Morgunblaðið - 21.04.2005, Side 54

Morgunblaðið - 21.04.2005, Side 54
54 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINSI I I     Heimsfrumsýnd 29. apríl Heimsfrumsýnd 29. apríl Miðasala opnar kl. 15.003 3  ÓÖH DV Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 B.i. 16 ára kl. 5.45, 8 og 10.15. Sýnd kl. 2, 4 og 6. m. ísl tali Sýnd kl. 2, 4 og 6. m. ensku tali  J.H.H. kvikmyndir.com  SV mblWill Smith er Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 8 og 10.30. Frá leikstjóra American Pie & About a Boy kemur frábær ný gamanmynd. Hann fær nýjan yfirmann óreyndan strák sem dóttir hans fellur auk þess fyrir  B.B. Sjáðu Popptíví  M.J. Kvikmyndir.com  HL MBL FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SCREAM MYNDIRNAR! Hún fær þig til að öskra! Magnaður hrollvekjutryllir frá Wes Craven! f r i til r ! a a r r llv kj tryllir frá s rav !  K&F X-FM ÓÖH DV WWW.BORGARBIO.IS Sýnd kl. 6 m. ísl. tali, FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SCREAM MYNDIRNAR! Hún fær þig til að öskra! Magnaður hrollvekjutryllir frá Wes Craven! i il ll j t lli f ! Sýnd kl. 6, 8 og 10 SUMARDAGAR í Smárabíói 21.- 24. apríl Aðeins 400 kr. í bíó á allar myndir alla helgina í boði bíó.is og aðeins 1000 kr. í Lúxus sal* Frá leikstjóra American Pie & About a Boy kemur frábær ný gamanmynd. Hann fær nýjan yfirmann óreyndan strák sem dóttir hans fellur auk þess fyrir Með Dennis Quaid í fantaformi ásamt Topher Grace (That´s 70s Show) og Scarlett Johnsson (Lost in Translation).  HK MBLB.B. Sjáðu Popptíví M.J. Kvikmyndir.com Sýnd kl. 8 og 10.10 m. ísl. tali, CHRIS Martin, söngvari bresku hljómsveitarinnar Coldplay, hefur upplýst að norska hljómsveitin A-ha hafi haft veruleg áhrif á tón- list sveitarinnar. Ný breiðskífa með Coldplay, sem mun heita X&Y, er væntanleg í sumar. Martin sagði í samtali við út- varpsstöðina Virgin í Bretlandi, að það hefði rifjast upp fyrir honum um daginn er hann setti fyrstu plötu A-ha á fóninn hversu góð hún væri: „Þetta eru ótrúlegar laga- smíðar. Allir eru að spyrja hvað hafi haft áhrif á okkur, frá hverjum við höfum reynt að stela og á hvað við hlustuðum þegar við vorum krakkar. Fyrsta hljómsveitin sem ég dáðist að var A-ha – mér finnst rétt að nefna þá.“ Martin sagðist einnig dást að út- liti Morten Harkets, forsprakka A- ha. „Það er leitun að myndarlegri manni en Morten,“ bætti Martin við. Nýtt lag með Coldplay, „Speed of Sound“, er nú komið í spilun á út- varpsstöðvum landsins. Hætt kominn við að faðma Gallagher Coldplay lék á leynilegum tón- leikum í Round Chapel í austurhluta Lundúna í gær. Noel Gallagher úr Oasis var þar meðal áhorfenda. Þegar Martin kom auga á hann þar sem hann sat á svölum við sviðið tók Martin sig til og klifraði upp á sval- irnar í miðju laginu „In My Place“, til að bjóða Gallagher vin sinn vel- kominn með faðmlagi. En þegar Martin ætlaði að snúa aftur á sviðið áttaði hann sig á því að hann kæmist ekki nema að stökkva. Bandið var farið að vandræðast svolítið án hans þegar hann tók undir sig stökkið, lenti heill á húfi á sviðinu og hélt áfram. Fyrr um kvöldið lék Coldplay „Lyla“, nýja lagið með Oasis, sem nú er komið í spilun og tileinkaði Martin það „hetjunum“ sínum. Umræddir tónleikar voru teknir upp fyrir MTV og verða sýndir í júní. Coldplay undir norskum áhrifum Reuters Coldplay er komin á fullt aftur eftir alllangt hlé og píanótónar Chris Martins hljóma ótt í „Sound of Speed“, fyrstu smáskífunni af væntanlegri plötu. VIÐUREIGN karlmanna við barna- uppeldi og bleiuskiptingar virðist vera óþrjótandi gamanuppspretta fyrir Hollywood-framleiðsluvélina, og að sama skapi vísbending um að Bandaríkjamenn séu ekki komnir eins langt á veg í jafnfréttisbarátt- unni og t.d. Norðurlanda- og aðrir Evrópubúar. Það er a.m.k. ekki hægt að líta svo á að jöfn hlutverkaskipting foreldra sé orðinn eðlilegur eða við- tekinn hlutur, þegar það þykir fyndið í sjálfu sér að fylgjast með karlmanni annast börn og þegar „eðlislægur“ klaufaskapur hans við þá iðju verður kjarninn sem ber heilu og hálfu gam- anmyndirnar uppi. Sáttasemjarinn skipar sér í flokk slíkra mynda (önn- ur nýleg dæmi eru Cheaper By the Dozen og Daddy Day Care) en sækir hugmynd sína fyrst og fremst til hinnar vinsælu Kindergarten Cop sem skartaði Arnold Schwarzeneg- ger í aðal- hlutverki. Báðar myndirnar lýsa því er vöðvastælt hasarhetja lendir í því starfsins vegna að hafa eft- irlit með barna- skara, og dregst við það inn í verk- efni sem eru hon- um framandi og meiri áskorun en illlvígustu glæpa- gengi. Hér leikur hasarbúntið Vin Diesel aðalhlutverkið, þ.e. sérsveit- armanninn Shane sem fær það hlut- verk að gæta fimm barna í tengslum við háalvarlegt leyniþjónustumál. Eins og við er að búast ganga sam- skiptin brösulega til að byrja með, en smám saman kemst Shane að því að það er hreint ekki svo fjarstæðu- kennt að annast börn. Þetta er dæmi- gerð, stöðluð barnavæn hasarmynd þar sem handritið er svo einfeldn- ingslegt að jafnvel Vin Diesel virðist vera of þroskaður leikari í aðal- hlutverkið. Úr vöndu að ráða KVIKMYNDIR Sambíóin Leikstjórn: Adam Shankman. Aðal- hlutverk: Vin Diesel. Bandaríkin, 95 mín. The Pacifier (Sáttasemjarinn)  Vin Diesel í The Pacifier. OMAGH, nafnið vekur minningar um hræðilegt níðingsverk sem framið var í þessum friðsæla, Norður-Írska bæ árið 1998. Hryðjuverkamenn úr röð- um öfgasamtakanna Írska frels- ishersins (IRA), komu fyrir kröftugri sprengju við aðalverslunargötuna. Þeir biðu fram eftir degi uns hún var iðandi af fólki, þá tengdu þeir sprengjuna með þeim afleiðingum að um þrír tugir saklausra borgara létu lífið og hundruð slösuðust. Einn þeirra sem létu lífið var ung- ur sonur Michaels Gallaghers (McSorley), miðaldra bifvélavirkja sem valdist til forystu þegar bæj- arbúar gerðust langþreyttir á árang- urslausum aðgerðum lögreglu- yfirvalda og hálfkáki stjórnvalda. Ódæðisverkið var framið þegar lang- þráðar friðarviðræður stríðandi afla á Írlandi voru nýhafnar. Þær gengu fyrir réttlæti fórnarlambanna í Omagh, illvirkjarnir ganga enn laus- ir. Omagh er gerð í heimild- armyndastíl, sem gerir atburðina nístandi raunverulega. Í upphafi er fylgst með IRA-mönnum búa til sprengjuna og koma henni fyrir, síð- an bíður maður með öndina í háls- inum eftir að hún springi. Fólkið mætir til vinnu, opnar búðirnar, þeg- ar gatan er orðin full af vegfarendum kveður við ærandi sprengingin. Tón- rásin þagnar í kjölfarið, við sjónum blasir hræðileg götumynd þar sem blóði drifnir eftirlifendur eru að átta sig á atburðunum, lík og líkamsleifar eins og hráviði hvert sem litið er. Síð- an kemur hljóðið aftur, harmagrátur, kvalastunur og örvæntingarhróp. At- riðið er svo vel sviðsett og trúverðugt að það á eftir að fylgja áhorfandanum lengi, lengi. Einn af mörgum kostum Omagh er að kvikmyndagerðarmennirnir gæta þess að halda tilfinningamálunum í skefjum en segja umbúðalaust frá at- burðum þar sem Gallagher og fjöl- skylda hans eru í brennidepli. Þannig fær áhorfandinn glögga innsýn í at- burðarásina til dagsins í dag um leið og hann upplifir sársaukann, órétt- lætið, níðingsskapinn, missinn. Ég hvet sem flesta til að sjá þessa afdráttarlausu mynd um svívirðileg- an glæp sem framinn var á blásak- lausum fórnarlömbum níðinga sem enn ganga lausir. Omagh, líkt og tvær aðrar perlur á hátíðinni, Hotel Rwanda og Shake Hands With the Devil, minna okkur hastarlega á grimmdina sem viðgengst allt í kring- um okkur þar sem saklaus fórn- arlömbin verða leiksoppar illskunnar. Slík kvikmyndaverk ýta við samvisku heimsins og verða vonandi til þess að bæta hann. Gallagher mætti í eigin persónu á frumsýninguna í Há- skólabíói og sat fyrir svörum, nær- vera hans jók enn á áhrif einnar at- hyglisverðustu myndar hátíðarinnar. Leikhópurinn er skipaður frábær- um en frekar lítið þekktum lista- mönnum. Gallagher er leikinn af ír- anum McSorley (Veronica Guerin), það mæðir mikið á honum í veiga- miklu hlutverki bifvélavirkjans hæg- láta sem reis upp og fór fyrir sam- borgurum sínum í leit að réttlæti sem er reyndar ekki fundið enn, en við skulum vona að það nái fram að ganga áður en yfir lýkur. Ódæðisverk og eftirmál KVIKMYNDIR Háskólabíó: IIFF Leikstjóri: Peter Travis. Aðalleikendur: Gerard McSorley, Michele Forbes, Brenda Fricker, Stuart Graham, Peter Balance, Pauline Hutton. 105 mín. Ír- land/Bretland. 2004. Omagh  „Ég hvet sem flesta til að sjá þessa afdráttarlausu mynd um svívirði- legan glæp sem framinn var á blá- saklausum fórnarlömbum níðinga sem enn ganga lausir,“ segir Sæ- björn Valdimarsson um Omagh. Sæbjörn Valdimarsson Heiða Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.