Morgunblaðið - 21.04.2005, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 21.04.2005, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 17 ERLENT edda.is Gleðilegt sumar á Gljúfrasteini Í tilefni viku bókarinnar og sumarkomunnar verður dagskrá á Gljúfrasteini í dag helguð Halldóri Laxness. Pálmi Gestsson leikari les valin brot úr skáldsögum og kvæðum Halldórs Laxness. Dagskráin hefst klukkan 15:00 Tvær sígildar skáldsögur Halldórs Laxness, Brekkukotsannáll og Sjálfstætt fólk koma út í kilju í glænýjum búningi. Gljúfrasteinn - hús skáldsins er opið frá kl. 10 - 17. Skemmtileg og fræðandi hljóðleiðsögn um húsið, margmiðlunarsýning um ævi skáldsins og fallegt umhverfi. Madríd. AFP. | Fulltrúar allra helstu trúarhreyfinga á Spáni, að íslam slepptu, sendu í gær frá sér yf- irlýsingu þar sem andmælt er áformum um að heimila samkyn- hneigðum að ganga í hjónaband þar í landi. Umræða um hjónabönd samkyn- hneigðra hefst á Spánarþingi í dag. Minnihlutastjórn sósíalista vill að samkynhneigðum verði leyft að ganga í hjónaband og ættleiða börn. Áformað er að lögin öðlist gildi síðar á þessu ári hljóti þau blessun þingheims. Gerist það verður Spánn í hópi allra frjáls- lyndustu ríkja í þessum efnum. Í yfirlýsingu trúarhreyfinganna segir að nauðsynlegt sé að hug- leiða vel svo róttæka breytingu sem stjórnvöld leggi til á eðli og inntaki hjónabandsins. Tryggja beri víðtæka sátt um slíkt og tæm- andi umræðu. Frumvarpi stjórn- arinnar er síðan hafnað með þeim rökum að hjónaband gagnkyn- hneigðra sé einn af grunnþáttum helstu trúarbragða heims og „grundvallarstofnun“ í samfélag- inu. Yfirlýsingu þessa undirrituðu fulltrúar biskuparáðs Spánar (þ.e. rómversk-kaþólsku kirkjunnar), samtaka gyðinga, sambands trúar- hópa mótmælenda og háttsettur fulltrúi rétttrúnaðarkirkjunnar. Kaþólska kirkjan á Spáni hefur einkum andmælt áformum stjórn- valda og gert það af umtalsverðum þunga m.a. með ályktunum um eðli og inntak samkynhneigðar. Belgar og Hollendingar heimila nú einir Evrópuþjóða samkyn- hneigðum að ganga í hjónaband. Trúarhópar hafna giftingum samkynhneigðra Reuters Presturinn James Pickett í San Francisco í Kaliforníu fær aðstoð Nick Andrade (t.h.), samkynhneigðs karlmanns, við messu. Málefni samkyn- hneigðra eru afar viðkvæm í Rómarkirkjunni. SÆNSKA ríkisstjórnin hefur ákveð- ið að lækka ekki áfengisskatta að sinni. Þetta gerir að verkum að Norðmenn hafa afráðið að hreyfa ekki við þeim nú á vormánuðum að sögn norsku fréttastofunnar ANB. Norska ríkisstjórnin mun leggja fram endurskoðað fjárlagafrumvarp hinn 13. næsta mánaðar. Talið var að norskir ráða- menn myndu jafnvel sjá sig neydda til að lækka áfengis- gjaldið til að bregðast við sam- bærilegri ákvörð- un Svía. Nú liggur fyrir að sænska ríkis- stjórnin hefur ákveðið að fresta ákvörðun í máli þessu til haustsins. Dagfinn Høybrå- ten, atvinnu- og félagsmálaráðherra Noregs, fagnaði tíðindunum frá Sví- þjóð í gær og kvað þau þýða að norskum stjórnvöldum gæfist nú tækifæri til að fara betur yfir málið. Lýsti hann niðurstöðunni í Svíþjóð sem „áfangasigri“ þar sem teikn væru á lofti um að Svíar hefðu ekki fallið frá lækkun áfengisskatta. Kjell Magne Bondevik, forsætis- ráðherra Noregs, hefur leitað til starfsbræðra sinna á Norðurlöndum um að stjórnvöld þar sameinist um varnarstöðu gagnvart kröfu sem einkum berst frá Evrópusamband- inu (ESB) um að áfengisgjöld verði lækkuð. Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, sem er eitt aðildarríkja ESB ásamt Finnlandi og Danmörku, hefur lýst yfir skilningi á þessari af- stöðu Bondevik en jafnframt sagst óttast að Svíar neyðist til að láta af þeirri stefnu sinni að leggja þunga skatta á áfengi á þeirri forsendu að þannig megi draga úr neyslu þess. Ríkið verður af tekjum vegna kaupa í öðrum ESB-ríkjum Sænski jafnaðarmaðurinn Kent Härstedt vann að beiðni stjórnvalda skýrslu um hvernig bregðast bæri við þrýstingi frá ESB um lækkun áfengisgjalda. Hann lagði m.a. til að látið yrði undan og þau lækkuð um- talsvert. Hátt áfengisverð í Svíþjóð gerir að verkum að menn geta nú flutt með sér umtalsvert magn frá öðrum ESB-ríkjum sem þar fæst við mun lægra verði. Það hefur m.a. í för með sér að ríkissjóður verður af um- talsverðum tekjum. Hvað Noreg varðar hefur lægra verð í Svíþjóð skapað þrýsting auk þess sem smygl er talið hafa aukist mjög. Kent Härstedt sagði í samtali við norsku ANB-fréttastofuna í gær að málinu hefði verið frestað til hausts- ins. Aðspurður kvaðst hann enn þeirrar hyggju að lækka bæri áfeng- isskatta í Svíþjóð verulega. „Og sú er einnig afstaða ríkisstjórnarinnar,“ bætti hann við. Áfengis- gjaldið óbreytt í Svíþjóð Göran Persson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.