Morgunblaðið - 18.02.2005, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
Garðabær | Um 130 sex ára börn
munu hefja skólagöngu í Garðabæ
næsta haust, og á fjölmennum fundi í
vikunni gafst foreldrum þessara
barna, og öðrum áhugasömum, færi
á að kynna sér þá fjóra skóla sem í
boði eru., og í framhaldinu velja for-
eldrar þann skóla sem þeir vilja helst
að þeirra barn gangi í.
Þetta er annað árið í röð sem skól-
arnir sem sinna kennslu sex ára
barna í bænum kynna starfsemina
svo foreldrar geti valið á milli skól-
anna, segir Oddný Eyjólfsdóttir,
grunnskólafulltrúi Garðabæjar. Hún
segir þó kynningarfundinn í ár mun
betur sóttann en fyrsta fundinn sem
haldinn var í fyrra, og það gefi áhuga
foreldra til kynna.
„Mér finnst foreldrar sýna mikinn
áhuga á því að kynna sér hvað skól-
arnir hafa upp á að bjóða, og sýna
með því að það skiptir þá máli hvar
börnin þeirra fara í skóla. Foreldra-
samfélagið hér í Garðabæ er sterkt
og bæði í foreldrafélögum og for-
eldraráðum hefur upp til hópa verið
mjög áhugasamt og jákvætt fólk sem
er ánægjulegt að starfa með. Þegar
skólaskrifstofan sendir út fyrir-
spurnir eða kallar eftir viðbrögðum
foreldra þá fást yfirleitt mjög góð
viðbrögð.“
Ekki hefur verið kannað sérstak-
lega í Garðabæ hvað það er sem helst
ræður vali foreldra á skólum fyrir
börn sín, en Oddný segir að þar sem
þetta hafi verið kannað erlendis sé
staðsetning skóla miðað við heimili
það sem mestu skiptir, og ekki sé
ótrúlegt að það sama gildi fyrir
Garðabæinn.
Oddný segir að mikill meirihluti
foreldra hafi hingað til ákveðið að
senda sín börn í þann skóla sem
næstur er heimili. Þó séu alltaf ein-
hverjir sem senda börn sín í Skóla
Ísaks Jónssonar í Reykjavík, og þau
börn sem voru á leikskóla Hjalla-
stefnunar hafi mörg hver haldið
áfram í Barnaskóla Hjallastefnunn-
ar. Einnig séu dæmi um foreldra
sem flytjast innanbæjar en halda
samt tryggð við skólann sem önnur
börn þeirra hafa e.t.v. gengið í.
Foreldrum vandi á höndum
Erfitt er að segja til um hvað for-
eldrar hafa í huga þegar kemur að
vali á skóla, enda getur það verið
mjög persónubundið, segir Oddný.
„Í mínum huga eru skólarnir sem
eru í boði allir mjög góðir en þeir eru
hver með sínu sniði. Þetta eru allt
góðir skólar, það er gott starf í þeim
öllum. Þannig að það sem hver og
einn hugsar um er kannski svolítið
persónulegt. Ég þori að fullyrða að
ef foreldrar eru í alvöru að hugsa um
að velja ígrundað, þá er þeim veru-
legur vandi á höndum því það er ekki
auðvelt að velja,“ segir Oddný.
Með því þeirri stefnu að leyfa for-
eldrum að velja í hvaða skóla börn
þeirra ganga er verið að setja
ábyrgðina á því að velja það sem best
er fyrir þeirra barn á herðar foreldra
og gera þeim kleift að hugsa málið og
taka upplýsta ákvörðun. „Þetta hef-
ur alltaf verið svolítið auðvelt fyrir
foreldra, það er auðvelt að segja að
maður þurfi að sitja uppi með ein-
hvern skóla, barnið verði að fara í
þann skóla, og verða svo bara fúll ef
eitthvað vekur upp óánægju. Núna
er foreldrum fólkinu gefið þetta
tækifæri og þeir þurfa þess vegna
líka að taka ábyrgð á valinu,“ segir
Oddný.
„Ég er sannfærð um að það er já-
kvætt bæði fyrir foreldra og skóla að
geta valið, þetta eflir metnað skól-
anna í að standa sig vel og foreldrar
fylgjast örugglega enn betur með
skólastarfinu sem stuðlar að betri
námsárangri og líðan nemenda. Þeg-
ar foreldrar hafa valið ákveðinn
skóla verða þau enn tengdari þeim
skóla sem þeir velja fyrir barnið sitt,
frekar heldur en einhverjum skóla
sem þeir eru neyddir til að láta barn-
ið sitt í.“
Foreldrar eru áhugasamir um val á grunnskólum
Staðsetning skóla
virðist skipta mestu
Miðborgin | Fyrsti áfangi nýs hót-
els á horni Aðalstrætis og Tún-
götu, Hótel Reykjavík Centrum,
hefur verið afhentur rekstrarað-
ilum. Í tilkynningu frá forsvars-
mönnum hótelsins segir að fram-
kvæmdir hafi gengið framar bestu
vonum og að opnuninni hafi verið
flýtt um viku, og er áformað að
opna það 23. mars nk. í stað 1.
apríl.
Hótelið er 89 herbergja og er
uppsetning á innréttingum hafin.
Verktaki við bygginguna er Ís-
lenskir aðalverktakar.
Eins og fram hefur komið er
hótelið reist í anda bygginga sem
áður stóðu á reitnum, Fjalakatt-
arins og Uppsala. Veitingastað-
urinn Fjalakötturinn verður til
húsa þar ásamt Uppsölum Bar&
Café.
Þá áformar Reykjavíkurborg að
opna sýningarsal í kjallara hótels-
ins á næsta ári sem byggður er í
kringum rúst af víkingaaldarskála.
Yfirmenn teknir til starfa
Búið er að ganga frá ráðningu
helstu yfirmanna hótelsins og hafa
nokkrir þegar tekið til starfa:
Sig. Ómar Sigurðsson hótel-
stjóri, Þórhildur María Jónsdóttir
yfirmatreiðslumaður, Eyrún
Guðnadóttir veitingastjóri og Heið-
veig Jóhannsdóttir móttökustjóri.
Tölvuteikning Svona mun hótelið líta út fullbyggt, en bygging þess er á
undan áætlun og hefur gengið framar björtustu vonum forsvarsmanna.
Opnun á Hótel Reykja-
vík Centrum flýtt
Hallarekstur | Skólanefndar hefur
farið yfir niðurstöðu í rekstri fræðslu-
og uppeldismála fyrir árið 2004.
Fram kemur að halli varð á rekstr-
inum upp á tæpa 61 milljón króna
þegar greiðslur vegna starfsmats
hafa verið færðar inn, en þær
greiðslur námu um 55,5 milljónum
króna. Þessi halli nemur 2,82% af
fjárhagsáætlun. Ef ekki er tekið tillit
til starfsmatsins er hallinn rúmar 5,4
milljónir króna, sem er 0,25% af fjár-
hagsáætlun. Hallinn verður einkum
til vegna halla á rekstri Tónlistarskól-
ans og framlaga til framhaldsskóla.
BÓKAÚTGÁFAN Hólar hefur tekið
höndum saman við fjögur önnur fyr-
irtæki á Akureyri, um að gefa tvenn
bekkjarsett af ÆVINTÝRUM
NONNA, inn á alla grunnskóla bæj-
arins. Fyrsta bekkjarsettið var af-
hent í Oddeyrarskóla og tók Helga
Hauksdóttir skólastjóri við því úr
hendi Jóns Hjaltasonar hjá Hólum.
Bókútgáfan Hólar hefur í samvinnu
við Brynhildi Pétursdóttur og
Nonnahús gefið út þrjár Nonnabæk-
ur. Brynhildur hefur tekið að sér að
stytta þessar skemmtilegu æsku-
minningar Jóns Sveinssonar og
myndlistarmaðurinn Kristinn G. Jó-
hannsson hefur myndskreytt. Fyrsta
bókin, Nonni og Manni fara á sjó,
var gefin út árið 2002, önnur bókin
er, Á Skipalóni og fyrir seinustu jól
kom út bókin, Útilegumaðurinn.
Morgunblaðið/Kristján
Nonnabækur Jón Hjaltason hjá Bókaútgáfunni Hólum, t.h., afhenti Helgu Hauksdóttur, skólastjóra Oddeyrar-
skóla, fyrsta Nonna-bekkjarsettið. Á milli þeirra standa f.v. Ingvar Már Gíslason frá Norðlenska, Rúnar Pálsson
frá Norðurmjólk, Lára Stefánsdóttir frá Þekkingu og Jón Björnsson frá Sparisjóði Norðlendinga.
Nonnabækur í grunnskólana
BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum í vikunni að af-
létta kaupskyldu og forkaupsrétti
bæjarins af öllum félagslegum eign-
aríbúðum í sveitarfélaginu frá og með
15. september nk. Félagslegar íbúðir
á Akureyri sem háðar eru ákvæðum
laga eins og þau eru á hverjum tíma,
voru 457 talsins í síðasta mánuði. Þar
ef eru 210 íbúðir þar sem kaupskylda
og forkaupsréttur eru fallin niður á
en á 247 íbúðum er enn kaupskylda
eða forkaupsréttur, að því er fram
kemur í skýrslu um málið. Samanlagt
innlausnarverð íbúðanna 247 á verð-
lagi í janúar sl. eru 2,1 milljarðar
króna en markaðsverð þeirra er
áætlað 2,5 milljarðar króna.
Á íbúðunum eru þinglýstar kvaðir
um kaupskyldu og forkaupsrétt Ak-
ureyrarbæjar. Á árinu 2002 var for-
kaupsréttur styttur í 20 ár og síðan
niður í 15 ár á árinu 2003. Kaup-
skylda er 10 ár á íbúðum sem úthlut-
að var eftir 1990 og forkaupsréttar-
tímabilið er nú 5 ár til viðbótar. Frá
því lögum um húsnæðismál var
breytt árið 1999, hafa tæplega 200
íbúðir verið seldar á almennum
markaði. Auk þess hefur um 60 íbúð-
um verið breytt í leiguíbúðir frá þess-
um tíma. Þannig hefur fjöldi íbúða
verið um 720 á Akureyri þegar laga-
breytingin átti sér stað.
Þá kemur fram í skýrslunni að
íbúðum sem seldar eru með tapi út úr
félagslega kerfinu hefur fækkað úr
83 í júní 2003 niður í 40 í janúar sl.
Meðaltalstapið hefur hins vegar
hækkað um 300.000 krónur á íbúð, úr
um 733.000 krónur í 1.033.000 krón-
ur. Samþykkt bæjarstjórnar Akur-
eyrar þarfnast staðfestingar félags-
málaráðherra. Hafi sveitarfélag
fengið slíka staðfestingu getur eig-
andi félagslegrar eignaríbúðar farið
fram á að kaupskylda og forkaups-
réttur sveitarfélags verði ekki virk og
selt íbúð sína á almennum markaði.
Heimildarákvæði þetta hefur ekki
áhrif á rétt eigenda félagslegra eign-
aríbúða til að óska sérstaklega eftir
því að sveitarfélagið leysi til sín fé-
lagslegar eignaríbúðir sem kaup-
skylda gildir um. Þetta þýðir í raun
að ef sveitarfélag óskar eftir að kaup-
skyldan falli niður geta íbúðareigend-
ur sem eiga íbúðir með innlausnar-
verð töluvert undir markaðsverði selt
sjálfir sínar íbúðir á almennum mark-
aði og hagnast á því, en sveitarfélagið
þarf að innleysa íbúðir á kaupskyldu-
tímanum sem tap er af. Íbúðareig-
endur sem átt hafa íbúðir sínar leng-
ur en kaupskyldan kveður á um bera
sjálfir tapið af því að þurfa að selja á
almennum markaði, samkvæmt því
sem fram kemur í skýrslunni.
Félagsmálaráðuneytið hefur þegar
aflétt kaupskyldu og forkaupsrétti af
félagslegum eignaríbúðum í 11 sveit-
arfélögum á höfuðborgarsvæðinu,
Suðurnesjum og Vesturlandi.
Félagslegar eignaríbúðir á Akureyri
Kaupskyldu
og forkaups-
rétti aflétt
NÝVERIÐ var gerð umfangsmikil
rannsókn á stjórnunarháttum í ís-
lenskum fyrirtækjum. Þetta er ein
fyrsta könnunin sem gerð hefur ver-
ið á landsvísu meðal fyrirtækja af öll-
um stærðum. Niðurstöður rannsókn-
arinnar benda til þess að fyrirtæki á
Akureyri noti í mörgum tilvikum
aðra stjórnunarhætti en fyrirtæki
annars staðar á landinu. Einnig kom
fram að fyrirtæki í frumvinnslu-
greinum skiluðu oftar hagnaði en
þjónustufyrirtæki á árinu 2003.
Þrír kennarar við viðskiptadeild
Háskólans á Akureyri stóðu að rann-
sókninni, sem framkvæmd var af
Rannsóknarstofnun Háskólans á
Akureyri. Þeir eru Ingi Rúnar Eð-
varðsson prófessor, Helgi Gestsson
lektor og Ólafur Jakobsson lektor.
Niðurstöður rannsóknarinnar verða
kynntar á ráðstefnu viðskiptadeildar
HA í dag, föstudag, frá kl. 14 til 16.
Einnig mun Jóna Jónsdóttir, for-
stöðumaður samskiptamiðstöðvar
HA, flytja erindi um nýlega rann-
sókn á ráðningum hjá íslenskum rík-
isstofnunum, en rannsóknin var hluti
af MA-ritgerð Jónu í mannauðs-
stjórnun.
Annars konar stjórnunarhættir
hjá fyrirtækjum norðan heiða
♦♦♦