Morgunblaðið - 21.04.2005, Síða 52
52 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Apótekarinn eftir Haydn
Óperustúdíó Listaháskóla Íslands og Íslensku óperunnar
29. apríl kl. 20 - Frumsýning
1. maí kl. 20 - 2. sýn - 3. maí kl. 20 - 3. sýn
8. maí kl. 20 - 4. sýn - 10. maí kl. 20 - 5. sýn - Lokasýning
Ath. Aðgangur ókeypis
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Lau 23/4 kl 20,
Fö 29/4 kl 20, Lau 7/5 kl 20
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Í kvöld kl 20 - Síðasta sýning
Ath: Miðaverð kr 1.500
HÉRI HÉRASON snýr aftur -
Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Su 24/4 kl 20,
Fi 28/4 kl 20
Aukasýningar
SEGÐU MÉR ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur
Fö 22/4 kl 20
Síðasta sýning
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Í kvöld kl 20, - UPPSELT, Fö 22/4 kl 20 - UPPSELT,
Lau 23/4 kl 20, Su 24/4 kl 20 - UPPSELT,
Fö 29/4 kl 20 - UPPSELT, Lau 30/4 kl 20 - UPPSELT,
Su 1/5 kl 20, Mi 4/5 kl 20 - UPPSELT,
Fi 5/5 kl 20 - UPPSELT, Fö 6/5 kl 20,
Lau 7/5 kl 20 - UPPSELT, Su 8/5 kl 20
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar
eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar
Í kvöld kl 20,
Fö 22/4 kl 20, Lau 30/4 kl 20,
Su 8/5 kl 20, Fö 13/5 kl 20
Fáar sýningar eftir
DRAUMLEIKUR eftir Strindberg
Samstarf: Leiklistardeild LHÍ
Su 24/4 kl 20,
Fi 28/4 kl 20 - UPPSELT
Síðustu sýningar
RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ
e. Önnu Reynolds
Í samstarfi við Leikhópinn KLÁUS
Fö 22/4 kl 20,
Lau 23/4 kl 20,
Lau 30/4 kl 20,
Su 1/5 kl 20
AUGNABLIKIÐ FANGAÐ - DANSLEIKHÚSIÐ
fjögur tímabundin dansverk
Í kvöld kl 19.09 - Frumsýning,
Su 24/4 kl 19.09,
Su 1/5 kl 19.09
Aðeins þessar 3 sýningar
TERRORISMI e. Presnyakov bræður
Fi 28/4 kl 20,
Fi 5/5 kl 20
KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Frumsýning í dag kl 14 - UPPSELT,
Lau 23/4 kl 14 - UPPSELT,
Su 24/4 kl 14 - UPPSELT,
Su 1/5 kl 17, Su 5/5 kl 14,
Lau 7/5 kl 14, Su 1/5 kl 14
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„verulega
vönduð...
og ég
táraðist líka“
H.Ó. Mbl
Pakkið á móti Eftir Henry Adams
Fim. 21.4 kl 20 3. kortas. UPPSELT
Fös. 22.4 kl 20 4. kortas. UPPSELT
Lau. 23.4 kl 20 5. kortas. UPPSELT
Mið. 27.4 kl 20 Aukas. Laus sæti
Fös. 29.4 kl 20 6. kortas. Örfá sæti laus
Lau. 30.4 kl 20 7. kortas. Örfá sæti laus
Fimmtudagur, 21. apríl.
Bókaverðlaun barnanna
Borgarbókasafn – aðalsafn,
Tryggvagötu
kl. 14:00.
Bókaverðlaun barnanna verða af-
hent, en þema hátíðarinnar verður
tengt H.C. Andersen í tilefni afmæl-
isárs hans. Leikarar úr leikritinu
Klaufar og kóngsdætur, sem Þjóð-
leikhúsið sýnir, koma í heimsókn og
einnig mun Felix Bergsson
skemmta gestum og segja ævintýri.
Tíu börn sem tóku þátt í kosning-
unni um Bókaverðlaun barnanna fá
viðurkenningu, sjö þeirra fá bóka-
verðlaun, tvö boðsmiða í leikhús fyr-
ir sig og einn gest og loks fær eitt
barn rithöfund í verðlaun – þ.e.
heimsókn barnabókahöfundar í
bekkinn sinn í skólanum.
Allir velkomnir!
Sumarkoma í Gljúfrasteini
Kl. 15:00
Dagskrá helguð verkum Halldórs
Laxness. Pálmi Gestsson leikari les
úr völdum skáldsögum og kvæðum
Halldórs. Tvær bækur Halldórs,
Brekkukotsannáll og Sjálfstætt fólk
koma út í kilju og glænýjum búningi.
Bókasafn Grindavíkur
Kl. 14:00
Möguleikhúsið sýnir leiksýn-
inguna Landið vifra, sem er byggð á
barnaljóðum Þórarins Eldjárns.
Sýningin fer fram í Kvennó við Vík-
urbraut 21 og er ætluð börnum 2–9
ára. Sýningin er í boði Menningar-
og bókasafnsnefndar.
Dagskráin er öllum opin og allir
eru velkomnir.
Borgarbókasafn –
fjölskylduhátíð
Kl. 13:30–16:00
Bókaverðir frá Foldasafni verða á
fjölskylduhátíð í Rimaskóla á sum-
ardaginn fyrsta.
BORGARBÓKASAFN
Opið í aðalsafni, Tryggvagötu, frá
13:00–17:00 og Gerðubergssafni frá
13:00–16:00 á sumardaginn fyrsta.
H.C. Andersen í þrívídd
Borgarbókasafn – Tryggvagötu
Kl. 14:00
Nemendur á leikskólabraut KHÍ
sýna þrívíddarverk á safninu unnin
út frá ævintýrum H.C. Andersens
undir handleiðslu Svölu Jónsdóttur.
Upplestur
Iða, Lækjargötu
Barnabókahöfundar koma að lesa
fyrir börnin.
Kl. 14:00 Ragnheiður Gestsdóttir
Kl. 14:30 Sigrún Eldjárn
Kl. 16:00 Steinunn Sigurðardóttir
Kl. 16:30 Ingólfur H. Ingólfsson
Kl. 14:00 Guðmundur Óli, höf-
undur hinnar nýútkomnu bókar
Meindýr og varnir kynnir bók sína.
Vika bókarinnar
Undanfarið hefur átt sér staðnokkur uppsveifla í ís-lensku danslífi, svo notað
sé danskennt orð. Margir dans-
hópar, dansarar og danshöfundar,
með Íslenska dansflokkinn í far-
arbroddi, hafa lagt þessari upp-
sveiflu lið með ýmsum spennandi
verkefnum á sviði danslistarinnar.
Um síðustu helgi var til að mynda
frumsýnt verk Jóhanns Freys
Björgvinssonar sem varð til í Dans-
smiðju Íslenska dansflokksins, og
þar að auki kom fram í viðtali hér í
blaðinu við Jóhann að annað verk
hans, sem var frumsýnt á metn-
aðarfullri Nútímadanshátíð í
Reykjavík í haust, hefði verið valið
sem opnunarverk stærstu nútíma-
danshátíðar New York-borgar,
þeirrar miklu dansborgar. Þetta er
auðvitað gott dæmi um hvað við
eigum góða dansara og danshöf-
unda og hvað jarðvegurinn er frjór
sem íslensk dansverk spretta úr.
Í dag verður þessi gróska í dans-lífinu enn sýnileg, því fimm ís-
lensk dansleikhúsverk verða frum-
sýnd í Reykjavík í dag. Í
Nýlistasafninu standa um þessar
mundir yfir Gjörningadagar og þar
verður frumsýnt dansleikhúsverk
kl. 16 eftir Sveinbjörgu Þórhalls-
dóttur sem heitir Hver ertu stúlku-
kind? Titillinn vísar til umfjöllunar-
efnis verksins sem er unglingsárin
– hin miklu mótunarár í lífi hverrar
manneskju.
Dansarar í verkinu eru fjórar
ungar stúlkur úr framhaldsdeild
Listdansskóla Íslands og segist
Sveinbjörg gjarnan hafa viljað
vinna að verkefni með þessum upp-
rennandi dönsurum Íslands. „Mig
langaði til að semja verk fyrir þessa
krakka og vekja um leið athygli á
framhaldsdeild Listdansskólans
sem er að vinna mjög gott starf.
Þessir krakkar eru ótrúlega dug-
legir og kreatívir og skemmtilegt
að vinna með þeim,“ segir Svein-
björg, sem tók þá ákvörðun að nýta
listamannalaun sín að hluta til að
vinna með ungu og skapandi fólki.
Til þess fékk hún til liðs við sig
auk dansaranna fjögurra þær Ólöfu
Arnalds, sem semur tónlist í verk-
inu, og Helgu Lilju Magnúsdóttur,
sem hannaði búninga. Sveinbjörg
segir verkið hafa orðið til í mikilli
samvinnu þeirra allra, þar komi
dagbækur þeirra frá unglingsárun-
um meðal annars við sögu. „Allir
sem taka þátt í þessari sýningu eru
svona við það að útskrifast, ekki al-
veg orðin prófessional en eru að
verða það. Þegar maður vinnur
með slíku fólki, sem er alveg stút-
fullt af sköpun og til í að taka við
nýjum hugmyndum endalaust,
myndast ótrúlega ferskt og
skemmtilegt andrúmsloft.“
Á Nýja sviði Borgarleik-hússins verða síðan
fjögur verk frumsýnd í dag:
Núna eftir Irmu Gunn-
arsdóttur, Kólnandi kaffi
eftir Lovísu Ósk Gunn-
arsdóttur og Höllu Ólafs-
dóttur, Í ræktinni eftir Katr-
ínu Ingvadóttur og Hetkinen
– minningabrot frá Finn-
landi eftir Ólöfu Ingólfs-
dóttur. Það er við hæfi að
sýningin hefjist á þeim und-
arlega tíma kl. 19.09, því að
sögn Irmu, sem er fram-
kvæmdastjóri DANSleikhúss
sem stendur fyrir sýning-
unni, tengjast verkin fjögur
gegn um tímann; tímabundn-
ar aðstæður og það hvernig
lífið og tíðarandinn stjórnast
af tímanum. „Tíminn hefur
svo mikil áhrif á líf okkar, og
mætti spyrja hvort við séum
einhvern tíma raunverulega
stödd í núinu,“ segir hún og
vísar til yfirskriftar dans-
sýningarinnar í dag, Augna-
blikið fangað! „Þetta er létt sýning,
sem tekur á tísku og tíðaranda, og
maður getur oft á tíðum séð sjálfan
sig endurspeglast á kómískan hátt í
þeim aðstæðum sem þarna eru
dregnar upp.“
DANSleikhús, sem stendur að
sýningunni, einbeitir sér að dans-
leikhúsforminu, en það felur í sér
ótal möguleika til sköpunar. Í sýn-
ingunni Augnablikið fangað! er
tvinnað saman leiklist og listdansi,
að sögn Irmu. „Þar er talað í hreyf-
ingum, og sýningin er mjög fýsísk,
vegna þess að þetta er dans. En hún
er mjög leikræn líka,“ segir hún.
Þrjú af verkum sýningarinnar bera
þessu mjög sterk merki, en verk
Ólafar Ingólfsdóttur er meira nú-
tímadansverk, að mati Irmu. „Ólöf
nálgast efni sitt meira út frá dans-
forminu, en í öllum hinum verk-
unum erum við að nota leiklistina
mjög mikið með. Þetta er metn-
aðarfull og skemmtileg sýning, full
af léttleika og húmor.“
Líkt og víðar í listsköpun berdansleikhúsformið með sér að
skilin milli listgreina virðast verða
æ óljósari. Mjög margir dansarar
virðast vera að tengja dans við leik-
list, eins og bæði DANSleikhús og
Sveinbjörg eru að gera, en síðan er
einnig til að dansarar tengi list-
sköpun sína við tónlist eða mynd-
list, eins og fyrrnefndur Jóhann
Freyr kýs að gera. Þá eru líka til
dansstuttmyndir, sem tengja saman
dans og kvikmyndagerð. Öll formin
virðast vera að virka, því áhugi fyr-
ir dansi sem listmiðli hefur sjaldan
verið meiri en einmitt núna hér á
landi. Því til marks er að aldrei
hafa fleiri dansarar verið starfandi
hér á landi en einmitt núna, og ekki
síður eru allar þessar frábæru sýn-
ingar sem verið er að setja upp um
þessar mundir ljómandi dæmi um
öflugan miðil í miklum vexti.
Dans í mikilli uppsveiflu
’Í dag verður þessigróska í danslífinu enn
sýnileg, því fimm ís-
lensk dansleikhúsverk
verða frumsýnd í
Reykjavík í dag.‘
AF LISTUM
Inga María Leifsdóttir
ingamaria@mbl.is
Morgunblaðið/Eyþór
Eitt af verkunum á sýningunni Augnablikið
fangað! sem sýnd verður á Nýja sviði Borg-
arleikhússins í dag.
Morgunblaðið/Golli
Hver ertu stúlkukind? heitir verk Sveinbjargar Þórhallsdóttur sem verður
frumsýnt í Nýlistasafninu í dag.