Morgunblaðið - 18.02.2005, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Við Skjalda erum í sjokki, við þurfum áfallahjálp, það er búið að vera að tuttla okkur á
þessu skeri í yfir 1000 ár og enginn veit hvort við segjum mu eða mö.
Rækjuvinnslan hefurátt í miklum erfið-leikum. Hefur
vinnsla í sex af 14 verk-
smiðjum hér á landi legið
niðri að mestu eða öllu
leyti að undanförnu.
Í gær hófst þó starfsemi
á nýjan leik í rækjuvinnslu
Íshafs hf. á Húsavík en
starfsemi hennar hefur að
mestu legið niðri frá því
fyrir jól.
Af þeim fjórum verk-
smiðjum sem enn eru lok-
aðar hefur ein orðið gjald-
þrota en reiknað er með að
stöðvun vinnslunnar í öðr-
um verksmiðjum sé aðeins
tímabundin eða þar til fer að rofa
til, samkvæmt upplýsingum Arn-
ars Sigurmundssonar, formanns
Samtaka fiskvinnslustöðva.
Að sögn hans stafa erfiðleikar í
rækjuvinnslunni ekki eingöngu af
sterku gengi krónunnar. Erfiðleik-
ar voru fyrir í greininni og meiri en
í öðrum vinnslugreinum Lokunin
að undanförnu hefur þó verið
óvenjuumfangsmikil og langvinn.
„Það er alveg ljóst að þróun
gengisins síðustu mánuði hefur
komið mjög illa við allar útflutn-
ingsgreinar, en þarna er garðurinn
lægstur,“ segir Arnar.
Verðlækkanir á mörkuðum
„Segja má að útgerð og vinnsla
rækju sé sá þáttur í sjávarútveg-
inum, sem er veikastur fyrir,“ seg-
ir Arnar. „Þetta stafar fyrst og
fremst af langvarandi erfiðleikum,
sem framan af hafa stafað af miklu
framboði af rækju á mörkuðum,
sem leiddi til verðlækkana. Þetta
ástand hefur varað í þrjú til fjögur
ár.“
Mörg fyrirtæki í rækjuvinnslu
hafa leitað allra ráða á þessu tíma-
bili til að þrauka af þetta tímabil
með hagræðingaraðgerðum.
„Styrking krónunnar gerir að
verkum að sú litla framlegð sem
fyrir var hefur enn minnkað,“ seg-
ir Arnar. „Þetta hefur leitt til þess
að sum fyrirtækin hafa dregið úr
afköstum og önnur hafa einfald-
lega hætt, sum tímabundið, en
önnur hafa hreinlega gefist upp.
Hér er því um að ræða sambland
af langvarandi erfiðleikum og
hækkun á gengi krónunnar,“ segir
hann.
Þrjár rækjuverksmiðjur hafa
hætt allri starfsemi á undanförn-
um tveimur árum. „Það eru meiri
eða minni líkur á því að þeim eigi
enn eftir að fækka,“ segir Arnar
Sigurmundsson.
Ekki mjög bjartsýnir
Þó að viðkvæðið hafi oft verið að
botninum sé náð og betri tíð hljóti
að vera framundan er staðan í dag
með versta móti. Afurðaverð hefur
sáralítið eða ekkert hækkað.
„Óneitanlega eru menn ekki mjög
bjartsýnir. Engu að síður hafa
menn trú á að gert hafi verið svo
mikið hér á landi, sérstaklega með
hagræðingaraðgerðum í land-
vinnslunni, að langflestar verk-
smiðjurnar séu vel í stakk búnar til
að takast á við erfiða samkeppni en
þetta er orðið óskaplega lang-
vinnt.“
Arnar segir að sterk staða krón-
unnar upp á síðkastið hafi komið
mönnum nokkuð á óvart. Skila-
verð afurðanna í íslenskum krón-
um hafi verið 8% til 9% lægra en
menn áttu von á. „Allar opinberar
spár gengu m.a.s. út á að gengis-
vísitalan yrði í kringum 120 um
þessar mundir en hún er núna um
111.“
Förum hægt af stað
Rækjuverksmiðja Íshafs á
Húsavík hefur verið afkastamesta
rækjuvinnsla landsins. Um 40
manns hafa starfað hjá fyrirtæk-
inu á tvískiptum vöktum þegar
verksmiðjan var rekin með fullum
afköstum en nær engin starfsemi
hefur verið í verksmiðjunni síðast-
liðnar átta vikur.
Unnið hefur verið að fjárhags-
legri endurskipulagningu fyrir-
tækisins að undanförnu í þeim til-
gangi að halda rekstrinum áfram
og er þeirri vinnu ekki lokið, að
sögn Bergsteins Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra Íshafs. Að
sögn hans var þó ákveðið að gang-
setja verksmiðjuna á nýjan leik í
gær. „Við förum hægt af stað. Til
að byrja með á einni vakt en megn-
ið af seinasta ári var unnið hér á
tveimur vöktum,“ segir Berg-
steinn.
Nú eru um 20 starfsmenn við
rækjuframleiðsluna hjá Íshafi auk
þess sem starfsemin hefur umtals-
verð margfeldisáhrif á atvinnulífið
á Húsavík. „Við þurfum að afla
okkur hráefnis. Útlitið er þokka-
legt hvað það varðar,“ segir Berg-
steinn ennfremur og bendir einnig
á að farið verði að huga að því á
næstu dögum hvort einhverja
rækju sé að finna á miðunum.
Spurður hvað helst hafi valdið
erfiðleikum í rækjuiðnaðinum,
segir Bergsteinn ýmsa þætti hafa
aukið á vandann að undanförnu.
„Síðastliðið haust var mjög erf-
itt vegna þess að menn voru að
selja í fallandi gengi. Hráefnisverð
var líka mjög hátt síðastliðið haust,
m.a. vegna olíukostnaðar,“ segir
hann. Hefurðu trú á að bjartara sé
framundan? „Við ætlum alla vega
að fara af stað í trausti þess að
framundan séu betri tímar.“
Fréttaskýring | Rækjuvinnsla víða um land
hefur átt í langvarandi erfiðleikum
Staðan með
versta móti
Rækjuverksmiðja Íshafs á Húsavík var
gangsett í gær eftir átta vikna stopp
Skilaverð 8—9% lægra en menn áttu von á.
Viðræður um breytingar á
bónuskerfi starfsmanna
Íshaf hefur óskað eftir við
Verkalýðsfélag Húsavíkur að
samkomulag um kaupaukakerfi
starfsmanna í rækjuvinnslunni
verði endurskoðað. Standa við-
ræður enn yfir. „Ég vona að okk-
ur takist að ná samkomulagi um
þessa ósk þeirra um breytingar á
þessum samningi,“ segir Að-
alsteinn Baldursson, formaður
verkalýðsfélagsins. Hann hefur
miklar áhyggjur af bágri stöðu
rækjuvinnslu hér á landi. „Það er
ekki bjart yfir þessu, því miður.“
omfr@mbl.is