Morgunblaðið - 19.05.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 133. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Vala Matt og
Innlit/útlit
Hættir á Skjá einum og byrjar með
nýjan þátt á nýrri stöð í haust | 52
Viðskipti | Margvísleg tækifæri í Kína Efnahagslíf austan hafs og vestan
Íþróttir | CSKA Moskva sigraði Nicklaus kveður á St. Andrews
Eurovision blaðauki | Þjóðirnar aldrei fleiri Á núllinu Þín eigin stigatafla
Viðskipti, Íþróttir og Eurovision
París. AFP. | Rauður klæðnaður getur gefið
íþróttamönnum forskot í keppni, segja nið-
urstöður rannsóknar sem birtist í breska
vísindaritinu Nature í
dag. Mannfræðingar
skoðuðu árangur kepp-
enda í bardagaíþróttum
á Ólympíuleikum, þar
sem þátttakendum var
úthlutað af handahófi
annað hvort bláum eða
rauðum búningum. Í ljós
kom að í 19 af 29 þyngd-
arflokkum sigraði rauð-
klæddur keppandi. Evrópukeppnin í knatt-
spyrnu var einnig skoðuð og þar skoruðu
lið oftar og unnu frekar leiki þegar þau
kepptu í rauðum búningum.
Vísindamennirnir segja að rauður litur
sé gjarnan tengdur árásarhneigð og því
kunni þeir sem klæðast rauðu að hafa eins-
konar dulið forskot í keppni. Benda þeir á
að liturinn geti ráðið úrslitum þegar um
annars jafna keppendur ræðir.
Rauðklæddir
hafa forskot
ÁLFTAPARIÐ á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi spók-
aði sig í gær með fimm unga, nýskriðna úr eggjum.
Álftir þessar hafa átt varpstað við Bakkatjörn um
árabil og komið þar upp ungum sínum. Þrátt fyrir
nepjuna í gær naut fjölskyldan sólarinnar og virtist
ekki láta á sig fá þótt hann blési.
Morgunblaðið/Ómar
Stoltir svanir sýna ungana
FASTEIGNAVERÐ mun
hækka um 15% fram á næsta
ár en verð mun staðna árið
2007. Þetta
er meðal þess
sem fram
kemur í nýrri
spá Greining-
ar Íslands-
banka.
Ingólfur
Bender, for-
stöðumaður
deildarinnar, segir að draga
muni verulega úr hækkun
fasteignaverðs á næstunni og
að margir þættir spili þar inn í.
Þar megi meðal annars telja
að áhrif aukins lánaframboðs
muni fjara út sem og áhrif
lækkunar vaxta á langtímalán-
um. Ennfremur muni vænt-
ingar um verðstöðnun og jafn-
vel verðlækkun verða til þess
að fólk kaupi síður fasteignir
en það leiði til verðlækkunar.
Spá 15%
hækkun
fasteigna-
verðs út árið
Áframhaldandi/B2
Peking. AFP. | Matarskorturinn í Norður-Kór-
eu er að breytast í hungursneyð vegna þess
að birgðir WFP, Matvælaaðstoðar Samein-
uðu þjóðanna, eru að
verða uppurnar.
Gerald Bourke, tals-
maður WFP í Peking,
segir ástandið orðið graf-
alvarlegt enda hafi lítið
borist af matvælum frá
því í október. Vegna þess
verði aðstoðinni hætt á
næstu mánuðum við obb-
ann af þeim 6,5 milljónum
manna sem taldar eru í
mestri þörf fyrir hana.
Dreifing á matarolíu til 1,5 milljóna aldr-
aðra, barna og barnshafandi kvenna var lögð
niður í apríl. Í þessum mánuði hætta 1,2
milljónir barna og kvenna að fá ýmis matvæli
svo sem baunir. Í næsta mánuði verður 2,1
milljón forskólabarna, aldraðra og fátækra
ekki lengur gefið korn.
Norður-Kóreustjórn hefur reitt sig á er-
lendar matargjafir undanfarinn áratug. Um
tveir þriðju hlutar íbúa landsins, sem eru alls
um 23,7 milljónir, eru háðir matarúthlutun-
um stjórnvalda. Minnkuðu þau nýlega korn-
skammtinn úr 300 grömmum í 250, sem er
aðeins helmingur af daglegri þörf.
Hungrið
sverfur að
í N-Kóreu
Munaðarlaus börn í
Norður-Kóreu
♦♦♦
Kabúl. AFP. | Þekkt afgönsk sjón-
varpskona var myrt á heimili sínu í
Kabúl í Afganistan í gær. Grunur
leikur á að bókstafstrúarmenn hafi
verið að verki.
Konan hét Shaima Rezayee og
var 24 ára gömul. Hún hafði um
skeið umsjón með tónlistarþætti á
Tulo-sjónvarpsstöðinni í Afganist-
an. Tulo er ein margra sjónvarps-
stöðva í einkaeigu sem hófu rekst-
ur í Afganistan eftir fall stjórnar
talibana síðla árs 2001. Þáttur
Rezayee, sem sendur var út á degi
hverjum, minnti um sumt á þætti á
MTV-tónlistarstöðinni. Hún var
vestræn í háttum og klæðaburði og
huldi hár sitt aðeins lítillega. Rót-
tækir íslamskir klerkar fordæmdu
þáttinn með vísan til kennisetninga
bókstafstrúarmanna um siðspill-
andi, vestræn áhrif á æsku lands-
ins og fór svo að Rezayee var sagt
upp störfum í marsmánuði.
Í þau fimm ár sem talibanar
voru við völd í Afganistan var
Rezayee líkt og öðrum stúlkum
neitað um skólagöngu. Þá var hún
neydd til að klæðast jafnan
„búrku“ er hún fór út á meðal
fólks. Í viðtölum kvaðst hún vera
fulltrúi nýrra tíma í heimalandi
sínu.
Talsmaður lögreglunnar í Kabúl
sagði óþekkta menn vopnaða skot-
vopnum hafa myrt Rezayee en
kvaðst ekki hafa nánari upplýsing-
ar. Unnið væri að rannsókn máls-
ins.
Sjónvarpskona myrt í Kabúl
FJÖLMÖRG íslensk fyrirtæki, stór
og smá, hafa nýtt sér þau viðskipta-
tækifæri sem hafa gefist í Kína síð-
ustu ár. Þetta kemur glögglega
fram í ítarlegri umfjöllun um tæki-
færin í Kína í Viðskiptablaði Morg-
unblaðsins í dag.
Gott dæmi um þetta eru hjónin
Bárður Guðfinnsson og Lára Liv
Ólafsdóttir sem fyrir átta árum tóku
sig upp og fluttust frá Íslandi til
Kína til að stunda viðskipti. Stofn-
uðu þau fyrirtækið Lexus í borginni
Shanghai sem skilgreint er sem
framleiðslufyrirtæki í fatnaði og
fylgihlutum. Áður ráku þau hjónin
fataverslunina Cha Cha í Kringl-
unni. Er Lexus nú með framleiðslu í
átta verksmiðjum, þar sem fólk á
vegum Bárðar og Láru sinnir gæða-
eftirliti. Helming á móti þeim í Lex-
us eiga Guðmundur Jónsson verk-
taki, Guðmundur Ásgeirsson,
framkvæmdastjóri Nesskipa, og
Óttar Ólafsson, bróðir Láru.
Milljarðssamningur
Air Atlanta
Í tengslum við heimsókn Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta Ís-
lands, til Kína hafa nokkur íslensk
fyrirtæki gert viðskiptasamninga.
Þannig hefur Air Atlanta undirritað
samning við fyrirtækið Ameco í
Peking um viðhald og eftirlit með
flugvélum félagsins. Hefur Ameco
frá árinu 1999 séð um viðhald á
Boeing-747 vélum Air Atlanta og
fengið greiddar fyrir það 34 millj-
ónir dollara, eða 2,2 milljarða króna.
Andvirði samningsins nú, sem gildir
í eitt ár, er 15 milljónir dollara, eða
um einn milljarður króna.
Í Viðskiptablaði Morgunblaðsins
í dag er rætt við sölustjóra Ice-
landair í Kína, Judy Cao, sem hefur
það hlutverk að beina straumi kín-
verskra ferðamanna á norðurslóðir.
Hefur það gengið mjög vel en sex
þúsund kínverskir ferðamenn heim-
sóttu Ísland á síðasta ári. Cao segir
Kínverja kunna að meta náttúru og
sögu Íslands.
Að sögn James T. Liu, yfirmanns
skrifstofu Eimskips í borginni
Qingdao í Shandong-héraði, þar
sem tíu manns starfa, eru miklir
vaxtarmöguleikar í Kína. Eimskip
hefur áform um að opna fleiri skrif-
stofur, fyrst í borginni Dalian í júní
og í Suður-Kóreu í lok ársins. Liu
segir að Eimskip muni hafa milli-
göngu um flutninga á tvö þúsund
gámum á mánuði frá júlí og fram í
nóvember á þessu ári.
Í sömu byggingu í Qingdao og
Eimskip er með skrifstofu í eru
keppinautarnir í Samskipum með
sína umboðsskrifstofu. Liu Wei hjá
Samskipum segir mikið svigrúm til
að þróa viðskipti í Kína og fyrirtæk-
inu hafi vegnað þar vel.
Íslensk hjón með fram-
leiðslu í átta verksmiðjum
Vaxandi umsvif íslenskra fyrir-
tækja á ýmsum sviðum í Kína
Tækifærin í Kína/Viðskipti