Morgunblaðið - 18.02.2005, Síða 27

Morgunblaðið - 18.02.2005, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 27 DAGLEGT LÍF ... og mundu eftir ostinum! Á ÍSLANDI slasast mjög mörg börn á aldrinum 0–4 ára í heimahúsum eða í frítíma fjölskyldunnar. Árið 2003 komu til að mynda 1.392 börn á þessum aldri á slysadeildina vegna heima- eða frítímaslysa. Þar af höfðu tæplega 700 börn hlotið áverka við að detta. Það er því ljóst að foreldrar og aðrir fullorðnir þurfa að vera bet- ur vakandi fyrir öryggi litlu barnanna. Detta úr rúmum og af skiptiborðum Mjög mikilvægt er að foreldrar og forráðmenn barnanna geri sér grein fyrir því að börn á þessum aldri hafa ekki þroska og getu til að forðast hætturnar í umhverfinu. Eitt af und- irstöðuatriðunum til að koma í veg fyrir að lítil börn detti er að lyfta ekki barni upp á eitthvað sem það kemst ekki sjálft upp á. Þaðan er bara ein leið niður og þar kemur höf- uðið fyrst. Þegar börn hafa lært að klifra upp á eitt- hvað sjálf hafa þau líka lært að komast niður aftur án þess að meiða sig. Flest heima- og frítímaslys verða í setustofunni eða svefnherberginu. Oftast vegna þess að barni er lyft upp í sófa eða hjóna- rúm og sá fullorðni yfirgefur barnið eitt augnablik – á meðan dettur barnið niður á gólf. Á hverju ári slas- ast nokkur mjög ung börn vegna þess að þau detta niður af skipti- borði. Slysin hafa orðið vegna þess að sá sem er að skipta á barninu ger- ir sér ekki grein fyrir því að barnið sé farið að geta velt sér, eða spyrna fótum í vegginn, og geti við það dott- ið út af borðinu og niður á gólf. Hér er mikilvægt að átta sig á því að fallhæðin fyrir smábarnið ofan af skiptiborði og niður á gólf sam- svarar falli fullorðins manns ofan af bílskúrsþaki! Matarstóllinn hefur líka reynst einn af þeim stöð- um þar sem börn- in eru að detta. Strax frá fyrsta degi, sem barn fer að nota slíkan stól, er mikilvægt að það sé haft í beisli í stólnum. Svo þarf að kanna hvort brík sé undir borðinu sem barnið situr við. Það hefur sýnt sig að jafnvel mjög ung- um börnum hefur tekist að spyrna svo fast í bríkina að þau hafa dottið aftur fyrir sig. Hægt er á auðveldan hátt að koma í veg fyrir þetta með því að festa stólinn við borðið og er í því sambandi bent á myndskreyttar leiðbeiningar á: www.lydheilsu- stod.is/frettir/arvekni/nr/882 Inn- kaupakerrurnar. Slasast í verslunum Þegar slysatölur hjá þessum aldurs- hópi eru skoðaðar nánar vekur það athygli hversu mörg börn slasast í verslunum. Ástæðan þar er oftar en ekki sú að börn detta úr inn- kaupakerrum. Því miður eru lítil börn, sem ekki eru fest í kerrurnar, oft skilin eftir ein á meðan sá full- orðni sem er með þeim fer og nær í einhverja vöru. Barninu finnst það yfirgefið, reynir að fara á eftir og dettur við það úr kerrunni. Svo er einnig talsvert algengt að barnið er ekki látið sitja í sætinu heldur standa í kerrunni – en þar á barnið alls ekki að vera.  HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Lýðheilsustöð Flest börn meiða sig í svefn- herberginu eða setustofunni Morgunblaðið/Ásdís Ágætu foreldrar og forráðamenn, kynnið ykkur nánar á heimasíðu okkar: www.lydheilsustod.is undir Árvekni-slysavarnir barna, hvern- ig koma megi í veg fyrir að börn slasist. Herdís L. Storgaard verkefnastjóri Árvekni – barnaslysavarna Lýð- heilsustöð. Fallhæð fyrir smábarn ofan af skiptiborði og niður á gólf samsvarar falli fullorðins manns ofan af bílskúrsþaki HÁLSKRAGARNIR hennar Elínar Öglu Briem hafa fjölbreytt notagildi og eru góðir báðum megin, eins og hönnuðurinn orðar það. Þá má bæði hafa um hálsinn í kulda og trekki og eins geta þeir verið afskaplega sparilegir við sparikjólana. Hönn- uðurinn Elín Agla, sem sjálf er nú búsett í Bretlandi, hóf framleiðsluna síðastliðið haust og hafa kragarnir góðu síðan stoppað fremur stutt við hjá henni. „Ég kaupi notaða kanínufeldi á markaði í Bretlandi og kimono- silkiefni úr notuðum kimono- sloppum, sem er þjóðbúningur Jap- ana, í alls konar litum og litamynstr- um í gegnum mann sem ég þekki úti í Japan. Svo sest ég niður heima hjá mér, ýmist inni eða úti í garði á góð- viðrisdögum, og bý til þessa fínu hálskraga og hlusta á ættjarð- artónlist á meðan. Rímnakveð- skapur Steindórs Andersen fer sér- staklega vel í mig,“ segir Elín Agla í samtali við Daglegt líf. Elín Agla er þrítugur heimspek- ingur frá Háskóla Íslands. Hún út- skrifaðist fyrir þrem- ur árum og fór þá í beinu framhaldi á búddasetur í Norð- ur-Englandi þar sem hún bjó í tvö ár ásamt um hundrað öðrum iðkendum búddisma hvaðan- æva úr heiminum. Þar kynntist hún nú- verandi sambýlis- manni sínum, Eng- lendingnum Nathan Baker, og búa þau nú í litlu þorpi, sem heit- ir Dunholme og er nálægt Grimsby og Hull á austurströnd- inni. „Ég fór í heim- speki til að heyra hvað menn og konur höfðu hugsað um þetta líf áður. Svo kynntist ég búddisma og las mér til um hvað þetta snerist og það kom á daginn að sá boðskapur átti mjög vel við mig. Búddismi boðar handhægar aðferðir til þess að láta sér líða vel og höndla þetta líf.“ Ákveðin í fatavali Elín Agla hefur alltaf verið uppfinningasöm og ákveðin í fatavali á sjálfa sig og segist fremur vera fyrir gömul gæðaföt fremur en einnota flíkur, eins og hún orðar það. „Ef ég ekki finn það sem ég vil, þá reyni ég að búa það til. Miklar tísku- sveiflur eru mér ekki að skapi, heldur vil ég að fötin eigi sér líf og geti enst jafnvel mann fram að manni. Þá fylgir sagan með. Svo gerðist það í fyrra að mig sárvantaði gæða- hálskraga, sem samein- aði það að vera nettur, fínn og sparilegur. Ég var búin að leita mikið, en fann ekkert nema ein- hverja gervikraga, sem ég hafði ekki minnsta áhuga á. Það varð því úr að ég settist niður og fór að hanna háls- kraga fyrir sjálfa mig. Þetta hefur síðan undið svona skemmtilega upp á sig, segir hönnuðurinn og bætir við að draumurinn sé sá að selja krag- ana góðu heima á Íslandi, en hingað til hafi hún verið að taka á móti ein- staka pöntunum á netfanginu aglanaglalakk@yahoo.com og selji stykkið á 7.500 krónur. Elín Agla segir það vera móralskt atriði hjá sér að nota gamla kan- ínufeldi í framleiðsluna til að stuðla ekki beint að kanínudrápi. Hún hef- ur sömuleiðis alltaf verið aðdáandi japansks textíls og því má með sanni segja að kragarnir séu til orðnir fyr- ir tilstilli blandaðra menningar- áhrifa.  HÖNNUN | Hlýir og sparilegir kanínukimonohálskragar „Góðir báðum megin“ Elín Agla ásamt sambýlismanninum Nathan Baker, sem hún kynntist á búddamiðstöð á Norður-Englandi. join@mbl.is Íslenski búddistinn Elín Agla Briem hlustar á ís- lenskan rímnakveðskap á meðan hún hannar og saumar fínustu háls- kraga úr notuðum kan- ínufeldi og japönsku silki í litlu ensku þorpi. Jóhanna Ingvarsdóttir sló á þráðinn. Hönnuðurinn Elín Agla Briem með hlýjan og sparilegan hálskraga úr kanínuskinni og jap- önsku silki. Hálskragarnir eru til í ýmsum litum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.