Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
icelandair.is/vildarklubbur
Toyota Land Cruiser
16.900 kr.
Innifalið: 3 dagar,
500 km akstur
og kaskótrygging.
Tilboðið gildir til 30. apríl 2005
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
2
79
25
04
/2
00
5
Láttu ekki áætlanir helgarinnar stranda á
bílnum. Við höfum bílinn sem hentar þínum
þörfum á lægra verði en þig grunar. Tilboðs-
verð miðast við að þú sækir bílinn á föstudegi
og skilir honum á mánudagsmorgni. Hver leiga
færir þér 500 Vildarpunkta að auki.
Hafðu samband, Hertz hjálpar þér áfram.
Taktu helgina
með Hertz tilboði
50 50 600 • hertz@hertz.is
Þannig hafi nú í heildina litið á um
annað þúsund heimili skráð sig fyrir
þjónustunni fyrstu dagana. „Það má
segja að eftir útspil Símans í morgun
hafi komið kippur í þetta, því ein-
hverjir voru að bíða eftir því hvernig
Síminn myndi svara þessu. Þannig að
það er mikið að gera hjá okkur núna.
Síminn svarar með ávinningi innan
hverrar þjónustu fyrir sig, en hefur
svo sem ekki komið með neitt á móti
Og1 sem er hrein viðbót hjá okkur við
SÍMINN og Og Vodafone bítast nú
um viðskiptavini, en bæði fyrirtækin
hafa kynnt nýjar áskriftarleiðir fyrir
viðskiptavinum sínum. Að sögn tals-
manna beggja fyrirtækja hefur mikið
verið hringt og eru viðskiptavinir for-
vitnir um tilboðin.
Og Vodafone kynnti á laugardag
nýja heildarþjónustu sína, Og1, þar
sem gert er ráð fyrir að viðskiptavinir
hafi GSM-síma, heimasíma og Int-
ernet-áskrift hjá fyrirtækinu. Síminn
auglýsti síðan í gær þjónustu sína þar
sem lögð er áhersla á að við-
skiptavinir geti valið þá leið sem þeim
hentar og verið þannig einungis með
GSM-áskrift en fengið engu að síður
afslætti. Það skal þó tekið fram að til
að geta nýtt sér tilboð á netáskrift
þarf að hafa GSM-áskrift hjá Síman-
um.
Sverrir Hreiðarsson, markaðs-
stjóri Og Vodafone, segir verulegan
áhuga vera fyrir Og1. Skráning við-
skiptavina hafi gengið mjög vel og
fyrirtækið brugðið á það ráð að fjölga
starfsfólki í þjónustuveri og versl-
unum til að anna eftirspurninni.
þann ávinning sem fólk hafði fyrir.“
Síminn er bundinn af samkeppn-
islögum og má ekki bjóða upp á svip-
aðan pakka og Og Vodafone. Nið-
urstaða kærumáls til
samkeppnisyfirvalda fyrir nokkrum
árum var sú að sem markaðsráðandi
fyrirtæki mætti Síminn ekki skilyrða
heimasímann við aðra þjónustu.
Eva Magnúsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Símans, segir viðbrögð við
auglýsingu Símans í gær hafa verið
gríðarlega góð og miklar annir í þjón-
ustuverinu. Viðskiptavinir Símans fá
áskriftarleiðirnar ekki sjálfkrafa,
heldur þurfa þeir að skrá sig sjálfir,
annaðhvort gegnum vefinn eða þjón-
ustuverið. „Það er mjög mikið spurt
og fólk er mikið að velta fyrir sér
þessum möguleikum. Meginmark-
miðið hjá okkur er það að við-
skiptavinir hafi val og við höfum ein-
mitt fengið mjög góð viðbrögð við
því.“
!"
#
!"
$ ! !
$ ! !
$ ! !
$ ! !
%#
#& ' #( ' (
#& '
( ' (
#& ' (
%#
#& ' #( ' (
) !!'
( ' (
) !!'
* #( ' #(
%#+,
-.&/0 '*
%#+,
-.&/0 '*
%#+,
-.&/1! %# '*
%#
#& *2
#&
( ' (
#& ' (
%#
#& # )# ## *
& ' (
%#+,
- .&/0 '*
%#+,
-.&/1! %# '*
Símafyrirtækin keppast um viðskiptavini
„Það er mjög mikið spurt“
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
KAUPÞING banki hf. hlaut í gær
Útflutningsverðlaun forseta Íslands
2005. Þetta er fyrsta fjármálafyr-
irtækið sem fær þessi verðlaun. Það
var forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, sem afhenti Sigurði Ein-
arssyni, stjórnarformanni Kaup-
þings banka hf., verðlaunin við há-
tíðlega athöfn á Bessastöðum.
Útflutningsverðlaunin voru nú
veitt í 17. sinn. Í úthlutunarnefnd-
inni sitja fulltrúar frá forsetaemb-
ættinu, ASÍ, viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla Íslands,
Landsnefnd alþjóða verslunarráðs-
ins og Útflutningsráði, sem ber
ábyrgð á undirbúningi og kostnaði
við verðlaunaveitinguna.
Verðlaunahafinn fékk sérhann-
aðan verðlaunagrip, listaverk eftir
Borghildi Óskarsdóttur sem heitir
Útsýni. Einnig verðlaunaskjal og
leyfi til að nota merki verðlaunanna
á kynningarefni sitt í fimm ár frá
afhendingu. Merki Útflutningsverð-
launanna er hannað af Hilmari Sig-
urðssyni.
Formaður úthlutunarnefndar,
Valur Valsson, ávarpaði samkom-
una og sagði meðal annars:
„Kaupþing banki fær verðlaunin
fyrir þann árangur sem fyrirtækið
hefur á skömmum tíma náð á þró-
uðum mörkuðum erlendis. Fyr-
irtækið fer fremst í öflugri útrás ís-
lenskra fjármálafyrirtækja og hefur
vakið athygli fyrir framsækinn og
arðbæran rekstur. Djörfung og
dugur einkenna fyrirtækið, starfs-
menn þess og stjórnendur.
Vöxtur fyrirtækisins hefur verið
mjög ör undanfarin ár og hefur það
gegnt lykilhlutverki í fjárfestinga-
og viðskiptabankastarfsemi hér á
landi. Síðustu ár hefur bankinn
stóraukið starfsemi sína á erlendri
grundu með stofnun dótturfélaga
og kaupum á fjármálafyrirtækjum.
Í dag er Kaupþing banki hf.
stærsti banki landsins og í hópi tíu
stærstu banka á Norðurlöndum
með starfsemi í tíu löndum og
stefnir að því að vera í hópi leiðandi
fjárfestingabanka á Norðurlöndum.
Í árslok 2004 voru 1.606 stöðugildi
hjá Kaupþing banka og dótt-
urfélögum, heildareignir fyrirtæk-
isins námu 1.534 milljörðum króna
og hagnaður bankans eftir skatta
nam rúmum 15,7 milljörðum kr.
Rúmlega helmingur hagnaðarins á
rætur að rekja til starfsemi utan Ís-
lands.“
Kaupþing banki hf. hlaut
Útflutningsverðlaun forseta
Morgunblaðið/Eyþór
F.v.: Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri, Sigurður Einarsson stjórn-
arformaður og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
STJÓRN Almennings ehf. sendi í
gær frá sér tilkynningu þar sem
þökkum er komið á framfæri til
þeirra þúsunda Íslendinga sem sýnt
hafa vilja sinn til þátttöku í kaupum á
hlut í Landssímanum.
Fram kemur að kappsamlega sé
unnið að framgangi málsins með
ýmsum sérfræðingum. Meðal þess
sem nú er unnið að, með aðstoð Verð-
bréfastofunnar, er útboðslýsing.
Þegar útboðslýsingin er tilbúin og
hefur verið samþykkt af Fjármála-
eftirlitinu mun hefjast hin formlega
skráning fyrir hlutafjárloforðum. Að
sögn Orra Vigfússonar eru komnar
viljayfirlýsingar frá um sjö þúsund
manns fyrir 10–12 milljörðum króna.
Beinir stjórn Almennings því til
áhugasamra að þeir geti skráð sig á
www.xbokhald.is/landssiminn. Einn-
ig megi hafa samband á netföngin
agnes@mbl.is og orri@icy.is. Sím-
inn hjá Almenningi er 895 1545.
Reiknar félagið með að geta upplýst
landsmenn frekar um stöðu mála
fljótlega í næstu viku.
Almenn-
ingur vinn-
ur að út-
boðslýsingu
GÆTI verið að Evrópusambandið
(ESB) gerði Íslandi tilboð sem ekki
sé hægt að hafna um aðild að sam-
bandinu? Þessum möguleika er
velt upp í ritstjórnardálknum Ob-
server í breska dagblaðinu Fin-
ancial Times í gær, en þar segir að
slíkt boð geti komið ef til þess kem-
ur að Frakkar hafni nýrri stjórn-
arskrá ESB í þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Segir í blaðinu að íslensk sendi-
nefnd sé væntanleg til Brussel á
næstu vikum til fundar við Olli
Rehn, sem fer með stækkunarmál í
framkvæmdastjórn ESB. Þar er
um að ræða hina svokölluðu Evr-
ópunefnd, sem er væntanleg til
Brussel í lok maí. Rehn sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
fundurinn væri að frumkvæði ís-
lensku nefndarinnar, og þar ætti
að ræða skilyrði sem sett eru fyrir
inngöngu í ESB, og hver kostnaður
landsins við inngöngu gæti orðið.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra og formaður nefndarinnar
segir umrædd skrif þó ekkert eiga
skylt við tilgang Brussel-ferðar
nefndarinnar.
Þó tengslin á milli þess að
Frakkar segi nei, og þess að Ís-
landi verði boðin aðild liggi ekki í
augum uppi er í greininni bent á að
ef Frakkar hafni stjórnarskránni
gæti verið möguleiki til þess að
„smygla inn“ mikilvægustu málun-
um í stjórnarskránni inn í reglu-
verk ESB með aðildarsamningi nýs
ríkis að bandalaginu.
Vandamálið er bara að stækkun
ESB er að segja má lokið í bili.
Samningar við Rúmeníu og Búlg-
aríu verða undirritaðir 25. apríl, en
kosið verður um stjórnarskrána í
Frakklandi 29. maí. Þar gæti Ís-
land komið að málinu, segir í Fin-
ancial Times, auðvelt verði að
semja um aðild þessa auðuga
lands, sérstaklega saman borið við
önnur ríki eins og Albaníu og
Bosníu. Því gæti hugsast að Íslandi
yrðu boðnir skilmálar sem erfitt sé
að neita, sér í lagi þegar kemur að
yfirráðum Íslendinga yfir fiskimið-
unum.
Evrópunefndin til Brussel
Evrópunefndin var skipuð af for-
sætisráðherra sumarið 2004.
Nefndarmenn eru væntanlegir til
Brussel í lok maí í kynnisferð til
stofnana EES og ESB, eins og
sagt var frá í Morgunblaðinu, og
einn þeirra sem verður fundað með
er Ollie Rehn. Nefndinni er m.a.
ætlað að fjalla um framkvæmd
Evrópska efnahagssamningsins,
sjávarútvegsstefnu ESB, kosti og
galla þess að taka upp evruna, og
hvað aðild að ESB myndi kosta rík-
issjóð til lengri og skemmri tíma.
Spurður um eðli viðræðnanna
segir Rehn að þetta sé upplýsinga-
fundur.
„Við erum að aðstoða nefndina
við að vinna það mat sem henni
hefur verið falið að vinna. En að
sjálfsögðu fagna ég þessu tækifæri
til að hitta íslensku Evrópunefnd-
ina og er mjög hlynntur því að
ræða af fullri alvöru aðild Íslands
að Evrópusambandinu.“
Íslandi boðin aðild að ESB ef Frakkar hafna stjórnarskránni?
Tilboð um aðild sem
ekki er hægt að hafna
Björn Bjarnason segir
ekkert samhengi milli
Brussel-ferðar Evrópu-
nefndar og skrifa
Financial Times
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is