Morgunblaðið - 21.04.2005, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 41
UMRÆÐAN
SAMÞYKKT hefur verið í borgarráði
og sent út til kynningar nýtt deili-
skipulag af svo kölluðum Bíla-
naustsreit, þ.e. Borgartún 26 og Sól-
tún 1–3. Frestur til að skila inn
athugasemdum rennur út 4. maí nk.
Íbúarnir í hinum nýju húsum við
Sóltún, Mánatún og Borgartún 30 a
og b eru mjög óhressir með fyr-
irhugað byggingarmagn á Bíla-
naustsreitnum, sem liggur upp að
þeirra lóðum.
Svokallað nýtingarhlutfall á skipu-
lagssvæðinu, sem núverandi nýbygg-
ingar standa á (Kirkjutúnsreitur) er
1,1, en samkvæmt þeim tillögum sem
nú eru til kynningar fyrir Bíla-
naustsreitinn er nýtingarhlutfallið
fyrir lóðina Sóltún 1–3 um 2,15. Hér
eru kynntar íbúðarbyggingar allt að
12 hæðir, samtals um 240 íbúðir, en
núverandi byggingar austan við Bíla-
naustsreitinn eru 6–7 hæðir.
Í aðalskipulagi Reykjavíkur er get-
ið um þéttingu íbúðarbyggðar á
Kirkjutúns-Sóltúns svæði og þá talað
um 125 nýjar íbúðir. Nú er sú tala
komin upp í 240 íbúðir.
Í aðalskipulagi Reykjavíkur 2001–
2024 er skýrt tekið fram, að við gerð
deiliskipulags skal taka mið af stefnu
aðalskipulags um þéttleika, bygging-
armagn og yfirbragð byggðar á
svæðinu, auk þess sem áhrif viðkom-
andi byggingar á götumynd, útsýni,
skuggavarp, þjónustustofnanir, bíla-
stæðisþörf og umferðarsköpun eru
metin. Ef ekki liggja fyrir skilmálar
um svæðið í aðalskipulaginu skal taka
tillit til hæðar nærliggjandi húsa við
sömu götu og/eða nýtingarhlutfalls á
viðkomandi götureit, auk þess sem
áhrif á fyrrgreinda þætti skulu metin.
Í tilvikum sem þessum skal fara fram
grenndarkynning og þess skal ávallt
gætt að framkvæmdin leiði aðeins til
óverulegra breytinga á byggða-
mynstri hverfisins.
Tilvitnun lýkur í gildandi að-
alskipulag Reykjavíkur.
Íbúðarbyggðin við Sóltún og
Mánatún er 6–7 hæðir. Á aðliggjandi
svæði eru nú kynntar íbúðarbygg-
ingar frá 5 og upp í 12 hæðir og bygg-
ingarmagnið tvöfalt meira en á svæð-
inu, sem fyrir er.
Hvert er samræmið við ofan-
greindan texta aðalskipulagsins?
Hvað er borgarráð og skipulags- og
byggingarsvið að leggja fram, þvert
ofan í anda aðalskipulags? Hvar er
virðing þessara aðila gagnvart sínu
eigin aðalskipulagi og ekki síður við
íbúa borgarinnar?
Ekkert samráð við íbúa
Þegar við íbúarnir við Sóltún, Mána-
tún og Borgartún 30a og b kaupum
okkar íbúðir er okkur kynnt skipulag
svæðisins, sem nefnt er Kirkjutún.
Þar er nýtingarhlutfallið gefið upp 1,1.
Þétt að okkar lóðum er nú kynnt
meira en tvöfalt byggingarmagn okk-
ar svæðis, sem leiðir til þess að útsýni
úr okkar íbúðum skerðist til muna,
stór skuggasvæði myndast á okkar
lóðum, umferðarmagnið margfaldast
og svo má lengi telja.
Ekkert samráð hefur verið haft við
íbúa við Sóltún, Mánatún og Borg-
artún 30a og b við gerð þessa deili-
skipulags á Bílanaustsreitnum. Sami
byggingaraðili, þ.e. ÍAV, sem byggði
okkar hús, mun byggja á Bíla-
naustsreitnum, þannig að það hefði
verið auðvelt að hafa eitthvað samráð
við okkur um þetta, en svo var ekki.
Hin borgara-vinsamlegu yfirvöld
skipulagsmála Reykjavíkurborgar
hafa ekki enn haft hið minnsta sam-
ráð við okkur.
Fjöldaundirskriftir eru nú í gangi
meðal íbúa svæðisins til að mótmæla
þessum ófaglegu og ólöglegu vinnu-
brögðum skipulagsyfirvalda borg-
arinnar varðandi Bílanaustsreitinn.
Íbúar svæðisins áskilja sér allan
rétt til að fara í skaðabótamál við
borgina, verði þessum áformum ekki
breytt og samráð haft við íbúana.
EDDA GUNNARSDÓTTIR,
Sóltúni 9,
ÞÓRHILDUR
GUNNARSDÓTTIR,
Mánatúni 4,
JÓN ÞÓR JÓHANNSSON,
Mánatúni 2,
BÁRÐUR HAFSTEINSSON,
Sóltúni 9.
Skipulagsmistök í upp-
siglingu á Bílanaustsreit
Frá Eddu Gunnarsdóttur, Þórhildi
Gunnarsdóttur, Jóni Þór Jóhanns-
syni og Bárði Hafsteinssyni:
Morgunblaðið/Golli
Séð frá Borgartúni yfir að Sóltúni og Mánatúni, en þar eru hæstu byggingarnar 6–7 hæðir. Á aðliggjandi svæði,
sem sést til hægri á myndinni, eru nú kynntar íbúðarbyggingar frá 5 og upp í 12 hæðir og byggingarmagnið tvö-
falt meira en á svæðinu sem fyrir er.
ÁHUGAVERÐ HÚSEIGN VIÐ NÝBÝLAVEG
Um er að ræða alla húseignina sem er 3 hæðir, samtals rúmlega 600 fm.
Á fyrstu hæð er 240 fm iðnaðarhúsnæði sem gæti einnig nýst sem verslunarhúsnæði. Á
efri hæð, sem er 226 fm með innkeyrsludyrum, er rekin veisluþjónusta og heildverslun. Á
efstu hæð er glæsileg 135 fm íbúð með glæsilegu útsýni og stórum svölum. Eignin er öll
í leigu nema íbúðin. Mjög góð bílastæði.
Áhugaverð eign sem vert er að skoða.
☎ 564 1500
EIGNABORG
FASTEIGNASALA
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson,
löggiltir fasteigna- og skipasalar.
Magnús Leópoldsson,
löggiltur fasteignasali.
Sigrún Gissurardóttir,
lögg. fasteignasali.
Húseignir við Laufásveg
- 101 Reykjavík
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is
-Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Tvær frábærlega staðsettar samliggjandi húseignir í sunnanverðum Þingholtum við
Laufásveg eru til sölu. Annars vegar er fjögurra hæða hús í mjög góðu ásigkomu-
lagi, sem er samtals 320 fm og einnig sambyggt og nýlega endurbyggt hús með sér
(samþykktri) 3ja herbergja 80,5 fm íbúð á tveimur hæðum með sérinngangi. Góður
afgirtur bakgarður með heitum potti og saunahúsi. Tvö sérbílastæði. Í stærri eign-
inni er nú rekið huggulegt gistiheimili á heilsársgrunni með frábæru orðspori til
margra ára. 8 gestaherbergi fyrir um 20 manns með 4 baðherbergjum ásamt gesta-
móttöku, skrifstofu, setustofu, borðsal og eldhúsi á jarðhæð. Til greina kemur sala
eignanna eingöngu eða sala eignanna ásamt rekstri. Verð tilboð.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson,
sími 588 4477 eða 822 8242
Verslunar-
miðstöðinni
SMÁRALIND
201 Kópavogi
smarinn@smarinn.is
www.husid.is www.smarinn.is
533 4300
VINNA SAMAN - HEILSHUGAR UM ÞINN HAG VINNA SAMAN - HEILSHUGAR UM ÞINN HAG
Bláu húsin
v/Faxafen
Suðurlandsbraut 50
108 Reykjavík
husid@husid.is 564 6655
Opið hús fimmtudaginn 21. apríl milli kl 15-16
KLAPPARSTÍGUR 37
Vel staðsett 119,4 fm eign á annarri
hæð í fjórbýli í miðbænum sem not-
uð er sem tvær íbúðir og eru þær
báðar í góðri leigu með leigutekjur
upp á um 130.000 kr. á mánuði.
Gott tækifæri fyrir fjárfesta eða
þann sem vill búa miðsvæðis og
hafa tekjur af eign sinni.
Nýtt þak og rennur og húsið málað
sumarið 2000 og lítur mjög vel út og
snyrtilegt að utan. Verð 24,9 millj.
SKRÝTNUSTU
ummæli um Héð-
insfjarðargöng
hafa án efa komið
úr hálsi Gunnars
Birgissonar al-
þingismanns sem
telur fram-
kvæmdina þá vit-
lausustu sem
hann hefur heyrt
um.
Nauðsynlegt er að gera einfaldar
athugasemdir við ummæli Gunnars
þó ekki sé til annars en að benda á að
þau endurspegla alls ekki skoðanir
fjölmargra íbúa á höfuðborgarsvæð-
inu. Raunar er mér til efs að þau eigi
þar nokkurn hljómgrunn nema
kannski hjá Errlistanum í Reykjavík
sem hefur leiðst út í óþarfa andstöðu
við landsbyggðarfólk.
Svona skrýtnar eru skoðanir þing-
mannsins:
1. Hann metur samgöngubætur
eftir kjördæmum og íbúafjölda sem
orkar að minnsta kosti tvímælis.
2. Hann vill etja saman höf-
uðborgarsvæði og landsbyggð í
kappi um fjárveitingar til sam-
göngumála sem er ákaflega
heimskulegt.
3. Hann hefur haft fjölmörg tæki-
færi til að ræða við samgöngu-
ráðherra um samgönguáætlunina en
ræðst engu að síður opinberlega
gegn honum með gífuryrðum sem er
óskiljanlegt.
Vegabætur á landsbyggðinni telj-
ast ekki byggðamál í þröngum skiln-
ingi þess orðs heldur miklu frekar
þjóðarnauðsyn. Ákvörðun um fram-
kvæmdir geta ekki byggst á íbúa-
fjölda vegna þeirrar einföldu stað-
reyndar að víða er landslagið
ráðandi þáttur. Þörf er málamiðl-
unar milli ólíkra sjónarmiða og sem
slík er samgönguáætlunin mjög góð.
Auðvitað eru áherslur manna
margar og mismunandi en skýr
stefna verður hins vegar að vera til
staðar. Í stað þess að standa í gam-
aldags kjördæmapoti ætti Gunnar
að einbeita sér að því að vera þing-
maður allra landsmanna, óháð bú-
setu.
Þrátt fyrir strákslega fyrirsögn er
langt í frá að ég vilji vega að Gunnari
persónulega en ummæli hans um
Héðinsfjarðargöng eru engu að síð-
ur þau vitlausustu sem ég heyrt um í
langan tíma.
SIGURÐUR SIGURÐARSON,
starfar í ferðaþjónustu,
sigurdur.sigurdarson@simnet.is.
Vitlausasti
þingmaðurinn?
Frá Sigurði Sigurðarsyni:
Sigurður
Sigurðarson