Morgunblaðið - 21.04.2005, Side 44
44 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Að koma í litla hús-
ið í fjörukambinum á
Hólmavík og hitta þar
fyrir húsráðendur,
Mundu og Einar, var
einstakt. Þar
streymdi á móti manni hlýja og
gestrisni og þar ríkti ró og friður.
Oft hef ég setið í litlu stofunni og
spjallað við húsráðendur, Einar
sagði veiðisögur og Munda stakk
að orði og orði, nýveiddur lax bor-
inn fram og ef gist var, var ein-
staklega notalegt að sofna við öl-
dugjálfrið fyrir utan húsið, í
logninu sem ég held að ríki alltaf á
Hólmavík.
Munda og Einar voru vinir for-
eldra minna, Mumma og Völlu, og
kynntust þau ung þegar þau voru
að hefja búskap á Hólmavík.
Þeirra vinátta hélst alla tíð og
voru kynni þeirra góð. Mamma dó
fyrir ellefu árum og oft sagði
Munda: mikið sakna ég hennar
Völlu minnar.
Munda og Einar voru fyrir
löngu flutt suður en áttu húsið á
kambinum áfram og dvöldust þar
á sumrin eins lengi og heilsa og
aðstæður leyfðu og héldu Einari
engin bönd að komast norður
GUÐMUNDA
GUÐMUNDSDÓTTIR
✝ Guðmunda Guð-mundsdóttir
fæddist á Blönduósi
6. október 1924. Hún
lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 7. apríl
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Bústaðakirkju
19. apríl.
þegar fór að vora.
Fyrir nokkrum ár-
um fór ég í mína síð-
ustu heimsókn þang-
að, við Sigga systir
fórum með pabba,
sem þá var orðinn
veikur, í heimsókn til
þeirra. Einar tók á
móti okkur með dýr-
indis kjötsúpu og dag-
inn eftir voru í boði
kjötbollur, sem ég er
þekktur fyrir, sagði
Einar. Þarna stóð
hann í litla eldhúsinu
og töfraði fram dýr-
indismáltíðir kominn vel á tíræð-
isaldurinn og talaði um timian,
hvítlauk og ýmis önnur krydd sem
menn á hans aldri vita fæstir skil
á.
Þarna var hann einnig í essinu
sínu vegna deilna um möskvastærð
á netum sem hann hafði lagt og
taldi sig vera í fullum rétti með,
Munda kímdi og sagði bara, ja
hann Einar Hansen, og svo fékk
maður klapp á kinn.
Síðustu mánuði höguðu örlögin
því svo að Munda, Einar og pabbi
dvöldust á sömu deild á Hrafnistu,
öll farin heilsu en gátu þó gefið
hvert öðru klapp á hönd og bros er
þau hittust í setustofunni. Þau
hafa öll kvatt okkur á undanförn-
um mánuðum og kvaddi Munda
síðust þeirra, en hún lést fyrir
tveimur vikum.
Ég minnist Mundu og Einars
með þakklæti og votta afkomend-
um þeirra samúð mína.
Heiðrún.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna
fráfalls okkar ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
ÓLAFS TORFASONAR HJALTALÍN,
Hrafnistu,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu
í Reykjavík.
Vilborg G. Jónsdóttir,
Gunnar Ólafsson, Hrefna Jónsdóttir,
Ingibjörg Ó. Hjaltalín, Þórður H. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
JÓHANNESAR Þ. JÓNSSONAR
frá Suðureyri við Súgandafjörð,
síðast til heimilis á Hrafnistu í Reykjavík.
Sérstakar þakkir fá félagar í oddfellowstúkunni
Þorkeli Mána, sem stóðu heiðursvörð og
aðstoðuðu við útför hans.
Einnig fær starfsfólk Hrafnistu kærar þakkir fyrir að annast hann af alúð.
Guð blessi ykkur öll.
Aðalheiður Jóhannesdóttir,
Þórður Jóhannesson, Jóhanna Björk Bjarnadóttir,
Guðrún Kristín Jóhannesdóttir,
María Þrúður Weinberg, Arthur Weinberg,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
HRÓÐNÝJAR PÁLSDÓTTUR,
áður til heimilis
á Skólabraut 5,
Seltjarnarnesi.
Steinunn Steinarsdóttir, Guðni Sigurjónsson,
Garðar Steinarsson, Ásta Sveinbjarnardóttir,
Sigurður Steinarsson, Ingibjörg Eysteinsdóttir
og fjölskyldur.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 15. apríl var spilað á
8 borðum og meðalskor var 168. Úr-
slit urðu þessi í N/S:
Sverrir Gunnarsson - Einar Markússon 189
Jón Pálmason - Sverrir Jónsson 184
Friðrik Hermanns - Hera Guðjónsd. 183
A/V
Sófus Berthelsen - Haukur Guðmundss. 198
Bragi V. Björnsson - Guðrún Gestsd. 196
Jón R. Guðmundss.- Kristín Jóhannsd. 184
Íslandsmót í tvímenningi
um helgina
Íslandsmótið í tvímenningi fer
fram um næstu helgi, þ.e. 22. apr-
íl–23. apríl. Spilað verður í húsi
Bridssambandsins í Síðumúla og eru
þátttakendur víðs vegar að af land-
inu. Mótið er tvískipt. 1. lota föstu-
dag kl. 15–19, 2. lota föstudag kl. 20–
24, 3. lota laugardag kl. 11–15. 24
efstu pörin halda áfram og spila
Barometer 23 umferðir með fjórum
spilum á milli para og er spilað með
skermum. 1–10. umf. laugardag kl.
17–23. 11.–23. umf. sunnudag kl. 11–
19.
Frá FEBK Gjábakka
Föstudaginn 15. apríl var spilaður
tvímenningur á 11 borðum.
Meðalskor var 216. Úrslit urðu
þessi í N/S
Lárus Hermannsson – Ólafur Lárusson 246
Magnús Oddsson – Sigurður Pálsson 234
Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 227
A/V
Magnús Halldórss. – Oliver Kristófss. 245
Björn Hermannss. – Gústaf Björnsson 242
Helga Helgad. - Sigrún Pálsd. 234
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Glæsibæ, fimmtudaginn 14.4.
Spilað var á 14 borðum. Meðalskor
264 stig. Árangur N-S
Ægir Ferdinandsson - Geir Guðmss. 306
Helgi Hallgrímss. - Jón Hallgrímss. 294
Bragi Björnsson - Albert Þorsteinss. 286
Árangur A-V
Elín Jónsd. - Soffía Theodórsd. 335
Ragnar Björnsson - Pétur Antonsson 331
Gunnar Jónsson - Guðbjörn Axelsson 321
Bridsfélag Reykjavíkur
Föstudaginn 15. apríl mættu 18
pör til leiks í föstudagsbridge. Helga
Helena Sturlaugsdóttir og Ómar Ol-
geirsson virtust vera nokkuð örugg
um fyrsta sætið, en meiri barátta var
um næstu sæti. Lokastaða efstu
para varð þannig:
Helga H. Sturlaugsd. – Ómar Olgeirsson 45
Guðlaugur Bessas. – Hermann Friðrikss. 29
Erika Kleinicke – Vilhjálmur Sigurðss. 25
Jón Stefánsson – Guðlaugur Sveinsson 22
Kristinn Þórisson – Ástvaldur Ágústss. 22
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK í Gullsmára
spilaði tvímenning á 15 borðum
mánudaginn 18. apríl. Miðlungur
264. Efst vóru í NS:
Ásta Erlingsd. – Katarínus Jónsson 315
Páll Ólason – Elís Kristjánsson 307
Hlaðgerður Snæbjörnsd. – Páll Guðmss. 294
Sigtr. Ellertss. – Þorsteinn Laufdal 292
AV
Kristinn Guðmss. – Guðm. Magnússon 327
Haukur Guðmss. – Oddur Jónsson 320
Jón Bjarnar – Ólafur Oddsson 316
Karl Gunnarss. – Gunnar Sigurbjörnss. 306
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Annað kvöldið í hraðsveitakeppn-
inni fór fram mánudaginn 18. apríl sl.
og sveit Magnúsar Orra Haraldsson-
ar, sem var með 57 impa forystu á
næsta sæti eftir fyrsta kvöldið, jók
enn við þá forystu með besta skori
kvöldsins.
Spilarar í sveit Magnúsar Orra
auk hans eru bræður hans Anton og
Sigurbjörn og Bjarni Einarsson.
Eftirtaldar sveitir náðu hæsta skor-
inu á öðru spilakvöldinu:
Magnús Orri Haraldsson 628
Ungu spilararnir 605
Guðrún Jörgensen 588
Rúnar Einarsson 584
Sveitin milli sanda 572
Staðan í keppninni að afloknum
tveimur kvöldum af þremur:
Magnús Orri Haraldsson 1300
Guðrún Jörgensen 1203
Rúnar Einarsson 1183
Ungu spilararnir 1181
Ingibjörg 1156
Sveitin milli sanda 1121
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 15. apríl var spilað á
8 borðum og meðalskor var 168. Úr-
slit urðu þessi í N/S:
Sverrir Gunnarsson - Einar Markússon 189
Jón Pálmason - Sverrir Jónsson 184
Friðrik Hermanns - Hera Guðjónsd. 183
A/V
Sófus Berthelsen - Haukur Guðmundss. 198
Bragi V. Björnsson - Guðrún Gestsd. 196
Jón R. Guðmundss.- Kristín Jóhannsd. 184
Bridsdeild FEBK Gjábakka
Þriðjudaginn 19. apríl var spilaður
tvímenningur á 6 borðum. Meðal-
skor var 100. Úrslit urðu þessi í N/S:
Lilja Kristjánsdóttir – Lúðvík Ólafsson 118
Magnús Halldórss. – Olíver Kristóferss. 113
Karl Karlss. – Sigurður R. Steingrss. 111
A/V
Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 116
Einar Einarsson – Ragnar Ásmundsson 105
Elín Guðmundsd.– Jóhanna Gunnlaugsd.102
Bridsfélag Reykjavíkur
Þriðja kvöldið í barómeterkeppni
félagsins fór fram þriðjudaginn 19.
apríl og hefur staðan harðnað nokk-
uð á toppnum. Eftirtalin pör náðu
hæsta skorinu á þriðja spilakvöldinu:
Hlynur Angantýss. – Ísak Sigurðss. 132
Bernódus Kristinss.– Hróðmar Sigurbjss. 22
Oddur Hjaltason – Hrólfur Hjaltason 108
Guðrún Jörgensen – Guðlaugur Sveinss. 97
Magnús Magnúss. – Matthías G. Þorvss. 83
Staða efstu para að afloknum
þremur kvöldum er nú þessi:
Magnús Magnúss. – Matthías G. Þorvss. 273
Bernódus Kristins. – Hróðmar Sigurbjs. 254
Ómar Olgeirsson – Páll Þórsson 239
Hlynur Angantýsson – Ísak Sigurðss. 192
Guðrún Jörgensen – Guðl. Sveinsson 157
Oddur Hjaltason – Hrólfur Hjaltason 142
Árshátíð
Bridsklúbbs kvenna
Hin árlega árshátíð Bridsklúbbs
kvenna verður haldin fimmtudaginn
5. maí næstkomandi í Versölum, við
Hallveigarstíg 1. Fagnaðurinn hefst
með fordrykk kl. 11 og að loknum há-
degisverði verður spilaður tvímenn-
ingur með Mitchell-fyrirkomulagi.
Allar bridskonur velkomnar. Keppn-
isstjóri er Sveinn Rúnar Eiríksson.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma
551 0116 hjá Gróu, 562 7377 hjá
Hönnu eða 898 8465 hjá Lovísu.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 19. apríl var spilað á
11 borðum og var meðalskor 216.
Úrslit urðu þessi í N/S:
Katarínus Jónsson - Ólafur Gíslason 265
Guðm. Guðmundss. - Stígur Herlufsen 253
Einar Markússon - Steindór Árnason 244
Bragi Björnsson - Auðunn Guðmundss. 238
A/V
Anton Jónsson - Einar Sveinsson 256
Guðm. Þórðarson - Guðný Hálfdánard. 245
Knútur Björnss. - Sæmundur Björnss. 239
Bragi V. Björnss - Guðrún Gestsdóttir 233
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
FRÉTTIR
TÆPLEGA tvítugur maður hefur
játað fyrir lögreglunni í Hafn-
arfirði að hafa kveikt í skólastofu
í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði að-
faranótt þriðjudags og jafnframt
játað aðra íkveikju í ruslagámi
skammt frá skólanum nokkru síð-
ar. Auk þess játaði maðurinn á
sig tvö innbrot þá um nóttina, í
stofnun og fyrirtæki í bænum.
Þýfi úr þeim hefur að mestu leyti
verið endurheimt að sögn lög-
reglunnar en skemmdir voru tals-
verðar. Daginn eftir var pilturinn
handtekinn á heimili sínu og
gekkst hann við sakargiftum.
Hann hefur áður komið við sögu
lögreglunnar.
Játar íkveikju í
Öldutúnsskóla
Morgunblaðið/Júlíus
Í brunanum urðu talsverðar
skemmdir í kennsluaðstöðu skólans
vegna sóts og reyks.
SUMARSTARF Svifflugfélags Ís-
lands er nú framundan en félagið
ráðgerir að fá brátt í gagnið nýja
mótorsvifflugu. Stofnað hefur verið
félagið Flugföng ehf. um innflutn-
ing mótorsins og rekstur vélarinn-
ar. Kristján Sveinbjörnsson, for-
maður félagsins, segir í samtali við
Morgunblaðið að í sumar verði
kennari á launum hjá félaginu sem
kenni svifflug á Sandskeiði og síðan
muni félagsmenn sjá um kennslu á
kvöldin og um helgar eins og verið
hefur.
Svifflugfélagið á tíu svifflugur og
segir Kristján átta þeirra flughæfar
og tilbúnar í verkefni sumarsins. Þá
eiga félagsmenn milli fimmtán og
tuttugu vélar sem flestar eru
geymdar í skýlum félagsins á Sand-
skeiði. Segir Kristján brýnt að fá
meira skýlispláss og er nú verið að
leita leiða til að bæta úr því. Um
sjötíu manns eru nú í félaginu sem
stofnað var árið 1936 og segir
Kristján það því með elstu starf-
andi félögum í fluginu.
Nokkrir félagsmenn fengu nýver-
ið nýja svifflugu, TF-SWK, og er
hún af gerðinni ASH-25. „Um er að
ræða eina svifmestu tvísessu sem
framleidd er, enda er hún með 25 m
vænghaf,“ segir m.a. í frétt frá fé-
laginu.
Ráðgert er að hefja sumarstarfið
í byrjun maí en á sumardaginn
fyrsta verður byrjað að afhenda
tjaldvagna og hjólhýsi sem félagið
geymir fyrir fólk yfir veturinn og
fær leigutekjur fyrir.
Segir Kristján að undir lok mán-
aðarins muni samsetning vélanna
geta hafist og fljótlega upp úr því
geti svifflugið hafist af fullum
krafti.
Sumarstarf Svifflugfélags Íslands undirbúið
Ráða flugkennara
í fast starf í sumar
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Tveggja sæta kennsluvél Svifflug-
félagsins dregin á loft. Starfið á
Sandskeiði hefst upp úr næstu mán-
aðamótum.