Morgunblaðið - 21.04.2005, Page 42

Morgunblaðið - 21.04.2005, Page 42
42 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Jæja, afi minn, nú færðu að hvílast í friði. Nú færðu að hitta stelpurnar þínar á ný. Minningarnar um hann afa eru margar og eru þær allar skemmtilegar og ljúfar. Alltaf var gaman að koma til afa og ömmu í Holtagötu og fá nýtt rúg- brauð með mikilli kæfu og miklu smjöri ofan á. Það bragðaðist ein- hvern veginn best þar. Man ég afa að grípa í orgelið, afa með minn- isbókina sína að þylja upp síðustu vísurnar sem hann hafði ritað niður og afa sem töffara. Þú varst alltaf svo hreinn og nýstrokinn, í góðri skyrtu með bindi og gráum mitt- isjakka. Jafnvel síðast er ég heim- sótti þig varstu svo fínn og patt- aralegur og ávallt ilmaði maður af rakspíranum þínum löngu eftir að maður hafði kvatt þig. Minningar um afa eru af skiljanlegum ástæð- um tengdar vélknúnum fákum, bíl- um. Enda tóku bílarnir þínir við hlutverkum fákanna sem þú áttir er þú varst krakki á Helgastöðum og SIGFÚS PÁLMI JÓNASSON ✝ Sigfús PálmiJónasson frá Helgastöðum í Reykjadal fæddist 23. júlí 1918. Hann lést á dvalarheim- ilinu Hlíð 11. apríl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akureyrarkirkju 19. apríl. síðar bóndi í Pálm- holti. Ég man eftir þér að þvo bílana sem þú gerðir af mikilli alúð, ég man eftir fákunum sem renndu í hlað heima á Húsavík, ný- bónaðir sem þeir væru nýkomnir út úr bíla- sýningarsalnum og svo ófáum bíltúrunum fram í sveitir. Sér- staklega er minnis- stæð ferðin með þér og Rut systur til Vopnafjarðar þar sem við rúntuðum um sveitir með Sigurði afa. Minning um þig að horfa á sjón- varpið og þegar því var lokið sagðir þú ávallt ,,jaa, bölvuð vitleysa er þetta“. Ólíkt sjónvarpinu var líf þitt engin vitleysa, þú lifðir góðu lífi og eignaðist góða og fallega fjölskyldu. Þú áttir hana ömmu sem var yndið þitt og öll börnin þín. Þú áttir öll dýrin sem þú varst svo laginn og ljúfur við. Þú notaðir alltaf svo skemmtileg orð er þú lýstir mönnum og hlutum og eru þau mörg orðin sígild, sér- staklega þau orð sem þú viðhafðir um kvenmenn. Þér var einum lagið að gera hvaða kvenmann sem þér hentaði að fegursta fljóði. Ég vona að mín kona verði alveg glymjandi glóbjarthærð ung stúlka, há til hnésins og teinrétt sem hrífa. Ég mun sakna þess að geta ekki komið við hjá þér á Hlíð og hlusta á allar sögurnar sem þú sagðir mér frá er þú varst ungur drengur á Helgastöðum. Sögunum af þér að reka kýr um móa og holt, af því er gömlu Helgastaðir brunnu. Sögum af Trygg og Hálegg. Þegar farið var frá afa og ömmu í Holtagötu stóðu þau úti á tröpp- um og veifuðu til okkar alveg þang- að til við hurfum þeim sjónum. Nú geymi ég þig í huganum og veifa þér, Pálmi afi, í hinsta sinn. Afi, ég þakka þér allar góðar stundir og ljúfar minningar og óska þess að þú hvílir í friði og ró. Þinn Flummur, Röðull Reyr Kárason. Það eru margar og góðar minn- ingar sem við fjölskyldan eigum um Pálma Jónasson. Hann var ekki einungis maðurinn hennar Hrefnu föðursystur minnar, heldur einnig svaramaður minn þegar ég gifti mig. Við Sibba sögðum oft við hann að hann bæri svo mikla ábyrgð á að hjónaband okkar gengi vel að við yrðum að fá hann í heimsókn til að athuga hvort ekki væri allt í lagi hjá okkur. Pálmi og Hrefna reyndust mér og fjölskyldu minni afar vel. Það var mjög mikils virði fyrir mig að hafa svona mikil tengsl við þau, þar sem pabbi minn dó þegar ég var aðeins 4 ára. Það var gott og gam- an að heimsækja þau í Holtagöt- una. Fullt af kræsingum og spjallað um fjölskylduna. Stelpurnar minn- ast líka oft á steinasafnið og alla pennana sem skiptu hundruðum. Eitt sinn vorum við Magnús nafni minn, sonur Hrefnu og Pálma, saman á meiraprófsnám- skeiði. Hrefna þekkti einn kenn- arann okkar og sagði honum að Magnús sonur hennar væri á nám- skeiðinu. Kennarinn spurði hvor okkar það væri. Þá svaraði hún „Ja, ég á þá nú eiginlega báða. Í huga okkar voru Hrefna og Pálmi eitt. Umhyggja hans og ást meðan hún var veik var aðdáun- arverð. Við fundum það að hann saknaði Hrefnu alla tíð afar mikið. Eftir að Pálmi veiktist og var kominn á dvalarheimilið Hlíð hringdi hann oft í okkur. Þá spjall- aði hann stundum við dætur okkar og þeim fannst hann vera eins og afi þeirra. Við reyndum líka að stytta honum stundirnar með því að bjóða honum í heimsókn. Þá var oftast á matseðlinum grasaysting- ur, sem honum þótti góður. Í fyrstu var hann að vísu ekki alveg eins og hjá Hrefnu hans, en í sameiningu komumst við að því að það vantaði bara smá hafragrjón í grautinn. Það eru erfiðir tímar nú hjá fjöl- skyldu Pálma og Hrefnu. Aðeins þrír mánuðir síðan Inga dó. En við vitum að þær mæðgur hafa tekið fagnandi á móti Pálma. Kæru Snjólfur, Hreiðar, Maddi, Brynja, Guðmundur og fjölskyldur. Innilegar samúðarkveðjur frá okkur. Guð styðji ykkur og styrki. Við kveðjum Pálma með söknuði, virðingu og þökk. Magnús Sigurðsson og fjölskylda. Skemmuvegi 48, Kópavogi. Simi 5576677 www.steinsmidjan.is Systir mín og mágkona, GUÐFINNA AXELSDÓTTIR, Ytri-Neslöndum, Mývatnssveit, andaðist á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga sunnudaginn 10. apríl. Útförin fer fram frá Reykjahlíðarkirkju laugardaginn 23. apríl kl. 14.00. Stefán Axelsson, Kristín Sigurgeirsdóttir. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRN BJARMAN rithöfundur, Fellsmúla 5, Reykjavík, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 19. apríl. Útför hans verður gerð frá Grensáskirkju föstu- daginn 22. apríl, kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, er vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd. Sveinbjörg Stefánsdóttir, Benedikt Björnsson Bjarman, Sesselja G. Ingjaldsdóttir, Sveinbjörn Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn. JÓNÍNA SIGURBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Klapparstíg 13, Reykjavík, síðast til heimilis á Grund, Hringbraut 50, Reykjavík, lést þriðjudaginn 12. apríl sl. Útförin fór fram í kyrrþey. Ólöf Harðardóttir, María Harðardóttir, Sverrir Harðarson. Elskulegur faðir minn, bróðir, mágur og frændi, EÐVALD MAGNÚSSON, lést á heimili sínu miðvikudaginn 13. apríl. Útför fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 22. apríl kl. 15.00. Þráinn Eðvaldsson, Erla Magnúsdóttir, Margrét Magnúsdóttir, Magnea Magnúsdóttir, Páll Magnússon, Paulin Magnússon og frændsystkini. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, OLIVER KRISTJÁNSSON, Vallholt 3, Ólafsvík, sem lést á St. Franciskusspítalanum í Stykkis- hólmi 17. apríl sl., verður jarðsunginn frá Ólafs- víkurkirkju laugardaginn 23. apríl kl. 14:00. Anna Elísabet Oliversdóttir, Jóhanna Helga Oliversdóttir, Magnús Steingrímsson, Hjördís Oliversdóttir, Jón Þorbergur Oliversson, Kolbrún Þóra Björnsdóttir, Guðmunda Oliversdóttir og aðstandendur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, HEIÐUR SVEINSDÓTTIR, Skógarási 8, Reykjavík, lést mánudaginn 18. apríl. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 25. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Ragnar Valsson, Sveinn Ragnarsson, Guðrún Edda Bragadóttir, Berglind Ragnarsdóttir, Karl Áki Sigurðsson og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi, sonur og bróðir, ODDGEIR JÓHANNSSON skipstjóri, Þrastanesi 22, Garðabæ, lést þriðjudaginn 19. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd ástvina, Margrét Rós Jóhannesdóttir. Elskuleg frænka okkar, ANNA SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, Skólastíg 11, Akureyri lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, sunnu- daginn 17. apríl. Útför hennar verður gerð frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 3. maí kl. 13.30. Baldur Ingimarsson, Björn Sigurðsson, Guðrún Jónsdóttir, Anna Guðrún Jónsdóttir, Bjarni Jónsson, Marianne Olsen, Laufey S. Jónsdóttir, Daði Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.