Morgunblaðið - 18.02.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.02.2005, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BILAÐUR sætishitari í jeppa varð til þess að Jó- hann Rúnar Kristjánsson, borðtenniskappi og ólympíufari, hlaut fjórða stigs bruna á sitjand- anum og náði brunasárið inn að beini. Þar sem hann er lamaður fyrir neðan brjóstkassa fann hann ekki fyrir brunanum fyrr en um seinan. Jeppinn var fluttur inn sem tjónabíll frá Bandaríkjunum og var hann skemmdur á vinstri hlið. Samkvæmt skráningu hjá framleiðanda er notkun bílsins takmörkuð og á honum engar ábyrgðir, en ekki kemur fram hver ástæðan er, skv. upplýsingum frá umboðsaðila þessarar bíl- tegundar hér á landi. Bíllinn mætti ekki vera í notkun í Bandaríkjunum en hann fékkst engu að síður skráður hér á landi. Slysið varð 31. október sl., rúmlega mánuði eft- ir að Jóhann sneri heim frá ólympíuleikum fatl- aðra í Aþenu. Hann var farþegi í jeppa sem faðir hans ók frá Keflavík inn í Kópavog og var til- gangur ferðarinnar að líta á heimabíó sem faðir hans ætlaði að kaupa. Einhver virðist hafa rekið sig í takkann fyrir sætishitarann því hann var stilltur á hæsta styrk. Í samtali við Morgunblaðið sagði Jóhann að hann hefði fundið fyrir ein- hverjum óþægindum á leiðinni, verið heitt og helst talið að hann væri að veikjast. Feðgarnir fóru inn í raftækjaverslunina og við það að kom- ast út úr bílnum hresstist Jóhann nokkuð. Hann settist síðan aftur inn í bílinn en um það leyti sem þeir voru komnir inn í Hafnarfjörð rak hann aðra höndina í sætið og fann að það var sjóðandi heitt, svo heitt að hann gat ekki látið höndina hvíla á sætinu. Jóhann slökkti þegar á hitaranum og lyfti sér frá sætinu. Hann gerði sér ekki grein fyrir að hann hefði brennst svo illa sem raun ber vitni. „Ég var að vona að ég hefði sloppið. Ég fór beint heim, upp í rúm og fékk mér verkjatöflu. Ég steinsofnaði og svaf þar til morguninn eftir. Þá fór ég að þreifa á þessu og finn að þarna voru tvær svakalegar blöðrur, fullar af vatni,“ sagði hann. Jóhann var lagður inn á Landspítalann við Hringbraut og við tóku aðgerðir og síðan sjúkra- lega og endurhæfing á Grensásdeild sem brátt hefur staðið í fjóra mánuði. Í fyrstu var talið að sárin væru ekki ýkja alvarleg. „Síðan kom alltaf meira og meira í ljós þegar skinnið fór að losna upp úr þessu. Og loks endaði þetta inn við bein,“ sagði hann. Jóhann hlaut tvö 4. stigs brunasár ofan á sitj- andabeinunum. Sárið hægra megin var sýnu verra og þurfti að meitla af beininu áður en saum- að var fyrir. Sárin hafa gróið þokkalega vel en þó er stutt síðan Jóhanni var leyft að sitja á nýjan leik. Núna má hann sitja í hálftíma í senn en þarf að hvíla í 3–4 klukkustundir á milli. „Ég er búinn að liggja í rúminu síðan þetta gerðist, ýmist á hliðinni eða á maganum og er enn með þokkalegu geði.“ Hætti við tvær keppnisferðir Slysið veldur því að Jóhann hefur ekkert getað æft borðtennis og er þegar búinn að hætta við tvær keppnisferðir af fjórum sem voru liður í þjálfun hans fyrir Evrópumeistaramótið í borð- tennis fatlaðra í september. Jóhann er þó ekki bú- inn að afskrifa mótið. Hann stefnir auk þess á að keppa á Íslandsmeistaramóti fatlaðra í mars en þar á hann alla titla að verja í borðtennis. Jóhann lamaðist í mótorhjólaslysi árið 1994 og varð í kjölfarið að liggja inni á Grensásdeild í um níu mánuði. Fram á þetta ár hafði hann verið al- gjörlega laus við sár sem stundum fylgja lang- setum í hjólastól og þakkar hann það ástundun íþrótta. Slysið í október var að sönnu mikið áfall. „Þetta breytir öllu prógramminu. Ég á litla sex ára stelpu sem skilur ekkert í því að pabbi hennar skuli vera svona lengi inni á spítala með einhver sár. Því sárin á henni gróa á einni viku en þetta tekur pabba hennar marga mánuði. Ég er með hana aðra hverja helgi en það er allt saman farið í kerfi. Þetta er búið að taka mikið á. Ég hélt að ég væri búinn með minn spítalaskammt,“ sagði Jó- hann. Þá óttast hann að brunasárin valdi því að hann þurfi að leggjast inn á spítala af og til. Jeppinn sem feðgarnir óku er af gerðinni Grand Cherokee Overland árgerð 2002. Jeppinn er í eigu fyrirtækis sem Jóhann á ásamt félaga sínum og fluttu þeir sjálfir inn jeppann frá Bandaríkjunum. Jeppinn hafði lent í árekstri í Bandaríkjunum en var ekki mikið skemmdur, að- eins þurfti að skipta um felgu og laga stuðara, bretti og framhurð vinstra megin, að sögn Jó- hanns. Eftir slysið lét Jóhann lögregluna í Keflavík mæla hitastigið á sætinu og að hans sögn mældist það um 60°C. Hann hafði á hinn bóginn fengið þær upplýsingar að hitinn ætti ekki að gera orðið meiri en um 34°C og því augljóst að alvarleg bilun varð í sætishitaranum. Jóhann hefur haft fregnir af svipuðum bilunum í þessari tegund jeppa og er lögfræðingur hans að kanna hvort hann eigi rétt á slysabótum. Jóhann kveðst ekki hafa vitað að notkun jeppans væri takmörkuð og að hann ætti ekki að vera í umferð. Notkun bönnuð í Bandaríkjunum Eins og fyrr segir flutti fyrirtæki Jóhanns og félaga hans jeppann inn frá Bandaríkjunum. Ræsir hf. hefur umboð fyrir þessa bíltegund. Samkvæmt upplýsingum sem Ræsir hefur að- gang að hjá framleiðanda er notkun hans tak- mörkuð og engar ábyrgðir í gildi. Hilmar Böðv- arsson hjá Ræsi sagði að sökum þessa ætti bíllinn ekki að vera í umferð og hann fengist ekki skráð- ur í Bandaríkjunum en þar væru reglur strangari en hér á landi. Raunar hefði ábyrgðin fallið niður um leið og jeppinn, sem væri gerður fyrir Am- eríkumarkað, hefði verið skráður utan Ameríku. Aðspurður sagðist Hilmar ekkert hafa heyrt um að gallar hefðu komið fram í sætishitara í þessari tegund bíla. Brenndist alvarlega þegar sætishitari í jeppa bilaði þannig að hitinn varð 60°C „Ég hélt að ég væri búinn með minn spítalaskammt“ Morgunblaðið/Jim Smart „Síðan kom alltaf meira og meira í ljós þegar skinnið fór að losna upp úr þessu. Og loks endaði þetta inn við bein,“ sagði Jóhann Rúnar. KÆRUNEFND útboðsmála hefur hafnað kröfum Gámakó hf. um að stöðva samningagerð Inn- kaupastofnunar Reykjavík- urborgar við Íslenska gámafélagið ehf. vegna útboðs á sorphirðu hjá fyrirtækjum og stofnunum Reykja- víkurborgar. Krafðist Gámakó þess einnig að ákvörðun Innkaupastofn- unar um að hafna tilboði Gámakó yrði ógilt og samið við félagið. Kærunefnd taldi að tilboð Gámakó hefði verið í ósamræmi við útboðsgögn að því leyti að nokkrir liðir hefðu verið óútfylltir en skýrt væri tekið fram í útboðsgögnum að bjóðendum væri skylt að skila til- boði sínu á tilboðsblöðum ásamt út- fylltum tilboðsskrám. Þá taldi kærunefndin að Gámakó hefði ekki rökstutt þá fullyrðingu að mat Inn- kaupastofnunar hefði verið í ósam- ræmi við útboðsskilmála. Þá hafnaði kærunefndin einnig kröfum Gámaþjónustunnar hf. á hendur Innkaupastofnun vegna sama útboðs. Taldi nefndin að Gámaþjónustunni hefði ekki tekist að sanna að Innkaupastofnun hefði ekki farið eftir reglum við meðferð og mat á tilboðum. Ekki heldur hefði tekist að sanna að aðeins Gámaþjónustan og tveir aðrir bjóð- endur gætu vigtað úrgang inn í söfnunarbíla með þeirri nákvæmni sem áskilið væri í útboðsgögnum. Kröfum gáma- félaga hafnað TALSVERT hefur verið um innbrot í íbúðir Hafnarfirði að undanförnu og hvetur lögreglan fólk til að efla nágrannavörslu. Á miðvikudag var brotist inn í hús í Áslandshverfi í Hafnarfirði og stolið þaðan myndavélum og verð- mætum tölvubúnaði. Var þetta fjórða innbrotið inn á heimili í um- dæmi lögreglunnar í Hafnarfirði frá því á föstudag. Hafa tvö innbrot verið framin í Áslandshverfi og tvö í Garðabæ. Öll voru þau framin að degi til þegar íbúar voru fjarver- andi. Lögreglan hvetur fólk til að hafa samband ef vart verður óeðli- legra mannaferða í íbúðarhverfum. Óskað er eftir upplýsingum um bíla og bílnúmer og annað sem vekur athygli og telst óeðlilegt, s.s. stað- setningu eða útlit. Innbrotahrina í Hafnarfirði HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær 21 árs mann í 18 mánaða fang- elsi fyrir hnífaárás á tvítugan mann í Vogahverfi í Reykjavík árið 2003. Með dómi sínum stað- festi Hæstiréttur dóm Héraðs- dóms Reykjavíkur frá 2. apríl sl. Ákærði var 19 ára þegar árás- in var gerð og var sakfelldur fyr- ir sérstaklega hættulega árás með því að hafa veitt brotaþola tvö stungusár í búkinn með hnífnum. Ákærði stakk hnífnum í brotaþola í hefndarskyni fyrir kjaftshögg í kjölfar rifrildis þeirra. Hæstiréttur taldi atlög- una stórhættulega en þess að auki rauf ákærði skilorð á dómi sem hann fékk fyrir hegningar- laga- og vopnalagabrot árið 2002. Ákærði var einnig dæmdur til að greiða brotaþola 250 þúsund krónur í bætur auk málskostn- aðar. Hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Bene- diktsdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. dæmdu málið. Verjandi var Guðmundur B. Ólafsson hrl. og sækjandi Sigríður J. Friðjóns- dóttir hjá ríkissaksóknara. Átján mán- aða fang- elsi fyrir hnífaárás HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær ís- lenska ríkið til að greiða karlmanni hálfa milljón króna í bætur vegna óhóflegs dráttar á sakamáli hans sem dróst í á þriðja ár. Maðurinn krafðist bóta úr hendi ríkisins fyrir handtöku, meingerð gegn æru og gæsluvarðhald, sem hann sætti frá 31. október 1999 til 3. nóvember sama ár, vegna gruns um aðild að fjárdrætti í verslun. Maðurinn var ákærður fyrir aðild sína að málinu hinn 19. mars 2002 en sýknaður í héraðsdómi. Hæstiréttur taldi að lagaskil- yrðum um handtöku og gæslu- varðhald mannsins hefði verið full- nægt og að honum hafi ekki verið haldið lengur en nauðsyn bar til. Því yrðu honum ekki dæmdar bæt- ur vegna þessa. Hins vegar hefði málið dregist óhóflega með því að maðurinn hefði legið undir grun í 30 mánuði. Lögreglustjórinn í Reykjavík hélt því fram, að mann- ekla hjá lögreglu hefði valdið drætti málsins. Hefði lögreglumað- urinn sem annaðist rannsóknina farið til starfa í Bosníu og verið þar í 9 mánuði og málið beðið á meðan. Hæstiréttur taldi hins vegar að dráttur málsins yrði ekki skýrður með manneklu hjá lögreglunni og dæmdi manninum 500 þúsund krónur í bætur. Málið dæmdu Guðrún Erlends- dóttir, Garðar Gíslason og Hrafn Bragason. Björn Ólafur Hall- grímsson hrl. flutti málið fyrir manninn og Skarphéðinn Þórisson ríkislögmaður fyrir ríkið. Lá allt of lengi undir grun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.