Morgunblaðið - 18.02.2005, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 18.02.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 35 MINNINGAR ✝ Jón ValdimarKristjánsson fæddist á Stöðvar- firði 30. janúar 1919. Hann lést á Landspít- ala – háskólasjúkra- húsi í Fossvogi 11. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Kristján Stef- ánsson, f. 1889, d. 1961, og Þórunn Mar- grét Þórðardóttir, f. 1900, d. 1991, ábú- endur í Kirkjubólsseli í Stöðvarfirði. Bræð- ur Jóns eru Ragnar, f. 29. janúar 1925, og Björgólfur Kristþór, f. 13. febrúar 1940. Eftirlifandi eiginkona Jóns er Borghildur Gísladóttir, f. 1. apríl 1923. Foreldrar hennar voru hjón- in Gísli Páll Björnsson rafveitu- stjóri, f. 1896, d. 1988, og Arnbjörg Arngrímsdóttir húsmóðir, f. 1893, d. 1935, þau voru búsett á Höfn í Hornafirði. Börn Jóns og Borg- hildar eru: 1) Gísli Arnbjörn, f. 7. júní 1944. Kona hans er Heiðrún Helga Karlsdóttir, f. 8. maí 1945. Þau eiga þrjár dætur og fjögur barnabörn. 2) Kristján Grétar, f. 16. júní 1945. Kona hans var Gerð- ur Björgmundsdóttir, f. 25. maí 1945, d. 7. apríl 1988. Börn þeirra eru fimm og barnabörn sjö. Í sam- búð með Kristjáni Grétari er Þór- dís Guðjónsdóttir, f. 22. desember 1942. Hún á tvö börn og eitt barnabarn. 3) Ingunn Sóley, f. 10. ágúst 1949. Eigin- maður hennar er Árni Halldór Guð- bjartsson, f. 21. nóv- ember 1945. Þau eiga þrjú börn og sex barnabörn. 4) Þórð- ur Heiðar, f. 21. nóv- ember 1959. Kona hans er Guðbjörg Ingólfsdóttir, f. 31. maí 1972. Börn þeirra eru tvö. Jón ólst upp á Stöðvarfirði og hlaut þar barnafræðslu að þeirra tíma venju. Hann stundaði almenn störf í uppvextinum, til sjós og lands, og rúmlega tvítugur sótti hann námskeið í smíðum sem hann starfaði síðar við með öðru. Sjó- mennska var þó aðalstarfið og hann reri á eigin bát um árabil. Jón og Borghildur reistu sér hús á skika úr landi Kirkjubólssels og nefndu það Ásbrún. Þar bjuggu þau allt til ársins 1994 en fluttu þá til Reykjavíkur og síðustu ár hefur heimili þeirra verið í Hraunbæ 103. Útför Jóns fer fram frá Árbæj- arkirkju í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Jón Valdimar Kristjánsson fædd- ist í Laufási á Stöðvarfirði 30. janúar 1919, sonur hjónanna Þórunnar Margrétar Þórðardóttur og Krist- jáns Stefánssonar. Jón ólst upp í Kirkjubólsseli – eða „Seli“ eins og bærinn er oftast nefndur þar um slóðir – og í æsku var hann ævinlega kallaður Jonni í Seli. Hann fékk almenna barna- fræðslu þar heima og vann að bú- störfum og sjósókn frá unga aldri, með föður sínum og fleirum, og upp frá því var sjómennskan honum kær og hans helsta starf. Eftirlifandi eiginkona er Borg- hildur Gísladóttir frá Grímsstöðum á Hornafirði. Þau gengu í hjónaband 24. desember 1943 og eignuðust fjögur börn. Árið 1942 fór Jonni á smíðanám- skeið sem haldið var á Laugarvatns- skóla og vann við smíðar um skeið í Reykjavík að því loknu. Hann var einstakur hagleiksmaður hvort sem var á tré eða járn. Hann byggði hús, smíðaði húsgögn, múraði og snikk- aði og gerði við alla mögulega hluti, svo sem byssur, gasluktir, lampa og jafnvel útvarpstæki. Allt var komið með til Jonna sem laga þurfti. Einn- ig var hann árum saman aðalhár- skeri Stöðfirðinga. Hann var góður söngmaður og spilaði á harmoniku frá unga aldri til æviloka. Spilaði á dansleikjum árum saman á Austurlandi og víðar. Ein- stakur veiðimaður, góð skytta og sérlega áhugasamur og fengsæll stangveiðimaður. Margar voru veiðisögurnar og gaman að fylgjast með þeirri um- ræðu enda frásagnir úr veiðiferðum þrungnar glettni og gamansemi. Það er ljúft yfir minningum margra sam- verustunda í leik og starfi. Oft unn- um við pabbi saman að ýmsum framkvæmdum, til dæmis við raf- lagnir og smíðar í nokkur ár. Það var góð samvinna og lær- dómsrík samvera og kær. Við sung- um saman í Karlakór Stöðvarfjarð- ar, spiluðum saman á nokkrum dansleikjum og nokkrum sinnum fór ég með honum í róður á Kópnum. Já, hann pabbi minn var vinmarg- ur, fróður og dagfarsprúður ná- kvæmnismaður í einu og öllu. Ég vil ljúka þessum minningarorðum með vísu, eða fyrirbæn, sem kveðin var til hans sem barns, þó ekki sé full- víst um höfund. Gakktu veginn gæfunnar, Guð þig leiði ávallt þar. Auðnu hljót þú alls staðar, elsku Jón minn Valdimar. Ég vil þakka samveruna á lífs- hlaupinu. Guð blessi minningu góðs drengs. Grétar. Elsku afi. Þá er komið að kveðjustund hjá okkur. Einhvern veginn bjóst ég ekki við því að þú myndir kveðja okkur strax, en þinn tími var greini- lega kominn. Ég á margar minningar um þig, en skiptin sem ég fór með þér á milli bryggja, þegar þú varst búinn að landa, heima á Stöðvarfirði, þær standa upp úr hjá mér núna. Vá, hvað mér fannst það gaman. Mér fannst líka svo gaman að hlusta á þig spila á nikkuna og sagði stolt, öllum sem það vildu heyra, að hann afi minn gæti sko alveg spilað á svona græju. Það var alltaf svo nota- legt að koma til ykkar ömmu, alltaf fékk ég eitthvert góðgæti og stund- um gat ég platað ykkur í spil, það fannst mér nú sérstaklega skemmti- legt. Þessa dagana stendur það upp úr þegar við litla fjölskyldan komum til ykkar bæði um jól og 30. janúar síð- astliðinn á afmælinu þínu. Það var svo gaman að sjá bæði þig og ömmu spjalla við litlu stelpuna okkar Loga, ég er svo ánægð með að þið Karen Hrund fenguð smátíma saman. Svo var svo gaman að hlusta á þig rifja upp árin á Kóp og veiðiferðirnar, það var sko eitthvað sem átti hug þinn allan. Með þessum orðum kveð ég þig elsku afi minn, ég veit að þér líður vel þar sem þú ert staddur núna, ef- laust með ömmu í Seli þér við hlið. Elsku amma, Arnbjörn, Grétar, mamma, Þórður, Ragnar, Björgólf- ur og fjölskyldur. Dýpsta samúð mín og fjölskyldunnar til ykkar allra. Elva Árnadóttir. Jæja, afi minn, nú er komið að kveðjustund og mig langar að þakka þér í fáum orðum allar stundir okk- ar saman, sérstaklega þegar við bjuggum hlið við hlið á Stöðvarfirði. Það var alveg yndislegt að hafa ykkur ömmu í næsta húsi þegar ég var að alast upp. Ég man alltaf eftir því þegar þú varst að fara á sjóinn á Kópnum þínum og þegar þú komst að landi seinnipart dags og að fá að fara með þér yfir á smábátabryggju. Oft leyfðir þú mér að stýra trillunni þinni, sem bar af öðrum hvað hrein- læti varðar. Ekki þreyttist þú á að fara inn að pípu og út að pípu með mér á bílnum þínum. Þetta eru stundir sem ég á aldrei eftir að gleyma og eru fastar í minningu minni, ég þakka þér fyrir þær, elsku afi minn. Þegar þú lást á spítalanum sofandi og ég kom til að kveðja þig varstu alveg eins og þegar þú lást í sófanum í Ásbrún, sofandi yfir sjón- varpinu, þannig minnist ég þín og er þakklátur fyrir að hafa getað sagt bless við þig. Elsku amma, Grétar, Arnbjörn, Þórður og mamma, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og Guð geymi þig, afi minn. Guðbjartur. Elsku afi minn. Eitt sinn þurfa allir menn að deyja og núna er komið að okkur að kveðja þig. Við brölluðum margt þegar ég var lítil stúlka. Þú hafðir oft orð á því, hvað þér fannst gaman þegar þú lást í sófanum í stofunni í Ásbrún og ég sat á bumbunni þinni og sagði þér sögur. Manstu þegar við fórum á rúntinn okkar inn að pípuhliði og út að pípuhliði, þú varst ótrúlega dug- legur að rúnta þetta með mig, í hvert skipti sem ég bað um það. Ég átti heima í næsta húsi og var fljót að fatta það að amma var alltaf með kvöldkaffi handa þér og skokkaði ég þá gjarnan yfir til ykkar og borðaði heimabakaða sætabrauðið hennar ömmu „þér til samlætis“. Já, það var gott að vita af ykkur þarna í næsta húsi og geta leitað til ykkar ef eitt- hvað bjátaði á. Ég gæti talað enda- laust upp hitt og þetta en við skulum bara eiga það út af fyrir okkur. Elsku afi minn, þá ætla ég að kveðja þig og þakka þér fyrir öll yndislegu árin okkar, þau eru mér dýrmæt eign. Elsku amma, Arn- björn, Grétar, mamma, Þórður og fjölskyldur, innilegustu samúðar- kveðjur mínar og fjölskyldunnar til ykkar allra. Þín Borghildur Jóna. JÓN VALDIMAR KRISTJÁNSSON Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningar- greinar REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is SIGURGEIR HANNESSON bóndi, Stekkjardal, sem lést á Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi þriðjudaginn 8. febrúar, verður jarðsunginn frá Blönduósskirkju laugardaginn 19. febrúar kl. 13:00. Jarðsett verður að Svínavatni. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Heil- brigðisstofnunina á Blönduósi. Fyrir hönd aðstandenda, Hanna Jónsdóttir. Útför AXELS EMILS GUNNLAUGSSONAR, sem lést fimmtudaginn 10. febrúar sl., hefur farið fram í kyrrþey. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á sjóð til styrktar sleðakaupa vetraríþrótta fatlaðra, Íþróttasamband fatlaðra - kt. 620579-0259, bankanr. 0313-13-710623. Aðstandendur. Hjartans þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GYÐU GUÐNADÓTTUR, Bjargi, Stokkseyri. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á gjörgæslu- og hjartadeild Landspítalans við Hringbraut. Erna Elíasdóttir, Gunnar Hübner, Guðrún Elíasdóttir, Pálmi Jónsson, Ingvar Elíasson, Guðni Elíasson, Hafdís Rósa Bragadóttir, Rósa Þórey Elíasdóttir og Jökull Logi, Davíð Sigurðsson, Þorbjörg Yngvadóttir, Helga Guðný Sigurðardóttir, Jón Haukur Ingvason, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR BJARNASON stýrimaður, Hraunbæ 40, Reykjavík, lést á heimili sínu mánudaginn 14. febrúar. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 25. febrúar kl. 15.00. Halldór Ómar Sigurðsson, Laufey Guðrún Sigurðardóttir, Atli Sigurðsson, Berglind Sigurðardóttir, Hafrún Sigurðardóttir, Einar Björn Þórisson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu, langömmu og langalangömmu, HILDAR B. KÆRNESTED, Sóltúni 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknarde- ildar Landakots og starfsfólki í Sóltúni 2 fyrir frábæra umönnun í veikindum hennar. Guð blessi ykkur öll. Anton Örn Kærnested, Ágústa Bjarnadóttir, Ásthildur Birna Kærnested, Sigrún Gróa Kærnested, Grétar Mar Hjaltested, Sigríður G. Kærnested, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.