Morgunblaðið - 21.04.2005, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 21.04.2005, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 47 Kaupfélag Borgfirðinga Borgarbraut 58-60, 310 Borgarnes Aðalfundur Aðalfundur Kaupfélags Borgfirðinga verður haldinn á Hótel Borgarnesi fimmtudaginn 28. apríl 2005 og hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. 2. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins. 3. Önnur mál. Borgarnesi, 12. apríl 2005. Stjórn Kaupfélags Borgfirðinga. Aðalfundur GFF 2005 verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl kl.16.30 í Norræna húsinu og er að venju öllum opinn. Á aðalfundi munu koma fram tillögur til laga- breytinga. Strax að fundi loknum efnir GFF til málþings undir yfirskriftinni: „Fólkið, fákar, foldarskart“ Þar verður nýting lífræns úrgangs til upp- græðslu, ekki síst hrossataðs, reifuð, bæði sem hugmyndafræði og sem nærtækt úrlausnarefni við aðstæður í Landnámi Ingólfs. Frummælendur verða:  Umhverfisráðherra Sigríður Anna Þórðar- dóttir.  Katrín Jakobsdóttir formaður Umhverfis- nefndar Reykjavíkur.  Sigurbjörn Bárðarson hrossaræktarfrömuður.  Andrés Arnalds fagmálastjóri Landgræðsl- unnar. Fundarstjóri: Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands. Skrifstofuhúsnæði til leigu Til leigu er ca 280 fm skrifstofuhúsnæði í Faxafeni 10, annarri hæð, sem er að hluta til búið glæsilegu skrifstofuhúsgögnum. Sanngjörn leiga. Áhugasamir sendi skeyti á netfangið ohj@hradbraut.is. Fundir/Mannfagnaðir Lífeyrissjóður Mjólkursamsölunnar Fundarboð Ársfundur Lífeyrissjóðs Mjólkursamsölunnar verður haldinn miðvikudaginn 11. maí 2005 í aðalfundarsal á 1. hæð, Bitruhálsi 1, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 14:00. Dagskrá fundarins er skv. 5. gr. sam- þykkta sjóðsins:  Skýrsla stjórnar og kynning ársreiknings.  Tryggingafræðileg úttekt á stöðu sjóðsins.  Fjárfestingastefna sjóðsins.  Stjórnarkjör og kjör skoðunarmanns.  Önnur mál. Stjórn Lífeyrissjóðs Mjólkursamsölunnar Tilkynningar Hafnarfjörður Matjurtagarðar Leigjendum matjurtagarða í Hafnarfirði tilkynn- ist hér með að þeim ber að greiða leiguna fyrir 1. maí nk., ella má búast við að garðlöndin verði leigð öðrum. Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar. Félagslíf Í kvöld kl. 20.00 Sumarvaka. Veitingar og happdrætti. Anne Marie Reinholdtsen stjórnar. Lisbeth Welander talar. Allir velkomnir. Fimmtudagur 21. apríl Samkoman verður í Fíladelfíu, Hátúni 2, kl. 20.00. Predikun Egon Falk. Mikill söngur og vitnisburður. Allir velkomnir. Mánudagur 25. apríl Fræðslukvöld í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 19:30. Húsið opnað kl. 19:00. Kennari Theodór Birgisson. Allir velkomnir. www.samhjalp.is Raðauglýsingar 569 1111 Raðauglýsingar sími 569 1100 MORGUNBLAÐINU hefur borist yfirlýsing frá Alþjóðahúsi vegna fréttar í Morgunblaðinu laugardag- inn 16. apríl sl. um málþing Starfs- greinasambandsins um svarta at- vinnustarfsemi og svart vinnuafl og vegna viðtals í Morgunblaðinu 18. apríl við forstjóra Vinnumálastofn- unar. „Í báðum tilvikum var haft eftir starfsmanni og forstjóra Vinnu- málastofnunar að í dag séu atvinnu- leyfi fyrst veitt tímabundið í eitt ár fyrirtæki sem hyggist veita erlend- um ríkisborgara vinnu og megi sækja um endurnýjun á því starfs- leyfi til tveggja ára. Eftir þriggja ára starf hér á landi öðlist einstak- lingur rétt á að fá ótímabundið dval- ar- og atvinnuleyfi hér á landi. Þá er og haft eftir starfsmanni stofnunar- innar að hugsanlega megi gera strangari kröfur áður en óbundið at- vinnuleyfi verði gefið út, t.d. að við- komandi verði að sýna fram á ís- lenskukunnáttu. Í þessu sambandi skal á það bent að skoða verður lög um atvinnurétt- indi útlendinga og útlendingalög í samhengi, enda er ekki gefið út at- vinnuleyfi til atvinnurekanda vegna tiltekins starfsmanns, nema sá hinn sami hafi/fái dvalarleyfi á Íslandi. Flestir erlendir ríkisborgarar sem koma til starfa á Íslandi sem ein- staklingar (ekki vegna fjölskyldu- sameiningar) fá í upphafi útgefið dvalar- og atvinnuleyfi til eins árs og skapar slíkt dvalarleyfi ekki grund- völl fyrir búsetuleyfi. Eftir eitt ár má sækja um framlengingu og er þá gefið út dvalar- og atvinnuleyfi til eins árs í senn (þ.e. sækja þarf um endurnýjun árlega). Það er ekki fyrr en eftir þrjú ár með slíkt leyfi sem skapar grundvöll fyrir búsetuleyfi, og samtals fjögur ár frá komu, að einstaklingurinn má sækja um bú- setuleyfi og óbundið atvinnuleyfi. Hafa ber í huga að um heimildar- ákvæði er að ræða, þ.e. heimilt er að veita umsækjanda búsetuleyfi og óbundið atvinnuleyfi, en í umfjöllun Morgunblaðsins segir að hann öðlist rétt til óbundins atvinnuleyfis. Þá ber og að geta þess að í dag fær einstaklingur ekki búsetuleyfi nema hann geti sýnt fram á að hann hafi lokið 150 stunda námi í íslensku eða staðist próf í íslensku fyrir út- lendinga samkvæmt vottorði gefnu út af þeim sem dómsmálaráðuneytið hefur samið við um að halda slík próf. Því eru þær strangari kröfur sem bent var á í grein Morgunblaðs- ins að hugsanlega mætti gera fyrir útgáfu óbundins atvinnuleyfis þegar fyrir hendi.“ Yfirlýsing frá Alþjóðahúsi Búsetuleyfi veitt eftir fjögur ár FRÉTTIR GUÐJÓN Bergmann heldur helg- arnámskeiðið Hreysti, hamingja, hugarró, á Grand hóteli í Reykja- vík dagana 30. apríl og 1. maí kl. 9–17, báða dagana. Meðal efnis á námskeiðinu er stefnumörkun í samræmi við ríkjandi gildi hvers og eins, fyr- irgefningin, kennd verður einföld hugleiðsluaðferð, rætt um líf í jafnvægi o.fl. Bækurnar Hreysti, hamingja, hugarró og samnefnd ný 32 síðna vinnubók eftir Guðjón fylgja með námskeiðinu. Vinnubókin kemur í verslanir í næstu viku og mun kosta 590 kr., segir í fréttatilkynn- ingu. Nánari upplýsingar um verð og skráningu á www.gbergmann.is. Námskeið í hugarró Í DAG, sumardaginn fyrsta, kl. 13–15 standa félagsmiðstöðvarnar Tónabær og Þróttheimar að sum- arhátíð í Tónabæ, Safamýri 28. Í boði er dagskrá fyrir alla fjöl- skylduna og enginn aðgangseyrir er að hátíðinni. Dagskráin mun að mestu fara fram utandyra á lóð Tónabæjar. Það verður boðið upp á eftirfar- andi: Harry Potter hoppkastala, sumargrín ÍTR, söng unglinganna í hverfinu, Lalli töframaður verð- ur á svæðinu, boccia, sýningar á tómstundastarfi Tónabæjar; leik- listarsýning, myndlistarsýning, ljósmyndasýning og útileikir. Einnig verður boðið upp á and- litsmálun. Þá veðra seldar pylsur, vöfflur og kaffi. Sumarhátíð félagsmiðstöðv- anna í Reykjavík NORÐURLANDAMÓT í pípulögn- um fer fram í Perlunni og hefst í dag, fimmtudag kl. 13 og stendur til 23. apríl. Þetta er fjórða Norð- urlandamótið í pípulagningalist- inni, og í fyrsta skipti sem það er haldið hér á landi. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setur keppnina og Valgerður Sverr- isdóttir iðnaðarráðherra flytur ávarp. Aðgangur er ókeypis og öll- um heimill. Fimm pípulagninganemar, einn frá hverju Norðurlandanna keppa. Tómas Helgason, pípulagn- inganemi á Akureyri, keppir fyrir Íslands hönd, en hann er núverandi Íslandsmeistari í þessari grein. Að verki loknu mun fjölþjóðleg dóm- nefnd leggja mat á árangur og m.a. taka tillit til nýtingar hráefnis, vandvirkni, gæða lagnarinnar, frá- gangs o.fl. Keppa á Norð- urlandamóti í pípulögnum HELGARNÁMSKEIÐ fyrir lands- byggðarfólk um MS-sjúkdóminn, verður haldið 29.–30. apríl. Nám- skeiðið er fyrir fólk með nýlega greiningu MS, upp að 2–3 árum. Taugasérfræðingur, félagsráðgjafi, hjúkrunarfræðingur, iðjuþjálfi og sjúkraþjálfari munu veita fræðslu. Námskeiðið verður í húsi MS- félags Íslands á Sléttuvegi 5, Reykjavík. Upplýsingar veitir Mar- grét, félagsráðgjafi í síma 568 8620 og 897 0923. Námskeið fyrir landsbyggðarfólk Elíeser Jónsson flugstjóri vill taka fram vegna greinar um Skildinga- neskauptún, sem birtist í Morgun- blaðinu sl. sunnudag, að hann hefði aldrei fengið neinar bætur frá borg- inni þegar hann ásamt fjórum fé- lögum sínum keypti fyrstu flugvél- ina. Afgreiðsla bótakröfunnar dróst, en að lokum var sæst á það að Elíe- ser og hans fólk fengi jafnmikið land og spilltist við holræsalögnina. Við það stækkaði lóðin Hörpugata 1 og varð ferningslaga en hafði verið þrí- hyrnd. Nú er verið að byggja nýtt hús þarna á lóðinni og er það Hörpu- gata 2. Þá var flugstöðin, sem rætt er um í greininni, hlutafélag. Beðist afsökunar á því sem mis- sagt var. LEIÐRÉTT Engar bætur „LISTAKONURNAR þrjár í Holta- blóminu – 104 listgallerí fagna sum- arkomu fimmtudaginn 21. apríl með opnu húsi,“ segir í frétta- tilkynningu. Ennfremur segir: „Í tilefni dags- ins mun Inga María Sverrisdóttir verslunareigandi bjóða upp á sum- arblómvendi á góðu verði. Ásdís Þórarinsdóttir myndlistarmaður sýnir ný málverk unnin í olíu. Á vinnustofunni, á efri hæð versl- unarinnar, verður Ingibjörg Klem- enzdóttir leirlistarmaður með sýni- kennslu í rennslu.“ Í Holtablóminu – 104 listgalleríi fæst mikið af spennandi gjafavöru fyrir flest tækifæri. Opið verður kl. 12–19 og heitt á könnunni. Sumri fagnað í 104 listgalleríi SKRÁNING unglinga í sumar- störf hjá Vinnuskóla Reykja- víkur stendur nú yfir. Störfin eru fyrir unglinga sem nú eru í 8., 9. eða 10. bekk grunnskóla í Reykjavík, þ.e. verða 14, 15 eða 16 ára á árinu. Unglingarnir starfa víðs veg- ar í borginni; við hreinsun, gróðurumhirðu og létt viðhald; og á útmörk borgarinnar, Heið- mörk og Austurheiðum, við gróðursetningu, áburðargjöf og stígagerð. Skráning fer fram á heima- síðu Vinnuskóla Reykjavíkur á netinu: www.vinnuskoli.is og stendur til 30. apríl. Á heima- síðunni er líka að finna upplýs- ingar um störfin, vinnutíma og starfskjör. Allir sem skrá sig á réttum tíma geta reiknað með vinnu, segir í fréttatilkynnigu. Skráning í Vinnuskóla Reykjavíkur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.