Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÁRGANGUR þorsksins frá síðasta
ári er mjög lélegur, árgangurinn
2003 er frekar lélegur og 2001 ár-
gangurinn mjög lélegur. Árgangur-
inn frá 2002 er hins vegar nærri
meðallagi. Stofnvísitala þorsks er
nú 16% minni en í stofnmælingu á
síðasta ári. Þetta eru bráðabirgða-
niðurstöður úr hinu svokallaða tog-
araralli Hafrannsóknastofnunar.
Mest fékkst af þorski djúpt úti af
Norður- og Austurlandi og út af
Ísafjarðardjúpi.
Holdafar þorsksins var heldur
betra en árið 2004 og nærri með-
allagi ef litið er á tímabilið frá 1997,
en árin 1993–1996 var holdafar
betra. Loðnumagn í þorskmögum
var mjög mikið út af Vestfjörðum
og fyrir norðan land en nær engin
loðna fannst í þorskmögum á svæð-
inu frá Ingólfshöfða vestur að
Látrabjargi.
Aldursgreiningum fiska og úr-
vinnslu gagna er ekki lokið en hér á
eftir er stutt samantekt Hafrann-
sóknastofnunar á þeim niðurstöðum
sem liggja fyrir. Þorsksins er getið
áður. Hitastig sjávar var svipað og
árið 2004 þegar það mældist frekar
hátt allt í kringum land. Undan-
tekning var á svæðinu frá Horna-
firði og vestur undir Breiðamerk-
urdjúp þar sem kólnaði um 3–4
gráður frá árinu 2004.
Ýsa á uppleið
Stofnvísitala ýsu hækkaði um
20% frá árinu 2004 og var sú hæsta
frá upphafi ralls. Mæliskekkjan í
stofnvísitölunni er eins og árið 2004
mjög lítil sem skýrist af mjög jafnri
útbreiðslu ýsunnar. Lengdardreif-
ingar benda til að árgangur 2004 sé
nærri meðallagi, árgangur 2003
mjög stór, árgangur 2002 stór en
árgangur 2001 lélegur. Ýsan veidd-
ist allt í kringum land en mest fyrir
norðan og suðvestan land.
Gullkarfi
Stofnvísitala gullkarfa var mun
lægri en árin 2003 og 2004 en þau
ár var hún mjög há miðað við fyrri
ár. Mæliskekkjan lækkaði hins veg-
ar frá árunum 2003 og 2004.
Stofnvísitala gullkarfa var í lág-
marki árin 1992–1995 en hefur
hækkað verulega síðan. Vísitölurnar
eru töluvert breytilegar frá ári til
árs þar sem tiltölulega mikið af
karfaaflanum kemur á fáum stöðv-
um.
Stofnvísitala steinbíts var óbreytt
frá fyrra ári þegar hún var með því
lægsta frá upphafi stofnmælingar-
innar. Vísitala ufsa var svipuð og
árið 2004 þegar hún var há. Vísitala
skarkola lækkaði frá fyrra ári en
mæliskekkjan minnkaði. Vísitalan
er þó ekki nema rúm 20% af því
sem hún var í upphafi ralls. Magn
lýsu var svipað og árið 2004 þegar
það var það mesta frá upphafi
stofnmælingarinnar. Magn lýsu hef-
ur verið að aukast undanfarin ár,
væntanlega vegna hækkandi sjáv-
arhita.
Svipuð mynd og 2004
„Niðurstöður mælingarinnar sem
hér eru kynntar til bráðabirgða, eru
mikilvægasti þáttur árlegrar úttekt-
ar Hafrannsóknastofnunarinnar á
ástandi nytjastofna við landið.
Stofnmælingin í ár gefur svipaða
mynd og stofnmælingin 2004 hvað
varðar magn og útbreiðslu flestra
nytjastofna og staðfestir þær breyt-
ingar sem hafa sést á undanförnum
árum. Mesta breytingin frá árinu
2004 er þó aukin hrygning loðnu út
af Vestfjörðum og fyrir norðan
land. Þessa dagana stendur yfir
frekari úrvinnsla gagna svo sem
aldursgreining helstu tegunda.
Lokaúttekt á niðurstöðum og til-
lögur Hafrannsóknastofnunarinnar
um aflamark fyrir næsta fiskveiðiár
verða kynntar í byrjun júní næst-
komandi,“ segir í frétt frá Hafrann-
sóknastofnun
Stofnmæling botnfiska á Íslands-
miðum, togararallið, fór fram í 21.
sinn dagana 1. mars til 2. apríl sl.
Fjórir togarar voru leigðir til verk-
efnisins: Páll Pálsson ÍS, Ljósafell
SU, Brettingur NS og Bjartur NK,
auk þess sem kannaðir voru mögu-
leikar þess að nota rannsóknaskipið
Bjarna Sæmundsson í togararall.
Alls var togað á 550 rallstöðvum allt
í kringum landið. Stofnmælingin
gekk skv. áætlun, að undanskildum
töfum á stöðvatöku vegna hafíss
norðvestur af landinu.
Nýjasti árgangur
þorsksins mjög lélegur
3%%%
4%' 5
3
%
6!
!7
8 8 8 8 8 8
3%%%
4%' 5
3
%
6!
!7
8 8 8 8 8 8
ÚR VERINU
BJÖRN Bjarman rit-
höfundur lést á Land-
spítala – háskóla-
sjúkrahúsi 19. apríl
síðastliðinn á áttugasta
og öðru aldursári.
Björn var fæddur á
Akureyri 23. septem-
ber árið 1923, sonur
hjónanna Sveins Árna-
sonar Bjarman og
Guðbjargar Björns-
dóttur Bjarman. Hann
var elstur átta systk-
ina.
Björn lauk lögfræði-
prófi árið 1949 og prófi
í uppeldis- og kennslufræði 1971.
Hann vann við lögfræðistörf frá
1949–58. Hann var
framhaldsskólakenn-
ari frá 1956 og stund-
aði jafnframt ritstörf
og blaðamennsku.
Björn sinnti einnig fé-
lags- og trúnaðar-
störfum fyrir rithöf-
unda, framhaldsskóla
kennara og hjarta-
sjúklinga og vann að
hagsmunamálum
þeirra.
Björn var tvíkvænt-
ur. Fyrri kona hans
var Unnur Gröndal og
eignuðust þau tvö
börn. Þau skildu. Seinni kona hans
var Sveinbjörg Stefánsdóttir.
Andlát
BJÖRN BJARMAN
VIÐ lok sextándu aldar var mynd
Evrópubúa af Íslendingum slæm;
þeir voru sagðir nánast eitraðir
vegna illa þefjandi reyks sem fyllti
hús þeirra, þar sem þeir kúldruðust
nagandi þorskhausa, ómenntaðir, og
sérlega illa að sér í mannasiðum.
Það tók Íslendinga heila öld að berj-
ast gegn þessari mynd af þeim úti í
hinum stóra heimi, en það gerðu þeir
með því að vísa í glæsilegan bók-
menntaarf þjóðarinnar.
Þetta kom fram í erindi Magnúsar
Magnússonar, sjónvarpsmanns og
rithöfundar, sem hann flutti á ráð-
stefnu sem haldin var til heiðurs
Vigdísi Finnbogadóttur. Magnús
gerði hugmyndir útlendinga um Ís-
land og þá sem þar búa að umfjöll-
unarefni og hann rakti sig í gegnum
heimildir, allt frá Landnámu til okk-
ar daga, og nefndi mörg skemmtileg
dæmi. Myndin af Íslandi hefur ekki
alltaf verið eins slæm og í dæminu
hér á undan og því til staðfestingar
vitnaði Magnús m.a. í texta frá 825
þar sem írskur klerkur segir frá
reynslu munka sem búa á eyju á
hjara veraldar (sem talin er hafa
verið Ísland), þar sem birta sum-
arnátta var slík að hægt var að tína
flærnar af klæðum sínum á mið-
nætti. Öll getum við verið sammála
Magnúsi um einstaka fegurð þess-
arar myndar sem þarna er dregin
upp en hann minnti þó á hversu
marga og misjafna dóma landið og
þjóðin hefðu fengið í gegnum ald-
irnar. T.d. voru fyrstu víkingarnir
sem hingað komu ekki á einu máli
um ágæti landsins. Magnús nefndi í
því sambandi Hrafna-Flóka sem
hafði ekkert gott um þetta land að
segja en Þórólfur Þorsteinsson kvað
aftur á móti smjör drjúpa þar af
hverju strái.
Notuðu fornbókmenntirnar
Á sextándu öldinni var íslenskur
fræðimaður, Arngrímur Jónsson,
fenginn af Skálholtsbiskupi til að
skrifa bók til þess að hrekja þann
róg um Ísland og Íslendinga sem
fest hafði í sessi í Evrópu og lýsir sér
í því dæmi sem tekið var hér í upp-
hafi um skítuga og ókurteisa lúða.
Arngrímur fór þá leið að draga fram
gullið okkar og vakti athygli á ís-
lensku fornbókmenntunum og
hetjum fornsagnanna. Þannig tókst
honum að ná eyrum annarra fræði-
manna og skálda í útlandinu. Í fram-
haldi af því sóttu evrópskir sagn-
fræðingar, málfræðingar,
heimspekingar, náttúrufræðingar,
landkönnuðir, ferðamenn og rithöf-
undar óspart innblástur í hinn mikla
auð fornbókmenntanna á Íslandi
sem og magnaða náttúruna. Við vor-
um loksins einhvers virði.
Magnús vitnaði í hina ýmsu vís-
indamenn sem sigldu hingað upp á
skerið á átjándu öldinni og rannsök-
uðu þetta forvitnilega land. Eld-
virknin heillaði margan nátt-
úrufræðinginn en þeir sögðu líka frá
upplifun sinni á landanum og sumir
þeirra urðu mjög svo hissa þegar
þeir komust að því að Íslendingar
voru barasta mennskir.
Ferðabækur gerðust mjög vinsæl-
ar í Bretlandi á nítjándu öldinni og
upplifun ferðalanga á Íslendingum
var með ýmsum hætti. Sumir sögðu
þá einstaklega vingjarnlega, aðrir
sögðu þá lausa við allt lyktarskyn
því nef þeirra væru úttroðin af tób-
aki. Enn aðrir gátu vart vatni haldið
vegna náttúruundranna Gullfoss,
Geysis og Þingvalla, svo ekki sé tal-
að um bókmenntirnar fornu. En
strax á nítjándu öldinni kom fram
fullyrðing í ferðabókum, sem
kannski enn loðir við landið okkar:
Þar er dýrt að vera.
Magnús vitnaði í bréfaskipti
tveggja erlendra ljóðskálda frá fyrri
hluta 20. aldar þar sem annar þeirra
lýsir upplifun sinni á harðfiski sem
hann segir aðaluppistöðu í fæðu
Frónbúa. Fisk þennan sagði ljóð-
skáldið stundum svo harðan að líkt-
ist því að éta táneglur.
Magnús Magnússon hefur rannsakað lýsingar á Íslandi
Bækurnar og sagan
komu okkur á kortið
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Magnús Magnússon
Bílar á
föstudögum
á morgun