Morgunblaðið - 18.02.2005, Side 42

Morgunblaðið - 18.02.2005, Side 42
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes ALDUR ER EKKERT NEMA HUGARÁSTAND MEÐ HEILBRIGÐUM SKAMTI AF AFNEITUN ÉG ÞOLI EKKI AÐ TAPA ALLTAF! ÞAÐ HLÝTUR AÐ VERA EITTHVAÐ AÐ MÉR VENJULEGA KEM ÉG HEIM OG HENDI HANSKANUM Í SKÁPINN. EN NÚNA... GET ÉG EKKI HITT Í SKÁPINN HVER ERRR DESSI KELVIN? Litli Svalur © DUPUIS JÆJA, BLEIKU KOLKRABBAR, Í DAG ÆTLA ÉG AÐ KENNA YKKUR VIRÐULEGUSTU OG KARLMANNLEGUSTU VATNSÍÞRÓTTI SEM TIL ER VATNAPÓLÓ? NEI FÁVITAR! VEIÐI! TAKIÐ EFTIR! SÝNIKENNSLA! ALVÖRU ÍÞRÓTTAMAÐUR STENDUR SEM FASTAST Í ÞURRUM STÍGVÉLUNUM. HANN KASTAR KRÖFTUGLEGA, MEÐ GÓÐRI SVEIFLU, EINS LANGT OG HANN GETUR. ALVÖRU ÍÞRÓTTAMAÐUR LEITAR EFTIR STÆRSTU BRÁÐINNI ÁRANGURINN ER ÞESS VIRÐI AÐ LEGGA SVOLÍTIÐ Á SIG SJÁIÐ BARA. BEINT Í MARK ORRUSTAN ER BYRJUÐ. HVER MUN VINNA BARDAGANN? VILLIDÝRIÐ EÐA ÞRAUTSEIGUR VEIÐIMAÐURINN NIÐURSTAÐAN... ...ER... PFFF.... ER ....ÓVTÍRÆÐ... NÚ ÞEGAR... PFFF... VILLIDÝRIÐ ER AÐ ÞREYTAST... RAAAAA... SÍÐUSTU ÁTÖK DÝRSINS ERU MERKI UM UPPGJÖF OG AÐ LOKUM... MEÐ RÉTTRI SVEIFLU TAKIÐ UPP MÁLBAND OG MÆLIÐ ÓFRESKJUNA KRAKKAORMAR OF STÓR BITI KENNARI... ÞÚ ÆTTIR AÐ LÁTA HANN AFTUR ÚT Í HVAÐ ÞYKIST ÞÚ VERA.. Dagbók Í dag er föstudagur 18. febrúar, 49. dagur ársins 2005 Er ekki skondiðhvernig tungu- málið kemur stundum upp um það hvernig við hugsum? Víkverji var á dögunum að lesa sér til um það, sem á ensku er kallað „traditional medicine“ og felur m.a. í sér alls konar lækn- ingaaðferðir, sem byggðar eru á gamalli alþýðuvitneskju og andlegum fræðum. Þar á meðal eru jurta- og stein- efnalækningar, nála- stungur, nudd af ýmsum sortum og heilun. Í þriðja heiminum hafa þessar aðferðir aldrei gengið sér til húðar og eru enn jafnvel útbreidd- ari en nútímalæknavísindi. Á Vest- urlöndum njóta þær á ný vaxandi vinsælda. x x x En hvernig skyldum við Íslending-ar nú þýða hugtakið „traditional medicine“? Jú, við segjum óhefð- bundnar lækningar, sem er dálítið sértök þýðing að því leyti að hún snýr merkingu hugtaksins al- gjörlega við. Rétt þýðing væri nefnilega hefðbundnar lækningar, enda eiga þær sér miklu lengri hefð en nútímaleg lækna- vísindi. Ætli þessi sér- kennilega rangþýðing, sem allir nota eins og að drekka vatn, sýni ekki bezt ofurtrú Ís- lendinga á læknavís- indunum – þessum „hefðbundnu“. x x x Óhefðbundnu lækn-ingarnar – byggð- ar á langri hefð – eru samt ótrúlega skammt undan hjá flestum. Samkvæmt tölum frá Alþjóðaheil- brigðisstofnuninni, WHO, hefur meira en helmingur íbúa iðnríkj- anna notað náttúrulækningar af einhverju tagi. Það á t.d. við um 90% Þjóðverja og meira en helming Bandaríkjamanna. Víkverji fór að velta því fyrir sér hvort hann hefði notað náttúrulyf og mundi ekki eft- ir slíku í svipinn – en þá rifjaðist upp fyrir honum að þegar hann var lítill og varð lasinn sauð mamma hans iðulega handa honum fjallagrasate fremur en að kaupa eitthvert andstyggilegt nútíma- meðal. Þar með er Víkverji vafa- laust kominn í hóp þeirra, sem hafa notfært sér hefðbundnar, óhefð- bundnar lækningar. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is        Listasafn ASÍ | Hanaegg nefnist tónverk fyrir rafhljóð og mezzósópran sem frumflutt verður í kvöld kl. 20.30 og aftur kl. 22.30 í tilefni af Safnanótt Vetr- arhátíðar. Verkið er eftir Þuríði Jónsdóttur tónskáld og er samið sérstaklega fyrir Ásgerði Júníusdóttur mezzósópran, inn í myndverk Ólafar Nordal, Hanaegg, sem nú er til sýnis í Listasafni ASÍ. Aðgangur er ókeypis, eins og að öllum öðrum söfnum á Safnanótt. Morgunblaðið/RAX Sungið um hanaegg á Safnanótt MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Jesús segir við hann: „Þú trúir, af því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.“ (Jóh. 20.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.