Morgunblaðið - 21.04.2005, Síða 56

Morgunblaðið - 21.04.2005, Síða 56
56 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ A Hole in my Heart Sjokkerandi mynd eftir Lukas Moodysson ALLS EKKIFYRIRVIÐKVÆMA! Garden StateMyndin var kosin vinsælasta myndin á Sundance kvikmyndahátíðinni. Frábær tónlist. Frábær ævintýrahasarmynd sem líkt hefur verið við Indiana Jones og James Bond myndirnar.  DV Beautiful Boxer kl. 3 - 5.30 - 8 - 10.30 Napoleon Dynamite kl. 4 - 6 - 8 -10 The Mayor of Sunset Strip kl. 3 Vera Drake kl. 5,30 Garden State kl. 8 b.i. 16 9 Songs kl. 10,15 b.i. 16 Beyond the Sea kl. 3 - 10 Omagh kl. 5,50 Hole in my Heart kl. 8 b.i. 16 Million Dollar Baby kl. 8 b.i. 14 Life and Death of Peter Sellers kl. 5.30 - 10.30 Sennilega ein hispurslausasta kvikmynd sem gerður hefur verið, eftir snillinginn Michael Winterbottom, um ást, kynlíf og tónlist. Stranglega bönnuð innan 16 ára og alls ekki fyrir viðkvæma. Aðsóknamesta óháða myndin í USA í fyrra. Ein vinsælasta kvikmyndin á Sundance kvikmyndahátíðinni. Toppmyndin í USA Toppmyndin á Bretlandi - Toppmyndin á Íslandi Byggð á metsölubók Clive Cussler Kvikmyndir.is  S.V. MBL Nýjasta meistarastykki meistara Mike Leigh, sem hefur rakað til sín verðlaunum og hlotið mikið lof hvarvetna. Ó.H.T Rás 2 ALLAR Stjörnustríðsmyndirnar sex verða sýndar á 14 klukkustunda maraþoni í kvikmyndahúsi í Lundúnum um miðjan maí. Þar á meðal er sjötta og síðasta myndin Star Wars: Episode III – Revenge of the Sith sem frumsýnd verður um heim allan um miðjan maí. Fer maraþonið fram í kvikmyndahúsi á Leicester-torgi í Lundúnum hinn 16. maí. Miðasala hefst á mánudag og verða þús- und miðar í boði. Hefst gamanið klukkan sjö að morgni og heldur síðan áfram í 14 tíma að matarhléum meðtöldum. Að sögn Jóns Gunnars Geirdals, mark- aðsstjóra hjá Senu, sem hefur dreifing- arrétt á Stjörnustríðsmyndum á Íslandi, má fastlega búast við að boðið verði upp á samskonar maraþonsýningu hér á landi, fáist tilskilin leyfi til þess. Stjörnustríðs- maraþon í maí SÖNGVARINN Robert Plant kom til landsins um miðjan dag í gær en hann mun halda tónleika í Laug- ardalshöll annað kvöld ásamt hljóm- sveit sinni The Strange Sensations. Rétt tæp 35 ár eru liðin síðan Plant lék hér á landi á sögufrægum tónleikum í Laugardalshöll, þá með hljómsveitinni Led Zeppelin, og hafði Morgunblaðið eftir honum að hann væri afar ánægður með að vera kominn aftur, það hefði staðið til lengi. Það lá mjög vel á Plant í gær, og hann lék á als oddi, að sögn Kára Sturlusonar tónleikahaldara sem tók á móti rokksöngvaranum í Leifsstöð. „Þetta er afskaplega við- kunnanlegur maður og rólegur,“ sagði Kári og bætti við að hann væri greinilega í besta formi því hann hefði rölt út úr flugstöðinni með töskur sínar undir hendinni eins og unglingur væri. „Hann hlakkar mikið til að kynna Íslendingum nýja efnið sitt, sem hann er mjög spenntur fyrir og stoltur af.“ Engum sögum fer þó af því hvort hann mun taka Íslandsóð sinn, „Immigrant Song“, en á und- anförnum tónleikum hefur hann þó verið duglegur að taka gamla Zep- pelin-slagara í bland við nýja efnið. Plant ákvað, að sögn Kára, að koma fyrr til landsins til að geta átt hér tvo heila daga til að gera allt það sem hann langar til að gera en hann mun dvelja hér fram á sunnudag: „Hann langar að fara á hestbak, í Bláa lónið, skoða Gullfoss og Geysi, Þingvelli og fleira.“ Þá segir Kári að Plant hafi nefnt að hann langi til að bragða reyktan lunda og er því greinilega forvitinn mjög um ís- lenska menningu. Plant kom frá Kaupmannahöfn þar sem hann hélt vel heppnaða tónleika á þriðjudagskvöldið að við- stöddum nokkrum Íslendingum sem létu vel af. Tónleikar Plant og hljómsveitar hans hafa fengið lof- samlega dóma í erlendum fjöl- miðlum upp á síðkastið og þar á meðal gáfu bresku blöðin The Gu- ardian og Daily Mail tónleikum hans í Royal Albert Hall 6. apríl bestu meðmæli. Plant og Led Zeppelin voru afar ánægðir með hvernig til tókst er þeir léku hér 22. júní 1970. Til marks um það sömdu þeir lagið Im- migrant Song um Íslandsförina og nýverið voru notaðar á veglegum mynddiski upptökur sem gerðar voru hér. Nýjasta plata Plants, The Mighty Rearranger, kom út á Íslandi í vik- unni, tveimur vikum áður en hún kemur út í heiminum, en hún hefur nú þegar fengið jákvæða dóma í er- lendum tónlistarmiðlum. Enn eru til miðar í stæði á tón- leikana í Höllinni. Miðaverð er 4.500 kr. Miðasala fer fram á eftirfarandi stöðum: Hard Rock Café Kringl- unni, Hljóðhúsinu Selfossi, Hljóm- vali Keflavík, Pennanum Gler- ártorgi, Pennanum Akranesi og á midi.is. Húsið verður opnað kl. 19 og tónleikarnir hefjast með upp- hitun íslensku hljómsveitarinnar Ske. Tónlist | Robert Plant kominn til landsins Aftur til lands íss og snjós Víkurfréttir/Þorgils Robert Plant brosti sínu breiðasta er hann gekk út úr flugstöðinni í ís- lenskan vorvindinn ásamt hljómsveit sinni og taldi það ekki eftir sér að burðast með eigin farangur. ÞAÐ verður vart þverfótað fyrir stjörnum á tökustað kvik- myndarinnar Da Vinci-lykilsins eftir metsölubók Dans Browns. Leikstjórinn Ron Howard hefur sankað að sér þekktum nöfn- um í flest burðarhlutverk og fer Tom Hanks í broddi fylkingar sem dulmálssérfræðingurinn Robert Langdon, söguhetja bók- arinnar. Frakkarnir Jean Reno (Leon) og Audrey Tautou (Amélie) leika frönsku löggurnar Bezu Fache og Sophie Neveu. Fagtímið Variety greindi svo frá í gær að búið væri að ráða Sir Ian McKellen til að leika hinn aldna auðkýfing Sir Leigh Teabing og Alfred Molina sem Aringarosa, biskup Opus Dei- reglunnar. Báðir hafa þessir merku leikarar farið með veiga- mikil hlutverk í nýlegum metaðsóknarmyndum. McKellen lék Gandalf í Hringadróttinssögu og Molina lék illmennið Kol- krabba í Kóngulóarmanninum 2. Einnig hermdu fregnir í gær að breska leikaranum Christopher Eccleston hefði verið boðið hlutverk munksins Silas, sem veitir Langdon eftirför og hefur þau fyrirmæli að ráða hann af dögum. Eccleston er einn eftirsóttasti leikari Breta nú um mundir og lék síðast költ-hetjuna Dr. Who í nýjum sjónvarpsþætti sem BBC framleiddi. Hann hefur einnig leikið í myndum á borð við Jude, Shallow Grave, 28 Days Later og The Others. Ingvar E. Sigurðsson hafði að sögn farið í leikprufur vegna þessa hlutverks en virðist nú þurfa að horfa á eftir því í hendur Ecclestons, en þeir eru um margt áþekkir leikarar; hávaxnir, svipsterkir og kraftmiklir. Herma fregnir frá Bretlandi að framleiðendurnir hafi fallið fyrir Eccleston eftir að hafa séð hann í sjónvarpinu leika Dr. Who. Það hefur ekki gengið þrautalaust að fá leyfi til að kvikmynda á þeim stöðum þar sem sagan á að gerast. Búið er fá leyfi til að taka eitt þýðingarmesta atriði mynd- arinnar í Rosslyn-kapellunni í Skotlandi og eftir langar og strangar samninga- viðræður hafa framleiðendur fengið leyfi hjá forsvarsmönnum Louvre-safnsins til að taka upp mikilvæg atriði þar. Fléttan hefst einmitt á dularfullu morði sem framið er í safninu á safn- verði sem býr yfir mikilvægu leyndarmáli. Stefnt er á að myndin verði frumsýnd í maí á næsta ári og er því spáð að hún verði ein af stærstu myndum ársins. Stjörnufans í Da Vinci-myndinni Christopher Eccleston, sá sem líkleg-astur er til að fá hlutverk albínóans Sil-asar, var vígalegur sem Dr. Who en kærði sig þó ekki um að leika hann áfram.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.