Morgunblaðið - 18.02.2005, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 41
Aðalfundur
Félags járniðnaðarmanna
Aðalfundur Félags járniðnaðarmanna verð-
ur haldinn laugardaginn 26. febrúar í Borgar-
túni 30.
Morgunkaffi og afhending gagna frá kl. 9.30.
Umsóknareyðublöð um orlofsaðstöðu í sumar
liggja frammi á fundinum.
Fundurinn hefst kl. 10.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar
3. Reglugerðir sjóða
4. Kjör fulltrúa á ársfund Sameinaða
lífeyrissjóðsins.
Að loknum fundi um kl. 12:15 er boðið
til hádegisverðar.
Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofu
félagsins í Borgartúni 30 miðvikudaginn 23.
og fimmtudaginn 24. febrúar frá kl. 13—17.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.
Kennsla
Námskeið
um gerð áhættumats
Eftirtalin námskeið eru ætlað þeim, sem
eru að vinna að gerð áhættumats á vinnu-
stað eða hafa áhuga á að bæta við sig
þekkingu á því sviði:
23. febrúar og 2. mars (kl. 9 til 12 báða
dagana). Verð 20.000 kr.
3. og 10. maí (kl. 9 til 12 báða dagana).
Verð 20.000 kr.
Kennari: Inghildur Einarsdóttir, vinnuvistfræð-
ingur (Ergonomist M.Sc.)
Námskeiðin fara fram í húsnæði Mímis
símenntunar á Grensásvegi 16.
Skráning á námskeiðin er hjá skrifstofu
Vinnueftirlitsins í síma 550 4600,
Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna
á heimasíðu Vinnueftirlitsins
www.vinnueftirlit.is
Fundir/Mannfagnaður
Sjálfstæðisfélag
Garðabæjar
Opið hús
með Páli Hilmarssyni
Opið hús verður með Páli Hilmarssyni, bæjar-
fulltrúa og formanni Skólanefndar grunnskóla
Garðabæjar, í félagsheimilinu á
Garðatorgi 7, laugardaginn
19. febrúar frá klukkan 10-12.
Boðið verður upp á kaffi og með-
læti. Hvetjum alla til að mæta.
Nýir Garðbæingar eru sérstak-
lega boðnir velkomnir.
Verum blátt áfram.
Sjálfstæðisfélögin í Garðabæ.
Aðalfundur
Aðalfundur Stáltaks hf. fyrir árið 2004 verður
haldinn föstudaginn 4. mars nk. í mötuneyti
Slippstöðvarinnar ehf., Naustatanga 1, Akur-
eyri, og hefst kl. 15.00.
Dagskrá fundarins verður skv. 15. gr.
samþykkta félagsins.
Reikningar félagsins fyrir síðasta ár munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins á Hjalteyrargötu
20, Akureyri, viku fyrir fundinn.
Stjórn Stáltaks hf.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Hörkukeppni í sveitakeppni
hjá Bridsfélagi Reykjavíkur
Keppnin um efsta sætið í aðal-
sveitakeppni BR er nú allt í einu orðin
spennandi, en sveit Eyktar gaf nokk-
uð eftir í sjöundu og áttundu umferð.
Eykt hafði byrjað mjög vel og var með
144 stig af 150 mögulegum eftir 6 um-
ferðir en fékk 18 stig samtals úr leikj-
unum í sjöundu og áttundu umferð. Á
meðan fékk sveit Esso góða skor og
munar nú aðeins einu stigi á sveitun-
um. Staða efstu sveita er nú þannig:
Eykt162
Esso sveitin 161
Ferðaskrifstofa Vesturlands 140
Grant Thornton 137
Skeljungur 136
Sverrir Kristinsson jr 133
Sparisjóður Siglufjarðar 133
Meðfram útreikningi á árangri
sveita er reiknaður út árangur spilara
og er Ragnar Hermannsson úr sveit
Eyktar þar efstur ef 16 spil, skoraði í
þeim að meðaltali 2,28 impa. Jón
Baldursson úr sömu sveit er annar í
röðinni með 1,30 impa skoraða í spili,
en hann hefur spilað 80 spil. Ólafur
Jónsson í sveit Sparisjóðs Siglufjarð-
ar er í þriðja sæti með 1,27 impa í 32
spilum.
Næsta þriðjudagskvöld, 22. febrúar
fellur spilamennska niður hjá félaginu
vegna Bridshátíðar, en síðustu tvær
umferðirnar (9–10) í aðalsveitakeppn-
inni verða 1. mars.
Frá eldriborgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 15. febrúar var spilað
á 10 borðum og var meðalskor 216.
Úrslit urðu þessi í N/S:
Guðm. Guðmundss. - Stígur Herlufsen 243
Oddur Jónsson - Katarínus Jónsson 236
Sigurður Hallgrímsson - Anton Jónsson 236
Sigurberg Elentínuss. - Þorv. Þorgrss. 232
A/V
Jón Ó. Bjarnason - Þorvarður Guðmss. 264
Árni Guðmundss. - Hera Guðjónsdóttir 233
Helgi Sigurðsson - Gísli Kristinsson 229
Bridsdeild FEBK, Gjábakka
Þriðjudaginn 15. febrúar var spil-
aður tvímenningur á 6 borðum.
Meðalskor var 100. Úrslit urðu
þessi í N/S:
Auðunn Guðmundss. – Leifur Karlsson 106
Lilja Kristjánsdóttir – Ólafur Lárusson 101
A/V
Bjarni Þórarinsson – Jón Halldórsson 125
Pétur Antonsson – Ragnar Björnsson 112
Nú spilum við alla þriðjudaga og
föstudaga kl. 13.15.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
ÞINGFLOKKUR Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs minnir á
að helstu grunnnet fjarskipta í land-
inu eru enn sem komið er í eigu op-
inberra aðila, þ.e. Símans, Orkuveitu
Reykjavíkur og Landsvirkjunar.
Þingflokkurinn hvetur til þess að
þessi grunnnet verði sameinuð í eitt
landsnet sem verði í eigu ríkis og
sveitarfélaga, aðgengilegt öllum að-
ilum í fjarskiptaþjónustu og nái til
allra landsmanna.
Í ályktun segir að verði Landsím-
inn seldur með grunnnetinu muni
verða til í landinu tvöfalt, að hluta til
einkavætt gagnaflutningskerfi með
gríðarlegum tilkostnaði. „Bætist þá
mikil offjárfesting og sóun við það
tvíkeppnis- eða fákeppnisumhverfi
sem einkavæðing Landssímans mun
beinlínis stuðla að. Samkeppnin
kemur þá til með að snúast fyrst og
fremst um þéttbýlustu svæði lands-
ins og veruleg hætta á að fólk í öðr-
um byggðarlögum verði afskipt
nema til komi sérstakur ríkisstuðn-
ingur og há notendagjöld til að knýja
fram lágmarksþjónustu. Miklu væn-
legri kostur er að einkaaðilar geti
keppt um að veita þjónustu á jafn-
ræðisgrundvelli á grunnneti sem
taki til landsins alls og tryggi lands-
mönnum öllum sambærilega, fyrsta
flokks þjónustu án tillits til búsetu.
Þingflokkur VG minnir á frum-
varp sitt um að vinna við sölu Lands-
símans verði stöðvuð, sem liggur óaf-
greitt í þingnefnd, og krefst þess að
kannaðir verði möguleikar á að sam-
eina öll grunnnet fjarskipta í landinu
í eitt öflugt gagnaflutningsnet. Þing-
menn VG hafa þegar gert ráðstaf-
anir til að krefja viðkomandi ráð-
herra svara um þetta mál með
fyrirspurnum á Alþingi.
Vilja eitt gagnaflutningsnet
LIONSKLÚBBURINN Fjörgyn
hefur með tvennum tónleikum safn-
að rúmum tveimur milljónum króna
til styrktar BUGL, barna- og ung-
lingageðdeild LSH. Fyrri tónleik-
arnir voru í Grafarvogskirkju í nóv-
ember 2003 og hinir síðari á sama
stað í nóvember sl. Fjöldi tónlistar-
manna kom fram á þessum tón-
leikum og gaf vinnu sína. Auk þess
hafa mörg fyrirtæki veitt verkefninu
lið með beinum fjárstuðningi, ókeyp-
is þjónustu eða verulegum afslætti af
þjónustu.
Félagar í Lionsklúbbnum Fjörgyn
afhentu afrakstur seinni tónleikanna
í húskynnum BUGL 8. febrúar sl. og
kynntu sér um leið starfsemina þar.
Á myndinni má sjá Friðrik Han-
sen Guðmundsson afhenda Ólafi Ó.
Guðmundssyni yfirlækni á barna- og
unglingageðdeild LSH afrakstur
styrktartónleikanna í Grafarvogs-
kirkju 11. nóvember sl.
Lionsklúbburinn
Fjörgyn styrkir BUGL
LANDSBANKINN og aðalstjórn
Ungmennafélagsins Aftureldingar
hafa gert samstarfssamning til fimm
ára um víðtækan stuðning bankans
við ungmenna- og íþróttastarf á veg-
um knattspyrnudeildar Afturelding-
ar. Samningurinn er margþættur og
felur hvort tveggja í sér hefðbundið
auglýsingasamstarf og bein framlög
til félagsins. Þá verður á hverju ári
skipulagt sérstakt Landsbankamót í
knattspyrnu fyrir yngri hópa.
Þá mun Landsbankinn niðurgreiða
iðkendagjöld beint til viðskiptavina
sinna í knattspyrnudeild Afturelding-
ar, en auk þess felur hann í sér beinan
styrk til reksturs deildarinnar, segir í
fréttatilkynningu.
Samstarf Landsbankans
og Aftureldingar
Gústav Gústavsson, Landsbankanum Höfðabakka, Elísabet Guðmunds-
dóttir, formaður aðalstjórnar Aftureldingar, Kristján Guðmundsson, úti-
bússtjóri Landsbankanum Höfðabakka, og Tryggvi Þorsteinsson, fulltrúi
knattspyrnudeildar Aftureldingar.
Á FÉLAGSFUNDI Ungra jafn-
aðarmanna, UJH, í Hafnarfirði ný-
lega var samþykkt að lýsa yfir
stuðningi við áætlanir um afnám af-
notagjalda Ríkisútvarpsins.
„Í stað afnotagjalda leggja UJH
til að komi fjárframlög úr ríkissjóði
samkvæmt fjárlögum. UJH leggja
áherslu á að slík fjárframlög nægi
til að halda uppi myndarlegri starf-
semi, enda er Ríkisútvarpið mik-
ilvæg stofnun í þágu lýðræðis og
menningar í landinu sem hlúa ber
að,“ segir m.a. í ályktun UJH.
Styðja afnám af-
notagjalda RÚV
BORIST hefur eftirfarandi yfirlýs-
ing frá Eimskip:
„Vegna umfjöllunar DV um fíkni-
efnasmygl með einu af skipum Eim-
skips, sem upp komst á síðasta ári,
vill félagið koma eftirfarandi á
framfæri. Í umfjöllun blaðsins kem-
ur fram að fíkniefnasmyglarar hafi
notið aðstoðar vitorðsmanns hjá
Eimskip sem enn starfi hjá félaginu.
Hið rétta er að rannsókn lögreglu
leiddi fljótlega í ljós að umræddur
starfsmaður á ekki hlut að þessu
máli og er hann ekki grunaður um
brot. Eimskip hefur fylgst grannt
með rannsókn málsins og fullvissað
sig um sakleysi starfsmannsins.
Eimskip harmar að starfsmaður
félagsins sé hafður fyrir rangri sök
með þessum hætti. Félagið mun
áfram hafa náið samstarf við lög-
reglu- og tollayfirvöld með það að
leiðarljósi að koma í veg fyrir að
fíkniefnasmyglarar misnoti skip eða
aðstöðu félagsins.“
Yfirlýsing
frá Eimskip