Morgunblaðið - 18.02.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 31
UMRÆÐAN
Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég
er ein af þeim sem heyrði
ekki bankið þegar vágest-
urinn kom í heimsókn.“
Vilhjálmur Eyþórsson:
„Forystumennirnir eru und-
antekningarlítið mennta-
menn og af góðu fólki komn-
ir eins og allir þeir, sem
gerast fjöldamorðingjar af
hugsjón. Afleiðingar þess-
arar auglýsingar gætu því
komið á óvart.“
Jakob Björnsson: „Mann-
kynið þarf fremur á leiðsögn
að halda í þeirri list að þola
góða daga en á helvítis-
prédikunum á valdi óttans
eins og á galdrabrennuöld-
inni.“
Jakob Björnsson: „Það á að
fella niður með öllu aðkomu
forsetans að löggjafarstarfi.“
Ólafur F. Magnússon:
„Ljóst er að án þeirrar
hörðu rimmu og víðtæku
umræðu í þjóðfélaginu sem
varð kringum undir-
skriftasöfnun Umhverfisvina
hefði Eyjabökkum verið
sökkt.“
Ásthildur Lóa Þórsdóttir:
„Viljum við að áherslan sé á
„gömlu og góðu“ kennsluað-
ferðirnar? Eða viljum við að
námið reyni á og þjálfi sjálf-
stæð vinnubrögð og sjálf-
stæða hugsun?“
Bergþór Gunnlaugsson:
„Ég hvet alla sjómenn og út-
gerðarmenn til að lesa sjó-
mannalögin, vinnulöggjöfina
og kjarasamningana.“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
ALLNOKKUÐ hefur verið rætt
og ritað um þær fyrirætlanir Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra að stytta
námstíma til stúdentsprófs úr fjór-
um árum í þrjú. Ljóst
er að með áformum
sínum er ráðherra að
leggja til grundvall-
arbreytingar á ís-
lensku skólakerfi eins
og við þekkjum það í
dag, breytingar sem
munu færa okkur nær
þeirri skólaskipan sem
þekkist í flestum þeim
löndum sem við höfum
til þessa viljað bera
okkur saman við.
Breytingarnar munu
ekki einungis ná til
framhaldskólastigsins heldur er
markmið þeirra ekki síður að brjóta
upp þau skil sem aðgreina grunn-
skólann og framhaldsskólann í dag
og skapa eðlilegra flæði á milli skóla-
stiga. Í hinn endann verður svo horft
til þess hvernig best verður staðið að
því að auka samfellu milli leik- og
grunnskóla.
Breytingar til hins betra
Í mínum huga er hér um að ræða
stór framfaraskref í þá átt að upp-
færa íslenskt skólakerfi í takt við
breytta tíma. Þegar nemendur flytj-
ast upp á milli skólastiga er mik-
ilvægt að eðlileg stígandi verði í
námi þeirra. Endurtekningar geta
valdið námsleiða á sama hátt og
verkefni, sem eru nemanda ofviða
vegna skorts á grunnþekkingu, geta
skapað vanmáttarkennd. Hvorugt
getur talist eftirsóknarvert. Því er
aukin samfella í skólastarfi fram-
faramál sem varðar nær alla Íslend-
inga. Skipulagsbreytingar þar að
lútandi verður að vinna í góðri sam-
vinnu fagfólks og
stjórnvalda en ekki síð-
ur ríkis og sveitarfé-
laga, sem fara með
rekstur leik- og grunn-
skóla. Í því samhengi
verður að tryggja að
sveitarfélögin hafi fjár-
hagslega burði til að
svara auknum kröfum
um námsframboð.
Að sama skapi skipt-
ir miklu að gera ís-
lenskt menntakerfi
þannig úr garði að það
sé samanburðarhæft
við það sem gerist í löndunum næst
okkur. Í dag er Ísland eina landið á
evrópska efnahagssvæðinu sem
starfar eftir stöðlum og námskrá
sem miðar við fjögurra ára nám til
stúdentsprófs. Á tímum heimsvæð-
ingar má þannig færa rök fyrir því
að ungt fólk í nágrannaríkjum okkar
hafi verulegt forskot á íslenska ný-
stúdenta sem hyggja á landvinninga
úti í heimi.
Svigrúm verkmennta
gæti aukist
Sú uppstokkun sem framundan er
þarf einnig að leiða af sér endur-
skoðun á skipulagi verkmennta í
landinu. Aðsókn í einstakar iðn-
greinar hefur ekki svarað eftirspurn
á vinnumarkaði á sama tíma og að-
sókn í bóknám á framhaldsskólastigi
hefur aldrei verið meiri. Verknám er
kostnaðarsamt samanborið við hefð-
bundið bóknám og því hefur það
reynst ýmsum þeim framhalds-
skólum, sem bjóða upp á verknám,
nokkuð þungt í skauti. Nauðsynlegt
er að búa svo um hnútana að verk-
nám sé bæði aðlaðandi og aðgengi-
legt fyrir ungt fólk. Í því samhengi
er nauðsynlegt að boðið sé á upp á
fullnaðarnám í algengustu iðn-
greinum í helstu byggðakjörnum
landsins.
Menntamálaráðherra hefur í
þessum efnum viljað leggja sérstaka
áherslu á að kynna verknám í þeim
tilgangi að hvetja ungt fólk í ríkara
mæli til að sækja sér verkmenntun.
Slík kynning er mikilvægur liður í
því að auka vægi verkmennta í þjóð-
arvitundinni
Styttri námstími,
minna brottfall?
Þeir sem sett hafa fram efasemdir
um ágæti þess að stytta námstíma til
stúdentsprófs hafa m.a. bent á að
framhaldsskólaárin séu mikilvægur
þáttur í því að móta félagsvitund
ungs fólks. Ekki dreg ég það í efa,
enda er ég í hópi þeirra sem búa að
ljúfum minningum frá mennta-
skólaárunum. En ég er þess jafn-
framt fullviss að þrjú ár nægi fylli-
lega til slíkrar mótunar. Fjögur ár
eru langur tími að afloknu tíu ára
skyldunámi og námsleiði gerir óum-
flýjanlega vart við sig – jafnvel hjá
hinum mestu lestrarhestum. Mörg-
um mun vafalaust þykja þriggja ára
nám viðráðanlegra en það sem nú er
í boði, ekki síst þegar horft er til
þess hvað nám á framhaldsskólastigi
kostar nemendur og fjölskyldur
þeirra.
Í þessu sambandi er athyglisvert
að benda á að þótt jafnt og þétt hafi
dregið úr brottfalli nemenda í fram-
haldsskólum á síðustu árum virðist
það jafnan hækka markvert við
nítján ára aldur, samkvæmt upplýs-
ingum menntamálaráðuneytis.
Stytting námstíma gæti því leitt til
þess að nokkuð drægi úr slíku brott-
falli.
Mikilvægt að vanda til verksins
Fyrirætlanir menntamálaráð-
herra miða að því að haustið 2008
hefjist kennsla í framhaldsskólum
samkvæmt breyttri námsskipan og
að fyrstu nemendurnir útskrifist
samkvæmt henni vorið 2011. Það
eru því rúm þrjú ár til stefnu áður en
fyrsti árgangurinn sest á skólabekk.
Brýnt er nota þann tíma til að skipu-
leggja út í hörgul allt sem snýr að
svo umfangsmikilli breytingu. Hefur
mér sýnst að vilji ráðherra standi til
þess að vinna að útfærslu tillagn-
anna í góðri sátt og samvinnu við
alla þá sem hagsmuna eiga að gæta í
þessu stóra máli – eða eins og ráð-
herra orðar það sjálfur í nýlegu
opnuviðtali Morgunblaðsins: ,,Meg-
inmálið er að flana ekki að neinu og
vanda til verksins með það í huga að
Ísland verði meðal fremstu þjóða
heims í menntamálum. Til þess höf-
um við alla burði.
Styttri framhaldsskóli
í takt við breytta tíma
Birna Lárusdóttir fjallar
um styttingu náms ’Stytting námstímagæti því leitt til þess að
nokkuð drægi úr slíku
brottfalli.‘
Birna Lárusdóttir
Höfundur er formaður skólanefndar
Menntaskólans á Ísafirði og bæj-
arfulltrúi í Ísafjarðarbæ.
NÚ hafa verið kynntar niður-
stöður tveggja ára rannsóknarverk-
efnis dr. Þorsteins Sæmundssonar,
forstöðumanns Náttúrustofu Norð-
vesturlands og Ak-
ureyrardeildar Nátt-
úrufræðaseturs
Íslands, á jarðsigi og
framhlaupi jarðvegs á
6 km löngum kafla á
Almenningum í Fljót-
um. Í lok greinar í
vikublaðinu Feyki seg-
ir Þorsteinn orðrétt
um niðurstöður verk-
efnisins:
„Ljóst er að á
nyrsta svæðinu í
Tjarnardölum er mikil
hætta á því að stór
stykki geti sigið niður eða hlaupið
fram úr núverandi vegstæði og ná-
grenni þess. Við slíka atburði gæti
vegurinn spillst eða orðið ófær um
tíma eða núverandi vegstæði ein-
faldlega spillst eða orðið ófært um
tíma eða einfaldlega eyðilagst. Um
þá hættu sem umferð um veginn
stafar af þessu þarf ekki að fjöl-
yrða.“
Þessar niðurstöður eru sam-
hljóma niðurstöðu rannsókna sem
Ágúst Guðmundsson jarðfræðingur
gerði á þessu svæði fyrir nokkrum
árum og undirritaður hefur margoft
vitnað til.
Í bréfi undirritaðs til samgöngu-
ráðherra hr. Sturlu Böðvarssonar,
dags. 2.5. 2000, er eftirfarandi kafli
svohljóðandi: „… þar við bætist að
Héðinsfjarðarleiðin leysir ekki allan
samgönguvanda á þessu svæði og
getur reynst nauðsynlegt að bora
þriðju göngin úr Siglufirði inn í
Fljót vegna sífellds jarðskriðs á Al-
menningum sem getur orðið að
stórslysi, að sögn okkar færustu
sérfræðinga á þessu sviði. Í norð-
vestan stórbrimum grefur sjórinn
undan núverandi vegstæði sem
skríður fram hægt og bítandi á
breiðum kafla.“ Í sama bréfi til ráð-
herra er eftirfarandi kafli skráður:
„Dulúð Héðinsfjarðar, Hvanndala
og annarra dala á þessu svæði vill
undirritaður meta á 2 til 3 milljarða
króna. (Hlutlægt mat.) Þetta svæði
er okkar Hornstrandir og mjög
dýrmætur afþreying-
arkostur í ört vaxandi
ferðaþjónustu aðliggj-
andi byggðarlaga. Sér-
staða svæðisins mun
bæta mjög ímynd og
samkeppnishæfni
ferðaþjónustunnar á
Norðurlandi.“
Að lokum er hér
þriðja tilvitnunin í
fyrrnefnt bréf til ráð-
herra samgöngumála:
„Lifandi samfélag í
harðbýlli sveit, sem á
sér dýrmæta sögu, er
mikils virði og viss kjölfesta hverju
nútímasamfélagi í ólgusjó framþró-
unar. Fljótaleiðin getur betur
tryggt búsetu í Fljótum en Héðins-
fjarðarleiðin og ber ráðherra og
þingmönnum að taka fullt tillit til
þess. Fljótamenn munu njóta meiri
mannréttinda og félagslegs öryggis
vegna meiri nálægðar við þéttbýlið í
Siglufirði og Ólafsfirði. Fljótin eru í
læknisumdæmi Siglufjarðar. Að
tryggja búsetu og nýtingu á miklum
og dýrmætum náttúruauðlindum í
Fljótum metur undirritaður á u.þ.b.
8 til 12 milljarða króna Fljótaleið-
inni til arðs umfram Héðinsfjarð-
arleiðina.
Kjördæmisþing framsóknar-
manna í NV-kjördæmi hefur sam-
þykkt sl. þrjú ár í röð áskorun til
ríkisstjórnarinnar og Alþingis að
fresta fyrirhuguðum framkvæmdum
við Héðinsfjarðargöng með það í
huga að skoða betur kosti Fljóta-
leiðarinnar. Endurskoða þarf alla
framkvæmdaáætlun með hagsmuni
heildarinnar að leiðarljósi og nýta
þá miklu fjármuni af meiri skyn-
semi svo allir íbúar beggja vegna
Tröllaskagans fái notið þeirra. Sam-
þykktir kjördæmisþinga eiga að
hafa mikið vægi í lýðræðisþjóð-
félagi. Forystumenn þjóðarinnar
verða að hlusta og taka mark á
svona samþykktum, hvar í flokki
sem þeir standa.
Fljótaleiðin er u.þ.b. 6 milljörðum
króna ódýrari kostur en Héðins-
fjarðarleiðin sé hið fyrrnefnda hlut-
læga mat mitt á tjóni ferðaþjónust-
unnar í landinu upp á þrjá milljarða
króna tekið með. Það mat er ef til
vill allt of lágt, eða er jafnvel ómet-
anlegt. Fram hafa komið þær hug-
myndir að gera Héðinsfjarðar-
svæðið allt að þjóðgarði, en ef sú
ákvörðun verður tekin mun verð-
mæti svæðisins aukast margfalt. Í
bréfi til Landverndar, dagsett 15.9.
2003, var stjórnin beðin að hlutast
til um að fá til landsins erlenda sér-
fræðinga til að meta það tjón sem
hlýst af opnun Héðinsfjarðar fyrir
ferðaþjónustuna (rjúfa dulúðina).
Landvernd hefur móttekið svar frá
Vegagerðinni þar sem segir að
ákvörðunin um slíkt mat sé í hönd-
um Alþingis. Á meðan sú úttekt fer
ekki fram stendur mitt hlutlæga
mat óhaggað. Í ljósi niðurstaðna
rannsókna á jarðskriðsvandamálum
á Almenningum og fleiri staðreynda
sem hér hefur verið bent á er það
skýlaus krafa íbúanna í NV-
kjördæmi og landinu öllu, sem vilja
að farið sé vel með almannafé, að
ríkisstjórn og Alþingi Íslendinga
taki fyrri ákvarðanir um gerð jarð-
ganga um Héðinsfjörð til endur-
skoðunar.
Jarðgöng um Héðinsfjörð
Trausti Sveinsson fjallar um
jarðgangagerð milli Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar ’Fljótamenn mununjóta meiri mannrétt-
inda og félagslegs ör-
yggis vegna meiri ná-
lægðar við þéttbýlið í
Siglufirði og Ólafsfirði.‘
Trausti Sveinsson
Höfundur er bóndi
á Bjarnargili í Fljótum.
b a k k a v o r . c o m
BAKKAVÖR GROUP HF. 2005
A›alfundur Bakkavör Group hf. ver›ur haldinn
föstudaginn 25. febrúar 2005, kl. 17 í fijó›minjasafni Íslands,
Su›urgötu 41, 101 Reykjavík.
Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins:
1. Sk‡rsla stjórnar um starfsemi á sí›astli›nu ári.
2. Ársreikningur fyrir li›i› starfsár, ásamt sk‡rslu endursko›anda
lag›ur fram til samflykktar.
3. Breytingar á samflykktum.
4. Ákvör›un um rá›stöfun hagna›ar á reikningsárinu.
5. Ákvör›un um stjórnarlaun.
6. Kosning stjórnar.
7. Kosning endursko›anda.
8. Heimild til kaupa á eigin hlutum.
9. Önnur mál.
Fundarstörf fara fram á ensku.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt
sk‡rslu stjórnar og endursko›anda munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins a› Su›urlandsbraut 4, 108 Reykjavík, viku fyrir
a›alfundinn.
Atkvæ›ase›lar og önnur fundargögn ver›a afhent vi› innganginn
vi› upphaf fundarins.
Stjórn Bakkavör Group hf.