Morgunblaðið - 28.02.2005, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Guðrún Marías-dóttir fæddist í
Kjós í Grunnavíkur-
hreppi í N-Ísafjarðar-
sýslu 19. júní 1914.
Hún lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 19. febr-
úar síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Pálína Pálsdóttir, f.
2.9 1888, d. 27.6 1976,
og Marías Þorvalds-
son, f. 13.5 1895, d.
7.8 1956. Guðrún átti
12 systkini samfeðra
og 2 uppeldissystur.
Eftirlifandi eru 5
systur hennar. Guðrún giftist 14.
maí 1940 Jóni Magnússyni, skip-
stjóra og síðar fiskimatsmanni, f.
28.3 1906, d. 13.2 1983. Hann var
sonur Magnúsar Jónssonar, sýslu-
manns og Jóhönnu Andreu Odd-
geirsdóttur. Börn Guðrúnar og
Jóns eru 1) Magnús, f. 7.4 1941, d.
20.7. 1998. Fyrri kona hans var
Sigrún G. Guðmundsdóttir, synir
þeirra eru Jón og Ingvar Oddgeir.
Seinni kona Magnúsar er Helga
Gísladóttir og eiga þau eina dótt-
ur, Elfu Maríu. 2) Jóhanna Guð-
rún, f. 20.12. 1942. Fyrri maður
hennar var Sigurður Erling Pét-
ursson og börn þeirra eru Pétur,
Guðrún, Erling og Berglind.
Seinni maður Jóhönnu er Stefán
Jóhannsson. 3) Matt-
hildur Sif, f. 3.8.
1946, gift Jóhanni S.
Gunnarssyni. Börn
þeirra eru Rannveig,
Arnbjörg Jóna, Anna
Guðrún, d. 24.4.
1984, og Gunnar. 4)
Freydís Jónsdóttir, f.
30.7. 1950, giftist
Kjartani Jónssyni,
þau skildu, giftist
síðan Vigfúsi Andr-
éssyni, þau skildu.
Börn þeirra eru Jón,
Andrea Marta og
Hlynur Freyr. Sam-
býlismaður Freydísar er Halldór
Pétursson. Barnabarnabörn Guð-
rúnar og Jóns eru 24.
Guðrún bjó til 12 ára aldurs í
Kjós en fluttist síðan til Ísafjarðar
með móður sinni. Hún fluttist ung
til Reykjavíkur. Guðrún og Jón
bjuggu lengst af í Reykjavík en
einnig í Vestmannaeyjum og Vog-
um á Vatnsleysuströnd. Guðrún
fluttist á Hrafnistu í Hafnarfirði
árið 1995. Hún vann mestan hluta
ævi sinnar utan heimilis við ýmis
störf. Guðrún var félagi í Alþýðu-
flokknum frá unga aldri og var í
kvenfélaginu Heimaey.
Guðrún verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Nú hefur hún elsku amma mín
hlotið friðinn sem hún þráði. Södd
lífdaga eftir langa ævi. Væntanlega
búin að hitta Jonna afa og aðra ætt-
ingja og vini.
Amma og afi á Tunguveginum
skipuðu stóran sess í mínu lífi. Það
var eftirminnilegt að fara með
ömmu á leikskólann við Klepp og
borða hákarl og harðfisk hjá afa. Á
langri ævi Rúnu ömmu skiptust á
skin og skúrir og eflaust hefur hún
átt drauma og þrár sem aldrei rætt-
ust. Þrátt fyrir það var oft stutt í
dillandi hláturinn. Eitt var það sem
alltaf gladdi ömmu en það voru lítil
börn, barnabörnin og barnabarna-
börnin.
Á fimmta áratugnum bjó hún tvö
ár í Vestmannaeyjum og talaði oft
um þann tíma þegar hún sat í gras-
inu fyrir utan Þorlaugargerði og
horfði á sólina setjast við Smáeyj-
arnar. Elsku amma þegar ég horfi á
Smáeyjarnar út um gluggana mína
kemur brosandi andlit þitt upp í
huga mér.
Síðustu æviár sín bjó amma á
Hrafnistu í Hafnarfirði, fyrst á
dvalarheimilinu en síðustu árin á
hjúkrunardeild þar sem vel var
hugsað um hana. Amma var alltaf
fín, hún var dama fram í fingur-
góma. Mér þóttti mjög vænt um þá
natni og nærgætni sem starfsfólkið
á Hrafnistu sýndi henni og okkur
ættingjunum þegar kom að ævilok-
um Rúnu ömmu. Hvernig þær
greiddu fallega hárið hennar og
snyrtu svo við gætum kvatt hana
fallega og friðsæla var ómetanlegt.
Elsku amma ég kveð þig með
bæn sem þú kenndir mér fyrir
stuttu:
Hafðu Guð í huga og minni,
hafðu Guð fyrir augum þér,
hugsa um Guð þinn hverju sinni,
þá heyrir Guð og til þín sér.
Takk fyrir allt sem þú hefur gefið
mér og fjölskyldu minni. Þín
Guðrún Erlingsdóttir (Rúna).
Þegar við settumst niður til að
skrifa minningarorð um Rúnu
ömmu á Tunguveginum voru mörg
minningarbrotin sem runnu í gegn-
um huga okkar systkinanna. Það
sem stendur efst eru heimsóknir
okkar á Tunguveginn og seinna á
Hrafnistu og þeirrar gestrisni sem
þar var í hávegum höfð. Þegar við
komum í heimsókn hafði amma allt-
af nægan tíma til að sinna okkur
eins og sannri ömmu sæmir. Hvert
okkar átti sínar sérstöku stundir
með henni, hvort sem það var í
garðvinnu, heimsókn á Sprengi-
sand/KFC eða bara að sitja og horfa
á sjónvarpið saman. Ekki var hægt
að koma í heimsókn til ömmu án
þess að þiggja eitthvað góðgæti í
gogginn og koma þá pönnukökurn-
ar hennar og kleinurnar ofarlega í
huga okkar. En það eru ekki ein-
ungis góðar matarminningar sem
vakna. Það eru líka óteljandi stund-
ir þar sem amma sat og sagði okkur
sögur, barðist við að kenna okkur að
prjóna eða fór með ljóð. Það hafa
örugglega ekki verið mörg íslensk
ljóð sem hún ekki gat farið með.
Gamla góða dótaskúffan stóð alltaf
fyrir sínu og það var mjög gaman að
fylgjast með barnabarnabörnunum
róta í sama dóti sem maður hafði
svo gaman af sem barn. Margan
kaldan vetrardaginn var höndunum
stungið í þessa frábæru ullarvett-
linga sem amma prjónaði fyrir okk-
ur og alltaf héldu þeir áfram að
koma, sama hversu duglegur maður
var að týna þeim. Fleiri minningar
halda áfram að streyma í gegnum
hugann og bros færist á vör en nú er
kominn tími til að kveðja þig, elsku
amma. Okkur langar að kveðja þig
með einni af þeim bænum sem þú
fórst með fyrir okkur á Tunguveg-
inum og þakka fyrir allar þær góðu
stundir sem þú gafst okkur.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Rannveig, Arnbjörg og Gunnar.
Það er erfitt að skrifa minningu,
svo vel sé, um slíka öndvegismann-
eskju sem hún Rúna var, en það var
nafnið, sem hún var ávallt kölluð af
þeim, sem til þekktu, það er svo
margt, sem kemur í hugann og af
svo mörgu að taka.
Er dóttir hennar, Sif, hringdi og
sagði mér að nú væri Rúna, móðir
hennar, látin kom það ekki alveg
óvænt, svo veik sem hún var orðin
og þrotin að kröftum, en eigi að síð-
ur brestur einhver taug við slíka
frétt, sérlega ef það er tengt manni
á margan hátt gegnum allt lífið, eða
síðan í æsku. Rúna var fædd í Kjós í
Grunnavíkurhreppi, N.Ís.
Ég stikla á stóru um það sem ég
veit um hana á unga aldri, en mörgu
af því hefur móðir mín sagt mér frá,
en Rúna kom til Hafnarfjarðar um
tvítugt til aðstoðar á heimili sýslu-
mannsins í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu, Magnúsar Jónssonar en móð-
ir mín, Guðrún, var dóttir hans.
Rúna og móðir mín urðu fljótlega
góðar vinkonur sem og aðrir í fjöl-
skyldu hennar, og hélzt sú vinátta
til dauðadags. Hjá sýslumanninum
og hans fjölskyldu var oft glatt á
hjalla, hljómlist í hávegum höfð og
GUÐRÚN
MARÍASDÓTTIR
✝ Elísabet R. Jóns-dóttir fæddist í
Reykjavík 7. mars
1911. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ 19. febr-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Jón
Oddur Jónsson, f.
1882, d. 1943, og
Ingibjörg Gilsdóttir,
f. 1877, d. 1952, þau
voru bæði fædd í
Borgarfirði. Systk-
ini Elísabetar eru:
Finnbogi, f. 1905, d.
1979, Gils, f. 1906, d. 1967, Sig-
urjón, f. 1907, d. 1992, Gunnar, f.
1909, d. 1976, Kristófer, f. 1912,
d. 1979, Ástráður, f. 1916, d.
1977, Þórarinn, f. 1917, d. 1987,
Leifur, f. 1919, d. 1989, Guðrún,
f. 1921, og Andrés, f. 1922, d.
1976.
Sonur Elísabetar og Gunn-
laugs Eyjólfssonar, f. 1924, d.
1999, er Ingibergur Finnbogi, f.
1953, kvæntur Ragnheiði Ólafs-
dóttur, f. 1952. Börn Ingibergs
Finnboga og Ragnheiðar eru: 1)
Gunnlaugur, f.
1972, sambýliskona
Sigurlilja Alberts-
dóttir, f. 1977, þau
eiga einn son, Leó,
f. 2003. 2) Andrés, f.
1979. 3) Iðunn Elva,
f. 1990.
Elísabet bjó á
Njarðargötu 27 frá
árinu 1934 þegar
fjölskylda hennar
keypti húsið. Bjó
hún þar fyrst með
foreldrum sínum og
systkinum en tók
síðar við húsmóður-
hlutverkinu og umsjá móður
sinnar í veikindum hennar til
margra ára ásamt bræðrum sín-
um Finnboga, Andrési og Leifi,
sem heldu heimili með henni og
syni hennar á Njarðargötunni.
Elísabet bjó samfellt á Njarðar-
götunni til ársins 1995 eða á
meðan hún hafði heilsu til. Eftir
það fluttist hún í Skógarbæ í Ár-
skógum 2 í Reykjavík.
Útför Elísabetar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Ég kveð í dag elskulega móður
mína með söknuð í hjarta en gleði
yfir því að hafa átt hana svo lengi
mér og mínum til halds og trausts
allt frá því að ég steig mín fyrstu
spor við hlið hennar á Njarðargöt-
unni. Hún lést 19. febrúar á Skóg-
arbæ, Árskógum 2, Reykjavík og
átti stutt í að verða 94 ára gömul.
Ég var svo lánsamur að fá að
alast upp með yndislega góðu fólki
á Njarðargötu 27 í Reykjavík en
þar bjó móðir mín og ég ásamt
þremur bræðrum sínum nafna mín-
um Finnboga, Andrési og Leifa
sem hún helt heimili fyrir á meðan
þeim entist aldur til. Móðir mín var
einstök manneskja í mínum augum
og margra annarra, hún gerði bók-
staflega allt sem hún gat fyrir mig
með sínum hætti sem endurspegl-
aðist af umhyggju og ástúð til mín
og síðar til minnar fjölskyldu þegar
hún kom til sögunnar. Hún var allt-
af að gefa þó svo að hún hafi ekki
haft mikið á milli handana og á svo
vel við máltækið „sælla er að gefa
en þiggja“ þegar maður minnist
hennar mömmu. Hún var hrókur
alls fagnaðar í vinahópi og átti
margar vinkonur á öllum aldri sem
voru sómakonur og voru margar
hverjar mikið yngri en hún og var
ég alltaf tekin með á mínum yngri
árum þegar hún fór að heimsækja
þær, sem hún gerði óspart. Ég er
búinn að hugsa ýmislegt síðustu
daga um lífshlaup okkar mömmu og
það kemur alltaf það sama upp í
hugann, hvað hún var mér góð og
aftur góð enda veit ég að ég hafði
forgang umfram aðra í hennar huga
þó svo að hún hafi elskað mikið allt
það fólk sem stóð henni næst og má
þá ekki gleyma ást hennar á barna-
börnum sínum sem hún umvafði
þeirri sömu góðmennsku og ég
hafði upplifað.
Ég vil sérstaklega þakka Krist-
ínu mágkonu hennar og ekki síður
vinkonu sem bjó á Njarðargötunni
með henni í fjöldamörg ár og Guð-
rúnu systur hennar og Bjarna
manni hennar fyrir þann vinskap,
umhyggju og trúnað sem þau sýndu
henni alla tíð og öllum öðrum bæði
vinum og fólki úr þeirri stóru fjöl-
skyldu sem hún var komin af fyrir
allt gott.
Ég vil að lokum þakka starfsfólki
á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
fyrir gott viðmót og góða umönnun
hennar þau átta ár sem hún dvaldi
þar.
Ingibergur Finnbogi
Gunnlaugsson.
Elsku amma mín, þá ertu farin
og mun ég sakna þín, en samt veit
ég að þú lifir enn á björtum stað
þar sem allt er fallegt og gott. Og í
hjarta mínu verður þú alltaf til, því
þú hefur alltaf reynst mér svo vel
og mér leið svo vel í kringum þig.
Þegar ég var bara lítill snáði og
bjó í kjallaranum hjá þér á Njarð-
argötunni ásamt ungum foreldrum
mínum. Man ég eftir því hvað þú
varst alltaf að hafa áhyggjur af mér
og hvernig mér liði. Ég man
kannski ekki alveg eftir fyrstu ár-
um mínum hjá þér en hef heyrt
sögur af því að ég var þitt ljós og
yndi. Ég er fyrsta barnabarn þitt
og það mynduðust mikil tengsl okk-
ar á milli. Bogi sonur þinn og Ragn-
heiður tengdadóttir ung að aldri
með mig, litla Gulla þinn, sem
fannst amma sín svo sæt og fín.
Þegar ég var orðin aðeins eldri og
farinn að muna meira sjálfur eftir
þér, fannst mér svo gaman að heim-
sækja þig. Þú vildir alltaf gefa mér
eitthvað að borða og áður en maður
vissi af varst þú búin að dekka borð
með miklum kræsingum á svip-
stundu. Og þegar maður fór laum-
aðir þú að mér pening, þannig að
foreldrar mínir sáu ekki og fannst
mér það svo gaman að amma væri
svona sniðug og skemmtileg.
Á unglingsárunum man ég svo
vel eftir jólunum. Við fjölskyldan
komum alltaf til þín á jóladag í mat.
Þú varst með hangikjöt með öllu til-
heyrandi og ekkert sparað til. Það
var mjög skemmtileg að koma til
þín þennan dag. Maður tók með sér
eitthvað dót sem maður hafði fengið
í jólagjöf og lék sér með það hjá
þér. Maturinn var svo góður og allir
í góðu skapi, og þegar ég lít til baka
að rifja upp þessa stund man ég
hvað þér fannst gaman að hafa okk-
ur hjá þér. Þú vildir aldrei að mað-
ur myndi hjálpa þér við að elda eða
vaska upp. Vildir bara að maður
slappaði af. En stundum fékk ég að
vera með viskustykkið og þú hrós-
aðir mér hvað ég væri duglegur og
hvað þetta væri vel gert. Ég man
einnig eftir því þegar ég fór í bæ-
inn, sem var smá spölur því ég átti
heima í Árbænum og ekki kominn
með bílpróf, þá kom ég stundum í
óvænta heimsókn til þín og oftast
var einhver vinur minn með. Þú
varst svo glöð að sjá mig bauðst
okkur inn og auðvita kræsingar á
borðum. Einnig er mér minnistætt
þegar ég fékk að sofa hjá þér. Ég
var eins og lítill prins, fékk að gera
nánast allt, og alltaf þessi ró og
kærleikur í kringum þig. Þú varst
alltaf svo glöð og góð.
Þegar árin liðu og ég fór að verða
að manni sá ég að þú, elsku amma
mín, hafðir gaman af öllu sem var
fyndið. Þú hafðir nefnilega mikinn
húmor og hafðir gaman af því að
hlæja og gantast. Ég tók einnig eft-
ir því hvað þú varst alltaf að passa
útlitið, þú varst svo mikil pæja og
flott. Þú varst alltaf svo vel til höfð,
og að sjá gamlar myndir af þér,
svaka skvísa þú varst. Það er held-
ur kannski ekkert skrýtið að þú
náðir þér í mun yngri kærasta.
Hann afa minn og nafna sem var
alltaf svo skotinn í þér og þú hafðir
einnig miklar tilfinningar til hans.
Hann er farinn á staðinn sem allt er
falleg og gott á og veit ég að þið er-
uð nú saman á ný. Þar getið þið
rifjað upp skemmtilegar minningar
og gaman er fyrir þig að hitta
bræður þína sem þú unnir svo mik-
ið og vildir allt fyrir þá gera. Skil-
aðu kveðju til allra sem ég þekki
þarna og ég er viss um að þú sért
aðalskvísan.
Elsku amma mín, það er erfitt að
kveðja þig svona með orðum en
samt gott að geta skrifað til þín.
Það fær mann til að hugsa og læra
af þér hversu yndisleg kona þú
varst. Ég veit að þú munt passa og
fylgja mér og minni fjölskyldu.
Eins og ég hef sagt var ég þitt fyrst
barnabarn og ég gerði þig líka að
langömmu. Sonur minn hann Leó
er aðeins 15 mánaða og auðvitað
hefur þú séð hann oft. Ég mun
segja honum frá þér, elsku amma
mín, þegar hann eldist.
Ég kveð þig með söknuði í hjarta
og veit að þú ert á góðum stað þar
sem vel er tekið á móti þér. Ég
mun hugsa til þín og aldrei gleyma
hversu frábær amma þú varst.
Gunnlaugur Ingibergsson.
Þegar ég hugsa til baka og rifja
upp fyrstu kynnin mín við ömmu,
er það einna helst þegar hún pass-
aði mig þegar ég var ungur dreng-
ELÍSABET R.
JÓNSDÓTTIR
Ég læt litla ljósið loga
við sjúkrarúmið þitt í nótt,
það mun ætíð, ætíð loga
þangað til þú verður sótt.
Það er ekki víst að ljósið
lýsi skærast hér á jörð,
heldur þegar þú með Drottni
flytur þína þakkargjörð.
Óttast eigi, elsku mamma,
að flytja burt í annan heim,
þar er friður, gleði og birta
og þú ert aftur komin heim.
Hvíl í friði.
Jóhanna Guðrún
Jónsdóttir (Systa).
HINSTA KVEÐJA
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
PÁLÍNA BIRNA GUÐVARÐARDÓTTIR
frá Syðri-Brekkum í Skagafirði
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugar-
dagskvöldið 26. febrúar sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Gunnar D. Halldórsson, Hilde Lene Aardal,
Jónas G. Halldórsson, Magnea S. Jónsdóttir,
Guðvarður B. Halldórsson, Stefanía Ása Ásgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.