Morgunblaðið - 18.02.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 47. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Gísli Súrsson
úr súrnum
Elfar Logi Hannesson leikur einleik
um fornkappann | Menning
Bílar og Íþróttir í dag
Bílar | Verð bíla fylgir ekki gengislækkun Ford Freestyle
og Opel Astra reynsluekið Íþróttir | Stefán Gíslason til Lyn
Snæfell skellti bikarmeisturunum
TILKYNNING frá Íbúðalánasjóði
til Kauphallar Íslands í fyrradag
vegna lánshæfismats frá matsfyr-
irtækinu Standard & Poor’s var
ekki í samræmi við umsögn mats-
fyrirtækisins. Að sögn Þórðar Frið-
jónssonar, forstjóra Kauphallar Ís-
lands, er verið að skoða upp-
lýsingagjöf Íbúðalánasjóðs vegna
þessa máls.
Í tilkynningu Íbúðalánasjóðs til
Kauphallar Íslands í kjölfar tilkynn-
ingar Standard & Poor’s sagði að
matsfyrirtækið hefði staðfest gott
lánshæfismat sjóðsins. Þar var hins
vegar ekkert minnst á neikvæða
þætti í umsögn fyrirtækisins.
Þannig var ekki greint frá því í
tilkynningunni að fyrirtækið telur
horfurnar á langtíma skuldbinding-
um sjóðsins í innlendri mynt vera
neikvæðar. Þá kom heldur ekki
fram í tilkynningunni að Standard
& Poor’s segir að ef markaðshlut-
deild sjóðsins á íbúðalánamarkaði
muni halda áfram að minnka vegna
samkeppni við bankana sé það
skilningur matsfyrirtækisins að vilji
ríkisins til að standa við bakið á
Íbúðalánasjóði geti minnkað.
Ábyrgð ríkisins í þessum efnum sé
hins vegar ástæðan fyrir því að
Íbúðalánasjóður fái sama lánshæf-
ismat og ríkið.
Tilkynning Íbúðalánasjóðs til Kauphallar um lánshæfismat
Neikvæðum þáttum sleppt
Segir horfur/11
LÍFEYRISSJÓÐIRNIR kunna hugsanlega
að verða framtíðareigendur sameinaðs fyrir-
tækis Landsvirkjunar, Orkubús Vestfjarða og
Rafmagnsveitna ríkisins að sögn Valgerðar
Sverrisdóttur viðskiptaráðherra. Viljayfirlýs-
ing um að ríkið leysi til sín
eignarhluta Reykjavíkur
og Akureyrar var undirrit-
uð í gær og mun ríkið eign-
ast fyrirtækið að fullu um
næstu áramót, takist að ná
samkomulagi um verð
hlutar sveitarfélaganna
tveggja.
Áform eru uppi um að
sameinuðu fyrirtæki verði
breytt í hlutafélag eftir
þrjú ár. „Á þeim tíma-
punkti verður að meta hvenær er rétt að opna
fyrirtækið fyrir nýjum eigendum,“ segir Val-
gerður. „Það er búið að móta þá stefnu að til
þess muni koma. Það er ekki okkar framtíð-
arsýn að ríkið eitt muni eiga þetta fyrirtæki til
framtíðar.“
Hún sagði ekki búið að móta hugmyndir um
framtíðarsamsetningu hluthafa, „en því er
ekki að leyna að t.d. lífeyrissjóðir hafa verið
nefndir í því sambandi.“
Ríkið á nú helming í Landsvirkjun, Reykja-
víkurborg 45% og Akureyrarbær 5%.
Landsvirkj-
un í eigu líf-
eyrissjóða?
Vilja að ríkið/28
Valgerður
Sverrisdóttir
SJÖ manns, þar á meðal fyrrverandi
frammámaður í Sinn Fein, stjórn-
málaarmi Írska lýðveldishersins
(IRA), hafa verið handteknir á Ír-
landi, grunaðir um aðild að stóru
bankaráni á Norður-Írlandi í fyrra.
Ránsfengurinn var um 26,5 milljónir
punda eða um 2,5 milljarðar ísl. króna.
Írska lögreglan skýrði frá málinu í
gær en fólkið var handsamað í Cork
og í Dublin. Var um að ræða sex karla
og eina konu. Sinn Fein, sem neitar
því að um bein tengsl sé að ræða milli
flokksins og IRA, neitaði í gær að tjá
sig þar til nánari fregnir bærust og
varaði fólk við því að hrapa að álykt-
unum. Írska ríkisútvarpið, RTE,
sagði á vef sínum í gær að einn hinna
handteknu væri fyrrverandi kjörinn
fulltrúi Sinn Fein.
Auk þess að handtaka fólk lagði
lögreglan hald á um tvær milljónir
punda og munu seðlarnir að hluta
hafa verið frá Northern Bank í Belfast
þar sem ránið var framið 20. desem-
ber sl. Er talið að um stærsta banka-
rán í breskri sögu hafi verið að ræða.
Þegar vísbendingar um aðild IRA
komu í ljós fordæmdu jafnt leiðtogar
Íra sem Breta samtökin fyrir að tefla í
tvísýnu friðarferlinu á Norður-Írlandi
en Sinn Fein sagði að um rógburð
væri að ræða. IRA-menn hafa árum
saman fjármagnað hryðjuverk sín
með bankaránum.
IRA-menn
handteknir
Dublin. AP, AFP.
NUNNA við gröf Rafiks Hariris, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, í Beirút í gær. Mikil ólga er í
landinu vegna sprengjutilræðisins á mánudag og virðast flestir Líbanar telja að Sýrlendingar hafi staðið
á bak við morðið. Sýrlendingar hafa um 15.000 manna herlið í Líbanon í trássi við samþykktir öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna og ráða í reynd yfir landinu en Hariri beitti sér gegn veru herliðsins síðustu ár-
in. Ættingjar Hariris kröfðust þess í gær að rannsókn á morðinu yrði undir stjórn alþjóðlegra aðila.
Reuters
Hariri syrgður í Beirút
OFBELDI í sjónvarpi, á myndbandi og í
tölvuleikjum hefur mikil skammtímaáhrif á
ung börn. Það eykur hættuna á ofbeldisfullri
hegðun og veldur þeim ómeðvituðum ótta.
Er þetta niðurstaða umfangsmikillar rann-
sóknar í Bretlandi en frá henni segir í lækna-
tímaritinu The Lancet, sem út kemur á
morgun.
„Vegna alls úrvalsins, sem nú stendur
heimilunum til boða, sjá börnin oft ofbeldis-
fullt efni, sem ekki passar við aldur þeirra og
þroska. Foreldrar og aðrir umsjónarmenn
barna ættu því að sýna sömu gát gagnvart
þessu og gert er með lyf og eiturefni. Kæru-
leysi hvað þetta varðar, ofbeldi og kynlífs-
senur, er í raun ekkert annað en ill meðferð á
börnum,“ segir í greininni en þá er fyrst og
fremst átt við ung börn en síður við unglinga.
Höfundar greinarinnar, sálfræðingarnir
Kevin Browne og Catherine Hamilton-
Giachritsis við háskólann í Birmingham,
tóku saman niðurstöður sex bandarískra
rannsókna, sem gerðar hafa verið á áhrifum
ofbeldis í fjölmiðlum á börn og hegðun
þeirra. Var niðurstaða þeirra eins og fyrr
segir sú, að ofbeldisfullt myndefni hefði
greinileg „skammtímaáhrif“. Veldur það til-
finningaólgu hjá börnunum og eykur líkur á
hegðunarvandamálum.
Sálfræðingarnir segja, að vissulega séu
þessi mál mjög flókin og benda á, að ástandið
innan fjölskyldu barnanna og í nánasta um-
hverfi geti ráðið miklu. Sé ástandið slæmt,
eykur það áhrifin, en sé það gott, dregur það
úr þeim. Eftir sem áður er alveg ljóst, segja
sálfræðingarnir, að ofbeldisefni hefur ein-
hver áhrif á öll börn og unglinga og stundum
í langan tíma.
Hættulegt eins og eitur
París. AFP.
Ofbeldi í sjónvarpi og tölvuleikjum talið skaða ung börnFISHER-PRICE leikfangaframleiðandinnkynnir ný leikföng byggð á Latabæ eftir
Magnús Scheving á mánudag. Leikfanga-
gerðin byggist á samstarfi
sjónvarpsstöðvarinnar
Nickelodeon sem sýnir
Latabæ vestanhafs og
Fisher-Price. Líkt og
þættirnir eiga leikföngin
að hafa hvetjandi áhrif á
börn til þess að hreyfa sig
og gefa þeim færi á að
njóta efnis þáttanna í
gagnvirkum leik, að því er segir á fréttavef
PR newswire.com.
Á meðal leikfanganna eru leikföng með
Latabæjartónlist, sem á að hvetja börnin til
að dansa og hreyfa sig, og búningasett sem
gera börnunum kleift að bregða sér í gervi
Íþróttaálfsins eða Sollu stirðu.
Latabæjardót
á markaðinn
♦♦♦