Morgunblaðið - 28.02.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2005 17
UMRÆÐAN
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Kjólar
stærðir
36-46
i
-
Útsala
UMSVIF fara vaxandi í Árnes-
sýslu, þangað sækir fólk til búsetu
og fjölgun í stærstu
þéttbýliskjörnunum er
langt umfram lands-
meðaltal. Þannig er
hægt að tala um
þenslusvæði á Stór-
Árborgarsvæðinu og
mikil ásókn er í sum-
arhúsabyggðirnar í
uppsveitunum. Viða-
miklar hafnarfram-
kvæmdir eru í Þorláks-
höfn þar sem atvinnulíf
hefur verið öflugt og
ný tækifæri í sjónmáli
en höfnin gefur tæki-
færi og möguleika sem unnið er í að
nýta. Þá er Hellisheiðarvirkjun á
næsta leiti og vel má vænta þess að
orkufrek fyrirtæki horfi til svæð-
isins um staðsetningu. Efla má þá
hugsun með góðu samstarfi orku-
fyrirtækjanna og sveitarfélaganna
sem bjóða upp á góðar aðstæður.
Tækifæri eru til stórsóknar í at-
vinnulífinu með fleiri fyrirtækjum
inn á þetta svæði til viðbótar við
þau sem nýlega hafa haslað sér völl.
Fyrirtækin elta fólkið. Þau vilja
vera þar sem mann-
auðurinn er eða er að
byggjast upp. Mikil
uppbygging er á
svæðinu og því hörgull
á iðnaðarmönnum og
byggingaverkamönn-
um. Hins vegar er eft-
irspurn eftir þjón-
ustustörfum og ljóst
að auðvelt á að vera
að manna slík störf
sem koma til. Þá er
mikill vilji fyrirliggj-
andi hjá ungu fólki að
hasla sér völl á svæð-
inu eftir að hafa sótt sér framhalds-
menntun.
Nýlega voru staðfest stórhuga
áform um byggingu verslunar- og
þjónustuhúsnæðis í útjaðri Selfoss
og horfa eigendur þeirra áforma til
mannfjöldans á svæðinu og tala um
markað með 20–25 þúsund manns.
Einnig hafa nýlega birst áform um
sameiningu Mjólkursamsölunnar og
Mjólkurbús Flóamanna á Selfossi
en slík sameining gefur möguleika á
stórfelldri uppbyggingu vel laun-
aðra þjónustu- og stjórnunarstarfa
á Selfossi hjá þessum framsæknu
fyrirtækjum, á sölu- og markaðs-
sviði sameinaðs fyrirtækis með höf-
uðstöðvar á Selfossi. Bæði eiga
þessi fyrirtæki djúpar rætur í sam-
félaginu á Suðurlandi, þangað sem
þau sækja afl sitt.
Atvinnusvæðið í Árnessýslu er
samtvinnað og atvinnusókn mikil
milli sveitarfélaga. Einnig sýna nýj-
ustu kannanir að stór hópur fólks
sækir vinnu til höfuðborgarsvæð-
isins og drjúgur fjöldi kemur frá
höfuðborginni til starfa austan
Hellisheiðar.
Uppbygging atvinnuvega krefst
góðra samgangna svo sem upplýsts
fjögurra akreina vegar milli Selfoss
og Reykjavíkur til að anna auðveld-
lega miklum og hættulegum sveifl-
um í umferðinni. Einnig krefst at-
vinnuuppbygging stöðugs og góðs
vinnuafls sem unnt er að treysta á
og það er fyrir hendi í Árnessýslu.
Þá skiptir þjónusta sveitarfélag-
anna miklu máli fyrir búsetu starfs-
manna og allan aðbúnað fólks.
Sveitarfélögin í Árnessýslu standa
þar vel að vígi og hafa byggt upp
sterka alhliða þjónustu ýmist ein og
sér eða í samstarfi sín á milli. Fólk
býr við öryggi á svæðinu sem er
fyrirtækjum mikilvægt og eykur á
stöðugleika vinnuaflsins.
Mest er um vert að heimaaðilar
horfi til uppbyggingar og hafi metn-
að til að byggja upp öflugt atvinnu-
líf með fjölbreyttum störfum. Það
kemur öllum til góða.
Tækifæri til öflugrar atvinnu-
sóknar á Stór-Árborgarsvæðinu
Sigurður Jónsson fjallar um
sameiningu Mjólkursamsölunn-
ar og Mjólkurbús Flóamanna ’Fyrirtækin elta fólkið.Þau vilja vera þar sem
mannauðurinn er eða er
að byggjast upp.‘
Sigurður Jónsson
Höfundur er forstöðumaður Svæðis-
vinnumiðlunar Suðurlands.
Í MEÐFÖRUM Alþingis er enn
eitt frumvarpið frá Framsókn-
arflokknum sem kemur dreifbýlinu
illa.
Á síðasta ári urðu að lögum nokkur
frumvörp frá iðnaðarráðherra sem
koma hinum dreifðu
byggðum illa. Hæst
ber e.t.v. að ráðherra
lagði ofuráherslu á að
hætta að jafna flutn-
ingskostnað á sementi
sem olli allt að 70%
hækkun á sements-
verði og í öðru lagi ber
að nefna raforkulögin
sem koma þeim illa
sem hita hús sín með
rafmagni.
Nú kemur enn eitt
frumvarpið frá iðn-
aðarráðherra sem
bitnar á bændum, frumvarp um rann-
sóknir og nýtingu á jarðrænum auð-
lindum.
Með frumvarpinu er verið að festa í
sessi víðtækar heimildir Orkustofn-
unar að rannsaka og ráðstafa land-
areignum í algerri andstöðu við vilja
landeigenda. Það sem ekki er betra
er að leyfisveitingaferlið er óskýrt og
þvælið. Mál geta farið í ýmsar króka-
leiðir í leyfisveitingarferlum sem allar
enda þó hjá Orkustofnun. Einnig er
auðveldað að selja undan bújörðum
jarðefni og auðlindir jarðanna.
Orkustofnun getur samkvæmt
frumvarpinu vaðið fram og auglýst
eftir aðilum til að rannsaka auðlind,
t.d. jarðvarma sem er í eignarlandi.
Orkustofnun á síðan að gefa landeig-
anda að algjöru hámarki þriggja
mánaða frest til að taka afstöðu til
þess hvort hann ætli að nýta sér for-
gangsrétt til rannsókna í eigin landi.
Í frumvarpinu er tekið sérstaklega
fram að ef eigandi auðlindar hafi ekki
notað forgang sinn til
rannsóknarleyfis þá hafi
hann ekki rétt til að nýta
auðlindina.
Fleiri athugasemdir
má gera við frumvarpið,
s.s. að það sé nánast al-
gerlega verið að snið-
ganga allar stofnanir
sem heyra undir um-
hverfisráðherra, Sigríði
Önnu Þórðardóttur.
Hvað gengur stjórn-
arflokkunum Fram-
sóknar- og Sjálfstæð-
isflokki til með að ætla að lögleiða
skert réttindi landeigenda? Er þetta
enn einn þátturinn í nútímavæðingu
Framsóknarflokksins og flutningi
flokksins á mölina? Framsóknar-
flokkurinn er með þessari gjörð að
gera landeigendum erfiðara fyrir að
nýta sér auðlindir sínar í jörðu. Um
áratuga skeið hefur flokkurinn komið
í veg fyrir að stjórnvöld virtu útræð-
isrétt strandjarða og nú ætlar hann
enn að höggva í sama knérunn. Er
ekki mál að linni?
Varúð, bændur,
frumvarp frá
Framsókn
Sigurjón Þórðarson fjallar
um mál sem hann telur að
komi dreifbýlinu illa
Sigurjón Þórðarson
’Hvað gengur stjórn-arflokkunum Fram-
sóknar- og Sjálfstæð-
isflokki til með að ætla
að lögleiða skert rétt-
indi landeigenda?‘
Höfundur er alþingismaður
Frjálslynda flokksins.
LAUNÞEGAR okkar, stjórn-
málamennirnir, eru iðnir við að
einkavæða ríkisfyr-
irtæki, sem getur verið
skynsamlegt þegar við
á en ekki alltaf. Við
urðum vitni að sölu
Landsbanka Íslands
þar sem kaupendur
fengu í kaupauka (bón-
us) ómetanlegar þjóð-
argersemar, verk okk-
ar genginna merku
listamanna. Stjórn-
málamönnum „yf-
irsáust“ þessar ger-
semar sem þjóðin átti.
Þvílíkt og annað eins.
Hver er látin sæta
ábyrgð? Enginn, eins
og viðgengist hefur á
Íslandi og ráðamönn-
um þjóðarinnar til
skammar. Í þessum
efnum erum við hlægi-
leg á alþjóðavettvangi
miðað við okkar nágranna þjóðir. Nú
á að selja Símann og grunnnetið með
sem rekið hefur verið gríðarlega vel
og með miklum hagnaði undir stjórn
Brynjólfs Bjarnasonar forstjóra og
starfsfólks hans og rekstrarhagn-
aður verið notaður í þágu þjóð-
arinnar. Þeir sem munu bjóða hæst í
Símann og grunnnetið og tilvonandi
eigendur þess, munu gera eftirfar-
andi kröfur. Nýir kjölfjárfestar vilja
arð af sinni fjárfestingu. Fjárfestar
munu skipta Símanum og grunnnet-
inu niður í margar einingar og selja
síðan hæstbjóðendum. Þannig ganga
kaupin fyrir sig á eyr-
inni. Ég spyr, hvar er
grasrótin í þessu landi?
Ég bið ágæta lands-
menn að vakna nú af
Þyrnirósarsvefni sínum
og það strax. Ekki vilj-
um við Reykvíkingar að
Reykjavíkurborg selji
okkar eignarhluta í
Landsvirkjun sem er í
raun ekkert annað enn
uppáskrift á að Lands-
virkjun verði seld til
einkaaðila í náinni
framtíð. Það má ekki
gerast. Það hefur aldrei
verið skynsamlegt að
selja mjólkurkýrnar.
Það væri óskandi að
þjóðin yrði spurð hvort
selja ætti þessi eða hin
ríkisfyrirtækin með
könnun meðal þjóð-
arinnar og þá kæmi fram hinn raun-
verulegi vilji meirihluta fólksins í
landinu. Við erum lýðræðisþjóð.
Ágætu stjórnmálamenn, hafið þjóð-
ina með ykkur, frekar en á móti.
Aldrei skynsamlegt
að selja mjólkur-
kýrnar – hafið þjóð-
ina með í ráðum
Ásgerður Jóna Flosadóttir
fjallar um sölu Símans og
eignarhlut borgarinnar í
Landsvirkjun
Ásgerður Jóna
Flosadóttir
’Nýir kjöl-fjárfestar vilja
arð af sinni fjár-
festingu.‘
Höfundur er stjórnmálafræðingur
og kjósandi í Reykjavík.
Guðmundur Hafsteinsson:
„Langbesti kosturinn í stöðunni
er að láta TR ganga inn í LHÍ
og þar verði höfuðstaður fram-
halds- og háskólanáms í tónlist í
landinu.“
Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég er
ein af þeim sem heyrðu ekki
bankið þegar vágesturinn kom í
heimsókn.“
Vilhjálmur Eyþórsson: „For-
ystumennirnir eru undantekn-
ingarlítið menntamenn og af
sem varð kringum undir-
skriftasöfnun Umhverfis-
vina hefði Eyjabökkum verið
sökkt.“
Ásthildur Lóa Þórsdóttir:
„Viljum við að áherslan sé á
„gömlu og góðu“ kennsluað-
ferðirnar? Eða viljum við að
námið reyni á og þjálfi sjálfstæð
vinnubrögð og sjálfstæða hugs-
un?“
Bergþór Gunnlaugsson: „Ég
hvet alla sjómenn og útgerð-
armenn til að lesa sjómannalög-
in, vinnulöggjöfina og kjara-
samningana.“
góðu fólki komnir eins og allir
þeir, sem gerast fjöldamorð-
ingjar af hugsjón. Afleiðingar
þessarar auglýsingar gætu því
komið á óvart.“
Jakob Björnsson: „Mannkynið
þarf fremur á leiðsögn að halda í
þeirri list að þola góða daga en á
helvítisprédikunum á valdi ótt-
ans eins og á galdrabrennuöld-
inni.“
Jakob Björnsson: „Það á að
fella niður með öllu aðkomu for-
setans að löggjafarstarfi.“
Ólafur F. Magnússon: „Ljóst er
að án þeirrar hörðu rimmu og
víðtæku umræðu í þjóðfélaginu
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
Fréttasíminn
904 1100