Morgunblaðið - 21.04.2005, Síða 60

Morgunblaðið - 21.04.2005, Síða 60
FRAMLEIÐENDUR mat- og drykkjarvöru sækj- ast nú í vaxandi mæli eftir því að vítamín- og stein- efnabæta vörur sínar til að laða að fleiri við- skiptavini. Íblöndun sama næringarefnis í of margar teg- undir matvæla á markaði er óæskileg þar sem hún eykur líkurnar á að neytendur fái of mikið af efn- inu, sem aftur getur haft öfug áhrif og skaðað heilsuna, að mati sérfræðinga Lýðheilsustöðvar. Hægt væri að ofgera heilsunni með ofneyslu bætiefna og því kæmu vítamín- og steinefnabætt matvæli alls ekki í staðinn fyrir fjölbreytt fæði. Frá áramótum hafa Umhverfisstofnun borist umsóknir um vítamínbætingar á 21 vörutegund, sem fela í sér íblöndun með allt frá einu og upp í tíu næringarefni í einni og sömu vörunni. Í fyrra bárust hinsvegar þrjár umsóknir og átta árið 2003. Meðal þessarra vara eru mjólkurdrykkir, soja- mjólk, ávaxtasafar, íþróttadrykkir, Swiss Miss diet, Fittybrauð og brauðbollur. „Til að íblöndun bætiefna gagnist fjöldanum, er mikilvægt að velja matvöru, sem hefur mikla út- breiðslu meðal markhópsins og að magnið sé hæfi- legt þannig að ekki skapist hætta á ofneyslu,“ seg- ir Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar hjá Lýðheilsustöð./27 „Getur skaðað heilsuna“ Aukin ásókn í að vítamín- og steinefnabæta matvæli MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alla daga í Lágmúla og Smáratorgi TVÆR byssukúlur voru fjarlægðar með skurðaðgerð úr sautján ára pilti á Akureyri nú í vikunni og hefur lögreglan fengið einn mann úrskurðaðan í gæsluvarðhald til 24. apríl vegna skotárásarinnar. Við rannsókn málsins var annar maður einnig handtekinn en sleppt að loknum yfirheyrslum eftir að hann játaði aðild að árásinni. Málið kom upp á laugardaginn þegar lög- reglunni á Akureyri bárust upplýsingar um að 17 ára piltur hefði leitað á slysadeild vegna skotárásar. Þegar lögreglan ræddi við hann sagðist hann hafa verið skotinn a.m.k. 11 skot- um úr loftbyssu. Samkvæmt frásögn hans var hann tekinn upp í bíl af tveimur 22 ára mönn- um sem óku með hann langt norður gamla Vaðlaheiðarveginn. Þar var hann rekinn út úr bílnum og dró annar mannanna upp byssu og skaut á hann sex skotum. Því næst var pilt- inum skipað að afklæðast og eftir það var sex öðrum skotum skotið á hann. Fékk skot í fætur, hendur og bak Að sögn Daníels Snorrasonar, lögreglufull- trúa á Akureyri, fékk pilturinn skot í fótleggi, bak og hendur. Þær kúlur sem sátu fastar lentu í læri og handarbaki. Til marks um kraft- inn í byssunni gekk önnur kúlan 2–3 cm inn í lærvöðva. Pilturinn vildi í fyrstu ekki skýra frá því hverjir hefðu verið að verki eða hvers vegna og vöknuðu því grunsemdir um að at- burðurinn hafi verið afleiðingar fíkniefnavið- skipta. Í ljós hefur komið að bæði árásarmenn- irnir og fórnarlambið hafa komið við sögu fíkniefnamála. Eftir skotárásina var pilturinn látinn klæða sig í fötin aftur og tekinn inn í bílinn og ekið í átt til Akureyrar og skilinn eftir í nágrenni bæjarins. Þar hringdi hann í vini úr gsm-síma og lét þá sækja sig. Hann missti ekki mikið blóð að sögn lögreglunnar en var ekið á Fjórð- ungssjúkrahúsið. Byssan sem notuð var er ólögleg og er talin hafa verið kraftmikil. „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum aug- um því við teljum að pilturinn gæti hafa verið í lífshættu,“ segir Daníel Snorrason. „Aðferðin sem notuð var er ótrúlega ógeðfelld svo ekki sé meira sagt.“ Málið telst upplýst að mestu. Að lokinni rannsókn verður það sent ákæruvaldinu til meðferðar. Tvær byssukúlur fjarlægðar úr 17 ára pilti með skurðaðgerð Látinn afklæðast á víða- vangi og skotinn margoft Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is STOFNVÍSTALA þorsks er nú 16% lægri en hún var á síðasta ári samkvæmt niðurstöðum úr stofn- mælingu botnfiska. Af síðustu fjórum árgöngum þorsksins er aðeins einn, 2002 árgangur- inn, sem er nærri því að vera í meðallagi. Allir hinir eru lélegir eða mjög lélegir. Ýsan er hins vegar á upp- leið. Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, segir of snemmt að gera því skóna að leyfilegur heildarafli þorsks á næsta ári verði skorinn niður frá því, sem nú er. Það sé margt sem eigi eftir að taka tillit til og reikna út áður en það komi í ljós hvert stofnstærðarmatið verði endanlega. Hann segir að fátt í þessum niðurstöðum komi á óvart annað en hve lélegur árgangurinn frá síðasta ári virðist vera. Það hefði þó vissulega verið betra hefði stofnvísitala þorsksins verið hærri, en hið jákvæða væri að ýsan væri stöðugt á uppleið. Áhyggjuefni Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsókna- stofnunar, segir að lélegur árgangur 2004 sé vissu- lega áhyggjuefni og eins að meðalstórir árgangar skili sér ekki nógu vel. Að öðru leyti sé ekkert sem komi á óvart. Enn sé ekkert komið að því að segja til um hvaða áhrif þetta geti haft á úthlutun aflaheim- ilda á næsta ári, en það sé ánægjulegt að ýsan skuli vera á uppleið. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að það séu mikil vonbrigði hve árgangurinn í fyrra komi illa út. Það verði líklega til þess að við hjökkum lengur í sama farinu. Annað sé í takt við það sem hafi verið að gerast, enda hafi það verið vit- að að árgangurinn frá 2001 væri slakur. Þó hefði mátt ætla að útkoman nú hefði orðið betri í ljósi góðra aflabragða að undanförnu. Árni Bjarnason, forseti FFSÍ, segir þetta slæm tíðindi. Niðurstaðan sé á skjön við það sem sjómenn hafi verið að segja um mikla fiskgengd að undan- förnu, til dæmis í köntunum við Vestmannaeyjar. Lækkun þarf ekki að leiða til minni kvóta     3%%%  4%'   5 3    % 6!  !7 8 8 8 8 8 8      &          Stofnvístala þorsks 16% lægri en í fyrra  Nýjasti/12 FORVITNIR vegfarendur fylgjast með framkvæmdum við færslu Hringbraut- arinnar. Byrjað er að malbika við Njarð- argötu og undir brúnni við Bústaðaveg. Uppsetning á tveimur göngubrúm er sömu- leiðis langt komin. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýja Hringbrautin malbikuð NÝ STJÓRN var kjörin á aðal- fundi Sparisjóðs Hafnarfjarðar (SPH) í gærkvöldi. SPH er næst- stærsti sparisjóður landsins. Listi fráfarandi stjórnar, A-listi, hlaut þar 22 atkvæði en B-listi, undir forystu Páls Pálssonar, fram- kvæmdastjóra í Firði – verslunar- miðstöð, hlaut 23 atkvæði og sigr- aði. Stofnfjáraðilar í SPH eru 47 talsins, einn skilaði auðu og einn stofnfjáraðili mætti ekki á fund- inn. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins mátti strax greina að fundarmenn skiptust í tvær fylk- ingar og þurfti endurteknar kosn- ingar um margt sem laut að fund- inum. Báðar fylkingar sættust á að viðhafa óhlutbundna listakosn- ingu þannig að sá listinn sem sigraði fengi öll stjórnar- sæti. Á B- lista, sem sigr- aði, voru Eyj- ólfur Reynisson, Ingólfur Flyg- enring, Páll Pálsson, sem er nýr formaður stjórnar, Trausti Ó. Lárusson og Þórður Magnússon. Á A-lista frá- farandi stjórnar voru Albert Steingrímsson, Árni Grétar Finnsson, Bjarni Þórðarson, Gissur Guðmundsson og Ingvar Viktorsson. Páll Pálsson, nýr stjórnarfor- maður, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi að stjórn SPH hefði verið óbreytt lengi. Fimm stofnfjáraðilar hefðu boðið sig fram gegn lista fráfarandi stjórnar og sigrað. „Við ætlum að efla enn frekar þessa góðu, merku og sterku stofnun. Við ætlum að vinna að því að sparisjóðurinn verði áfram til, með höfuðstöðvar í Hafnarfirði, og þjóni Hafnfirð- ingum, einstaklingum jafnt sem fyrirtækjum,“ sagði Páll. Hann sagði að niðurstöður ársreikninga undanfarinna þriggja ára sýndu að rekstur sjóðsins hefði verið erfiður. Hagnaður af rekstri sjóðsins 2004 nam tæplega 406 milljónum fyrir skatta og rúmlega 319 millj- ónum króna eftir skatta. Útlán jukust um 26,3% á árinu og námu samtals 25,7 milljörðum í árslok. Heildareignir í árslok námu 38,6 milljörðum króna, samkvæmt fréttatilkynningu frá SPH. Árni Grétar Finnsson, sem sat í fráfarandi stjórn og var fundar- stjóri aðalfundarins, kvaðst óska nýrri stjórn velfarnaðar og að hún sæi til þess að sparisjóðurinn yrði áfram sjálfstæð stofnun. Matthías Á. Mathiesen var for- maður stjórnar SPH frá 1. ágúst 1958 þar til nú. Hann kvaðst hafa verið búinn að ákveða að draga sig í hlé frá stjórnarstörfum og því ekki gefið kost á sér á aðal- fundinum í gær. Matthías vildi ekki tjá sig frekar að þessu sinni. Stjórnarbylting í Spari- sjóði Hafnarfjarðar Páll Pálsson ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.