Morgunblaðið - 21.04.2005, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Má bjóða upp í dans, herrar mínir.
Mikil óánægja ermeðal forstöðu-manna safna í
kjölfar úthlutunar safnar-
áðs á styrkjum til ís-
lenskra safna en tilkynnt
var um þá nú nýlega. Alls
var úthlutað styrkjum að
upphæð 64 milljónir
króna, en þar af fær ráðið
sjálft til rekstrar 9,6 millj-
ónir króna, sem er nokkur
hækkun frá fyrra ári eða
úr 6,4 milljónum. For-
stöðumenn 15 safna birtu yfirlýs-
ingu vegna úthlutunarinnar í
Morgunblaðinu síðastliðinn laug-
ardag þar sem hún er harðlega
gagnrýnd, m.a. hversu mjög
kostnaður af starfsemi ráðsins
hækkar milli ára, en á sama tíma
sé rekstrarstyrkur til safnanna
lækkaður. Hann hefur verið 1,5
milljónir króna sl. ár en fer niður í
400 þúsund til 1,2 milljónir eftir
stærð safna. Í greinargerð safn-
aráðs segir að ástæður hækkunar-
innar séu þær að úthlutað fjár-
magn sé lægra nú en var á liðnu
ári, þá megi gera ráð fyrir lög-
fræðikostnaði á árinu og eins séu
uppi áform um að efna til mál-
þings og útgáfu.
Stjórn safnaráðs hefur reynt að
sannfæra fjárveitinganefnd um
mikilvægi þess að hækka framlög-
in en án árangurs. Söfnum sem
hljóta rekstrarstyrki hefur fjölgað
úr 24 í 40 á sl. fjórum árum. Nú
hefur sú breyting orðið á varðandi
úthlutun verkefnastyrkja að í stað
þess að veita marga lága styrki til
fjölda verkefna var sá póll tekinn í
hæðina að veita styrki til verkefna
sem þykja mikilvæg fyrir
framþróun safnastarfs og þeir þá
myndarlegri en áður tíðkaðist.
Um 50 fá styrki árlega
Rakel Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri safnaráðs, segir
mikla grósku í íslensku safnastarfi
og að sífellt fjölgi þeim sem rétt
eigi á rekstrarstyrkjum úr sjóðn-
um, nú fái um 50 safnastofnanir
styrki árlega úr sjóðnum, þannig
að menn ættu glögglega að sjá að
lítið er til skiptanna
„Vandinn er sá að Safnasjóður
hefur því miður ekki fjárhagslega
getu til að vera raunveruleg stoð
við rekstur safna eins og vænting-
ar manna hafa staðið til og getan
til þess fer fremur minnkandi en
hitt,“ segir Rakel. Hún nefndi að
söfn víða um land væru mikilvæg
samfélaginu, í tengslum við starf-
semi þeirra væri oft efnt til menn-
ingarviðburða af ýmsu tagi. „Það
sem við okkur blasir er að sjóð-
urinn hefur úr allt of litlu fé að
moða,“ sagði Rakel.
Auk þess sem söfn fá styrki úr
sjóðnum fá mörg þeirra bein
framlög á fjárlögum frá ríkinu.
Þannig kemur fram í ársskýrslu
safnaráðs frá 2003 að 270 milljón-
um króna var varið til safnastarfs
á fjárlögum það ár.
Viðbrögð stjórnar Síldarminja-
safnsins á Siglufirði við lækkun á
rekstrarstyrk úr 1,5 milljón í 1,2
verða að líkindum þau að minnka
starfshlutfall eina starfsmanns
þess, sennilega um 25–30%, en
tekin verður ákvörðun þar um á
næsta fundi hennar. Safnið fékk
engan verkefnastyrk í ár. Örlygur
Kristfinnsson forstöðumaður Síld-
arminjasafnsins, sagði að sér virt-
ist sem safnaráð treysti ekki sér
og öðrum safnstjórum til að vinna
faglega og meta hvað væri til
framdráttar safnstarfi í landinu.
Með því að auka vægi verkefna-
styrkja tæki ráðið í sínar hendur
að meta hvaða verkefni það væru
sem skiptu máli fyrir íslenskt
safnastarf en það sem skipti meg-
in máli væri að Safnaráð hækkaði
eigin rekstrarastyrk um 50%.
Mikil uppbygging hefur orðið á
Síldarminjasafninu frá því starf-
semi þess hófst fyrir 15 árum,
safnið varð til úr nánast engu en
er nú eitt af stærstu söfnum lands-
ins. Þangað komu yfir 14 þúsund
gestir á liðnu ári og þá fékk það
gullverðlaun í Evrópukeppni
safna árið 2004. „Við höfum skilað
árangri sem mælist m.a.í alþjóð-
legum verðlaunum og margskon-
ar viðurkenningum og það var
Safnaráð sem svo að segja sendi
Síldarminjasafnið í þessa keppni
og það kunnum við Siglfirðingar
vel að meta. En þá er það hast-
arlegt að næsta verk þess er að
lækka styrk til eina starfsmanns
safnsins,“ sagði Örlygur, en í kjöl-
farið kvaðst hann gera ráð fyrir að
dofnaði yfir faglegri starfsemi.
Hörð gagnrýni 15 safnstjóra
víða um land á safnaráð og nýja
stefnu þess við úthlutun styrkja
sem og viðhorf ráðsins til safn-
astarfsemi í landinu kom fram í
áðurnefndri yfirlýsingu þeirra um
helgina. Ólafur Kvaran, formaður
ráðsins, vildi í samtali við Morg-
unblaðið um helgina ekki svara
gagnrýninni efnislega, en sagði
umræðuna þarfa og brýna. „Ólaf-
ur tekur undir áskoranir okkar til
menntamálaráðherra og alþingis-
manna um að leggja meira fé í
Safnasjóðog vísar til einnar og
hálfrar setningar í langri gagn-
rýnisgrein á ráðið. Um leið
og hann reynir að slá ryki í aug-
um lesenda blaðsins er hann að slá
vopnin úr höndum okkar. Mér
finnst það skylda formanns safn-
aráðs að svara gagnrýni okkar
efnislega og eins að útskýra
hvernig standi á því að ráðið sjálft
tekur til sín svo stóran hluta fjár-
veitingarinnar,“ sagði Örlygur og
vill að safnaráð verði flutt til
menntamálaráðuneytisins.
Fréttaskýring | Úthlutun styrkja safnaráðs
Of litlar
fjárveitingar
Gagnrýnt að kostnaður við rekstur
safnaráðs hækkar umtalsvert
Fjöldi gesta heimsækir Síldarminjasafnið.
Mikil gróska er almennt í
íslensku safnastarfi
Mikil gróska er í íslensku safn-
astarfi. Í ársskýrslu safnaráðs
kemur fram að rúmlega 200
safnastofnanir eru hér á landi.
Einnig að fjöldi safna á hverja
100 þúsund íbúa er 11,4 í Noregi,
6,3 á Ítalíu, 5,9 í Finnlandi, 5,3 í
Portúgal, 2,7 í Svíþjóð en á Ís-
landi er fjöldi safna á 100 þúsund
íbúa 25. Á Norðurlöndum er til-
hneiging til að fækka söfnum
fremur en að fjölga þeim.
Eftir Margréti Þóru
Þórsdóttur
maggath@mbl.is
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær Arnar Óla Bjarnason,
22 ára, í 2 ára fangelsi fyrir að
kveikja í bílum í Hafnarfirði í sept-
ember á síðasta ári auk fleiri brota.
Þá var hann dæmdur til að greiða
eigendum bílanna samtals tæplega
1,2 milljónir króna í bætur. Fram
kemur í dómnum, að ákærði hafi
stofnað mannslífum í háska og valdið
hættu á yfirgripsmikilli eyðingu á
eignum.
Ákærði hellti bensíni yfir bíl sem
stóð á bílastæði við fjölbýlishús við
Lækjargötu í Hafnarfirði og kveikti
í. Eldurinn breiddist út með þeim af-
leiðingum að bíllinn brann ásamt
tveimur öðrum bílum við hliðina og
einnig urðu lakkskemmdir á tveimur
bílum til viðbótar. Þá barst eldur í
gluggakarma á jarðhæð hússins sem
brunnu og rúður sprungu á jarðhæð
og annarri hæð hússins.
Var ákærði talinn hafa stofnað lífi
níu sofandi íbúa hússins í hættu, sem
stendur 1,5 til 2 metra frá upptökum
eldsins, valdið eignatjóni og hættu á
yfirgripsmikilli eyðingu fleiri eigna
hefði eldurinn breiðst enn frekar út,
en hann var fljótlega uppgötvaður og
slökktur af slökkviliði.
Kveikti í á ný með bensíni
Í kjölfar þessarar íkveikju hellti
ákærði bensíni yfir bíl við Fögrukinn
og kveikti í. Varð tjón bæði á bílnum
og grindverki en fyrir aftan bílinn
var tjaldvagn sem var bjargað
Ákærði var einnig fundinn sekur
um umferðarlagabrot með því að aka
undir áhrifum deyfandi lyfja og var
sviptur ökuréttindum í sex mánuði.
Þá var hann einnig sakfelldur fyrir
brot gegn vopnalögum, með því að
hafa í vörslum sínum hníf með 15 cm
löngu blaði.
Fram kemur í dómnum, að mað-
urinn hafi um árabil misnotað áfengi
og ýmis efni og endurteknar með-
ferðartilraunir hafi ekki borið árang-
ur. Umrædda nótt hafi hann verið
undir verulegum áhrifum áfengis og
eftir endurtekin rifrildi við kærustu í
síma hafi hann espast upp og misst
stjórn á hegðun sinni.
Maðurinn viðurkenndi brot sín. Í
niðurstöðu dómsins segir, að refsing
þyki hæfilega ákveðin fangelsi í 2 ár.
Finnbogi Alexandersson héraðs-
dómari dæmdi málið.
22 ára maður dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir íkveikjur
Stofnaði fólki í hættu