Morgunblaðið - 21.04.2005, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 21.04.2005, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 31 ÞAÐ ERU gömul sannindi og ný að góðar samgöngur eru lykill þjóðar að velgengni. Allar götur til þess tíma að lýðveldi var stofnað á Íslandi höfðu siglingar verið mik- ilvægasta flutningaleiðin sem not- uð var á Íslandi. Í rúm sextíu ár hefur staðið yfir þrotlaust starf við að byggja upp vegakerfið sem meginflutningaleið og því verki er fjarri því lokið. Má segja að hér hafi verið farin sama leið og víða annars staðar í Evrópu við að tengja saman byggðir, flugvelli og hafnarsvæði með öflugu vegakerfi. Járnbrautir eru raun- ar einnig mikilvægur þáttur í samgöngu- kerfi flestra landa ut- an Íslands og í flest- um löndum reknar með miklum halla sem greiddur er af skatttekjum. Hvergi hef ég heyrt að uppbygging vegakerfis þjóða sé háð fjölda íbúa eftir landsvæðum. Það hefði trúlega orðið lít- ið úr vega- og ganga- gerð í Ölpunum ef byggt hefði verið á þeirri við- miðun. Í flestum löndum eru skatt- tekjur nýttar til þess að byggja upp vegakerfið og fjármagni er dreift miðað við stefnu stjórnvalda um uppbyggingu samgöngu- kerfisins í þágu atvinnulífs og auð- lindanýtingar og í þágu íbúa en ekki í samræmi íbúafjölda hvers svæðis. Í umræðum um Samgönguáætl- un hefur komið fram krafa þing- manns og borgarfulltrúa að fjöldi íbúa hvers landsvæðis ráði því hvar skatttekjur ríkisins verði nýttar til að leggja vegi, byggja brýr og grafa jarðgöng. Frá sjón- arhóli samgönguráðherra, sem ber ábyrgð á uppbyggingu samgöngu- kerfisins og flutninga um landið og ber jafnframt ábyrgð á umferð- aröryggismálum, er þetta illskilj- anleg krafa. Þörfin fyrir góða vegi er marg- breytileg og rökin fyrir uppbygg- ingu vegakerfisins einföld og fljótt upp talin. Í fyrsta lagi tengd auð- lindanýtingu sem er í þágu allrar þjóðarinnar. Auðlindirnar eru einkum nýting fiskimiða, nýting orkulinda og ferðaþjónusta sem selur náttúru Íslands sem aðdrátt- arafl. Í öðru lagi vegna tengingar byggða í landinu og í þriðja lagi til þess að auka öryggi á vega- kerfinu, m.a. vegna bæði innlendra og er- lendra ferðamanna sem fer stöðugt fjölg- andi og leggja leið sína að helstu nátt- úruperlum landsins. Til þess að horfa megi til heildarhags- muna er óhjá- kvæmilegt að líta á verkefnið frá því sjón- arhorni að fjármunir nýtist þar sem þörfin er mest og ávinningur mestur. Í því sambandi er rétt að nefna að það er mat sérfræðinga að fáar höfuðborgir búi við betri samgöngur en Reykjavík. Engu að síður er það að eðlileg krafa að Sundabraut verði lögð sem ein þriggja megintenginga við höf- uðborgarsvæðið. Krafa um aukna fjármuni til höfuðborgarinnar um- fram aðra landshluta kallar á skýr- ingar. Þingmenn og borg- arfulltrúar hafa af mikilli ósanngirni haldið því fram að sam- gönguráðherrar Sjálfstæðisflokks- ins hafi unnið gegn hagsmunum höfuðborgarinnar með takmörk- uðum fjárveitingum. Til þess að gefa lesendum mynd af hver þróun fjárveitinga til höfuðborgarsvæð- isins hefur verið er rétt að líta á meðfylgjandi súlurit. Minnt er á að vinstri stjórn Steingríms Her- mannssonar ákvað fjárveitingar 1991 í tíð Steingríms J. Sigfússon- ar þá samgönguráðherra: Til þess að gefa lesendum mynd af þessu stóra viðfangsefni sem er uppbygging vegakerfisins er hér birt tafla (sjá töflu) sem sýnir lengd vega eftir landsbyggð- arkjördæmum og hlutfall vega með bundnu slitlagi. Í Reykjavíkurkjördæmunum eru stofn- og tengivegir 83 km. Á því vegakerfi er þörfin einkum að auka afkastagetu með fjölgun ak- greina og mislægra gatnamóta. Af framansögðu má sjá að í ráð- herratíð minni hafa fjárveitingar til höfuðborgarsvæðisins vaxið verulega. Í annan stað blasir það við að stærstu verkefnin eru úti á landi þó mikilvæg verkefni séu einnig á höfuðborgarsvæðinu. Bætt vegakerfi eykur hagkvæmni allra atvinnugreina sem nýta það og um leið batna búsetuskilyrði um landið allt. Endurbætur á vegakerfinu auka umferðaröryggi. Þegar á heildina er litið liggja þjóðarhags- munir í því að byggja upp vega- kerfið um land allt en ekki bara á höfuðborgarsvæðinu og um það þarf að ríkja sátt. Ég vil sem sam- gönguráðherra leggja mitt af mörkum við að byggja upp sam- göngukerfi í þágu allrar þjóð- arinnar. Það er vissulega krefjandi en um leið áhugavert og gefandi verkefni. Nokkrar staðreyndir um fjárframlög til vegamála á höfuðborgarsvæðinu Eftir Sturlu Böðvarsson ’Þegar á heildina er lit-ið liggja þjóðarhags- munir í því að byggja upp vegakerfið um land allt en ekki bara á höf- uðborgarsvæðinu og um það þarf að ríkja sátt.‘ Sturla Böðvarsson Höfundur er samgönguráðherra. ' '%"3 <7 (!'%"# <7 '!'%"# !  :"3   + %  .% %  .% '!)                  + %  .% %  .% '!)                 + %  .% %  .% '!)                + %  .% %  .% '!)              !  + %  .% %  .% '!)                brýnt að g eflingu s í HÍ broddur þess að knarhá- likvarða framlag. amótum. kki geta yggingu á okkur nu fjár- ,“ segir verðandi onir um ta bága a.m. að ækka en ríkisins ambæri- ndunum. a sókn í sjálfsaflafé. Við höfum staðið okkur ágætlega í að afla fjár bæði í gegn- um innlenda og erlenda samkeppn- issjóði. Við þurfum að gera enn bet- ur þar,“ segir Kristín og bætir því við að HÍ verði jafnframt að auka samstarf við atvinnulífið. Síðast en ekki síst segir hún að skoða verði innri rekstur háskólans gaumgæfi- lega og athuga hvort hægt sé að auka hagræðingu. Aðspurð kveðst hún vera mótfallin þeirri hugmynd að tekin verði upp skólagjöld í HÍ. Breytt háskólaumhverfi HÍ hefur náð ágætum árangri á mörgum sviðum að mati Ríkisend- urskoðunar, t.d. þegar horft er til fjölda útskrifaðra nemenda í grunn- og meistaranámi. Þá sýni al- þjóðlegur samanburður að aka- demískir starfsmenn skólans, og þá einkum í raun- og heilbrigðisvísind- um, séu iðnir við að birta greinar í ritrýndum, erlendum tímaritum. Einnig hefur doktorsnemum fjölg- að verulega eða úr 36 árið 2000 í 107 árið 2004. Ljóst er að háskólaumhverfið á Íslandi hefur breyst og er HÍ far- inn að keppa við aðra innlenda há- skóla um fjármagn, nemendur og kennara, segir í skýrslunni. Þá segir að ört stækkandi nemenda- hópur valdi vissum áhyggjum enda þrengi hann verulega að fjár- hagsstöðu skólans á sama tíma og metnaðarfullar hugmyndir um framhaldsnám og rannsóknir kalli á aukið fé og fleira starfsfólk. Nauðsynlegt virðist að huga að því hvernig skólinn eigi að bregðast við þessum nýju aðstæðum að mati Ríkisendurskoðunar. Stofnunin telur mikilvægt, þegar hugað sé að gæðamálum HÍ, hag- kvæmni og skilvirkni rekstrarins og möguleikum skólans til að ná heildarmarkmiðum sínum, að hug- að sé vel að stjórnunarháttum. Stjórnsýsla skólans hafi breyst mikið á síðustu árum, vaxið, eflst og tekist á við ný verkefni. Á sama tíma hafi umfang rekstrar orðið meira og viðfangsefni flóknari. Ríkisendurskoðun leggur til að menntamálaráðuneytið móti í sam- vinnu við HÍ skýra stefnu um fram- tíðarþróun Háskólans, áhersluat- riði í starfi hans, rekstrarform, ráðningu rektors, skipan háskóla- ráðs, opinbera fjármögnun, vægi samkeppnissjóða, bein framlög til rannsókna, skólagjöld, ábyrgð í launamálum, verkaskiptingu há- skóla, fámennar námsbrautir og gæðaeftirlit. á Háskóla Íslands kynnt í gær egðast við hagsstöðu Morgunblaðið/Brynjar Gauti Páll Skúlason Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir egist hann na, bæði í og Íbúða- vegar ekki kkurn hátt a um mál- hafa verið isjóði Bol- aman. Það æfan til að isjóða eða nu. éu hugsan- kjum gerir fari til að g atvinnu- ar. Á 100 króna hlutabréf í Landsbankanum Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks Vinstri grænna, átti frumkvæði að umræðunum á Al- þingi í gær, með fyrirspurn sinni til forsætisráðherra. Hann segir það vera sjálfsagt mál að upplýsingar um eignir og hagsmunatengsl þingmanna liggi fyrir. Vinstri grænir hafi til þessa haft allt sitt bókhald opið og hverjum sem er sé frjálst að afla þessara upplýsinga frá þingflokknum, komi fram ósk um það. Fagnar hann því ef fram- sóknarmenn ætli að gera slíkt hið sama. Spurður um sína hlutabréfaeign segist Ögmundur aðeins eiga hlutabréf í Landsbankanum að nafnvirði 100 krónur, sem var gjöf frá Pétri H. Blöndal þingmanni á sínum tíma. Ef Ögmundur seldi þennan hlut í dag væri söluand- virðið 1.500 krónur. „Stóra málið er að opna á fjár- reiður flokkanna. Þar er talað um að setja málið í nefnd. Hvers vegna hafa menn ekki frekar frumkvæði að því að opna sitt bókhald? Við höfum gert það hjá VG, þar sem greint er frá öllum greiðslum yfir 300 þúsund krónur,“ segir Ög- mundur. Magnús Þór Hafsteinsson, for- maður þingflokks frjálslyndra, segir þessi mál ekki hafa verið rædd í þingflokknum. Hann eigi þó ekki von á að öðru en að þingflokk- urinn vilji opna sitt bókhald. „Við höfum alltaf verið fylgjandi því að flokkarnir opni sitt bókhald og ég veit ekki til þess að nokkur hafi neitt að fela hjá okkur,“ segir Magnús Þór. Tekur hann undir þau orð Péturs H. Blöndal á Al- þingi í gær að upplýsingar um skuldir þingmanna liggi fyrir alveg eins og um eignir þeirra. Skuldir eins og eignir geti sagt sitt um hverjum þingmenn séu háðir. Sjálfur segist Magnús Þór ekki eiga hlutabréf í neinum fyrirtækj- um. Eðlilegra að setja reglur sem gilda yfir alla Margrét Frímannsdóttir, for- maður þingflokks Samfylkingar- innar, bendir á að flokkurinn sé með þingsályktunartillögu í gangi um siðareglur og skyldur þing- manna til að upplýsa um eigna- tengsl, gjafir o.s.frv., til samræmis við reglur á danska þinginu. Til- lagan hafi til þessa ekki hlotið hljómgrunn en Margrét segir þing- flokkinn hafa það til skoðunar að setja sér sérstakar reglur, líkt og framsóknarmenn áformi að gera. Eðlilegra sé þó að setja reglur sem gildi fyrir alla flokka og þingflokka þeirra. Afstaða framsóknarmanna nú sé fagnaðarefni, enda sé um baráttumál Samfylkingarinnar að ræða. Hún segist ekki vera því fylgjandi að reglur um upplýsinga- skyldu um eignir þingmanna eigi einnig að gilda um maka þeirra. Spurð um eigin hlutafjáreign segist Margrét hvergi eiga slík bréf. du Margrét Frímannsdóttir Ögmundur Jónasson Einar K. Guðfinnsson Magnús Þór Hafsteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.