Morgunblaðið - 18.02.2005, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 9
FRÉTTIR
REYKJAVÍKURBORG og KB
banki hafa gert samning um útgáfu
og sölu á flokki skuldabréfa að fjár-
hæð einn og hálfur milljarður króna.
Skuldabréfin eru verðtryggð til 20
ára með 3,79% föstum vöxtum með
tveimur gjalddögum á ári og upp-
greiðslurétti að fimm árum liðnum, en
Reykjavíkurborg hyggst nota lánið til
þess að greiða af eldri lánum.
Samkvæmt samningnum ábyrgist
KB banki sölu bréfanna, en skulda-
bréfaflokkurinn verður stækkanleg-
ur. Þetta er í fyrsta skipti frá árinu
1996 sem Reykjavíkurborg leitar eftir
lánsfé á íslenskum markaði, þar sem
mun hagstæðari kjör hafa verið í boði
erlendis á þessu tímabili.
Leitað var eftir tilboðum í sölu
skuldabréfanna meðal allra bankanna
og SPRON og var bæði óskað eftir til-
boðum með uppgreiðslurétti og án
hans. Tilboð bárust frá öllum þessum
aðilum og reyndist tilboð KB banka
hagstæðast að mati borgarinnar.
Borgin tekur 1,5 millj-
arða að láni innanlands
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri og Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri KB banka, handsala samning um skuldabréfaútgáfu.
STJÓRN AFLS, Starfsgreinafélags
Austurlands, hefur sent frá sér yfir-
lýsingu þar sem mótmælt er meintu
sinnuleysi sem forráðamenn Fjarða-
byggðar hafi sýnt í kjölfar gríðarlegra
hækkana á fasteignamati í sveitarfé-
laginu undanfarin tvö ár. „Bent er á að
um 20% meðalhækkun á fasteigna-
mati í fyrra og um 30% nú komi illi-
lega við hópa sem illa mega við þeirri
útgjaldaaukningu sem því fylgir, til að
mynda eldra fólk sem býr í eigin hús-
næði,“ segir m.a. í yfirlýsingunni. Síð-
an segir: „Stjórn AFLS skorar á sveit-
arstjórn að endurskoða þá ákvörðun
að bregðast ekki við umræddri hækk-
un með a.m.k. tímabundinni lækkun á
skattprósentu. Bent er á að rök sem
sett hafa verið fram um að eignir
þeirra sem lenda í umræddum hækk-
unum séu að hækka í verðmæti eru
léttvæg, enda kemur slíkt ekki til góða
nema eign sé seld eða lán tekin út á
hækkandi fasteignamat. Þrátt fyrir að
mikil uppbygging eigi sér stað í sveit-
arfélaginu er óþolandi að hún sé að
hluta kostuð með auknum útgjöldum
íbúa sveitarfélagsins.“
Bent er á að fyrir íbúa á Eskifirði sé
þetta sérstaklega bagalegt í ljósi þess
að margir þurfi að fara í mjög kostn-
aðarsamar breytingar og aðgerðir í
kjölfar þess að heitt vatn fannst á
staðnum. Skorað er bæjarstjórn
Fjarðabyggðar að endurskoða
ákvörðun sína um álagningarprósentu
fasteignagjalda.
Áhyggjur af
útgjaldaaukn-
ingu vegna
fasteignamats
Fjarðabyggð. Morgunblaðið.
SÝNING verður opnuð í dag í
Landsbókasafni – háskólabókasafni
til heiðurs Jóni Steffensen, prófess-
ors við læknadeild Háskóla Íslands,
og konu hans, Kristínu Björnsdótt-
ur, í tilefni af því að 15. febrúar var
liðin öld frá fæðingu Jóns.
Sýningin verður opnuð kl. 17 í dag
en að henni standa Landsbókasafnið
og Þjóðminjasafn Íslands. Sýning-
unni er ætlað í máli og myndum að
gefa mynd af ævistarfi þeirra og
áhugasviði. Þarna gefur að líta bæk-
ur, handrit, myndir og muni og hefur
Þjóðminjasafnið lánað á sýninguna
gripi sem tengjast mannfræðirann-
sóknum Jóns.
Einnig hefst kl. 15.30 í dag ráð-
stefna til minningar um Jón og fer
hún fram Þjóðarbókhlöðunni og
stendur einnig á morgun, laugardag.
Sýning í
minningu Jóns
Steffensen
♦♦♦
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Glæsilegur
sparifatnaður
fyrir fermingar og brúðkaup
NÝJAR VÖRUR
Laugavegi 25,
sími 533 5500.
ÚTSÖLUMARKAÐUR
Í KJALLARA
NÝR BÆKLINGUR Á
WWW.OLSEN.DE
Nýjar vörur
í báðum búðum
-------------------------------------------------------------
Síðustu dagar útsölunnar
500 kr. - 1.000 kr. - 2.000 kr.
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
ÚTSALA
Ullarkápur, dúnkápur
Úlpur, jakkar
Húfur og hattar
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið sunnudag frá kl. 12-16
Glæsilegar
vorvörur
GH
Gr
af
ís
k
Hö
nn
un
Fjarðargata 13-15 Hafnarfirði
565 7100
...yfir hafið
Dönsk hönnun, norræn og glæsileg.
Hver sendingin á fætur annarri
af nýrri og ferskri hönnun