Morgunblaðið - 21.04.2005, Page 20
Sandgerði | Fjöldi foreldra og
annarra gesta fylgdist með
skemmtun barnanna á árshá-
tíð yngri deilda Grunnskóla
Sandgerðis í gær. Íþrótta-
húsið var skreytt með eftirlík-
ingum af byggingum staðarins
og síðan gekk hver árgangur í
salinn og söng sitt lag úr
Kardimommubænum sem
raunar var búið að staðfæra
og nú nefnt Kardimommu-
gerði. Eldri nemendur skólans
voru með sína skemmtun í
gærkvöldi.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Sungið í Kardimommugerði
Skemmtun
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Vatnsveita í Grábrókarhrauni | Orku-
veita Reykjavíkur vinnur að gerð nýrrar
vatnsveitu fyrir Borgarnes og Bifröst. Veit-
an mun einnig nýtast íbúum og sum-
arhúsaeigendum við lögnina. Vatnið er tek-
ið úr holum sem boraðar hafa verið í
Grábrókarhrauni, skammt frá Hreðavatni.
Eftir að Hitaveita Borgarness samein-
aðist Orkuveitu Reykjavíkur var farið að
athuga möguleika á að tryggja ferskvatns-
öflun fyrir Borgarnes þar sem sýnt þótti að
núverandi vatnsból á Seleyri myndi ekki
anna því til lengdar. Eftir könnun á nokkr-
um svæðum í nágrenni Borgarness beindist
athyglin að Grábrókarhrauni en þar eru
þekktar vatnsuppsprettur í hraunjaðrinum
niðri við Norðurá.
Fram kemur á vef Orkuveitu Reykjavík-
ur að boraðar hafa verið tvær vinnsluholur,
þrjátíu metra djúpar, og sú þriðja verður
boruð í vor. Munu þær anna þörfum mark-
aðarins til næstu ára. Byrjað er á lögninni
sjálfri og verið að semja við verktaka um
byggingu vatnstanks á Stóru-Skógum og
annarra mannvirkja. Verklok eru áætluð á
fyrri hluta næsta ár. Kostnaður við vatns-
veituna er áætlaður um 300 milljónir kr.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Íslenskukennsla | Þing um íslensku-
kennslu fyrir innflytjendur verður haldið á
morgun, föstudag, kl. 10–16.30 í Hömrum á
Ísafirði. Yfirskrift þingsins er „Öll erum við
íslenskukennarar – þing um markvissa ís-
lenskukennslu í dreifbýli.“
Þingið er öllum opið og er þátttakendum
að kostnaðarlausu. Því er ætlað að móta
stefnu sem gefur öllum innflytjendum, óháð
búsetu, löngum vinnudegi, menntun, fjár-
hag, bakgrunni o.s.frv. möguleika á að læra
íslensku. Einnig að skoða málefnið í víðu
samhengi og finna raunhæfar leiðir til að ná
því takmarki að kunnátta í íslensku takmarki
ekki virkni innflytjenda í samfélaginu.
Til þingsins boða Fjölmenningarsetrið og
Fræðslumiðstöð Vestfjarða.
Þjónustuhús byggt | Bæjarstjórn
Blönduóss hefur ákveðið að ganga að sam-
eiginlegu tilboði fyrirtækjanna Kráks ehf.
og Stíganda ehf. um byggingu þjónustu-
húss í Brautarhvammi. Nýja þjónustuhúsið
er ætlað gestum tjaldsvæðisins og mun þar
auk salerna verða sturtuaðstaða og aðstaða
til að þvo þvott og þurrka. Endanleg samn-
ingsupphæð hljóðar upp á tæpar 12 millj-
ónir króna og fyrirhugað er að húsið verið
risið fyrir 15. júní nk.
Íþrótta- og frí-stundanefnd Fljóts-dalshéraðs hvetur
einstaklinga og fyrirtæki
til þess að gefa hreyfing-
arleysinu langt nef og
taka þátt í átakinu „Hjólað
í vinnuna“. Átakið stendur
yfir dagana 2. til 13. maí
nk. og er hluti af verkefni
Íþróttasambands Íslands,
„Ísland á iði“. Meginmark-
mið framtaksins er að
vekja athygli á hjólreiðum
sem heilsusamlegum, hag-
kvæmum og umhverf-
isvænum samgöngumáta.
Offita og hreyfingarleysi
er vaxandi vandamál og
hreyfing er mikilvæg fyrir
líkamlegt og andlegt heil-
brigði. Allar nánari upp-
lýsingar um „Hjólað í
vinnuna“ eru á vef átaks-
ins, www.hjolad.isi-
sport.is, og þar geta ein-
staklingar og fyrirtæki
skráð sig til þátttöku. Frá
þessu segir á vef Fljóts-
dalshéraðs.
Hjólað
Straumendurnar semvor hvert velja sérleið upp Blöndu á
móti straumi og hækkandi
sól skilja hlutverk sitt í líf-
inu. Það er ekki sama hve-
nær berjast skal móti
straumi og hvenær ekki.
Hlutabréf lífsins hækka í
samræmi við sólarhæð og
þetta skilja straumend-
urnar. Verð hlutabréfa í
hinu óverndaða lífi dýr-
anna tekur aðeins mið af
gangi himintungla, fæðu-
framboði og hvernig við-
koma stofnsins verður
best tryggð.
Þessar sömu endur
skilja líka hvenær láta
skal undan straumnum og
halda út á hinn raunveru-
lega ólgusjó. Baráttan um
að viðhalda stofninum og
skilningur á aðstæðum
lífsins gera það að verkum
að þessi fugl gerir það
sama ár eftir ár, hokinn af
reynslu aldanna og kemst
af.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Á móti straumnum
Ámeðan beðið vareftir vali á nýjumpáfa orti Kristján
frá Gilhaga:
Meðan ennþá rýkur svart í Róm
rísa af vetrardvala sumarblóm.
Grænir ungar gala í Reykjavík,
gefa nýjan tón í pólitík.
Stefán Vilhjálmsson orti
„fimmskeytlu“ þegar kjör-
ið var kynnt, þar sem síð-
asta hending er jafnan
einn stafur:
Á kardinálum var hvergi hik
og hægt um vik.
En mér finnst kenningin bann-
sett bik
hjá Benedik-
t.
Séra Hjálmari Jónssyni
varð hugsað til páfagarðs:
Andans fursti einn og hver
atkvæðaseðla taldi.
Rómarkirkjan Ratzinger
rétt í þessu valdi.
Hallmundur Kristinsson:
Ekki veit ég hvort heimsfriðinn
hefur
heilagur Benedikt eflt.
Hitt er þó víst að það gleði mér
gefur
að geta nú aftur teflt.
Nýr páfi
pebl@mbl.is
Hornafjörður | Samningur um samstarf
á milli Menningarmiðstöðvar Horna-
fjarðar og Framhaldsskólans í Austur-
Skaftafellssýslu (FAS), hefur verið und-
irritaður. Skólinn og sveitarfélagið ætla
á næstu tveimur árum að efla menning-
arstarf og afþreyingu ungs fólks á aldr-
inum 16 til 25 ára í skólanum og sveitar-
félaginu öllu.
Leitað verður eftir samstarfi við alla
sem koma að æskulýðs-, tómstunda- og
menningarmálum í héraðinu. Menning-
armiðstöð Hornafjarðar mun sinna
þessu verkefni í samráði við ungt fólk á
svæðinu og nemendur í FAS, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu. Lögð
verður áhersla á að styðja við frum-
kvæði og drifkraft unga fólksins með því
að aðstoða það við skipulagningu og
fjármögnun einstakra viðburða og verk-
efna.
Efla menn-
ingarstarf
ungs fólks
Eyrarbakki | Einkahlutafélagið Búðar-
stígur 4 var stofnað í janúarmánuði síð-
astliðnum, gagngert til að stuðla að end-
urbyggingu hússins Miklagarðs á
Eyrarbakka. Upphaflega var húsið
byggt sem verslunarhús en síðar fór þar
fram ýmiss konar iðnaðarstarfsemi og
fleira.
Plastiðjan hf. var þar til húsa um ára-
bil og framleiddi meðal annars einangr-
unarplast og einnig einangrun hitaveitu-
röra. Var þar um að ræða
frumkvöðlastarf hér á landi. Síðast var
húsið notað fyrir aðfangalager Alpan.
Húsið til sýnis
Í nokkur ár hefur það staðið autt og
ofurselt hrörnuninni. Var það orðið líti á
þorpsmyndinni. Nú fer fram alger end-
urnýjun hússins og er endurbyggingin
vel á veg komin.
Á sumardaginn fyrsta verður opið
hús, til að sýna framkvæmdirnar, en
áætlað er að húsið verði tekið í notkun
um miðjan maí. Rauða húsið verður þar
með sína starfsemi.
Mikligarður
endur-
byggður
♦♦♦