Morgunblaðið - 21.04.2005, Síða 39

Morgunblaðið - 21.04.2005, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 39 UMRÆÐAN ÍÞRÓTTA- og Ólympíusamband Íslands stóð fyrir nokkrum dögum fyrir merkri ráðstefnu, í samstarfi við menntamálaráðu- neytið og Lýð- heilsustöð, um gildi og jákvæð áhrif hreyf- ingar á geðheilsu. Á þriðja hundrað þátt- takendur mættu til leiks. Á ráðstefnunni fluttu þekktir fyrirles- arar, bæði innlendir sem erlendir, erindi um rannsóknir sínar á áhrifum hreyfingar á geðheilsu. Niðurstöður slíkra rannsókna eru skýrar. Þær staðfesta almennt að regluleg hreyfing, ganga, skokk eða annað hreyfimynstur stuðlar að betra jafn- vægi hugans. Svo ekki sé minnst á líkamlega vellíðan og heilbrigði. Á ráðstefnunni var lögð áhersla á að líta þyrfti á líkama og sál sem eina heild. Líkamleg hreyfing hefur for- varnargildi og sparar samfélaginu gríðarlegar upphæðir. Þetta eru mikilvæg skilaboð til heilbrigðisyf- irvalda. Almenn meðhöndlun slíkra kvilla samfélagsins hafa í alltof mikl- um mæli gengið út á að gefa pillur og ávísa á hefðbundin úrræði. Það er gott að hafa sterkt heilbrigðiskerfi og búa við slíka velferð sem við bú- um við. Gríðarlegir fjármunir eru settir í heilbrigðiskerfi okkar. Vel á annað hundrað milljarða króna. Íþróttahreyfingin á Íslandi eru stærstu félags- og forvarnarsamtök þjóðarinnar. Framlag til íþróttamála er brotabrot af slíkri upphæð. Ég er viss um að spara má verulegar upphæðir í mörgum tilfellum með því að leggja aðrar áherslur og úrræði. Til dæmis með ráðgjöf um hreyfingu og bættan lífstíl og með samvinnu við íþróttahreyfinguna sem hefur áttað sig á gildi hreyfingar og leggur í síauknum mæli áherslu á gildi hreyf- ingar og íþróttaþátt- töku fyrir alla aldurs- hópa. Of miklu fé er varið í að gera við og laga það sem aflaga hefur farið í stað þess að fyrirbyggja sjúkdóma með heilbrigðum lífstíl. Íþróttahreyf- ingin getur og vill spila lykilhlutverk í slíku átaki. Þar er kunnáttan og reynslan. En það gengur ekki bara að benda á kerfið og stofnanir. Ábyrgðin á eigin lífi liggur fyrst og fremst hjá okkur sjálfum. Þess vegna skora ég á þig að hefja markvisst átak í þínum eigin málum. Reglulega út að ganga, skokka, æfa, vinna í garðinum, þvo bílinn, já bara allt sem lýtur að því að hreyfa þig meira. Þetta er þitt líf. Taktu ábyrgð á því. Gleðilegt sumar – hreyfðu þig! Stefán Snær Konráðsson fjallar um gildi reglulegrar hreyf- ingar ’Ég skora á þig að hefjamarkvisst átak í þínum eigin málum. Reglulega út að ganga, skokka, æfa, vinna í garðinum, þvo bílinn, já bara allt sem lýtur að því að hreyfa þig meira.‘ Stefán Snær Konráðsson Höfundur er framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Ís- lands. UMRÆÐAN um virkjun við Kárahnjúka hefur tekið á sig margvíslegar myndir. Svo er að sjá að heitar tilfinningar og sann- færingarkraftur leiði þátttakend- ur í þessum umræðum til nýrra merkilegra uppgötvana m.a. í sagnfræði og bókmenntum. Þannig upplýsti Ásta Þorleifs- dóttir jarðfræðingur, í Sunnu- dagsþættinum á Skjá 1 s.l. sunnu- dag, að eftir að hafa varið miklum tíma í að kynna sér Kárahnjúka- svæðið og Jökulsá á Dal þá hefði hún fundið „helling“ af heimildum sem greindu frá eldsumbrotum og/eða jarðskjálftum í tengslum við framskrið Brúarjökuls 1890. Þetta vakti auðvitað mikla athygli mína. Mér var kunnugt um eina heimild frá þessum tíma þar sem með góðum vilja mátti tengja sam- an eldsumbrot í Vatnajökli og framskrið Brúarjökuls 1890. Það er grein Þorvarðar læknis Kjerúlf í Ísafold 1890. En eins og ég skil orðið „hellingur“ þá vísar það til miklu fleiri atvika en eins. Það verður þó að telja miklu stærri viðburð í menningarsög- unni þegar Ásta upplýsti að hún hefði lesið í Hrafnkels sögu Freys- goða að það hefði orðið hamfara- hlaup í Jökulsá á Dal sem hefði m.a. tekið af brú á ánni. Ég tel mig nokkuð kunnugan Hrafnkels sögu en hef ekki rekist á þessa heimild, hvorki um hlaupið, né að það sé getið um að það hafi tekið af brú á Jökulsá. Ég tel því fullvíst að Ásta hafi komist yfir handrit af Hrafn- kels sögu Freysgoða sem inniheld- ur annan texta. Það eru alltaf stór tíðindi þegar nýjar heimildir um sögu landsins rekur á fjörur. Ég treysti því að Ásta Þorleifsdóttir deili þessari þekkingu með fleirum, burt séð frá því hvað gerist við Kárahnjúka. Hrafnkell A. Jónsson Mættum við fá meira að heyra Höfundur er héraðsskjalavörður á Egilsstöðum. Er löggiltur fasteignasali a› selja eignina flína? sími 530 6500fax 530 6505www.heimili.isSkipholti 29A105 Reykjavík opi› mánudagatil föstudaga 9-17 Hjá Heimili fasteignasölu starfa fjórir löggiltir fasteignasalar sem hafa áralanga reynslu af fasteigna- vi›skiptum. fia› er flví löggiltur fasteignasali sem heldur utan um allt ferli›, allt frá flví eignin er sko›u› og flar til afsal er undirrita›. Metna›ur okkar á Heimili er a› vi›hafa vöndu› og fagleg vinnu- brög› sem tryggja flér besta ver›i› og ábyrga fljónustu í samræmi vi› flau lög og reglur sem gilda um fasteignavi›skipti. Finbogi Hilmarsson lögg. Fasteignasali Einar Gu›mundsson lögg. Fasteignasali Anney Bæringsdóttir lögg. Fasteignasali Bogi Pétursson lögg. Fasteignasali Hafdís Björnsdóttir Ritari Skúlagata 63 • 150 Reykjavík • Sími 580 9400 • Fax 580 9401 Í tilefni af alþjóðlegum degi hugverkaréttar, 26. apríl n.k., býður Einkaleyfastofan til eftirfarandi kynninga. Fyrirlestrarnir verða í húsnæði Einkaleyfastofunnar að Skúlagötu 63, Reykjavík, frá kl. 13 til 15. Allir velkomnir! • Hugverkaréttur og alþýðuhefðir – Valdimar Hafstein • Brot á hugverkarétti – Borghildur Erlingsdóttir Ný tilskipun Evrópusambandsins um fullnustu hugverkaréttinda • Hagnýtar hugmyndir barna – Paul Jóhannsson • Takmörkun á einkaleyfisvernd lyfja – Lilja A›alsteinsdóttir Breyting á lögum um einkaleyfi vegna innleiðingar svonefnds Bolar-ákvæðis hér á landi ALÞJÓÐLEGUR DAGUR HUGVERKARÉTTAR 26. APRÍL 2005 F A B R I K A N Tveir fyrir einn til Búdapest 28. apríl frá kr. 19.990 Helgarferð - síðustu sætin Munið Mastercard ferðaávísunina Gisting frá kr. 3.400 Gisting pr. nótt á mann í tvíbýli á Hotel Tulip Inn með morgunverði. Netverð. Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Búdapest þann 28. apríl í beinu flugi til þessarar heillandi borgar. Þú bókar 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1 og kynnist þessari glæsilegu borg á einstökum kjörum. Þú velur um úrval góðra hótel í hjarta Búdapest og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Verð kr. 19.990 Flugsæti með sköttum. 2 fyrir 1 tilboð. Út 28. apríl og heim 2. maí. Netverð pr. mann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.