Morgunblaðið - 28.02.2005, Blaðsíða 26
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
ÉG LEIGÐI SPÓLU
FYRIR KVÖLDIÐ
HÚN HEFUR ALLT, HASAR,
GRÍN, ÆVINTÝRI...
OG FRÁBÆRA
TÓNLIST!
ÞRJÁR
DANSANDI
NINJUR
WOODSTOCK ER AÐ
ÆFA SIG Í ÞVÍ AÐ
LENDA Í TRJÁM
MAMMA! MÁ ÉG KEYRA
BÍLINN Á LEIÐINNI HEIMA?
AUÐVITAÐ EKKI
KALVIN
MÁ ÉG STÝRA? ÉG LOFA AÐ
KEYRA EKKI Á NEITT
NEI KALVIN
EN MÁ ÉG VERA Á
BENSÍNGJÖFINNI OG ÞÚ
STÝRIR?
NEI KALVIN
ÞÚ LEYFIR MÉR
ALDREI NEITT!
© DARGAUD
Bubbi og Billi
ER ÞETTA NAUÐSYLEGT?
JÁ ÞETTA ER NÁUÐSYNLEGT BUBBI!
ÞÚ VERÐUR AÐ FÁ NÝJAR MYNDIR
FYRIR PASSANN ÞINN
GLEYMDU EKKI AÐ VERA
BEINN Í BAKI OG BROSA
JÁ, JÁ!
PFFF!
ÉG NENNI
ÞESSU EKKI!
ÞETTA ER ÞÁ BÚIÐ. ÞÚ MÁTT
SKOÐA ÞÆR EF ÞÚ VILT. MÉR
LEIÐST AÐ SKOÐA MYNDIR
JÆJA, ERU
ÞÆR GÓÐAR?
VEIT ÞAÐ EKKI.
ÉG SKOÐAÐI ÞÆR EKKI
BILLI! KOMDU
HINGAÐ Á
STUNDINNI!
Dagbók
Í dag er mánudagur 28. febrúar, 59. dagur ársins 2005
Einn af mörgum vin-um og kunningjum
Víkverja ferðaðist í
haust um Evrópu og
fór meðal annars með
lággjaldaflugfélagi frá
London til Pisa á Ítal-
íu. Eins og allir vita er
ekki boðið upp á neinar
veitingar í slíkum ferð-
um. Hægt var þó að
kaupa samloku og
rauðvínsglas en hvort-
tveggja kostaði sem
svarar rúmlega 300
krónum. Sumir nýttu
sér það tilboð en ekki
margir enda tekur
flugið aðeins stutta stund.
Víkverji fór að velta því fyrir sér
hvort hann væri ekki alveg reiðubú-
inn að sætta sig við að fljúga í nokkr-
ar klukkustundir til áfangastaða í
Evrópu án þess að borða eða drekka
á leiðinni. Er ekki hægt að fá sér vel í
svanginn áður en lagt er af stað? Satt
að segja er plássið í flugvélum ekki
meira en svo að þessi stanslausi þeyt-
ingur fram og aftur um gangana með
matarbakka og drykki er mjög hvim-
leiður. Allt er stíflað og stundum
komast farþegar varla á salernið
vegna vagnanna þó að mikið liggi við.
Og annað, fyrst Víkverji er á annað
borð að nöldra. Flugfreyjurnar eru
indælar og vilja allt fyrir
okkur gera en hvers
vegna þykja flugvélar
vera svona hentugar
verslanir fyrir úr, skart-
gripi og annan dýran
varning? Þennan enda-
lausa kaupskap mætti
hæglega flytja niður á
jörðina. Það er miklu
meira rými fyrir hann í
flughöfninni og þá
truflar hann ekki þá
vesalinga sem ætla sér
bara að fara á milli
tveggja staða og vantar
alls ekki neitt úr.
x x x
Nýlega varð Víkverji svo frægur aðfara langa ferð með strætisvagni
úr Breiðholtinu niður í miðbæ
Reykjavíkur. Víkverji tók eftir því að
honum var ekki boðið að kaupa neitt
á leiðinni, enginn spurði til dæmis
hvort hann vildi næla sér í regnhlíf
eða kuldaskó á frábæru verði.
Kannski finnst ráðamönnum stræt-
isvagnanna að það væri uppá-
þrengjandi að trufla farþegana með
slíkum tilboðum og alger óþarfi, þeir
hljóti að geta fundið vöruna sjálfir í
verslunum ef þörf krefji. Hvers
vegna gildir þetta ekki líka um hin
farartækin, flugvélarnar?
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Blönduós | Húnvetningar eru frægir söngmenn, rétt eins og grannar þeirra
austan Tröllaskagans. Snemma beygist krókurinn jafnt við ósa Blöndu sem
annars staðar og halda grunnskólanemar á Blönduósi árlega „Blönduvisjón-
keppni“ samhliða árshátíð grunnskólans. Sigurvegarinn í ár var Ásta Berg-
lind Jónsdóttir, söngelskur níundabekkingur, og á hún vafalaust framtíðina
fyrir sér á þessu sviði.
Morgunblaðið/Jón Sig.
Sungið á bökkum Blöndu
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Vakið, standið stöðugir í trúnni, verið karlmannlegir og styrkir. Allt sé
hjá yður í kærleika gjört. Náðin Drottins Jesú sé með yður.
(1. Kor. 16, 13-14.23.)