Morgunblaðið - 21.04.2005, Síða 4

Morgunblaðið - 21.04.2005, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur og mynd- listarmaður hlaut Norrænu barnabóka- verðlaunin 2005 fyrir höfundaferil sinn sem rithöfundur og mynd- listarmaður, með sérstakri áherslu á unglingabókina Sverðberann. Nú á tilboði 1.990 kr. Norrænu barnabókaverðlaunin 2005 Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur 2005 Fyrir Sverðberann hlaut Ragnheiður jafnframt Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur í ár. Ragnheiður Gestsdóttir Til hamingju Ragnheiður! „ÉG LEGG mikla áherslu á það að þó stofn- unin breytist þýðir það ekki að þjónustufram- boðinu sé eytt,“ segir Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs, en á fundi menntaráðs í gær voru kynntar og ræddar tillögur um Námsflokka Reykjavíkur sem fela í sér ákveðnar skipulagsbreytingar á stofnuninni. Þannig er gert ráð fyrir að ráðinn verði for- stöðumaður Námsflokkanna til að stýra stefnumótun og rekstri. Einnig er í tillögunum kveðið á um að það fé sem ætlað er til fullorð- insfræðslu á fjárhagsáætlun verði áfram nýtt til að tryggja framboð á þeirri grundvallar- þjónustu sem félagsleg menntastefna borg- arinnar byggist á. Langstærsta hlutverk Námsflokkanna hef- ur til þessa falist í íslenskukennslu fyrir nýbúa og verður það, að sögn Stefáns Jóns, áfram svo. „Í tillögunum er lagt til að Námsflokk- arnir leiti eftir samstarfi við Mími-endur- menntun, eða aðra þá aðila sem til greina koma, í því skyni að tryggja áfram framboð á íslenskukennslu fyrir útlendinga. Með sam- starfi við Mími gætum við eflt nýbúakennsl- una, enda held ég að við náum samlegðaráhrif- um og meiri styrk með því að vinna með Mími,“ segir Stefán Jón og tekur fram að lögð sé áhersla á að starfsmönnum Námsflokkanna sem sinnt hafi þessari kennslu að meginstarfi verði boðin störf og að námsefni og aðferðir sem Námsflokkarnir hafi haft forgöngu um að þróa nýtist til áframhaldandi uppbyggingar þjónustunnar. Stefán Jón segist vona að að- koma bæði ríkis og annarra sveitarfélaga við þetta frumkvöðlastarf Námsflokkanna muni vega þungt í víðtækara samráði og framboði menntaleiða fyrir nýbúa. Einnig verður þess, að sögn Stefáns Jóns, gætt að þeir nemendur sem ekki njóti fjárhagsaðstoðar stéttarfélaga eða atvinnurekenda fái áfram að njóta nið- urgreidds náms. Frístundanám borgarinnar leggst af Hvað varðar námsframboð fyrir fullorðna sem ekki hafa lokið grunnskólanámi segir Stefán Jón mikilvægt að tryggja það til fram- búðar. „Við leggjum til að Námsflokkarnir bjóði áfram skilvirkar leiðir fyrir fullorðna til að hefja nám á ný í grunngreinum eins og lestri, ritun og stærðfræði, og ljúka áföngum sem þarf til að skapa tækifæri til að stunda nám í framhaldsskólum. Einnig er í tillög- unum að finna mjög mikilvæga nýjung sem felur í sér að það verði veitt náms- og starfs- ráðgjöf þessu samfara í þjónustumiðstöðvum borgarinnar sem eru að byrja í haust.“ Samkvæmt tillögunum er hins vegar gert ráð fyrir að borgin hætti að bjóða upp á frí- stundanám. Aðspurður segir Stefán Jón mikið framboð af alls kyns tómstundanámskeiðum í borginni á vegum ýmissa aðila, en það hefur stundum verið gagnrýnt að borgin hafi verið á samkeppnismarkaði með þessi námskeið. „Ég tel því ekki rétt að við séum að niðurgreiða þetta nám.“ Að sögn Stefáns Jóns er markmiðið með til- lögunum að endurskipuleggja þjónustuhlut- verk Námsflokkanna. „Félagsleg mennta- stefna okkar felst ekki í að stofnunin sjálf sé óbreytt heldur í því að tryggja framboð þjón- ustunnar. Þannig að þegar menn segja að við séum að leggja Námsflokkana niður þá svör- um við neitandi. Námsflokkarnir eru félagsleg menntastefna og henni verður haldið áfram í þessu breytta skipulagsformi.“ „Námsflokkarnir eru félagsleg menntastefna“ Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is ALMENNT teljum við ekki að borgin eigi að standa í rekstur í samkeppni við almenna markaðinn,“ segir Guðrún Ebba Ólafsdóttir, fulltrúi sjálfstæðismanna í menntaráði Reykjavíkur. Hún bendir hins vegar á að Námsflokkar Reykjavíkur eigi 65 ára sögu, sem skapi þeim sérstöðu. Undir stjórn Guð- rúnar Halldórsdóttur hafi Námsflokkarnir sérhæft sig í að veita borgarbúum, sem hafi orðið utanveltu við skólakerfið og ýmis önnur félagsleg gæði, tækifæri til menntunar og fé- lagslegrar uppbyggingar. Þá megi ekki gleyma íslenskukennslu Námsflokkanna fyr- ir nýbúa. „Við erum ekki sammála þeim tillögum sem kynntar hafa verið að leggja í raun niður stofnunina Námsflokka Reykjavíkur. Þótt einn starfsmaður starfi þar er nokkuð ljóst að stofnunin sem slík leggst niður. En við erum ekki mótfallin því að gera breytingar á rekstrinum.“ Guðrún Ebba segir að sjálfstæðismenn hafi talið fýsilegan kost að ræða við starfsfólk Námsflokkanna og kanna hvort það vildi reka stofnunina áfram. Þá hefði borgin getað gert við þá þjónustusamning um reksturinn. Eins hafi sjálfstæðismenn ekki verið mót- fallnir því að bjóða reksturinn út. Andvíg því að leggja Náms- flokkana niður LANDVERND flutti þingmönnum kveðju á Austurvelli í gær og gaf þeim sumargjöf í tilefni þess að vetur var að kveðja. Gjöfin var í formi geisladisks með ljós- myndum Jóhanns Ísberg frá Þjórsársverum. Ólöf Guðný Valdi- marsdóttir, formaður Land- verndar, önnur frá hægri á myndinni, flytur þeim þingmönn- um kveðju sem létu sjá sig á Austurvelli. Með gjöfinni vildi Landvernd minna á þingsályktunartillögu um stækkun Þjórsárvera og mik- ilvægi þess að vernda þessa nátt- úruperlu.Morgunblaðið/Árni Sæberg Landvernd gaf þing- mönnum sumargjöf MEIRIHLUTI Reykjavíkurlistans í menntaráði kynnti í gær tillögur um aukin framlög til einkarekinna grunnskóla. Bað minnihlutinn um frestun á málinu og verður auka- fundur í menntaráði á mánudaginn kemur þar sem gera má ráð fyrir að málið verði afgreit. Að sögn Stefáns Jóns Hafstein, formanns mennta- ráðs, nemur hækkunin samkvæmt tillögunum nær 25%. Hækkunin er rúm 82 þúsund á nemanda, fer úr rúmlega 330 þúsundum í rúm 413 þúsund kr. á hvern grunnskólanem- anda. Jafnframt var lagt til að framlag vegna fimm ára barna í einkarekn- um grunnskólum verði jafn hátt framlagi sem greitt er til einkarek- inna leikskóla eða 340 þúsund krón- ur á barn og að breytingin gildi frá síðustu áramótum. Stefán Jón bendir á að alls nemi hækkun á framlögum til skólanna tæpum 300% síðan árið 1997. Rifjar hann upp að árið 2003 hafi borg- arráð samþykkt nýjar reglur um fjárframlög til einkarekinna skóla sem fólu í sér umtalsverða hækkun á framlagi fyrir hvern nemanda, auk niðurfellingar skulda. „Kom fram við lyktir þeirra mála að sameig- inlegur skilningur væri að nægilega vel væri séð fyrir rekstrarstöðu einkarekinna skóla. Eigi að síður komu fram óskir um aukin framlög fyrir upphaf skólaársins 2004–5.“ Segir hann fulltrúa borgarinnar hafa átt viðræður við fulltrúa skól- anna um stöðu þeirra í vetur og eru framkomnar tillögur lyktir þeirra viðræðna. Segir hann tillögurnar miðast við að allir einkareknir skól- ar njóti hækkaðra framlaga með sama hætti. „Með framlagi borg- arinnar ásamt hóflegum skólagjöld- um nema tekjur skólanna á hvern nemanda svipaðri upphæð og með- alkostnaður á nemanda í borgar- reknum grunnskóla.“ Meðalframlag á nemanda í grunnskólum Reykjavíkur er nú um 565 þúsund krónur á mánuði. Fram- lag til einkarekinna skóla sem taka skólagjöld verður um 414 þúsund á grunnskólanemanda, skólagjöld upp á 16 þúsund kr. á mánuði munu færa einkareknum skólum samtals tekjur sem jafngilda meðaltekjum á nemanda í almennum grunnskólum. Framlag á nemanda hækki um rúm 82 þúsund GUÐRÚN Ebba Ólafsdóttir, fulltrúi sjálfstæðismanna í mennta- ráði Reykjavíkur, segist fagna stefnubreytingu R-listans í mál- efnum einkarekinna skóla og eins því að horfið skuli frá hugmyndum um að gera Landakotsskóla að hverfisskóla. Legið hafi í loftinu að það ætti að vera skilyrði fyrir auknu framlagi til skólans frá borginni. Guðrún Ebba telur að tillaga R- listans um aukin framlög til einka- skóla gangi ekki nógu langt. Í stað þess að miða framlög við rekstur hagkvæmasta skóla borgarinnar eigi nú að miða við fimm hag- kvæmustu skólana. Samkvæmt því hækki framlag á hvern nemanda í rúmar 413 þúsund krónur á meðan meðalkostnaður á nemanda í skól- um reknum af borginni sé 565 þús- und krónur. Guðrún Ebba segir sjálfstæðismenn vilja miða framlög til einkaskólanna við meðalkostn- aðinn. Miðað við tillögu R-listans þurfi einkaskólarnir að innheimta rúmlega 150 þúsund krónur á ári frá foreldrum fyrir hvert barn til að ná meðalkostnaðinum. „Þetta er ekki í anda þess sem við sjálfstæðismenn leggjum til. Við viljum valfrelsi í skólamálum og að nemendum sé ekki mis- munað þannig að það sé að lág- marki miðað við meðalframlagið til þeirra nemenda sem ganga í sjálfstæða skóla.“ Gengur ekki nógu langt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.