Morgunblaðið - 18.02.2005, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 18.02.2005, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Helga JónínaDagbjartsdóttir fæddist á Höfða á Höfðaströnd 14. des- ember 1917. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 11. febr- úar síðastliðinn. For- eldrar Helgu voru Guðbjörg Ragnheið- ur Jónsdóttir, f. 7.10. 1893, d. 5.3. 1934, og Dagbjartur Lárus- son, f. 11.4. 1886, d. 12.7. 1956. Systkini Helgu voru Laufey Ólafsdóttir, f. 22.9. 1912, d. 18.7. 1993, Garðar Dag- bjartsson, f. 9.9. 1916, d. 21.1. 1996, Hermann Elínór Dagbjarts- son, f. 4.12. 1922, d. 9.3. 1956, Jón Jóhannes Kristinn Dagbjarts- son, f. 10.6. 1927, d. 2.9. 1984 og Gíslína Hugljúf Dagbjartsdóttir, f. 3.1. 1930, d. 17.12. 1998. Eiginmaður Helgu er Bjarni Magnússon, f. 27.8. 1921. Dóttir Helgu og Bjarna er Guðbjörg H., f. 12.11. 1956. Börn Guðbjargar og Birgis Kaaber, fyrrverandi eigin- manns hennar eru Helga Birgisdóttir, f. 18.2. 1981, Ragn- ar Birgisson, f. 9.9. 1983 og Sverrir Birgisson, f. 18.3. 1988. Helga ólst upp í Skagafirðinum en fluttist til Siglu- fjarðar eftir lát móður sinnar og bjó þá hjá hjónun- um Guðrúnu Sigurjónsdóttur og Jónasi Guðmundssyni. Um þrí- tugt flutti Helga til Reykjavíkur og bjó hún lengst af á Laugaveg- inum, í Þórufellinu og á Berg- staðastræti. Síðasta æviárið dvaldist Helga á Hrafnistu í Reykjavík. Helga verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Eitt sumarið þegar ég var lítil hnáta gisti ég sem oftar hjá ömmu Helgu og afa Bjarna á Bergstaða- strætinu. Betri stað var ekki hægt að hugsa sér fyrir litla dekurrófu, enda var allt fyrir mig gert og ég þurfti ekki að lyfta litla fingri. Ým- ist var ég inni hjá afa þar sem ég lét hann lesa fyrir mig, teikna, skrifa og tefla eða ég skoppaði inn í eldhús til ömmu. Við tvær gátum alltaf fundið okkur eitthvað að dunda, hvort sem það var að syngja, dansa, hlæja eða tala sam- an. Einu sinni, þegar við amma vorum orðnar lafmóðar eftir mik- inn dans og söng, settist amma nið- ur, dæsti og sagði: „Ja, þegar ég kemst til himna þá ætla ég að læra að dansa almennilega og syngja í kór.“ Mér brá alveg agalega mikið og spurði ömmu hvort hún ætlaði nokkuð fara þangað alveg strax. Amma sagðist nú ekki hafa hugsað sér það en þegar hún sá skelfing- arsvipinn á barnabarninu stakk hún upp í mig súkkulaðikúlu og sagðist hlakka afskaplega mikið til að komast til himna. Þá myndi hún hitta foreldra sína og systkini og gera allt það sem hana hefði alltaf langað til. „Himnaríki er góður staður,“ sagði hún og bætti síðan við: „maður á alltaf að vera glaður þegar gamlar ömmur kveðja og fara þangað.“ Það er erfitt að vera glaður þeg- ar amma manns kveður, þó að hún hafi eflaust verið hvíldinni fegin og líði eflaust vel þar sem hún er núna. En ég ætla að minnast henn- ar sem kátrar konu sem var sí- syngjandi og brosandi. Og það er ekki laust við að ég brosi sjálf og rauli lítinn lagstúf þegar ég rifja upp stundirnar sem við áttum sam- an. Helga Birgisdóttir. Amma okkar var lítil, snaggara- leg og kát kona sem alltaf átti sæl- gæti eða smáaur í buddunni til að gefa barnabörnunum. Á jólunum bakaði hún ótal sortir af smákök- unum og gaf þær síðan flestar. Ef einhver flutti, átti afmæli eða hélt veislu var hún mætt með himinhá- an pönnukökustafla sem hún galdraði fram úr erminni á svip- stundu. Á jólunum roguðust hún og afi upp stigann heima hjá okkur með sitthvorn pokann af jólagjöf- um og nokkra dunka af smákökum. Amma var ekki mikið fyrir að eyða í sjálfa sig en þótti þeim mun skemmtilegra að hjálpa öðrum og gefa gjafir. Yfirleitt fussaði hún og sveiaði þegar einhver stakk upp á því að kannski myndi hún kaupa sér eitthvað og sagðist ekki þurfa neitt, hún hefði allt sem hún þyrfti. Það eina sem amma þurfti og vildi var að hafa fólkið sitt í kringum sig og hugsa um það, og það gerði hún svo sannarlega. Við eigum eftir að sakna ömmu okkar og vonum að henni líði vel þar sem hún er nú. Ragnar Birgisson og Sverrir Birgisson. Lokið hefur lífshlaupi sínu önd- vegiskonan Helga Jónína Dag- bjartsdóttir. Helga var ættuð frá Hofsósi og þar átti hún sín fyrstu æviár. Sem unglingsstúlka lá leið hennar til Siglufjarðar þar sem hún kom á heimili hjónanna Guð- rúnar Sigurjónsdóttur og Jónasar Guðmundssonar smiðs sem barnapía þriggja barna þeirra, þeirra Hauks, Sigurðar og Ásdísar. Í fyrstu var dvölin aðeins yfir sum- artímann en það fór síðan þannig eftir lát móður Helgu að Helga varð eins konar uppeldissystir systkinanna og ólst upp á heimili Guðrúnar og Jónasar. Helga varð snemma fyrir því áfalli að veikjast af berklum og þurfti að dvelja á spítala árum saman, fyrst á Siglu- firði en síðan á Vífilsstöðum og á Reykjalundi. Á Vífilsstöðum kynntist Helga ungum manni, Bjarna Magnússyni frá Hafnarfirði, og urðu þau frá þeim tíma samferða í gegnum lífið. Helga var með eindæmum já- kvæð kona í öllu sínu veikindastríði og allir í návist Helgu nutu góð- semi hennar og kærleika. Helga og fjölskylda hennar voru alla tíð hluti af fjölskyldu okkar og voru þau ófá sporin sem Helga fór til að aðstoða við alls kyns tilfallandi verk á heimili þar sem börnin voru fimm og oft mikið að gera í kringum svo stórt heimili. Þótt það væri gott að fá Helgu til að koma og létta undir með eitt og annað var það þó nær- vera hennar sem var nóg til þess að öllum liði vel. Við, Ásdís uppeld- issystir Helgu og fjölskyldan, þökkum henni fyrir alla alúð og all- an kærleika í okkar garð alla tíð og fyrir samverustundirnar í gegnum árin og erum þess fullviss að hún hafi fengið góða heimkomu. Megi góður guð vaka yfir Bjarna og dóttur þeirra Guðbjörgu og fjöl- skyldu hennar. Ásdís Jónasdóttir, Birgir J. Jóhannsson og börn. Við systur kveðjum í dag ynd- islega konu, hana Helgu, sem var uppeldissystir móður okkar. Helga á sérstakan stað í hjörtum okkar. Hún var vinkona okkar og aldursmunurinn skipti þar engu máli. Alltaf var gaman að heim- sækja Helgu og Bjarna. Við „stelp- urnar“ settumst þá niður við eld- húsborðið, fengum okkur kaffibolla og ekki mátti gleyma súkkulaðikúl- unum. Helga var jákvæð kona og hafði gaman af öllu gríni. Stundum fórum við aðeins yfir strikið í glensi og gamni og þá var nú hleg- ið svo tárin runnu niður kinnarnar á okkur. Við gátum líka talað sam- an á alvarlegum nótum og þá var hún alltaf tilbúin að hlusta og góð ráð hjá henni vel þegin. Við feng- um svo sannarlega að njóta hjálp- semi hennar hvort sem það var í veikindum eða annarri aðstoð. Það er svo margt sem hún hefur kennt okkur gegnum árin sem við mun- um alltaf búa að. Við kveðjum Helgu með söknuði og vottum Bjarna, Guggu „frænku“ og fjölskyldu samúð okkar. Blessuð sé minning Helgu. Inga og Sigrún. HELGA JÓNÍNA DAGBJARTSDÓTTIR Elskulegur faðir okkar, afi og langafi, GRÍMUR SAMÚELSSON, Hlíf, Ísafirði, lést mánudaginn 14. febrúar. Hann verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 19. febrúar kl. 11.00. Óðinn Grímsson, Magndís Grímsdóttir, Jóhannes Guðnason, Steinunn Grímsdóttir, Þór Gunnlaugsson, Snorri Grímsson, Árný H. Herbertsdóttir, Samúel Grímsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir og amma ÞÓREY ÓLÖF HALLDÓRSDÓTTIR, Skálateigi 1, Akureyri, lést þriðjudaginn 15. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Halldóra S. Gestsdóttir, Katrín Anna Sigurðardóttir, Sigurður J. Sigurðsson, Margrét Harpa Jónsdóttir, Sólrún Dögg Jónsdóttir, Halldór Árnason, barnabörn og aðrir aðstandendur. Faðir okkar, PÁLL JÓNASSON, Lambastaðabraut 12, Seltjarnarnesi, lést föstudaginn 11. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hans ósk. Vigdís Pálsdóttir, Viggó Snorri Pálsson, Helga Pálsdóttir, Páll Kári Pálsson, Hrafnhildur Pálsdóttir, Halla Guðbjörg Pálsdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, STEFÁN BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON frá Dratthalastöðum, verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju laugar- daginn 19. febrúar kl. 14.00. Hallveig Guðjónsdóttir, Sigmundur K. Stefánsson, Sigríður Ágústa Jónsdóttir, Guðrún S. Stefánsdóttir, Emil H. Ólafsson, G. Hjalti Stefánsson, Heiður Ósk Helgadóttir, Sólveig Heiðrún Stefánsdóttir, Páll Jóhann Kristinsson og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, LILJA HALLDÓRSDÓTTIR, Hlíf 1, Ísafirði, sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísa- firði sunnudaginn 13. febrúar, verður jarðsung- in frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 19. febrúar kl. 14.00. Þeir, sem vilja minnast hennar, láti Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði njóta þess. Anna Gunnlaugsdóttir, Hákon Guðmundsson, Ingigerður Traustadóttir, Katrín Guðmundsdóttir, Kristján Ragnarsson og aðrir aðstandendur. Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langa- langafi, BJÖRN GUÐMUNDSSON, áður til heimilis í Miðtúni 2, lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 16. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Árbæjarkirkju þriðju- daginn 22. febrúar kl. 11. Guðmundur Hlíðar Björnsson, Anna Hlín Guðmundsdóttir, Birna G. Björnsdóttir, Björn Karlsson, Stefanía G. Björnsdóttir, Jón Helgason, Haraldur Björnsson, Ingibjörg Gísladóttir, barnabörn og langafabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN GUNNARSDÓTTIR, Ásvegi 9, Breiðdalsvík, sem lést á Landspítala Fossvogi fimmtudaginn 10. febrúar verður jarðsungin frá Heydalakirkju laugardaginn 19. febrúar kl. 14. Gunnar Ari Guðmundsson, Heiðrún Alda Hansdóttir, Einar Guðmundsson, Björn Guðmundsson, Aðalheiður Guðrún Guðmundsdóttir, Friðrik Mar Guðmundsson, Alda Oddsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Þorlákur Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.