Morgunblaðið - 28.02.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2005 25
MINNINGAR
www.utlit.com Ný vara - Fríar
prufur. Þarftu að léttast eða
þarftu að þyngjast? www.ut-
lit.com býður upp á sérsniðnar
lausnir fyrir þig. www.utlit.com.
Sími 663 2722.
NÝTT NÝTT NÝTT
Viltu léttast hratt og örugglega?
Anna Heiða léttist um 35 kg, ég
um 25 kg, Dóra um 15, þú?
www.diet.is-www.diet.is
Hringdu! Margrét s. 699 1060.
Nudd og heilun fyrir stressaða
og stirða. Brynjólfur Einarsson,
meðferðaraðili
Hugurogheilsa.com,
sími 866 0007.
Herbalife
Frábærar heilsu- og megrunar-
vörur. Aðstoð veitt ef óskað er.
www.slim.is - www.slim.is
Ásdís - 699 7383.
Sérhæft meðgöngunudd og
heilsumeðferðir. Lykill að vellíð-
an og styrk hjá Heilsubrúnni.
Skoðið þessar heimasíður;
www.barnaland.is, www.heilsu-
bruin.is og www.madurlifandi.is.
Heilsubrúin/Katrín, s. 862 4809.
Bæjarlind 12, Kóp.
Snyrtisetrið
Treatment fyrir andlit. Byggir upp
húð og bandvef. Betra en Botox!?
Árangur strax.
SNYRTISETRIÐ,
Domus Medica, s. 533 3100.
Taktu augl. með - 15% afsláttur.
Ódýr nýleg skrifstofuhúsgögn.
M.a. skrifborð GKS 20 stk., hillu-
skápar, eldhúsborð og stólar. Ein-
nig skjáir HP 71 19 tommu o.fl.
Sjá nánar á slóð:
http://thjonusta.grunnur.is/
Sími 510 0600 milli 9:30 og 16:30.
King Size rúm 2ja ára gamalt.
Flott rúm frá Bústoð 2ja ára. Að-
eins lituð dýna eftir lak annars í
toppstandi. Verð 50 þús. Kostar
nýtt 180 þús. Millistíf dýna.
Uppl. 421 2227 og 847 9257.
Íbúð til leigu í Keflavík 3 Herb.
íbúð í Keflavík til leigu á góðum
stað. 65þ. með hita\raf. Upplýs-
ingar í síma 669 9762
Íbúð til leigu á Seltjarnarnesi.
Tveggja herbergja íbúð á Aust-
urströnd 8, Seltjarnarnesi, 62 fm,
með bílageymslu til leigu. Laust
til leigu strax. Sími 868 9437.
Eitt eða tvö lúxusherbergi
(Bryggjuhverfi við Gullinbrú) til
leigu ásamt þvottavél, ísskáp,
WC, eldhúsi, sjónvarpi og hita.
Reyklaus. Verð frá 35—55 þús
S. 824 4485 eða vidar.g@isl.is
Dáleiðsla - sjálfstyrking
Ggegn óvissu og óöryggi.
Reykingastopp, afsláttur fyrir
hjónafólk.
Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslu-
fræðingur. Sími 694 5494.
CRANIO-SACRAL MEÐFERÐ
Nýtt 300 st. réttindanám hefst
5. mars. Námsefni á íslensku.
Íslenskir leiðbeinendur.
Gunnar 699 8064, Inga 695 3612.
www.cranio.cc www.ccst.co.uk.
Fartölvustandar kr. 3.990 Smíði
og hönnun úr plasti og áli.
Plexiform.is, Dugguvogi 11,
Reykjavík, sími 555 3344.
Opið alla virka daga frá kl. 9-17
og laugardaga frá kl. 11-17.
Leoncie, hin frábæra söngkona
vill skemmta um land allt með
heitustu powerpop-smellina sína.
Radio rapist, Ást á pöbbnum,
Wrestler o.fl. Diskurinn fæst í
Skífubúðum og Tólf tónum.
Bókunasími 691 8123.
www.leoncie-music.com.
Vörukynningarstandar og kerfi
Til notkunar við ýmiss tækifæri,
t.d. á fundum, ráðstefnum og bak-
lönd fyrir vörukynningar. Sýning-
arstandarnir eru ódýrir, einfaldir
og auðveldir í uppsetningu
Alpha ehf., Síðumúla 12,
108 Reykjavík,
símar 895 6040 og 555 6048.
Bjóðum fána og Bannera í öll-
um stærðum. Vönduð vara, fljót
afgreiðsla. Gerum föst verðtilboð.
Bjóðum einnig haldara fyrir
Banner í fánastangir, þannig að
fáninn er alltaf útréttur í logni og
stormi.
Alpha ehf., Síðumúla 12,
108 Reykjavík,
símar 895 6040 og 555 6048.
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslimælar fyrir heitt
og kalt vatn.
Boltís sf.,
s. 567 1130 og 893 6270.
Mjúkur og sérstaklega þægileg-
ur í B-D skálum í 75-90, kr. 1995
bandabuxur og heilar buxur í stíl
kr. 995
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Heilsunnar vegna
Arizona, klassískir, fást í svörtu,
rauðu og brúnu. Stærðir 36-47
kr. 5.685
Naomi, hefur sömu góðu inn-
leggin en sparilegri. stærðir 36-
40 kr. 6.850,-
Misty-skór,
Laugavegi 178, s. 551 2070.
Fagleg ráðgjöf - góð þjónusta
Nettilboð. www.bataland.is -
Bátaland ehf., Óseyrarbraut 2,
Hafnarfirði, s. 565 2680.
Alternatorar og startarar í báta,
bíla og vinnuvélar. Beinir og nið-
urg. startarar. Varahlþj. Hagst.
verð.
Vélar ehf.,
Vatnagörðum 16, s. 568 6625.
KIA Clarus gæðabíll á góðu
verði KIA Clarus ´99 sjálfskipt-
ur,1800 vél, 4 dyra, svarblár, rúm-
góður bíll til sölu. Verð 420.000.
upplýsingar í síma 693 7867.
Ford Mercury Villager 7manna
Árgerð 1995, ekinn 174 þús.km.
Hvítur, sjálfskiptur, 3000 cc. Verð
550 þús.kr. Upplýsingar í síma 862
0065
Glæsileg ný kennslubifreið,
Subaru Impreza 2004, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
símar 696 0042 og 566 6442.
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum,
niðurföllum, þak- og drenlögnum
✝ Sólveig Krist-jánsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 4. maí
1917. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð í Kópa-
vogi 19. febrúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Geir-
laug Pálsdóttir hús-
freyja, f. 1886, d.
1954, og Kristján
Júlíusson vigtarmað-
ur í Reykjavík, f.
1889, d. 1986. Systk-
ini Sólveigar eru:
Ingibergur, f. 1916,
d. 1984, Pálína, f. 1918, d. 1935,
Svava, f. 1922, Geir, f. 1924, Fann-
ey, f. 1925, Júlíus, f. 1926, Adolf
Reynir, f. 1927, og Guðrún, f. 1930.
dóttur, f. 1977. 3) Auður Lilja, f.
1961, gift Hauki Gunnarssyni, f.
1960. Börn þeirra eru Sólveig, f.
1983, í sambúð með Hróbjarti Sig-
urðssyni, f. 1980, Gunnar Már, f.
1989 og Vala, f. 1992.
Sambýlismaður Sólveigar síð-
astliðin 20 ár er Karl Helgason, f.
1914.
Sólveig ólst upp í Reykjavík.
Gekk þar í barna- og gagnfræða-
skóla. Starfaði við afgreiðslustörf,
m.a. hjá KRON og í Reykjavíkur-
apóteki. Frá 1948 til 1977 var
heimilið hennar starfsvettvangur.
Þá fór hún aftur út á vinnumark-
aðinn og vann við verslunarstörf
og síðast á Landspítalanum sem
starfsstúlka í býtibúri þar til hún
lét af störfum sjötug.
Sólveig og Arnþór stofnuðu
fyrst heimili í Reykjavík, en fluttu
1947 í Kópavog og bjuggu þar til
æviloka.
Útför Sólveigar verður gerð frá
Digraneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Sólveig giftist 17.
júní 1945 Arnþóri Ein-
arssyni kjötiðnaðar-
meistara, f. 1918, d.
1977. Börn þeirra eru:
1) Erna Jóna, f. 1948,
gift Sæmundi Alfreðs-
syni, f. 1949. Börn
þeirra eru Dagrún, f.
1984, og Alfreð Gunn-
ar, f. 1987. 2) Kristján
Geir, f. 1951, kvæntur
Báru Kristjánsdóttur,
f. 1953. Börn þeirra
eru Arnþór, f. 1977,
sonur hans er Pétur
Juul, f. 1998, Björn, f.
1983, og Marta, f. 1991. Sonur
Báru og fóstursonur Kristjáns er
Njörður Sigurjónsson, f. 1974,
kvæntur Valgerði Höllu Kristins-
Með þessum orðum viljum við
minnast tengdamóður okkar, Sól-
veigar Kristjánsdóttur, sem lést á
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 19.
febrúar.
Sólveig var borinn og barnfædd-
ur Reykvíkingur, næstelst af níu
systkinum og oft var þröngt í búi
hjá þeim á uppvaxtarárum hennar.
Sólveig var glögg og minnug og
kunni frá mörgu að segja. Hún
hafði lifað gott og vont í æsku eins
og gengur en vildi helst beina sjón-
um að því sem gott var í minning-
unni. Þetta segir mikið um persónu-
leika hennar. Glaðværð og jákvæðni
var áberandi í fari hennar.
Árið 1947 keypti Sólveig ásamt
manni sínum, Arnþóri Einarssyni,
og systur hans Arnheiði og eigin-
manni hennar Þorsteini Herði sum-
arbústað í Kópavogi á Kópavogs-
braut 2. Þar bjuggu fjölskyldurnar
tvær saman næstu tíu árin þegar
Arnheiður og Þorsteinn Hörður
fluttust til Reykjavíkur. Sólveig og
Arnþór bjuggu áfram á Kópavogs-
brautinni allan sinn búskap. Stórum
skugga brá svo á líf fjölskyldunnar
þegar Arnþór féll frá langt fyrir
aldur fram árið 1977.
Nokkrum árum síðar hófst nýr
kafli í lífi Sólveigar er hún stofnaði
til vinskapar og sambúðar með
Karli Helgasyni. Alltaf var jafn
notalegt að koma á hlýlegt heimili
þeirra í Kópavogi. Bæði voru þau
vel á sig komin, fóru reglulega í
sund, stunduðu gömlu dansana og
höfðu yndi af að ferðast.
Sólveig þjáðist síðustu árin af
sjúkdómi sem smám saman rændi
hana minni og vitund. Jafnvel þá
var hún ævinlega jákvæð og skap-
góð. Hún treysti vel vini sínum og
sambýlismanni, Kalla, og líklega er
það honum að þakka að hún hélt
jafn vel líkamlegri heilsu í veikind-
um sínum og raun bar vitni. Hann
var óþreytandi að örva hana og
hvetja til dáða og heimsótti hana á
hverjum degi.
Sólveigar er nú sárt saknað af
stórum hópi ættingja sem þáðu af
henni kleinur og smákökur sem
aldrei gengu til þurrðar. Ekki síst
munu barnabörnin sakna hennar en
þau áttu jafnan samastað í hjarta
ömmu Sólveigar.
Sjálfir lítum við til baka með
söknuði og þakklæti fyrir það hve
vel hún tók okkur frá fyrstu stundu
og reyndist okkur alla tíð vel.
Haukur Gunnarsson og
Sæmundur Alfreðsson.
SÓLVEIG
KRISTJÁNSDÓTTIR
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Myndir Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
er ráðlegt að senda hana á
myndamóttöku: pix@mbl.is og
láta umsjónarmenn minningar-
greina vita.
Minningar-
greinar