Morgunblaðið - 21.04.2005, Page 43

Morgunblaðið - 21.04.2005, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 43 MINNINGAR Mig langar til að kveðja með fáeinum orðum Sigurð Guð- mundsson, fyrrum ná- granna minn á Berg- þórugötu 17 og föður bernskuvinkonu minnar Bryndís- ar. Hann bjó þarna ásamt eig- inkonu sinni, Magneu (Möggu), Agli syni sínum, heimasætunni Bryndísi, tengdaforeldrum sínum Bryndísi eldri, sem var skáldkona, og Grími. Síðar bættist yngsta dóttirin Þuríður í hópinn. Víst var þröngt setinn bekkurinn á Berg- þórugötu 17, en mannlífið blómstr- aði fyrir því. Sigurður var fríður maður og farsæll. Hann andaðist í hárri elli, hvarf í svefni úr þessari jarðvist á vit ævintýranna, sem búa handan við sólarlagið. Að kvöldi síns hinsta dags hafði hann setið fagra veislu við kveðskap og önnur gamanmál. Í góðra vina hópi var Sigurður jafnan hrókur alls fagnaðar, orðheppinn sögu- maður og hagorður vísnasmiður. Hugurinn reikar til mannlífsins í Reykjavík á 5. og 6. áratug síð- ustu aldar, þegar bærinn var tæp- lega farinn að teygja sig austur fyrir Rauðarárstíg og vettvangur daganna hjá okkur nágrönnunum í Skólavörðuholtinu var Bergþór- ugata, Vitastígur, Njálsgata, Grettisgata og Laugavegur, þar sem fólk bjó í litlum húsum og ræktaði kartöflur og rófur í bak- görðunum. Stöku hestvagn skrölti eftir Njálsgötunni og kúabúskapur var stundaður á Grettisgötunni. Kynni mín af fjölskyldunni á Bergþórugötu 17 hófst með því, að Magga miskunnaði sig yfir fjög- urra ára barnfóstrur mínar, sem sendar höfðu verið út í góða veðrið með eins og hálfs árs gamla varga- títlu, sem gerði þeim lífið leitt. Magga var úti í garði ásamt dóttur sinni og bauðst til þess að taka við stelpunni, svo hún gæti leikið sér við Biddý. Barnfóstrurnar urðu alls hugar fegnar. Upp frá því var undirrituð heimagangur á Berg- þórugötu 17 og Biddý á Vitastíg 20. Við vinkonurnar vorum ákaf- SIGURÐUR GUÐMUNDSSON ✝ Sigurður Guð-mundsson fædd- ist í Þingholtunum í Reykjavík 22. maí 1914. Hann lést á Hótel Örk í Hvera- gerði 7. apríl síðast- liðinn og var útför hans gerð frá Frí- kirkjunni 19. apríl. lega umsvifamiklar og hávaðasamar og ég er ekki viss um að Sig- urði hafi alltaf verið skemmt, enda kallaði hann okkur „kríurn- ar“. En sá var kost- urinn við okkur, að mæður okkar vissu jafnan, hvar við vor- um. Í minningunni er mikil birta yfir þess- um árum. Íslending- ar, sem upplifðu kreppuna miklu, sóttu fram til betri lífs- kjara. Sigurður var verkstjóri hjá Símanum og réðst í að byggja við húsið á Bergþórugötu 17. Þar var píanó í stofu, sem Magga settist oft við, því hún var afar músíkölsk. Eftir hana hefur varðveist und- urfallegt lag við ljóð Jóns Helga- sonar „Í vorþeynum“. Við vinkon- ur vorum settar til náms í píanóleik og fékk ég að æfa mig á píanóið hennar Möggu þegar Sig- urður var að vinna; honum leiddist glamrið sem vonlegt var. Svo fór Magga með okkur í strætónum Njálsgötu – Gunnarsbraut í píanó- tíma til frænku sinnar Lillýar. Mér er mjög minnisstæður Ford-bíllinn, sem Sigurður keypti og ók fjölskyldu sinni og fylgi- fiskum hennar í upp í sumarbú- stað við Elliðavatn, sem hann hafði byggt ásamt Friðgeiri mági sínum. Ég man eftir okkur stöllum sitjandi í rauðum plusssætunum, dragandi rúllugardínurnar á bíl- gluggunum upp og niður. Þetta var vissulega sjaldgæf lystikerra, sem gerði aðra bíla hvunndagslega í huga barnsins. Jólahald þeirra hjóna er mér minnisstætt. Það hófst á því að Sigurður setti ljós á stóra tréð í garðinum, sem sást út um eldhúsgluggann á Vitastíg 20, órækt merki þess að hátíðin væri í nánd. Hún átti síðan eftir að ná hámarki á afmæli heimasætunnar á þriðja í jólum. Þá mættu frænd- systkinin og þá var gengið í kring- um jólatréð og Friðgeir söng með tilþrifum um einiberjarunninn. Á gamlárskvöld var jafnan mann- margt hjá Möggu og Sigga og eitt slíkt kvöld var svo undurgott veð- ur, að ekki bærðist hár á höfði. Við vinkonurnar gengum úti með kertaljós, stjörnuljós og blys. Á þetta gamlárskvöld minntist Sig- urður oft þegar við hittumst. Sigurður hélt góðri heilsu til hárrar elli og tók af lífsfjöri þátt í þeirri veislu, sem lífið er. Hann var afar vel máli farinn eins og áð- ur sagði. Þegar undirrituð hélt upp á útkomu bókar sinnar um siðskiptatímann árið 1997 var Sig- urður sá eini af gestunum, sem stóð upp og hélt smellna ræðu í tilefni dagsins, þá kominn á níræð- isaldur. Ýmsir aðrir í þessu sam- kvæmi höfðu nú vermt skólabekk- ina lengur en hann, en hann var hins vegar slyngur námsmaður í skóla lífsins, svo þetta vafðist ekki fyrir honum. Sigurður varð fyrir þeim harmi að missa konu sína árið 1972, langt um aldur fram. Þrátt fyrir þann mikla missi auðnaðist honum að lifa ríkulegu lífi í rúm þrjátíu ár eftir það. Sannaði hann þá dýr- mætu lífsreglu, að „hamingjan býr í hjarta manns, höpp eru ytri gæði“. Hann skilur eftir sig langt og farsælt ævistarf og fríðan hóp afkomenda. Ég kveð þennan aldna nágranna minn með vinsemd og virðingu og þakka honum samfylgdina. Fjöl- skyldu hans sendi ég samúðar- kveðjur. Vilborg Auður Ísleifsdóttir. Elsku afi. Þó að maður viti og hafi alltaf vitað hver gangur lífins er, þá er alltaf erfitt að kveðja ást- vini sína. Þú varst alltaf svo stór hluti af fjölskyldunni og einhvern veginn ómissandi. Þú verður alltaf til í hjarta og huga okkar og þegar ég hugsa og tala um þig þá brosi ég innra með mér. Það er vegna þess hvaða mann þú hafðir að geyma. Mig langar að þakka þér fyrir svo margt og allt sem þú hef- ur gefið mér og fjölskyldu minni í andlegt veganesti. Elsku afi, takk fyrir að hafa ver- ið eins og þú varst, góður, heið- arlegur, ástkær og yndislegur fað- ir, afi og langafi. Takk fyrir öll ljóðin þín og sögur sem við erum svo heppin að eiga á segulbands- spólum og í minningunni. Nú ert þú kominn á æðri stað, til margra þinna ástvina og til hennar Möggu þinnar. Við höfum öll skynjað ástina sem þú barst til hennar alla tíð. Ég veit að þú nýt- ur þess að vera í faðmi hennar og hún í þínum. Hvíldu í friði, elsku afi. Magnea, Davíð, Daði Vikar og Bryndís. Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Komum heim til aðstandenda ef óskað er Sverrir Einarsson Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Samúðarblóm Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, JÓHANN Ó. Á. GUÐMUNDSSON, Valhúsabraut 15, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 22. apríl kl. 11.00. Sigurlaug Hannesdóttir, Anna B. Jóhannsdóttir, Auðunn Pálsson, Guðmundur Jóhannsson, Arndís Magnúsdóttir, Friðrik Þór Ragnarsson, Selma Dögg Ragnarsdóttir, Jóhann Ingi Guðmundsson, Magnús Dagur Guðmundsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir, tengdasonur, tengdafaðir og afi, GUNNLAUGUR ÓLAFSSON, Litlagerði 19, Vestmannaeyjum, sem lést laugardaginn 16. apríl sl., verður jarðsunginn frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 23. apríl kl. 10.30. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Fyrir hönd aðstandenda, Kristiín Elín Gísladóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, DAGBJARTUR HANSSON, Hauganesi, Árskógsströnd, verður jarðsunginn frá Stærra-Árskógskirkju laugardaginn 23. apríl kl. 14.00. Anna Lilja Stefánsdóttir, Stefán Dagbjartsson, Svana Karlsdóttir, Svandís Dagbjartsdóttir, Sveinbjörn Hannesson, Sigríður Dagbjartsdóttir og barnabörn. Þökkum af alhug öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför ástkærs föður míns, sonar okkar, bróður, mágs og sambýlismanns, BJARNA VIBORG ÓLAFSSONAR, Tjarnargötu 13, Vogum. Sérstaklega þökkum við Sigurði Björnssyni lækni og starfsfólki göngudeildar 11-B, LHS, Lionsklúbbnum Keili, fé- lögum úr Fjólu og Kantmönnum, Vogum, Ístaksmönnum og tryggðar- vinum hans öllum sem léttu honum baráttuna. Guð blessi ykkur öll. Ari Bjarnason, Ólafur Herjólfsson, Ingibjörg Bjarnadóttir, Þorgrímur Ólafsson, Klara Sigurðardóttir, Den Sawatdee. Öllu er afmörkuð stund, og sérhver hlutur undir himninum hefir sinn tíma. Að fæðast hefir sinn tíma og að deyja hefir sinn tíma ... (Prédikarinn 3:1,2.) Jóhanna Loftsdóttir lést níunda apríl á heimili sínu í Hafnarfirði. Faðir minn, Lárus Gamalíusson og Hanna lifðu í farsælu hjónabandi í tæp fjörutíu ár, en hún var seinni kona pabba og frænka mín í móð- urætt. Fjörutíu ár er langur tími í mannheimi, en allan þann tíma féll ekki skuggi á samband okkar Hönnu í eilífri baráttu manneskj- unnar fyrir brauðinu í lífsins táradal. Hún var stoð og stytta pabba og þau hjónin ferðuðust mikið innanlands JÓHANNA LOFTSDÓTTIR ✝ Jóhanna Lofts-dóttir fæddist í Hafnarfirði 30. sept- ember 1923. Hún lést 9. apríl síðastliðinn og var jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði 15. apríl. sem utan. Á ferðum sínum innanlands ók hún, því að pabbi tók aldrei bílpróf. Hanna er konan sem aldrei getur neitt aumt séð án þess að hjálpa og horn- steinn sinnar fjöl- skyldu. Fráfall hennar er ættingjum og vinum harmdauði, og til marks um náin tengsl hennar og pabba, sem býr á Elliheimilinu Sól- vangi, gat hann ekki sofið vegna óróleika að- faranótt laugardagsins níunda apríl. Ég sendi fjölskyldu og börnum, barna-, barnabarna-, og barnabarna- barnabörnum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira; drottinn minn gefi dauðum ró, hinum líkn, er lifa. (Úr Sólarljóðum.) Sigurbjörg Lárusdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.