Morgunblaðið - 21.04.2005, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„MÉR ER það ljóst að í umræðu
undanfarinna daga hafa menn sér-
staklega verið áhugasamir um það
að vita hver eign mín væri í fyr-
irtækinu Skinney-Þinganes hf. sem
starfandi er á Hornafirði,“ segir
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra. „Faðir minn var einn af
stofnendum fyrirtækisins Skinney
hf. og nú eftir lát móður minnar á
síðasta ári hefur verið gengið frá
uppgjöri á dánarbúi þeirra og að
því loknu þá er minn hlutur í þessu
fyrirtæki 2,33% af heildarhlutafé,“
segir Halldór, en það samsvarar
15.180.000 kr. á nafnvirði.
Að sögn Halldórs hefur þing-
flokkur Framsóknarflokksins
ákveðið að setja sér reglur um og
ráðast í það að birta opinberlega
upplýsingar um fjárhag og eignir
og eftir atvikum eignarhlut þing-
mannanna í atvinnurekstri, þóknun
fyrir önnur launuð störf, og aðild að
hagsmunasamtökum og upplýsing-
ar um gjafir, hlunnindi og boðsferð-
ir. Hefur þingflokkurinn óskað eftir
því við forsætisnefnd að hún setji
slíkar reglur og jafnframt ákveðið
að eiga frumkvæðið að því að setja
sér slíkar reglur.
Spurður hvort hann telji almennt
heppilegt að þingmenn eigi í fyr-
irtækjum svarar Halldór því ját-
andi. „Ég tel það bara mjög gott að
þingmenn ráðstafi sínum sparnaði í
hlutafé eins og aðrir borgarar þessa
lands. Ég tel það mjög mikilvægt að
sem flestir byggi upp sparnað og
það er af hinu góða ef menn ráð-
stafa því í áhættufé í atvinnulífinu.
En í flestum tilvikum er það sem
þingmenn eiga í fyrirtækjum sára-
lítið.“ Aðspurður hvort hlutafjár-
eign þingmanna geti ekki skapað
ákveðna hagsmunaárekstra segir
Halldór afar skýrar reglur gildi um
hvenær ráðherra eigi að víkja sæti í
slíkum tilvikum. „Samkvæmt 37. gr.
stjórnsýslulaganna ber ráðherra að
víkja sæti ef til úrlausnar koma mál
sem varða fyrirtæki þar sem ráð-
herra eða venslamenn hans eiga
sérstakra og verulegra hagsmuna
að gæta,“ segir Halldór og bendir á
að það komi reglulega fyrir að ráð-
herra víki sæti í málum þar sem
einhverjir hagsmunaárekstrar eigi
sér stað.
Halldór á
15,1 milljón
að nafnvirði
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Forsætisráðherra gerir grein fyrir eign sinni í Skinney-Þinganesi hf.
HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráðherra hefur
ritað formönnum allra stjórnmálaflokka sem sæti
eiga á Alþingi bréf og óskað eftir því að þeir til-
nefni fulltrúa í nefnd til að fjalla um lagalega um-
gjörð stjórnmálastarfsemi. Nefndin á m.a. að
fjalla um hvernig hátta skuli eftirliti með fjárreið-
um stjórnmálaflokka. Lagt er til að hún skili til-
lögum sínum fyrir lok þessa árs.
Þetta er upplýst í skýrslu forsætisráðherra,
sem lögð var fram á Alþingi í gær, um fjárframlög
til stjórnmálastarfsemi og starfsumhverfi stjórn-
málaflokka á Íslandi. Tilefni skýrslunnar er beiðni
Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns Samfylking-
arinnar, og fleiri þingmanna flokksins frá því í
október sl. um að ráðherra skili skýrslu um þessi
mál.
Í upphafi skýrslunnar er rifjað upp að nefnd,
skipuð fulltrúum allra stjórnmálaflokka, hafi skil-
að skýrslu um fjármál flokkanna í lok árs 1998. Sú
nefnd hafi einróma komist að þeirri niðurstöðu að
ekki bæri að setja lög um fjármál stjórnmálaflokk-
anna.
Síðan þá hafi umræðan aukist um þessi mál, þ.e.
umræðan um hvort og þá með hvaða hætti væri
rétt að setja ákvæði í lög um fjármál stjórnmála-
flokka. Jafnframt hafi orðið mikil þróun í þessum
efnum á alþjóðlegum vettvangi. Til að mynda á
vettvangi Efnahags- og framfarastofnunar Evr-
ópu og á vettvangi Evrópuráðsins. Samstarf sé t.d.
um það meðal aðildarríkja Evrópuráðsins að berj-
ast gegn spillingu og þurfa þau í því skyni að gang-
ast undir úttekt svokallaðrar Greco-nefndar.
Vísað í tilmæli Evrópuráðsins
„Sú þróun sem hér hefur verið rakin kallar að
áliti forsætisráðuneytisins á að lagaramminn um
fjárhagslega umgjörð stjórnmálaflokkanna hér á
landi sæti endurmati,“ segir í skýrslu forsætisráð-
herra.
Er í því sambandi einnig vísað til tilmæla Evr-
ópuráðsins, frá árinu 2003, um sameiginlegar regl-
ur gegn spillingu í tengslum við fjármögnum
stjórnmálaflokka og kosningabaráttu. Þau tilmæli
eru þó ekki bindandi fyrir Ísland, að því er fram
kemur í skýrslunni.
Í lok skýrslunnar er ítrekað að forsætisráð-
herra telji eðlilegt að skipuð verði nefnd til að
fjalla um lagalega umgjörð stjórnmálastarfsemi.
„Meðal þess sem slík nefnd þarf að fjalla um er
hvernig skuli háttað eftirliti með fjárreiðum
stjórnmálaflokkanna, hvort setja skuli bann við
framlögum frá fyrirtækjum í opinberri eigu, hvaða
reglur eigi að gilda varðandi framlög aðila sem
selja vöru eða þjónustu til ríkisins til stjórnmála-
flokka, hvort og þá hvaða mörk eigi að setja við
nafnlausum framlögum eða hámarksfjárhæð
framlaga og hvaða viðmið eigi að vera í lögum að
öðru leyti um þetta efni með hliðsjón af tilmælum
Evrópuráðsins og löggjafarþróun almennt. Þá
gæti þessi nefnd eftir atvikum fjallað um hvort
gera skuli kröfu til ráðherra og þingmanna um að
þeir upplýsi um fjármálaleg eða stjórnunarleg
tengsl sín við fyrirtæki,“ segir í skýrslu ráðherra.
Þverpólitísk nefnd fjalli um eftir-
lit með fjárreiðum flokkanna
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra sagði á Alþingi í gær að hann
treysti því að stjórnendur og starfs-
menn Landspítala – háskólasjúkra-
húss (LSH) settu niður deilur sínar.
„Ég er þeirrar skoðunar að deilur
af því tagi sem uppi voru á Land-
spítala eigi að leysa inni á spít-
alanum sjálfum og treysti því að
stjórnendur og starfsmenn setji
niður deilur sínar með hagsmuni
sjúklinga að leiðarljósi,“ sagði ráð-
herra. „Ég veit ekki betur en að
menn hafi fullan vilja til að tala
saman.“
Kom þetta fram í umræðu utan
dagskrár um stöðu LSH. Ásta R.
Jóhannesdóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, var málshefjandi
umræðunnar. Sagði hún m.a. að
uppsafnaður halli spítalans væri um
einn milljarður. Hún sagði einnig
að deilurnar innan spítalans und-
anfarið hefðu rýrt traust á hinni
mikilvægu þjónustu sem spítalinn
veitti. Þá væri þjónusta við sjúk-
linga ófullnægjandi. Sparnaðarað-
gerðir undanfarinna ára hefðu haft
slæm áhrif á heilsufar sjúklinga. En
þó ekki síður á heilsufar og úthald
starfsfólks.
Treysti stjórnendum
Ráðherra kvaðst hins vegar telja
að sjúklingar fengju viðunandi
þjónustu á spítalanum. „Ég treysti
stjórnendum spítalans fullkomlega
til að forgangsraða verkefnum
þannig í rekstrinum að þeir fái
þjónustuna sem þurfa á henni að
halda.“
Ráðherra sagði að það væri hins
vegar erfitt verk að sameina tvo
spítala í einn. „Það reynir á stjórn-
endur og það reynir á starfsmenn
Landspítalans. Á sama tíma hefur
rekstur spítalans batnað og á sama
tíma hefur starfsemin aukist um-
talsvert sjúklingum til hagsbóta.
Það er von mín að erfiðleikar af
þessu tagi séu nú senn að baki og
menn geti horft til framtíðar frem-
ur en að láta tímabundna erfiðleika
trufla sig.“
Ráðherra vísaði því einnig á bug
að spítalanum hefði verið gert að
spara eða hagræða á síðustu miss-
erum. Heildarfjárframlög til spít-
alans hefðu þvert á móti hækkað
undanfarin ár.
Álag á taugadeild
Ásta Ragnheiður gerði ástandið á
taugadeild LSH sérstaklega að um-
talsefni. Hún sagði að við samein-
ingu spítalanna hefði sjúkrarúmum
á taugadeild fækkað úr 42 í 21. Það
væri í lagi, sagði Ásta, ef göngu-
deildarþjónustan væri viðunandi.
Svo væri á hinn bóginn ekki. „Ég
tel að starfsfólkið sé að gera krafta-
verk á hverjum degi við þessar að-
stæður en margir eru að gefast upp
á ástandinu, og lykilmenn jafnvel á
förum.“
Fram kom í máli ráðherra að
álag hefði verið á deildinni í vetur.
„Þar voru mönnunarvandræði fyrr í
vetur,“ sagði hann. Nú væri hins
vegar unnið að því að fullmanna
deildina. Þegar hefðu verið settar
fram áætlanir í þeim efnum. „Einn-
ig verður hafin vinna við að skoða
húsnæðismál deildarinnar með það
í huga að efla dag- og göngudeild-
arþjónustu. Bind ég vonir við að
þau áform sem mér hafa verið
kynnt færi aðstæður á taugadeild-
inni í gott horf,“ sagði ráðherra á
Alþingi í gær.
Jón Kristjánsson
um Landspítala
Treystir
því að
starfsfólk
setji niður
deilur sínar
Uppsafnaður halli
um einn milljarður
ÞINGMENN Framsóknarflokksins
hyggjast taka saman og birta opin-
berlega upplýsingar um fjárhag og
eignir sínar og eftir atvikum eign-
arhlut sinn, maka og náinna ættingja
í félögum í atvinnurekstri. Einnig
upplýsingar um önnur launuð störf,
aðild að hagsmunasamtökum og
upplýsingar um gjafir og boðsferðir.
Jónína Bjartmarz, þingmaður
Framsóknarflokksins, tilkynnti
þessa ákvörðun þingflokksins í um-
ræðum á Alþingi í gær. Stefnt er að
því að þessar upplýsingar verði
gerðar opinberar, m.a. á vef Fram-
sóknarflokksins, í næstu viku.
Jónína hefur fyrir hönd þing-
flokksins, sent forseta Alþingis bréf,
þar sem óskað er eftir því að forsæt-
isnefnd setji sem fyrst reglur um op-
inbera upplýsingagjöf um fjárhag,
eignir, hagsmuni og tengsl alþingis-
manna. „Við höfum ákveðið, þing-
flokkur Framsóknarflokksins, að
ríða á vaðið en aðlaga síðan þær regl-
ur, sem við ætlum að birta okkar
upplýsingar á, þeim reglum sem for-
sætisnefnd setur, þegar og ef af því
verður,“ sagði Jónína á Alþingi.
Þingmennirnir munu, skv. upplýs-
ingum Morgunblaðsins byggja upp-
lýsingagjöfina fyrst um sinn á eigin
reglum. Hyggjast þeir semja þær
reglur fyrir helgi.
Fagna umfjöllun
Jónína sagði að reglurnar myndu
auka trúverðugleika þingsins;
gagnsæi um hugsanleg eigna- og
hagsmunatengsl þingmanna myndi
m.ö.o auka trúverðugleika þeirra
gagnvart umbjóðendum sínum.
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra vék einnig að þessum málum á
Alþingi í gær. Hann sagði eðlilegt að
forsætisnefnd þingsins fjallaði um
hvaða reglur ættu að gilda í þessum
efnum. „Ég er á margan hátt undr-
andi á því hvað lítil umræða hefur
farið fram [í forsætisnefnd] um þessi
mál,“ sagði hann. „Auðvitað hefði
forsætisnefnd getað fyrir löngu sett
reglur um þessi mál. Ég vek líka at-
hygli á því að einstakir flokkar, ein-
stakir þingflokkar, geta sett sjálfum
sér slíkar reglur. Ekkert kæmi í veg
fyrir það,“ sagði hann, enda hefði
þingflokkur framsóknarmanna, þeg-
ar tekið af skarið.
Þingmenn tóku almennt vel í það
að forsætisnefnd fjallaði um þessi
mál. Jóhanna Sigurðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, hvatti
jafnframt til þess að nefndin fjallaði
um tillögur sínar um að settar verði
siðareglur fyrir alþingismenn.
Þingmenn VG, bentu m.a. á leið
Dana, í þessum efnum. „Á heimasíðu
danska forsætisráðuneytisins er
hægt að fá upplýsingar um tengsl
allra ráðherra í dönsku ríkisstjórn-
inni við hvers kyns viðskiptahags-
muni,“ sagði Ögmundur Jónasson,
þingmaður VG. Þingmenn Frjáls-
lynda flokksins sögðu m.a. að þeir
hefðu lengi vel barist fyrir því að
fjármál stjórnmálaflokkanna yrðu
gerð opinber. Pétur H. Blöndal,
þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagð-
ist hlynntur því að hafa sem flestar
upplýsingar uppi á borðinu. Það
myndi slá á kjaftasögur og gróusög-
ur. Hann benti þó á að ef menn ættu
að gefa upp eignir sínar ættu þeir
líka að gefa upp skuldir sínar.
Skuldatengsl væru miklu alvarlegri
en eignatengsl.
Þingmenn Framsóknarflokksins ætla að birta upplýsingar um fjármál sín
Upplýsingarnar gerðar
opinberar í næstu viku
Forsætisnefnd setji samræmdar
reglur um upplýsingagjöf þingmanna
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is