Morgunblaðið - 18.02.2005, Page 14

Morgunblaðið - 18.02.2005, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Canada's fastest growing franchise is now expanding into Iceland. See us at www.fibrenew.com AÐALFUNDUR MEDCARE FLÖGU HF. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar 2. Ársreikningur félagsins 2004 3. Breytingar á samþykktum, skv. tillögu stjórnar: a. Nafni félagsins verði breytt í Flaga Group hf. b. Tilgangur félagsins taki einnig til eignarhaldsstarfsemi og þjónustu 4. Kosning stjórnar 5. Kosning endurskoðanda 6. Ákvörðun um meðferð hagnaðar á árinu 7. Ákvörðun um stjórnarlaun 8. Önnur mál löglega upp borin Aðalfundur Medcare Flögu hf. verður haldinn í húsakynnum félagsins að Síðumúla 24 föstudaginn 4. mars 2005, kl. 9:00. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu stjórnar og endurskoðanda munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Síðumúla 24 í Reykjavík, viku fyrir aðalfundinn. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Stjórn Medcare Flögu hf. www.medcare.com ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI   , -  (*  + ,.)+/ (.0 1            !  "# $  %#%!   & %"' (" ) (" )#" *"' (" & %"' +!% +!' ! %# ,#    -./! -.  !  "#($ 0       . & %"' 1 "' 1. " 1 2  $ 34 / " 5  6("  *7 8" 4 "" 9:/! -& -% ;%# -%"' -%.   / 2  /$ <2## "#.   " = "" %  " 3.4 .. 5-8(!#   !  "#  (  !%' >2  *"' 7. & %"'   <8 8 " $% &' ?@>A -7    $!          5      5     5 5 5 5  5 5   5  5  !2 "#  2   $! 5  5 5 5 5 5  5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 B 5CD 5 5 B CD B  CD B 5 CD B 5CD B CD B CD B 5 CD 5 B 5CD B  CD B 5CD B 5CD 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 B CD 5 5 1! %'    '# " < %( 7 % '# E ) -% $ $ $ $  $ $  $ $ $ $  $  5 $   $ $ 5 $ $  $  5 5 5 5 5 5 5 $ 5 $                   5                                  =    7 FG $ $ <1$ H /#"%  %'          5    5     5 5 5 5  5 5  5  5  <1$5 I  .  ./%'"' % /% $ <1$5 -2%'  %  %!## . 2  %( /!   " $ LÉLEG arðsemi stendur ferðaþjón- ustu í landinu fyrir þrifum þegar kemur að möguleikum hennar sem fjárfestingarkosts. Þetta má segja að hafi verið niðurstaðan á málþingi sem Samtök ferðaþjónustunnar, SAF, stóð fyrir um virði ferðaþjón- ustunnar og möguleika hennar sem fjárfestingarkosts í framtíðinni. Hallgrímur Snorrason hagstofu- stjóri fór yfir tiltækt talnaefni um at- vinnugreinina og sagði hann saman- teknar afkomutölur fyrirtækja í ferðaþjónustu sýna ákaflega sorg- lega niðurstöðu, þá sérstaklega fyrir hótel- og veitingarekstur. Tölurnar sýndu að reksturinn væri almennt ekki beysinn og dró hann þá ályktun að ekki væri fýsilegt að fjárfesta í greininni. „Hvernig geta menn hald- ið úti atvinnurekstri í grein sem ekki græðir?“ spurði Hallgrímur. Hann benti á mjög lágt eiginfjárhlutfall í hótel- og veitingarekstri og varpaði fram þeirri spurningu hvort það væri alvöru atvinnurekstur sem væri með innan við 5% eiginfjárhlutfall ár eftir ár. Óáreiðanlegar tölur Hallgrímur lýsti jafnframt efa- semdum um að veltutölur ferðaþjón- ustunnar væru mjög áreiðanlegar. Enda væri atvinnugreinin varla svo stór ef hún skilaði ekki neinu. „Greinin verður að bæta tölulegar upplýsingar um eigin rekstur,“ sagði hann. Reyndin væri sú að fólk í ferðaþjónustu skilaði ekki inn tölum þegar vel gengi, einungis þegar illa áraði. Fundarmenn virtust á sama máli og létu að því liggja að erfitt væri að eiga við þá sem ekki gefi upp réttar tölur úr rekstri sínum, þ.e. stundi „svarta starfsemi“. Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu- maður greiningardeildar Lands- banka Íslands, tók undir gagnrýni Hallgríms. Sagði hún arðsemina hafa verið „ömurlega“ á tímabilinu 1998 til 2002 þ.e. því tímabili sem töl- ur eru til fyrir. Benti hún jafnframt á að í öðrum atvinnugreinum væri eig- infjárhlutfall að meðaltali 35% en 5% í ferðaþjónustunni. Þetta væri vænt- anlega afleiðing slæmrar afkomu, að svo virtist sem áhættufé í greininni hefði étist upp í taprekstri. Þar af leiðandi væri svigrúm greinarinnar til að mæta sveiflum í rekstri afar takmarkað. 354 á hausinn í fyrra Edda Rós tiltók þó að útlánasér- fræðingar Landsbankans sjái merkj- anlegan mun til hins betra á síðustu tveimur árum. „Arðsemi eða loforð um arðsemi er lykillinn að buddu fjárfesta,“ sagði hún og lagði ríka áherslu á gerð viðskiptaáætlana í ferðaþjónustu. Fjallaði hún sérstak- lega um hvernig stofnkostnaður virðist sliga stóran hluta atvinnu- greinarinnar og huga þyrfti vel að því að halda honum í lágmarki. Gjaldþrot og árangurslaus fjár- nám í ferðaþjónustu sagði hún hafa numið 10% af öllum gjaldþrotum og árangurslausum fjárnámum á síð- asta ári. Að langstærstum hluta sé þar um að ræða matsölustaði. „Það fóru 354 matsölustaðir á hausinn í fyrra,“ sagði hún. Sturla Böðvarsson, samgönguráð- herra, upplýsti á fundinum að nú sé unnið að nýju frumvarpi um skipan ferðamála. Sagði hann löngu kominn tíma á endurskoðun laganna sem nú eru í gildi en þau séu að stofni til frá árinu 1964. Megintilganginn með frumvarp- inu sagði Sturla, að sérstök stofnun færi með leyfisveitingar og þær yrðu einfaldaðar sem og tryggingamál ferðaskrifstofa. Arðsemin óviðunandi Morgunblaðið/Golli Ömurleg arðsemi Edda Rós Karlsdóttir: Stofnkostnaður að sliga ferðaþjónustuna.  www.mbl.is/itarefni Hagstofustjóri á málþingi Samtaka ferðaþjónustunnar um virði greinarinnar ● UPPSTILLINGARNEFND fyrir aðal- fund sænska fjárfestingarbankans D. Carnegie & Co AB, sem haldinn verð- ur 17. mars, leggur til að Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Burðaráss, taki sæti í stjórn Carnegie en Burðarás er stærsti einstaki hlut- hafinn með um 20% hlut. Burðarás hefur lýst þvíyfir að félagið muni til- nefna einn mann til viðbótar Björgólfi og samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun félagið í samvinnu við aðra hluthafa hafa styrk til þess. Sá stjórnarmaður verður þó ekki Íslend- ingur heldur „óháður“ Svíi sem þekkir vel til sænska markaðarins. Björgólfur í stjórn Carnegie ● ÁÆTLAÐ er að það verð sem rætt er um í tengslum við tilboð bresku verslanakeðjunnar Somer- field um kaup á 140 bens- ínstöðvum af bandaríska olíu- fyrirtækinu ChevronTexaco sé um 90 milljónir punda eða um 10,6 milljarðarkróna. Frá þessu var greint í Financial Times í gær. Fram kom í breskum fjölmiðlum í fyrradag að viðræður væru hafnar milli Somerfield og ChevronTexaco um kaup á bensínstöðvunum. Eins og kunnugt er hefur Baugur Group lagt fram óformlegt kauptilboð í Somerfield. Segir í frétt FT að viðræðurnar um kaup Somerfield á bens- ínstöðvunum af ChevronTexaco hafi komið Baugi á óvart. Baugur hafi ekki haft hugmynd um að þær hefðu staðið yfir í fimm mánuði. Tekið er fram í fréttinni að þetta muni þó ekki hafa áhrif á áhuga Baugs á Somerfield. Somerfield vill kaupa bensínstöðvar á rúma 10 milljarða ● EFTIRNAFN Kjartans Georgs Gunn- arssonar, framkvæmdastjóra SP Fjármögnunar, misritaðist í mynda- texta með grein um fyrirtækið í Við- skiptablaði Morgunblaðsins í gær. Beðist er velvirðingar á þessum leiðu mistökum. Straumur á 21,06% Í frétt á forsíðu Viðskiptablaðs Morg- unblaðsins í gær, var sagt að Straumur Fjárfestingarbanki ætti 23% í Íslandsbanka. Það voru upp- lýsingar úr Kauphöll Íslands. Hið rétta er, að Straumur á nú 21,06% hlut í Íslandsbanka. Leiðrétting HAGNAÐUR SPRON á árinu 2004 nam 1.465 milljónum króna eftir skatta. Þetta er mesti hagnaður í sögu sjóðsins en á árinu 2003 var hagnaðurinn 804 milljónir. Mest munar um aukinn geng- ishagnað sparisjóðsins, en hann jókst um liðlega 600 milljónir króna milli áranna 2003 og 2004. Geng- ishagnaðurinn var liðlega 1,7 millj- arðar í fyrra samanborið við 1,1 milljarð árið áður. Enda segir í til- kynningu SPRON að fjárfestingar sparisjóðsins í hlutabréfum séu sá liður sem mestri ávöxtun hafi skil- að. Hlutabréfaverð hafi hækkað mikið og fjárfestingar SPRON á þessu sviði hafa skilað frábærum árangri. Arðsemi eigin fjár SPRON var 32% á síðasta ári en var 21% árið áður. Hreinar rekstrartekjur jukust um 32% á milli ára og námu um 5 milljörðum króna. Vaxtamunur sparisjóðsins er 3,8% og er óbreytt- ur á milli ára. Útlán SPRON-samstæðunnar námu í árslok 2004 tæpum 50 millj- örðum króna, sem er um 33% aukn- ing frá árinu á undan. Heildarinn- lán jukust um 18% og sem hlutfall af útlánum námu þau í árslok 71%. Eigið fé sparisjóðsins jókst árið 2004 um ríflega 29% og var í lok ársins 5.947 milljónir króna. Eig- infjárhlutfall (CAD) var 10,4%. Fram kemur í tilkynningu SPRON að stjórn félagsins muni leggja til á aðalfundi hinn 7. mars næstkomandi, að greiddur verði 25,5% arður til stofnfjáreigenda vegna ársins 2004. Auk þess mun stjórn sparisjóðsins leggja til að nýtt verði heimild í lögum um sér- stakt endurmat stofnfjár og það hækkað um 5%. SPRON hagnast um tæpa 1,5 milljarða gretar@mbl.is ♦♦♦ 9 'J -KL    C C <-> M N     C C @ @ ,+N C C )N 9 !    C C ?@>N MO 6"!     C C

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.