Morgunblaðið - 21.04.2005, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 21.04.2005, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT GLÆSILEGUR sigur Mehmet Ali Talats í forsetakosningunum á Kýpur hefur vakið vonir um var- anlegan frið í landinu eftir blóðug átök og aðskilnað gríska og tyrk- neska hlutans um ártugaskeið. Ljóst er, að Kýpur-Tyrkir eru orðnir lang- þreyttir á ein- angrun og fá- tækt og því horfa þeir von- araugum til þess að sameina landshlutana og öðlast um leið aðild að Evrópusambandinu. Það mun þó ekki gerast í einni svipan. Rauf Denktash, fráfarandi for- seti og stofnandi ríkis Kýpur- Tyrkja, hefur alla tíð barist hart gegn því að sameina landið. Þrátt fyrir það samþykktu Kýpur- Tyrkir áætlun Sameinuðu þjóð- anna um sameiningu í þjóð- aratkvæðagreiðslu í apríl fyrir ári en Kýpur-Grikkir felldu hana hins vegar með miklum mun. Afleið- ingin var sú, að stjórn Kýpur- Grikkja, sem nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar, öfugt við stjórn Kýpur-Tyrkja, fékk ein aðild að ESB. Enn langt í land Kýpur-Grikkir nefndu ýmsar ástæður fyrir andstöðu sinni við áætlunina. Ein var sú, að sam- kvæmt henni áttu ekki allir Grikk- ir, sem reknir voru frá heimkynn- um sínum eftir innrás Tyrkjahers 1974, að fá að snúa aftur og önn- ur, að þúsundum Tyrkja frá meg- inlandinu, sem sest hafa að á eynni, yrði leyft að búa þar áfram. Þá voru Grikkir einnig mótfallnir því, að tyrkneska hernum yrði leyft að hafa herstöðvar á eynni enn um sinn. Við allt þetta bætist síðan gagnkvæm andúð og sá fjandskapur, sem lengi hefur verið með Grikkjum og Tyrkjum. „Kjör Talats er mikil og merkileg yf- irlýsing gagnvart alþjóðasamfélag- inu af hálfu Kýpur-Tyrkja,“ sagði Murat Tuzunkan, sérfræðingur í málefnum Kýpur við Alþjóðahá- skólann, sem er í tyrkneskum hluta Nikósíu, höfuðborgar lands- ins. Hann telur þó ekki, að til- koma Talats muni opna strax allar dyr fyrir sameiningu landsins. „Alþjóðasamfélagið varpar önd- inni léttara, nú þegar Denktash er að fara og Talat að taka við, og heldur kannski, að eftirleikurinn verði auðveldur. Svo er þó ekki.“ Tuzunkan segir, að brotthvarf Denktash sé ekki nóg vegna þess, að fyrir utan þjóðarbrotin á Kýpur komi aðrir að málinu, það er að geti lifað saman í sátt og sam- lyndi. Viðbrögð við kjöri Talats hafa hvarvetna verið mjög jákvæð. Papadopoulos, forseti Kýpur- Grikkja, hefur fagnað því og í yf- irlýsingu grísku stjórnarinnar er talað um upphaf nýs tíma og nýrra viðræðna um sameiningu. Undir það tók tyrkneska stjórnin með enn afdráttarlausari hætti og Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, og talsmaður ESB kváðust vona, að nú væri bjartara en áður yfir framtíð eyjarskeggja. Kjör Mehmet Ali Talats sem forseta Kýpur-Tyrkja mun vafalaust greiða fyrir nýjum viðræðum um sameiningu gríska og tyrkneska hlutans segir Sveinn Sigurðsson en samt er ólíklegt, að þær muni ganga þrautalaust fyrir sig. Bjartara framundan en ýmis ljón í veginum ’Alþjóðasamfélagiðvarpar öndinni léttara og heldur kannski, að eftirleikurinn verði auð- veldur. Svo er þó ekki.‘ Mehmet Ali Talat AP Stuðningsmenn Talats fagna. Hann er eindreginn stuðningsmaður sameiningar við gríska eyjarhlutann sem þegar hefur fengið inngöngu í Evrópusam- bandið. Talat fékk um 56% atkvæða en sá, sem næstur honum kom, var aðeins með 23%. Mikill munur er á lífskjörum í gríska og tyrkneska hlutanum, þau eru mun betri í hinum fyrrnefnda. segja stjórnvöld í Grikklandi og Tyrklandi og einnig í Bretlandi en Kýpur var lengi undir stjórn Breta. Hann segir þó, að Talat hafi stigið mikilvægt skref er hann strax eftir kjörið skoraði á Tassos Papadopoulos, forseta Kýpur- Tyrkja, og ESB að vinna með sér að friði og sameiningu eyjarinnar. Gjörbreytt afstaða Tyrklandsstjórnar Talat hefur barist fyrir samein- ingu Kýpur í tvö ár og hefur að undanförnu haft til þess stuðning stjórnvalda í Tyrklandi. Er ástæð- an fyrir því að sjálfsögðu sú stefna þeirra að fá aðild að Evrópusam- bandinu en formlegar viðræður um það eiga að hefjast 3. október í haust. Nánir samstarfsmenn Talats vara við bjartsýni en telja, að ESB eigi að standa við loforð sitt um að „umbuna þeim, sem sýndu friðarvilja“. Það hefðu Kýpur- Tyrkir gert með samþykki sínu í þjóðaratkvæðagreiðslunni í fyrra. Ozdil Nami, helsti ráðgjafi Talats, segir, að ESB megi ekki láta 600.000 manna samfélag taka sig í gíslingu og á þá við Kýpur-Grikki. Þeir hafa lengi verið andvígir al- þjóðlegu frumkvæði í þessum mál- um af ótta við, að það megi túlka sem óbeina viðurkenningu á rík- isstjórn Kýpur-Tyrkja. Mikill sameiningarsinni Mehmet Ali Talat er fæddur ár- ið 1952, kominn af bændafólki í Kyrenia, sem nú er í tyrkneska hlutanum en var þá að mestu byggð Grikkjum. Eftir innrás tyrkneska hersins 1974 fór hann fyrst til náms í Nikósíu en síðan til Tyrklands. 1977 útskrifaðist hann sem raf- magnsverkfræðingur frá Tæknihá- skólanum í Ankara en er hann sneri aftur til Kýpur gekk hann til liðs við Tyrkneska lýðveldisflokk- inn, sem er sagður vera vinstra megin við miðjuna. Var hann kjör- inn formaður hans 1966. Talat, sem hafði lengi ofan af fyrir sér með því að gera við ís- skápa og loftkælingarbúnað, er maður mjög brosmildur og hefur gaman af því að tala við blaða- menn. Var hann í tvígang menningar- og menntamálaráðherra og einu sinni aðstoðarforsætisráðherra í samsteypustjórnum fram til 2003 en þá var hann kjörinn forsætis- ráðherra og gegnir því embætti nú eða þar til hann tekur formlega við forsetaembættinu. Í þingkosninum í febrúar í fyrra varð flokkur Talats sá stærsti á þingi, fékk 19 af 50 þingmönnum, og þá var það hans helsta kosn- ingamál að sameina Kýpur í anda þeirrar áætlunar, sem Sameinuðu þjóðirnar voru að vinna að. Denktash forseti, sem hefur ráðið næstum öllu í tyrkneska hlutanum í 40 ár og vill, að hann verði sameinaður Tyrklandi, sakar Talat um svik en hann ber af sér slíkar sakir og segist aðeins vilja, að Kýpverjar, Grikkir og Tyrkir Minsk. AFP. | Alexander Lúka- sjenkó, forseti Hvíta- Rússlands, sagði á þriðjudag að það yrði engin „„bylting“ í Hvíta-Rússlandi, „runnin und- an rifjum Vesturlanda“, líkt og í sumum öðrum fyrrver- andi sovétlýðveldum. Kvaðst hann staðráðinn í að vera við völd allt til 2010. Lúkasjenkó hefur sætt mik- illi gagnrýni á Vesturlöndum fyrir einræðistilburði og þrýstingur á hann hefur vaxið eftir „rósabyltinguna“ svo- nefndu í Georgíu og „appels- ínugulu“ byltinguna í Úkraínu fyrir jól. Hann flutti ávarp til þjóðar sinnar á þriðjudag. „Allar þessar litabyltingar hafa í raun verið hrein og tær stigamennska,“ sagði hann. Sstjórn Hvíta-Rússlands yrði ekki steypt með peningum. Fordæmdi Lúkasjenkó Evr- ópusambandið og Bandaríkin fyrir að „vilja kenna Hvíta- Rússlandi lýðræði“ og sagði lýðræðisvandann þar meiri en Hvíta-Rússlandi. Engin „lita- bylting“ í Hvíta- Rússlandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.