Morgunblaðið - 21.04.2005, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 21.04.2005, Qupperneq 55
Nýr og betriHverfisgötu ☎ 551 9000 Sýnd kl. 6 Sýnd kl. 8 b.i. 16 ára. HIDE AND SEEK Sýnd kl. 5  S.V. MBL.  K&F X-FM Túlkun Bruno Ganz á Hitler er stórkostleg. Ein besta stríðsmynd allra tíma. Magnþrungið meistaraverk um síðustu dagana í lífi Hitlers séð með augum Traudl Junge sem var einkaritari Hitlers i i í í lí i i l l i i i i l Every family could use a little translation F R Á L E I K S T J Ó R A AS GOOD AS IT GETS S.K. DV Sýnd kl. 8 og 10.40 Ó.H.T. Rás 2 Sýnd kl.8 Sýnd kl. 10.20 Nýjasta mynd eins allra virtasti leikstjóri heims Pedro Almódavar sem hefur fengið lof gagnrýnenda og verðlaun um allan heim. „Sterkasta mynd Almódavar í tvo áratugi.“ (Village Voice). Í aðalhlutverki er latneska súperstjarnan Gabriel Garcia Bernal og Fele Martinez. HOUSE OF FLYING DAGGERS Sýnd kl. 2 og 4 m/ísl. taliSýnd kl. 2 og 4. m. ísl. tali Magnaður spennutryllir T H E INTERPRETER Forsetinn er í lífshættu og hún er sú eina sem getur fundið morðingjann JET LI MORGAN FREEMAN BOB HOSKINS A FILM BY LOIS LETERRIER HÖRKU SPENNUMYND FRÁ SÖMU OG GERÐU LÉON OG LA FEMME NIKITA Hann var alinn upp sem skepna og þjálfaður til að berjast. Nú þarf hann að berjast fyrir lífi sínu! Heimsfrumsýnd á Íslandi Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. Bi 16 ára T I L B O Ð Á F Y R S T U S Ý N I N G A R D A G S I N S - A Ð E I N S 4 0 0 K R . A T H : t i l b o ð s s ý n i n g a r e r u s é r m e r k t a r m e ð r a u ð u Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10 B.I 16 ÁRA  B.B. Sjáðu Popptíví Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10 Sýnd kl. 2 og 4 Ísl. tal. Hann fær nýjan yfirmann óreyndan strák sem dóttir hans fellur auk þess fyrir  M.J. Kvikmyndir.com Sýnd kl. 10 Heimsfrumsýnd 29. apríl - BARA LÚXUS553 2075☎       FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SCREAM MYNDIRNAR! Hún fær þig til að öskra! Magnaður hrollvekjutryllir frá Wes Craven! f r i til r ! a a r r llv kj tryllir frá s rav !  FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SCREAM MYNDIRNAR! Hún fær þig til að öskra! Magnaður hrollvekjutryllir frá Wes Craven! i il ll j t lli f !   Sýnd kl. 8 og 10.10 Sýningartímar Lalli Johns Sýnd kl. 4 Hotel Rwanda Sýnd kl. 5.40 Bomb the System Sýnd kl. 4 Woodsman Sýnd kl 6 Dear Frankie Sýnd kl. 4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 55 „KYNLÍF, dóp og rokk“, er slitinn frasi sem varð til á sjötta eða sjö- unda áratugnum, gott ef ekki í her- búðum Andys Warhol. Hann er rauði þráðurinn í nýjustu mynd breska leikstjórans Winterbottoms, sem gert hefur margar, athygl- isverðar myndir (24 Hour Party People, Wonderland) og aðrar síðri (I Want You), eins og gengur. 9 Songs, sem flokkast þarna á milli, hefur vakið mikil viðbrögð þar sem hún hefur verið sýnd, eingöngu sakir „djarfra“ atriða, sem eru mun frakk- ari en sést hafa til þessa á hefð- bundnum kvikmyndasýningum. Áð- ur en lengra er haldið er óhætt að vara gesti sem eru viðkvæmir fyrir slíku sjónarspili. Hér gefur m.a. að líta sáðlát, munnmök og umbúða- lausar samfarir. Söguþráðurinn er sáraeinfaldur. Ungt par, Matt og Lisa (O’Brien og Stilley), eyða tímanum saman við að fara á rokktónleika og elskast í ból- inu. Hvort tveggja með hjálp örvandi eiturlyfja. Hann rifjar þess á milli upp störf sín við vísindarannsóknir á frera Suðurpólslandsins. Mest af blessunarlega stuttum sýningartímanum, því innihaldið er óhemju tilbreytingarlaust og þreyt- andi (maður fer ósjálfrátt að telja saman atriðin 9, fljótlega eftir að auð- sýnt er í hvað stefnir), fer fram í rúm- inu. Þar eru filmaðar athafnir sem hingað til hafa eingöngu verið á boð- stólum undir borði á mynd- bandaleigum. O’Brien og Stilley eru ungt, heilbrigt og gratt par, eins og lög gera ráð fyrir. Hver tilgangurinn er með því að elta þau inn í svefn- herbergi (þar sem fólki á að leyfast að gera það sem það langar til í friði fyrir öðrum), og skrásetja þeirra innilegustu athafnir, er greinilega fyrst og fremst gert í þeim tilgangi að brjóta upp hefðina, gera eitthvað nýtt, sem er í sjálfu sér gott mál. Ekki síst þegar haft er í huga að al- mennt eru kynlífssenur leiðigjörn- ustu og ófrjóustu kaflarnir í kvik- myndum samtímans. Winterbottom á þakkir skildar ef honum tekst að hrista eitthvað upp á þeim berangri hugmyndaleysisins. En slíkir kaflar verða að geisla af losta og tilfinn- ingum sem ekki eru til staðar í 9 Songs, hvort sem það er ætlunin eður ei. Reyndar sagði O’Brien, sem sat fyrir svörum eftir sýninguna, að Win- terbottom skilgreindi 9 Songs sem ástarsögu. Má ég þá biðja um þó ekki væri nema vottur af ást og erótík. Berolucci tókst mun betur að fást við bannhelgarnar í tímamótamynd- inni Last Tango in Paris, sömuleiðis Catherine Breillat í Romance, jafnvel Patrice Chereau í Intimacy. 9 Songs minnir því miður meira á bersögult dáðleysið í 9 ½ Weeks, og öðrum slík- um, tónlistaratriðin eru mun betri kvikmyndaleg upplifun. 9 söngvar leikstjórans KVIKMYNDIR Háskólabíó - IIFF Leikstjóri: Michael Winterbottom. Aðal- leikendur: Kieran O’Brien, Margot Stilley. 70 mín. Bretland. 2005. 9 söngvar (9 Songs)  Sæbjörn Valdimarsson SÁ er orðinn siður góður á vorin að nem- endur í Listaháskóla Íslands láta ljós sitt skína og afhjúpa verk sín. Í kvöld munu 1. og 2. árs nemar í fata- og textílhönnun standa fyrir tískusýningu í Klink og Bank og bera þar á borð af- rakstur náms síns og vinnu. Að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu frá skólanum er búist við að fjöldi er- lendra blaðamanna, sem kom til landsins í tengslum við Face North-tískusýn- inguna sem haldin var í Hafnarhúsinu í gær, verði á sýning- unni. Í fata-og text- ílhönnunardeild LHÍ er lögð sérstök áhersla á samstarf við atvinnulífið og nem- endum kynnt þau við- horf og aðstæður sem þar er að mæta. Markmið með náminu er að búa nemendur undir störf í al- þjóðlegu umhverfi – að þeir líti á all- an heiminn sem sitt framtíð- arstarfsumhverfi. Við deildina kenna fjölmargir er- lendir gestakennarar sem starfa í erlendum tískuhúsum, s.s. Yves sa- int Laurent, Louis Vuitton, Sonia Rykiel og Martine Sitbon. Fagstjóri fata- og textílhönnunar er Linda Björg Árnadóttir. Sýningin í kvöld er liður í vorhátíð LHÍ sem nær hámarki þegar opnuð verður útskriftarsýning nemenda við myndlistar, hönnunar- og arki- tektúrdeild 7. maí en hún mun standa til 29. maí. Tíska | Nemendur LHÍ í Klink og Bank Erlendir blaða- menn á staðnum Frá sýningu hönunnarnema síðastliðið vor. Sýningin í Klink og Bank hefst í kvöld kl. 20.30. Sjónvarpsmað-urinn ÁSGEIR Kolbeinsson hefur tekið við af Þresti 3000 sem dagskrár- stjóri FM957. Er það liður í viðameiri stefnubreytingu sem á sér stað hjá fjölmiðlafyrirtæk- inu 365 og tengt ráðningu Árna Þórs Vigfússonar, fyrrum sjónvarpsstjóra Skjás eins, í starf yfirmanns á Popp- Tíví. Í samtali við Morgunblaðið segir Ásgeir að þeir Árni Þór muni vinna náið saman í framtíðinni að gerð dag- skrárefnis fyrir sjónvarp og útvarp, ætlað ungu fólki. Ásgeir sér ekki fyrir sér neina meiri háttar stefnubreyt- ingu á FM957, við þessar manna- breytingar, en segist jafnvel búast við að einhverjar hrókeringar verði á „þeim sem eru við hljóðnemann“. En stöðin sé og verði áfram tónlistarstöð og það þýði að hann og hans fólk ætli að kafa enn frekar ofan í hvað ungt fólk er að hlusta á. Ásgeir hefur að undanförnu verið áberandi á PoppTívi, þar sem hann hefur séð um kvikmyndaþáttinn Sjáðu og kynnt Íslenska listann. Í ljósi gagngerra breytinga sem fyrir dyrum standa á dagskrá stöðvarinnar segir hann framtíð þáttanna óljósa, en að vel sé inni í myndinni að þeir haldi áfram í breyttri mynd.    Gríndávaldurinn Sailesh dáleiðirnú mann og annan við mikla kátínu þeirra sem vitni verða að. Hann hefur m.a. verið mjög eft- irsóttur gestur í framhaldsskólum landsins. Um daginn, þegar hann var í Flensborg, sýndi hann enn og sann- aði dulmagnaðan mátt sinn, og að þessu sinni í þágu menntunar. Segir sagan að einn nemandinn, stúlka nokkur sem féllst á að láta dáleiða sig, hafi fengið ansi mikið meira út úr uppátækinu en hún hafði búist við. Svo vildi til að strax eftir dáleiðsluna þurfti hún að fara í munnlegt próf í dönsku. Áður en Sailesh vakti hana úr dáleiðslunni ákvað hann því að tilkynna henni að hún kynni dönskuna upp á tíu og að hún gæti farið í prófið full sjálfs- trausts. Það kom líka á daginn, stúlk- an fór í munnlega prófið, gekk að eig- in sögn betur en nokkru sinni fyrr, fékk tíu, og ku viðkomandi kennari aldrei áður hafa gefið jafnháa ein- kunn. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.