Morgunblaðið - 28.02.2005, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara nú þangað í
þúsundatali á hverju ári með Heimsferðum. Í mars byrjar að vora enda
er þetta vinsælasti tími ferðamanna til að heimsækja borgina.
Fararstjórar Heimsferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar
og heillandi menningu. Góð hótel í hjarta Prag, frábærir veitinga- og
skemmtistaðir.
Munið Mastercard
ferðaávísuninaVerð kr. 39.990
Flug, skattar og hótel með morgunverði
í 4 nætur, 18. mars.
M.v. 2 í herbergi á ILF Hotel.
Netbókun.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
4 nætur
Helgarferð til
Prag
18. mars
frá kr. 39.990
LÁTINN er á 77.
aldursári Ingólfur S.
Ingólfsson vélstjóri,
fyrrverandi formað-
ur Vélstjórafélags
Íslands og forseti
Farmanna- og fiski-
mannasambandsins.
Ingólfur fæddist á
Akranesi 31. desem-
ber árið 1928 og var
einn tíu barna Ing-
ólfs Sigurðssonar og
Kristínar Runólfs-
dóttur. Sex systkin-
anna eru nú látin.
Ingólfur lauk
námi frá Iðnskólan-
um í Keflavík árið 1949 og stund-
aði síðan nám í vélsmíði í vél-
smiðju Ó. Ólsen í Ytri-Njarðvík.
Hann lauk sveinsprófi í vélvirkjun
árið 1950 og námi úr Vélskóla Ís-
lands árið 1953. Hann starfaði
sem vélstjóri í Rafstöðinni við
Elliðaár frá árinu 1953 til 1968.
Ingólfur var forstöðumaður
skrifstofu Vélstjóra-
félags Íslands árin
1968–1970 og for-
maður félagsins frá
1970 til 1983. Hann
var forseti Far-
manna- og fiski-
mannasambandsins
eitt kjörtímabil, sat í
verðlagsráði sjávar-
útvegsins og í stjórn
lífeyrissjóðsins Hlíf-
ar. Var kjörinn heið-
ursfélagi í Vélstjóra-
félagi Íslands árið
1984 og heiðraður á
Sjómannadegi árið
1997. Ingólfur hafði
nokkur afskipti af stjórnmálum
og var félagi í Alþýðubandalag-
inu.
Eftirlifandi eiginkona Ingólfs
er Vilhelmína S. Böðvarsdóttir.
Þau eignuðust fimm börn en fyrir
átti Ingólfur eina dóttur. Barna-
börnin eru 15 og barnabarnabörn-
in fimm.
INGÓLFUR S.
INGÓLFSSON
Andlát
HJÁLMAR Diego Haðarson, eig-
inkona hans Ingiríður Blöndal, og
tvö börn þeirra, höfðu lokið við að
flytja allt innbú í húsið við Rjúpu-
fell í Breiðholti, sem þau fengu af-
hent fyrir tæpri viku, þegar til-
kynnt var um bruna í húsinu á
áttunda tímanum á laugardags-
kvöld.
Þar á meðal var uppþvottavélin
sem í ljós kom að passaði ekki
undir borð, þar sem henni var ætl-
aður staður. „Konan mín segir við
mig: „Nú þarftu að vaska upp eftir
matinn,“ en ég sagðist ekkert ætla
að vaska upp. Þá sagði hún að ég
yrði að bjóða sér út að borða, sem
ég gerði,“ segir Hjálmar, sem fékk
símhringingu þegar þau voru rétt
komin á matsölustaðinn um að
húsið þeirra stæði í björtu báli.
Þegar Hjálmar kom að húsinu
var búið að slökkva eldinn og
slökkvilið vann við að reykræsta.
Það sem við blasti var alger eyði-
legging, allt innbú brunnið eða
skemmt af völdum reyks og húsið
líklega ónýtt.
„Maður var rétt búinn að leggja
frá sér málningarpensilinn,“ segir
Hjálmar. Fölskyldan hafi ætlað að
gista fyrstu nóttina þar aðfaranótt
sunnudags. Nóttina áður höfðu
Hjálmar og Ingiríður klárað að
standsetja íbúðina.
Hjálmar fékk að fara inn í húsið
í fyrrinótt í fylgd tæknideildar lög-
reglu. „Maður titraði í hnjánum.
Það er ótrúlegt hvað þetta getur
gerst á stuttum tíma.“
Ljósmyndir af látinni
dóttur urðu eldi að bráð
Að sögn Hjálmars er brunabóta-
mat hússins um 19 milljónir en
kaupverð nokkru hærra. Fjöl-
skyldan var með innbústryggingu,
en Hjálmar telur að aldrei sé hægt
að tryggja sig nægjanlega fyrir
tjóni af þessu tagi.
„Það versta eru myndir og allt
það. Ákveðinn bútur af lífi manns
er farinn. Ég átti myndir af dóttur
minni sem er látin, þetta er það
sem ekki er hægt að bæta.“
Hjálmar býr sem stendur ásamt
fjölskyldu í foreldrahúsum og seg-
ir óráðið í augnablikinu hvað taki
við.
„Sonur minn sagði: „Jæja,
pabbi, þetta er allt í lagi, við
byggjum bara aftur húsið.“
Hann segist enga grein gera sér
fyrir eldsupptökum og vill brýna
fyrir fólki að vera vel tryggt enda
gera tjón af þessum toga ekki boð
á undan sér.
Hjálmar D. Haðarson og fjölskylda höfðu nýlokið við að standsetja húsið sitt
Fékk símhringingu um að
húsið stæði í björtu báli
Morgunblaðið/Júlíus
Mikill eldur var í húsinu. Þegar slökkviliðsmenn reyndu inngöngu komust þeir aðeins fáa metra inn í ganginn.
Brunaskemmdir eru miklar í húsinu af völdum elds og reyks.
ÞÓRÐUR Bogason, stöðvarstjóri
hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæð-
isins, var í hópi fyrstu slökkviliðs-
manna að húsinu við Rjúpufell á
laugardag, sem stóð í björtum log-
um.
„Það logaði mjög mikið út um
eldhúsgluggann og þegar við
reyndum inngöngu komumst við
eingöngu fáa metra inn í ganginn
vegna mikils elds, reyks og hita
sem varð fyrir,“ segir Þórður. Til-
kynning barst um eldinn á áttunda
tímanum. Um hálftíma tók að ná
yfirhöndinni við að slökkva eldinn
og var búið að slökkva hann að
mestu um klukkan hálfníu. Að
sögn Þórðar voru mjög miklar
skemmdir í húsinu af völdum
reyks og elds og logaði eldur í
meginhluta íbúðarinnar sem er
einlyft raðhús. Eldsupptök er
ókunn.
Eldur logaði
í megin-
hluta íbúðar
FÉLAGIÐ Landeigendur Reykja-
hlíðar ehf. hefur gert samning við
Kísiliðjuna um kaup á verksmiðju-
húsum fyrirtækisins við Mývatn.
Kaupsamningurinn er með
ákveðnum fyrirvörum og er kaup-
verð ekki gefið upp að svo stöddu,
samkvæmt upplýsingum Ólafs H.
Jónssonar, formanns félagsins. Þá
hefur félagið einnig gert óformlegt
tilboð í Kröfluvirkjun.
Ólafur sagði að kaupsamningur-
inn fæli í sér kaup á verksmiðjuhús-
unum eins og þau væru í dag. Þarna
væri um að ræða um fimm þúsund
fermetra húsnæði samtals, verk-
smiðjuhúsnæði, rafmagns- og véla-
verkstæði, skrifstofuhúsnæði og
matsölu fyrir 50–60 manns o.fl.
Aðspurður hvernig starfsemi væri
fyrirhuguð í húsnæðinu, sagði Ólaf-
ur að menn væru með 2–3 hug-
myndir í skoðun í þeim efnum, en
ljóst væri að sú atvinnustarfsemi
sem þarna yrði stunduð yrði um-
hverfisvæn. Hins vegar væri ekki
hægt að fara nánar út í það hvaða
starfsemi yrði í húsunum á þessu
stigi málsins.
Ólafur sagði að kaupsamningur-
inn væri gerður með ákveðnum fyr-
irvörum og samkomulag væri milli
kaupenda og seljenda um að gefa
ekki upp kaupverð.
Arðurinn verði eftir í héraðinu
Landeigendafélagið hefur einnig
gert óformlegt tilboð í Kröfluvirkjun
að sögn Ólafs, en fengið þau svör að
það sé ekki á stefnuskrá fyrirtæk-
isins, Landsvirkjunar.
Ólafur sagði að þeim fyndist rök-
rétt að arðurinn af virkjuninni yrði
eftir í héraðinu þar sem hann mynd-
aðist og að landeigendur og aðrir í
sýslunni sem hefðu áhuga á að nýta
þetta svæði sem orkuveitusvæði fyr-
ir fyrirhugaða stórvirkjun nytu
þess.
„Það er ljóst að það verður stór-
iðja á Norðurlandi eystra sem næsta
svæði og við teljum að samnýting í
Þingeyjarsýslu á þeim orkuveitu-
svæðum sem þar eru eigi að heyra
undir þá sem eru í héraði, en ekki
einhverja sem eru fyrir sunnan.“
Hann sagði að það væri raunhæft
að þeir sem væru í Þingeyjarsýslu
sameinuðust um orkusvæðið Kröflu,
Gjástykki, Sandabotna og Þeista-
reyki og kæmu fram sem einn aðili.
Ef héldi sem horfði varðandi
einkavæðingu fyrirtækis sem hefði
yfir að ráða 80–90% af raforku í
landinu þá væri þar ekki einkavæð-
ing í raun og veru á ferðinni þar sem
ekki væri um neina samkeppni að
ræða.
Kaupa
verk-
smiðjuhús
Kísiliðju
ÁRNI Magnús-
son félagsmála-
ráðherra sagði á
flokksþingi fram-
sóknarmanna um
helgina að tilboð
ríkisins til sveit-
arfélaganna í
tekjustofnanefnd
hljóðaði samtals
upp á hátt á
þriðja milljarð króna. Gert væri ráð
fyrir því að annarri eins upphæð yrði
varið til sameiningar sveitarfélag-
anna.
„Menn verða að gera það upp við
sig hvort við getum náð saman um
þær hugmyndir sem nú liggja á
borðinu,“ sagði Árni í samtali við
Morgunblaðið. „Ég tel að ríkið hafi
teygt sig eins langt og mögulegt er í
þessu efni. Við komumst ekki lengra.
Nú er að duga eða drepast.“
Tilboð ríkisins
hátt á þriðja
milljarð króna
Árni Magnússon
♦♦♦