fyr- irlestri 4. febrúar. Segir Fjallkon- an (12. febr.), að fyrirlestur Gröndals hafi verið „mjög langur og víðáttumikill, enn með því að hann mun bráðum koma á prent, þykir óþarfi að skýra frá innihaldi hans, enn síðar mun í þessu blaði verða minnst á einstök atriði í þessum fyrirlestri." Valdimar hef- ur einnig skrifað Gröndal bréf vegna ummæla um Fjallkonuna í fyrirlestrinum. Gröndal svaraði síðan Valdimar með umræddu bréfi af nokkurri þykkju og virðist telja hann og blað hans á bandi Verð- andi-manna. Það mun þó hæpið, a. m. k. birti Valdimar skömmu áður (31. jan.) eftirfarandi kalda kveðju til Gests Pálssonar af til- efni ádeilugreinar hans, „Blaut- fiskur og bróðurkærleikur": „—Hitt flogritið er marklaust níðrit um einn heiðarlegasta borgara Rvíkr, Geir kaupm. Zoega, samið af Gesti Pálssyni, sem nú mun þykjast hafa setið nógu lengi á strák sínum, þar sem hann hefir engan mann svívirt á prenti nærri því í heilt ár.“ Þó ber að hafa í huga, að hér er ekki fjallað um bókmenntir, heldur pólitík. Vikið er að Páli Briem amtmanni vegna ritdeilu, sem hann átti í um þessar mundir við Hannes Haf- stein í Fjallkonunni, um gildi þjóð- ernis. Hafði Hannes gert minna úr því í fyrirlestri sínum en Páli þótti hæfa. ★ Bréf Matthíasar er ritað sumarið eftir lát Valdimars Ásmundssonar (17. apríl). Sýnir bréfið vel upp- gerðarlausa hluttekningu Matthías- ar. Eftirtektarvert er, hve vel hann kann að meta Alþingisrímurnar og hve afdráttarlaust hann eignar þær Valdimar einum. Hvort sem Valdi- mar á sjálfur meira eða minna í rímunum, eru þær auðvitað ortar í hans anda, og því eru ummæli Matthíasar um afstöðu hans til manna og málefna makleg. Sann- ast mála er, að þrátt fyrir allt, sem skrifað hefur verið og fullyrt um höfunda Alþingisrímna, er það enn engan veginn fullvíst, hvernig þær eru í raun og veru til orðnar. [Febr. 1888]. Kæri Valdimar! Jeg þakka yður fyrir þá óvæntu æru sem mér veiuist í að fá bréf frá yður, en hvað snertir Atheismusinn, að eg hafi sagt að þér hafið haldið honum fram, þá sagði jeg það aldrei, heldur snerti jeg mikið lauslega að í Fjallkonunni hefðu staðið svipaðar kenníng- ar, nl. hvað Realismus og Materialismus snertir og mig minnir að jeg segði þetta ein- úngis munnlega, en það stend- ur vrst varla skrifað hjá mér, Benedikt Gröndal og hef jeg því alls ekki brugðið yður um neitt guðleysi, en þó að Fjallkonan hafi ekki stráng. lega þrætt kristindóminn, það hirði jeg ekki um, því mér er ekkert urn það að gera. Kristindómurinn er yfir höfuð tóm mannaverk og jeg skipti mér ekkert a'f ofsjónum dog- matiskra Theologa — þér lík- lega ekki heldur. Þér eruð auð- sjáanlega einn af flokki Hann- esar og þessara ýngri manna sem honum íylgja og gera sér meðal .annars far um að rífa mig niður. Þessi niðurrifníng á mér hefur nú gengið hér í' fjórtán ár, síðan jeg kom hér til Reykjavíkur, og alltaf verið að hríngja með hvað jeg sé vit- laus og ónýtur, og mér hefur jafnt og þétt verið bægt frá öllu hér sem til Literatur heyr- ir, en ýmsir menn dregnir fram .af tómri fordild og hlægi- legri metorðagirnd. Jeg tek þetta raunar ekki nærri mér, því jeg er ekki lagaður fyrir það Clique-væsen sem hér á sér stað, þar til þarf allt aðra náttúru en mína. Þér nefnið ckki fyrirlestur minn með einu cinasta vingjarnlegu orði, til 'þess að styggja ekki þessa menn, sem ha£a byrjað á að fjandskapast við mig að fyrra bragði, af engu öðru eu því að þeir eru sjálfir svo fátækir að þeim verður ekkert annað .að mat en að taka einhvern þannig fyrir, sem þeir helzt þora til við. Jeg hef ekki verið dreginn fram með eintómu lofi eins og Steingrímur og Matt- Itías, heldur með eintómum skönnnum, en þegar öllu er á botninn hvolft, þá vil jeg það heldur. Svo kunngjörið þér að jeg eigi von á Kritik seinna í blaðinu, og get eg því nærri hvað mér muni ætlað, því það er eins og þ.að sé lífsspursmál að koma mér á knén. — Ritgjörð- in á móti Páli Briem er alveg ónýt, hún er ekki rituð til ann- ars en til að liggja ekki undir þegjandi. Það sem H. H. segir um mig í athugasemdinni, Jayk- ir mér ekki neitt merkilegt, það er eins og hinir venjulegu sleggjudómar þessara manna. Jeg finn enga þekkíngu hjá þeim, þeir hafa ekkert nennt að gera um æfina nema að drekka og drífa, en jiað er laf- hægt að segja að allt sé vitlaust nema þeir sjálfir, og það láta jreir ekki vanta, því annan eins Arrogans hef jeg aldrei heyrt. Yfir höfuð var það ekki til- gángur minn að styggja yður hið minnsta, og jeg skal laga orðin sem þér eigið við, ef jeg finn þ.au svoleiðis sem þér seg- ið, en jeg finn á öllu að menn hafa ekki fylgt mér, sjálfsagt af því jeg talaði svo fljótt, sem jeg var neyddur til vegna efn- isins — sem fsafold hæðir mig fyrir — annað hef jeg ekki upp úr því, af því jeg betla mér ekki út meðhald neinna Valdimar Ásmundsson manna. Þér vitið líka að Jiað kemur sér ekki illa hjá sum. um, að láta mig fá á höfuðið. Je suis, avec la plus grandc reconnaissance, dévouément sincére Tout á Vous Ben. Gröndal. 20. júní' 1902. Háttvirta góða frú! Jeg hripaði yður til fáeinar hluttekningarlínur í maí, en finn þær nú í skúffunni — gleymdar! Þannig týnist — það bregzt mér ekki — eitthvað fleira hér á jörðunni! Með- takið því með þessum línum (þó seint komi) innilegustu hluttekning mína! Hv.að jeg kenni í brjósti um yður, og | hvað jeg sá eftir honum, sem svo fljótlega fór á hvarf! Og hvað jeg þó hinsvegar gleðst af jrví að þér ætlið að stríða við biaðið (og blöðin?) ár- ganginn út eða lengur. Jeg skal feginn senda blaðinu eitthvert smáræði við og við, því jeg er í mikilli og gamalli skuld og gamal-þakklátur blaðinu sem jrví mentaðasta og frjálslynd- asta á landinu. Þvr miður stirðna jeg nú óðum við ald- urinn og þori litlu að lofa. Kvæðið eftir mann yðar gladdi mig, það var fallegt og satt. Það sorglega er, að eitthvað fer með hverjum merkum manni, sem einginn bætir í sömu mynt. (* Meir en heppi- legt var, að honum auðnaðist að enda sínar spilandi „rimur“, sem lengi verða minnismerki gáfu hans og andlegu — já, og siðferðislegu yfirburða. Eins og Framh. á 4. siðu. TVÖ KVÆÐI I. » Við liggjum öll í sandinum við ströndina þegnar hinna ýmsu þjóða liggjum í sandinum og hötumst vonlausu máttlausu hatri Ef til vill kemur hún einhvern tíma sú stund sem hjörtu okkar þrá sú stund er við rísum á fætur og elskumst ' n. Undir vorljósum himni hvíslar brosandi veröld að hjarta þér tónum þú kippist við reynir að grípa með hönd þinni ilminn sem eilífðin ber þér en döggvott grasið kremst undir fótum þínum Jón frá Pálmholti.

x

Frjáls þjóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.