Morgunblaðið - 21.04.2005, Síða 14

Morgunblaðið - 21.04.2005, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Páfagarði. AP, AFP. | Benedikt XVI hélt sína fyrstu messu í gær sem páfi og hét þá að stefna að einingu allra kristinna manna og eiga góða viðræðu við fulltrúa annarra trúar- bragða. Ljóst er af ræðu hans, að hann vill draga úr ótta sumra við, að páfadómur hans muni einkennast af einstrengingslegu aft- urhaldi. Í messunni, sem flutt var á latínu í Sixtus- arkapellunni, kvaðst páfi finna til „auðmýkt- ar og smæðar“ frammi fyrir ábyrgðinni og hvatti kardinálana til að „styðja mig með bænum og uppbyggilegri samvinnu“. Sagði hann kjör sitt sem páfa hafa komið sér á óvart en „sú guðlega forsjón, sem birtist í at- kvæðagreiðslu kardinálanna, hefur valið mig sem eftirmann hins mikla páfa“, og vísaði þá til Jóhannesar Páls II. Benedikt XVI sagði um viðræðuna við full- trúa annarra trúarbragða, að góður vilji gerði litla stoð. „Við verðum að bregðast við af einlægni hjartans, eiga viðræðu við okkar eigin sál og samvisku. Með því einu náum við árangri.“ Hefur þessum orðum hans verið vel tekið, til dæmis af Alexí II, yfirmanni rússnesku kirkjunnar, sem segist vona, að páfadómur Benedikts XVI muni einkennast af góðum samskiptum kirknanna. Enginn afturhaldsmaður Rosalio Jose Castillo Lara, kardináli í Venesúela, sagði í gær í viðtali við ítalska blaðið La Stampa, að sú mynd, sem dregin hefði verið upp af Joseph Ratzinger sem harðlínumanni, væri „alröng“. „Þetta er bara einhver skrípamynd. Það er ekki rétt, að hann sé afturhaldssamur. Síður en svo,“ sagði Castillo Lara og bætti við, að líklega hefði staða Ratzingers sem yf- irmanns Stjórnardeildar trúarkenninga veitt honum lítið svigrúm til að tjá sig mjög frjáls- lega. Við messuna í gær voru aðeins kardinálar og aðrir háttsettir menn innan kirkjunnar en búist er við, að allt að 100.000 manns muni safnast saman á Péturstorginu á sunnudag þegar páfi verður opinberlega vígður til embættisins. Þá hefur verið upplýst, að fyrsta utanlandsferð páfa verður til föður- landsins, til Kölnar í Þýskalandi. Þar verður mikið æskulýðsmót í ágúst. Hét að vinna að einingu allra kristinna manna Páfi sagði einnig í sinni fyrstu messu, að hann vildi stuðla að gagn- kvæmum skilningi og viðræðum við fulltrúa annarra trúarbragða Reuters Benedikt XVI heilsar upp á mannfjöldann við bústað sinn í Páfagarði í gær. BENEDIKT XVI er fyrsti Þjóðverjinn á páfastóli í meira en 480 ár og það er því ekki rétt, sem fram kom í fréttaskeyti AP-fréttastofunnar og vitnað var til í frétt í Morgunblaðinu í gær, að síðasti Þjóðverj- inn hefði gegnt embættinu á 11. öld. Hadrian VI, sem var af þýskum ættum en fæddur í Hollandi, sem þá laut þýskri stjórn og var hluti af Hinu heil- aga rómverska ríki, var páfi í tæp tvö ár á árunum 1522–23. Að Joseph Ratzinger, Benedikt XVI, und- anteknum hafa alls átta þýskættaðir menn gegnt embættinu en aðeins einn þeirra, Leó IX, markaði einhver spor í söguna. Sá fyrsti var Gregoríus V, fæddur Bruno frá Kärnten, sem nú er í Austurríki. Hann var aðeins 24 ára þegar frændi hans, Ottó konungur III, kom honum í embætti árið 996. Launaði Gregoríus hon- um greiðann það sama ár með því að krýna hann keisara yfir Hinu heilaga rómverska ríki. Aðallinn í Róm undi þessu illa og þegar Gregor- íus þurfti að bregða sér af bæ árið eftir notaði hann tækifærið og útnefndi annan páfa, svokallaðan and- páfa. Gregoríus sneri þó aftur til Rómar 998 með hjálp Ottós en lést ári síðar úr malaríu. Skjólstæðingar þýskra konunga Eftir 1046 komu fjórir þýskir páfar í röð og til- drögin alltaf þau sömu og voru með Gregoríus. Heinrekur III, konungur Þýskalands, setti Suitger greifa, Klementíus II, á páfastól 1046 og var síðan sjálfur krýndur keisari. Klementíus lést árið eftir og þykir líklegt, að eitrað hafi verið fyrir honum. Hvílir hann í Bamberg í Bæjaralandi og er það eina páfagröfin norðan Alpafjalla. Heinrekur réð einnig skipan Damasusar II, Leós IX og Viktors II en á þessum tíma var sú skipan ekki komin á, að kardinálar réðu páfakjöri. Kom að klofningnum í Austur- og Vesturkirkjuna Damasus lést úr malaríu 1048 eftir aðeins 24 daga í embætti en Leó IX, sem var páfi frá 1049 til 1054 og hefur verið tekinn í dýrlingatölu, lét veru- lega að sér kveða. Það var hann, sem ákvað, að kardinálar skyldu velja páfa og honum tókst að auka mikið völd kirkjunnar. Átti hann í miklum deilum við patríarkann í Konstantínópel og sú ákvörðun hans 16. júlí 1054 að að setja hann út af sakramentinu varð til þess, að kirkjan klofnaði í Austur- og Vesturkirkjuna. Þær höfðu þó verið farnar að fjarlægjast löngu áður. Viktor II hélt áfram starfi fyrirrennara sinna og vann meðal annars að því nýmæli, að prestum skyldi bannað að kvænast. Það var þó ekki formlega viðtekið fyrr en 500 árum síðar, á ráðstefnunni í Trent, en til hennar var boðað til að ræða þá hættu, sem stafaði af siðbótarhreyfingu Marteins Lúters. Síðastur þýsku páfanna á 11. öld var benediktus- armunkurinn Frederick frá Lorraine en hann varð páfi, Stefán IX, 1057. Var hann sá fyrsti í langan tíma, sem kosinn var af kirkjunnar mönnum. Kænn maður en skildi þó ekki kall tímans Hadrian VI, síðasti þýskættaði maðurinn á páfa- stóli þar til nú, var fæddur í Utrecht í Hollandi, son- ur trésmiðs af þýskum ættum. Var hann kjörinn að sér fjarverandi en kardinálarnir mátu við hann mikla stjórnmálakænsku og dyggðugt líferni. Hadrian var aðeins páfi í 22 mánuði, 1522–23, og áttaði sig ekki á þeim þunga, sem fylgdi kröfu landa hans, Lúters, um siðbót innan kirkjunnar. Átti það sama við um stríðið milli hinna kristnu Vesturlanda og Ottómana-ríkisins tyrkneska en það steypti býs- antínska ríkinu. Margir Rómverjar fyrirlitu Hadrian, sem sumir kölluðu hollenskan, og að honum gengnum voru páfarnir ítalskir í næstum 500 ár eða þar til Pólverj- inn Karol Wojtyla var kjörinn sem Jóhannes Páll II árið 1978. Níundi Þjóðverjinn á páfastóli Leó IX þykir einna merkastur þýskra páfa fram til þessa. Hadrian VI var páfi á örlagaríkum tíma í sögu kirkjunnar. MARGIR kaþólikkar í fátækum löndum höfðu vonað að næsti páfi yrði úr löndum þeirra en ekki auðugu vestrænu landi. Einkum var mikið um slíkar vonir í Rómönsku Ameríku en þar og í Norður-Ameríku býr nú samanlagt rösklega helmingur allra kaþólskra manna í heim- inum. Vonbrigðin voru því sums staðar mikil þegar í ljós kom að þýski kardínálinn Joseph Ratz- inger hafði sigrað. Ekki bætti úr skák að sumir gagnrýna hann mjög fyrir kreddufestu og ótt- ast að hann skorti skilning á bágum kjörum í fátækum lönd- um og þeim vanda sem einkum brenni á fólki þar. Sterkasta vígi kaþólskra í As- íu er á Filippseyjum en þar er mikill meirihluti þjóðarinnar í kirkjunni. Var kjöri páfa vel fagnað þar en íhaldssöm sjón- armið hans eru hvorki gagn- rýnd að ráði þar eða í Afr- íkulöndum eins og Nígeríu. Eru þau miklu fremur talin vera rétt túlkun á heilagri ritningu. Einkum ber mikið á gagnrýni á páfa meðal frjálslyndra kaþ- ólikka í Bandaríkjunum, Mexíkó og Brasilíu. Telja þeir kominn tíma til að kirkjan horfist í augu við vandamál eins og þau að þorri kaþólikka í auðugum lönd- um og margir í fátækum lönd- um hunsa bannið við getn- aðarvörnum sem Páll páfi VI setti á áttunda áratugnum. Einnig er ljóst að skortur á prestum mun enn vaxa á næstu árum og áratugum en margir ungir menn vilja ekki sætta sig við bannið við að ganga í hjóna- band vilji þeir gerast prestar. Enn aðrir vilja auka hlut kvenna og leyfa þeim að taka prest- vígslu. „Hryggilegur dagur“ Viðbrögðin einkenndust af varkárni og jafnvel vonbrigðum í Chicago í Bandaríkjunum en þar er mikið af kaþólikkum, þeir eru um 40% íbúanna. „Þetta er hryggilegt fyrir kirkj- áli sem predikaði í Pereira í 22 ár, yrði fyrir valinu. Miðaldra húsmóðir í Tegucigalpa í Hond- uras, Gloria Vazquez, sagði einnig að kjósa hefði átt páfa úr hennar heimshluta. En hún tók samt þátt í messu til að fagna hinum nýja páfa. „Hvað eigum við gera? Við erum kaþólikkar,“ sagði hún. Til varnar Benedikt XVI Alejandro Goic, biskup og yf- irmaður biskuparáðsins í Chile, varði nýja páfann, Benedikt XVI, sagði hann hafa afar góða þekkingu á málefnum Róm- önsku Ameríku og vera spænskumælandi. Jaime Prieto, biskup í Kólumbíu, viðurkenndi að þar hefðu menn vonað að næsti páfi yrði úr þeirra heims- hluta. Hann sagði á hinn bóginn valið á Ratzinger gefa til kynna að í Páfagarði styddu menn til- raunir kólumbísku kirkjunnar til að koma á friði í áratuga- löngu stríði stjórnvalda og upp- reisnarmanna. Liðsmenn brasilísku kirkj- unnar hafa yfirleitt ekki fylgt vandlega allri leiðsögn kirkj- unnar í siðferðislegum vanda- málum. „Við verðum að endur- skoða ýmislegt í siðferðislegum efnum,“ sagði nunna í Sao Paulo að sögn blaðsins Financial Tim- es. „Við bönnum notkun smokka, sættum okkur ekki við samkynhneigða. Ratzinger kardínáli er á móti hjónaskiln- uðum. Þetta er ekki í samræmi við veruleikann í Brasilíu. End- urskoða þarf kenningar kirkj- unnar um siðferðisleg efni.“ Margir kaþólikkar í Róm- önsku Ameríku segja einnig að páfi verði að sinna málum eins og fátækt og vaxandi útbreiðslu mótmælendasafnaða í þeirra heimshluta. Hinn nýkjörni páfi hefur meðal annars beitt sér mjög gegn frelsunarguðfræði sem átti upptök sín í Rómönsku Ameríku og mörgum þótti bera keim af marxisma vegna áherslu á pólitískar aðgerðir. Forveri hins nýja páfa, Jóhann- es Páll II, var sama sinnis og Ratzinger í þessum efnum. Bernardo Barranco, mexíkósk- ur félagsfræðingur og sérfræð- ingur í trúmálum, var ævareið- ur og sagði valið á Ratzinger vera skelfilegt áfall. „Hann tók að sér að gera út af við frelsunarguðfræðina. Hann skildi ekki Rómönsku Am- eríku,“ sagði Barranco. Sækir fram í Afríku Kaþólska kirkjan hefur sótt mjög á víða í þróunarlöndum síðustu áratugina, ekki síst í löndum Afríku sunnan Sahara en einnig hefur íslam vaxið þar fylgi. Margir höfðu spáð því að Francis Arinze frá Nígeríu yrði fyrsti afríski páfinn í 1500 ár. „Raunverulegir kaþólikkar í þessum heimi eru nú í Afríku og Rómönsku Ameríku og það myndi hafa styrkt kirkjuna að fá páfa frá einhverju þessara svæða,“ sagði Okwudili Otti, kaupsýslumaður í Onisha í suð- austanverðri Nígeríu. Mary Ekpe, þrítugur banka- starfsmaður, sagðist aldrei hafa búist við því í raun og veru að Afríkumaður yrði fyrir valinu. „Ég veit að Evrópumenn og Bandaríkjamenn eru ekki enn reiðubúnir. En ég hélt að ein- hver frá Rómönsku Ameríku yrði kjörinn.“ Hún sagði á hinn bóginn jákvætt að páfinn væri þýskur, það sýndi að ekki yrði horfið á ný til þeirrar hefðar að páfi skuli vera ítalskur. una og framfarasinnað fólk,“ sagði Kathleen Long, Sins- inawa-dóminikananunna sem barist hefur fyrir auknum rétti kvenna. „[Ratzinger] hefur ver- ið mjög íhaldssamur og haft taumhald á allri framfarasinn- aðri hugsun … og nú er hann kominn með myndugleika páfa. Kúgun kvenna mun enn aukast. Þetta er mjög hryggilegur dag- ur. Við erum öll heldur beygð.“ Kaþólikkar sem hafa áhyggj- ur af flótta ungs fólks úr kirkj- unni og skorti á prestum segja að haldi fram sem horfi muni Rómarkirkjan þoka fyrir ýms- um kirkjum mótmælenda sem hafa sótt verulega á í mörgum löndum Rómönsku Ameríku, einkum Mexíkó og fleiri ríkjum Mið-Ameríku, síðustu árin á kostnað kaþólsku kirkjunnar. Sumir frammámenn kaþ- ólikka í Rómönsku Ameríku eru einnig ósáttir við að kirkjan skuli beita sér gegn því að ákveðnir siðir og venjur indíána séu löguð að hefðum kirkjunnar í stað þess að þeim sé úthýst með öllu sem heiðni. „Mér hefði þótt betra að fá einhvern öðruvísi, yngri, með nýjar hugmyndir og kannski með dekkra hörund eins og við,“ sagði Alfonso Mercado, ís- sali í Pereira í Kólumbíu. Marg- ir í borginni hans höfðu að sögn AP-fréttastofunnar vonað að Dario Castrillon Hoyos, kardín- Efasemdir um nýjan páfa víða í Ameríkuríkjum Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is AP Kenýamenn lesa dagblöð þar sem skýrt er frá kjöri Joseph Ratz- ingers í embætti páfa. Kaþólska kirkjan hefur sótt fram í mörgum Afríkulöndum síðustu árin en keppir þar oft við íslam.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.